Morgunblaðið - 27.01.2011, Síða 14
bílar Hyundai sýndi á dögunum fyrstu myndirnar af nýjuflaggskipi í Evrópu sem mun hljóta nafnið i40. Þessinýi bíll, sem kynntur verður á bílasýningunni íGenf í mars nk. Í þessum nýja bíl er mikið lagt uppúr búnaði og frágangi. Fyrst um sinn verður i40einungis fáanlegur í station-útfærslu en seinna
kemur hefðbundin fernra dyra útfærsla.
Hyundai í Evrópu
Frumsýna flaggskip
Skv. tölum Umferðarstofu sem birtar voru sl.
föstudag, 21. janúar, höfðu 222 nýir bílar ver-
ið skráðir á árinu samanborið við 156 á sama
tímapunkti í fyrra. Það er 42% aukning. Þá
höfðu 3.729 bílar skipt um eigendur, sem er
aukning um 28%.
„Ég vona að þessar tölur séu vísbending
um að markaðurinn sé að glæðast þó ég sjái
engin ákveðin merki um slíkt enn sem komið
er. Fjölgun tilkynninga um eigendaskipti segir
ekki alla söguna, getur t.d. verið vegna lúkn-
ingar lánasamninga eða slíks. Breyting á
vörugjöldum bifreiða sem tók gildi um ára-
mót mun breyta markaðnum í fyllingu tím-
ans,“ segir Ástmar Ingvarsson fram-
kvæmdastjóri Bílaborgar.
sbs@mbl.is
Bílasala glæðist, skv. tölum
Fleiri nýir og meira
um eigendaskipti Verkefnið er fjölþætt. Við teljum aðmeð því skapist þekking til smíði ognotkunar rafbíla á Íslandi sem munaukast í framtíðinni,“ segir Gunnar
Örn Runólfsson nemi í viðskiptafræði við Há-
skóla Íslands. Hópur þrjátíu nemenda úr verk-
fræðideild og viðskipta- og hagfræðideildum
HÍ vinnur um þessar mundir að hönnun og
smíði rafmagnsbíls sem verður tilbúinn í vor.
Öðlast þekkingu á orkugjöfum
Nemendur hafa hannað og smíðað bílinn í
frítíma sínum, það er utan hefðbundins náms.
Markmið verkefnisins er öðrum þræði að þeir
öðlast þekkingu á mismunandi orkugjöfum og
bílahönnun. Að sögn Gunnars Arnar hefur
verkefni þessu verið sýndur nokkur áhugi er-
lendis. Má þar nefna norska rafbílaframleið-
andann Think. Hefur háskólahópnum sem
vinnur við hönnun og smíði rafbílsins staðið til
boða að heimsækja höfuðstöðvar Think og
kynna sér framleiðsluna þar.
„Fjölmörg íslensk fyrirtæki hafa lagt okkur
lið, m.a. með þekkingu starfsmanna sinna. Þar
nefni ég til að mynda Össur en þar á bæ er til
staðar mikil þekking á kolefnatrefjum sem nýt-
ist við hönnun og smíði bílsins. Þá höfum við
fengið stuðning frá Rannís og Evrópusam-
bandinu sem er afar mikils virði. Einnig nefni
ég vélaverkstæði Egils þar sem við höfum að-
stöðu til að smíða bílinn,“ segir Gunnar Örn.
Farið verður næsta sumar með rafbílinn
góða í keppni háskólastúdenta frá fjölmörgum
löndum. Keppnin verður haldin í Bretlandi – á
Silver Stone brautinni þar sem margar þekkt-
ustu lotur Formúlunnar hafa verið háðar. Í
kjölfarið verður komið heim með bílinn og
hann hafður til hliðsjónar í frekara starfi innan
HÍ við þróun nýrra bíla. Bíllinn verður með því
grunnur að hönnun og smíði þess næsta og
þannig verður þekkingar aflað.
Íslendingar blandi sér í leikinn
„Markmið verkefnisins er að hjálpa til við að
leggja grunninn á Íslandi fyrir frekari rann-
sóknir á mismunandi orkugjöfum. Erlendir
bílaframleiðendur og stjórnvöld eyða miklum
fjármunum til þróunar tækja á sviði orkugjafa.
Er markmið þessa verkefnis að Íslendingar
geti blandað sér í þann leik. Við viljum afla
þekkingar og reynslu við hönnun og smíði á
rafknúnu ökutæki. Til að koma þessu spenn-
andi verkefni í farveg og tryggja því framtíð
þurfum við t.d. samstarf við fyrirtæki í bíl-
greininni,“ segir Gunnar Örn Runólfsson.
sbs@mbl.is
Verkfræði- og viðskiptanemar í Háskóla Íslands þróa og smíða rafbíl
Morgunblaðið/Kristinn
Háskólanemarnir með frumhönnun rafbílsins sem verður tilbúinn í vor. Á myndinni eru frá vinstri,
Gunnar Örn Runólfsson, Arnar Freyr Lárusson, Einar Hreinsson og Alexandra Dögg Sigurðardóttir
Bílasmíðin er framlag til
nýtingar nýrra orkugjafa
Ferrari kynnti nýjan bíl til sögunnar í vikunni, sem markar tímamót í sögu ítalska sport-
bílasmiðsins. Verður það fyrsti fjórdrifsbíllinn í sögu Ferrari. Eðalvagninn hefur fengið teg-
undarheitið Ferrari FF en skammstöfunin stendur fyrir fjögur sæti og fjórdrif. Leysir hann
af hólmi hinn fjögurra sæta Ferrari 612 Scaglietti, sem smíði verður hætt á.
FF verður knúinn 12 strokka, 6,3 lítra, 651 hestafls v-vél með beinni innspýtingu. Kraft-
urinn er í meira lagi því gefið er upp að bíllinn komist úr kyrrstöðu í 100 km/klst hraða á
3,7 sek. Hámarkshraði verður 335 km/klst.
Bíllinn kemur í fyrsta sinn fyrir almennings sjónir á bílasýningunni í Genf í marsmánuði.
Ferrari fer einnig inn á ótroðnar slóðir með laginu en í útliti er bíllinn eins og vefskytta,
lögun sem á ensku nefnist
„shooting brake style“. Má
segja að þar sé um að ræða
blöndu af tvennra dyra bíl
og langbak.
agas@mbl.is
Ferrari smíðar fjórdrifsbíl
Eðalvagn sem markar tímamót
Chevrolet Volt hefur verið valinn bíll ársins
2011 vestanhafs – og er fyrsti rafbíllinn sem
nær þessari viðurkenningu. Þetta er nið-
urstaða dómnefndar sem skipuð er nærri
fimmtíu bílablaðamönnum sem starfa við
blöð, net og ljósvaka.
„Volt gæti umbylt bílaiðnaðinum. Tilkoma
þeirrar einstöku tækni sem Voltinn byggist á
breytir ekki aðeins hvers konar bílum við
munum aka í framtíðinni heldur einnig hvern-
ig við komum til með að umgangast náttúr-
una,“ segir Dan Akerson, stjórnarformaður
GM. Að undanförnu hefur Chevrolet Volt
fengið fleiri viðurkenningar í Bandaríkjunum
en bíllinn er væntanlegur á Íslandsmarkað
síðar á árinu.
sbs@mbl.is
Bíll ársins vestanhafs 2011
Voltinn fær
viðurkenningu