Morgunblaðið - 31.01.2011, Síða 2

Morgunblaðið - 31.01.2011, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2011 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Íslandsmeistaramótið í bekkpressu fór fram um helgina á Akranesi. Íslandsmeistari kvenna varð María Guðsteinsdóttir úr Ármanni en hún keppir í -72 kg. flokki. 95 kíló voru á stönginni sem hún lyfti og setti hún í leiðinni Íslandsmet í sín- um flokki. Annað Íslandsmet var sett í kvennaflokki. Þar var að verki Erla Ragnarsdóttir sem keppir í -63 kg. flokki. Hún lyfti 80,5 kílóum. Alls féllu 12 Íslandsmet á mótinu, eitt þeirra átti Íslands- meistarinn í karlaflokki Fannar Dagbjartsson. Fannar sem keppir í -120 kg. flokki var með 250 kíló á stönginni þegar mest var og tryggði sér með því bæði titilinn og Íslandsmetið. Þess má geta að hann er sjálfur rétt rúm 118 kíló. Þyngsti keppandinn 134 kíló Það var aðeins einn keppandi sem var þyngri en Fannar á þessu móti. Hann heitir Sigfús Helgi Kristinsson og setti hann einnig Ís- landsmet, í unglingaflokki, með því að lyfta 205 kílóum. Greinilega mikið efni þar á ferðinni í þessum rúmlega 134 kílóa dreng. Frábær árangur hjá þessum kraftajötnum. Fannar og María keppa bæði fyrir Ármann og svo fór að lið Ármanns tryggði sér liðabikarinn sem af- hentur er til besta bekkpressuliðs- ins. Mótið þótti takast mjög vel í alla staði en umsjá mótsins var í hönd- um Kraftlyftingafélags Akraness. Fjölmargir áhorfendur lögðu leið sína til Akraness og þá var Hörður Magnússon kraftlyftingadómari heiðraður í mótslok fyrir starf sitt í þágu íþróttarinnar. omt@mbl.is Kílóin fuku upp á Akranesi Meistari María Guðsteinsdóttir, lengst til vinstri, varð Íslandsmeistari í kvennaflokki á Íslandsmótinu í kraftlyfingum sem haldið var um helgina. Á VELLINUM Stefán Stefánsson ste@mbl.is „Mér fannst ógeðslega gaman að vera með og þó ég hafi samkvæmt læknisráði bara mátt spila í korter í sókninni var það þess virði og ekki leiðinlegra að skora sigurmarkið,“ sagði Stella Sigurðardóttir sem skor- aði sigurmark Fram í 25:24 sigri á Stjörnunni í Mýrinni í Garðabæ á laugardaginn þegar fram fór topp- slagur í N1-deild kvenna. Með sigrinum styrktu Framkonur stöðu sína á toppi deildarinnar og eru komnar með 24 stig eftir 13 leiki, Valskonur eru með 22 stig eftir 22:35 sigur á HKí Digranesi en eiga leik til góða eins og Stjarnan í þriðja sæti með 20 stig. Fylkir heldur fjórða sæti deildarinnar eftir 26:20 sigur á FH í Árbænum og í Eyjum vann ÍBV botnlið ÍR 31:21. Leikur Stjörnunnar og Fram í Garðabænum var skrautlegur. Eftir jafna byrjun komst Fram í 6:10 með þremur mörkum Guðrúnar Þóru Hálfdánsdóttur úr hraðaupphlaupum en þegar Garðbæingar skoruðu tíu mörk gegn þremur í seinni hálfleik var Stjarnan komin með sex marka forskot, 23:17. Þá tók Einar Jónsson, þjálfari Fram, leikhlé og það skilaði sínu, næstu sex mörkum leiksins. Jóna Margrét Ragnarsdóttir, sem var markahæst hjá Stjörnunni með 9 mörk, kom sínu liði í 24:23 en Marthe Sördal jafnaði áður en Stella tryggði Fram sigur. Stella sagði Einar þjálfara ekki hafa verið með nein læti þegar hann tók þetta árangursríka leikhlé. „Ætli þetta hafi ekki verið kæruleysi hjá okkur, við vorum fjórum mörkum yfir í fyrri hálfleik og í leikhléinu spurði Einar þjálfari okkur hvort við vildum vera með í leiknum eða ekki, því Stjarnan hafði unnið upp forskot okk- ar og gott betur. Við höfðum þá spilað hræðilega vörn þar til hann tók leik- hléið og þurftum við bara að spila góða vörn og um leið og vörnin ásamt markvörslunni kom til gekk þetta hjá okkur,“ bætti Stella við. Hún hefur verið lengi frá, spilaði síðast 23. nóvember þegar hún datt úr lið á öxl og það blæddi mikið inn á liðinn. „Ég held að ég verði bara gráðugri í að vinna titil enda sér mað- ur hvað það er leiðinlegt að missa svona mikið úr, svo ég vil leggja mig alla fram núna og það er þess virði til að klára tímabilið með sæmd. Það er mjög leiðinlegt og erfitt að þurfa að horfa úr stúkunni, ég svitna líklega meira þar út af stressi en að vera inni á svo það er gaman að koma aftur. Það má segja að ég hafi verið eins og kálfur á vorin enda hef ég verið óð í að skjóta á æfingum og stelpurnar örugglega hundleiðar á mér. Ég var farin að hlakka til að spila aftur og klæja í puttana eftir að hafa misst af sex leikjum í deildinni. Ég er öll að koma til en hef samt ekki spilað í vörn ennþá og þar sem meiðslin eru á vinstri öxl get ég alveg skotið en ég verð örugglega orðin alveg góð í Evr- ópuleikjunum um næstu helgi.“ Deildin er nokkuð skipt þar sem Stjarnan er rétt á eftir Fram og Val á toppnum. „Ég held að leikur okkar við Val í mars verði úrslitaleikurinn í deildinni og þó við höfum spilað við öll toppliðin þurfum við auðvitað að vinna alla okkar leiki fram að því. Okkur hefur gengið ágætlega að halda einbeitingu gegn öllum mót- herjum okkar hingað til og förum í alla leiki til að vinna,“ sagði Stella. Sólveig Björk Ásmundsdóttir varði oft mjög vel fyrir Stjörnuna og þá náðu félagar hennar yfirtökunum svo hún var ekki sátt við niðurstöðuna. „Það var hræðilegt að við skyldum ekki geta gert út um leikinn og svo vorum við auk þess óheppnar með skot þegar boltinn fór í stöng og út í stað þess að fara í stöng og inn því þá hefðum við getað byggt upp meira forskot. Við höfðum svar við öllu sem Fram gæti gert því við höfum und- irbúið okkar vel með því að skoða leik Framara mjög vel en það er hausinn sem klikkar í lokin, þá fer að ganga illa og kemur fát á liðið. Það var fúlt að tapa aftur svona leik gegn Val þeg- ar við vorum með leikinn í hendi okk- ar,“ sagði Sólveig Björk eftir leikinn en hún varði 13 skot. Eins og kálfur á vorin og skoraði sigurmarkið  Stella Sigurðardóttir kom úr meiðslum og tryggði sigur Fram á Stjörnunni Morgunblaðið/Ómar Sigurmarkið Stella Sigurðardóttir eru hér að brjótast í gegnum vörn Stjörnunnar og skora sigurmark Framara. Íslandsmeist-arar Vals áttu ekki í vandræðum með að leggja HK að velli en liðin áttust við í Digra- nesi. Valur vann 13 marka sigur, 35:22. Brynja Magnúsdóttir var markahæst í liði HK með 5 mörk en hjá Íslandsmeisturunum voru þær Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Íris Ásta Pétursdóttir markahæstar með 6 mörk hvor. Íslandsmeist- ararnir fóru mikinn í leiknum og tólf leikmenn komust á blað yfir marka- skorara í leiknum.    Fylkir hafði betur gegn FH,26:20, í N1-deild kvenna en lið- in áttust við í Árbænum. Sunna María Einarsdóttir skoraði 8 mörk fyrir Fylkiskonur og Sunna Ein- arsdóttir skoraði 6. Hjá FH-ingum var Heiðdís Guðmundsdóttir markahæst með 7 mörk.    ÍEyjum hafði ÍBV betur gegn ÍR,31:21. Þórsteina Sigurbjörns- dóttir skoraði 7 mörk fyrir Eyjakon- ur og Ester Óskarsdóttir skoraði 4. Sif Jónsdóttir var atkvæðamest hjá ÍR-ingum með 7 mörk.    ÍBV hafði beturgegn Fjölni, 32:29, í Eyjum. Vignir Stef- ánsson skoraði 10 mörk fyrir Eyja- menn en hjá Fjölnismönnum var Óttar Stein- grímsson at- kvæðamestur með 8 mörk. Gísli Jón Þórisson lék sinn fyrsta leik með ÍBV en hann er í láni frá Haukum og þá lék Sigurður Bragason sinn fyrsta leik á tímabilinu en hann hef- ur verið frá vegna meiðsla.    Lærisveinar Patreks Jóhannes-sonar í þýska 2. deildarliðinu Emsdetten unnu í fyrrakvöld góðan útisigur á Bad Schwartau, 27:24, á útivelli. Fannar Þór Friðgeirsson átti stórleik fyrir Emsdetten og skoraði 9 mörk, Sigfús Sigurðsson var eins og klettur í vörninni og Hreiðar Leví Guðmundsson, ný- kominn frá heimsmeistaramótinu, kom inná í vítaköstunum og varði tvö.    Króatinn Ivica Kostelic sigraði íalpatvíkeppni á heimsbik- armóti í Chamonix í Frakklandi um helgina og tryggði kappinn sér þar með sigur í greininni enda verið sig- ursæll í henni í vetur. Eftir brunið var hann í 24. sæti en hann er sterk- ur í sviginu og náði bestum tíma þar. Annar varð landi hans Dim Natko Zrncic og Aksel Lund Svindal frá Noregi varð þriðji. Fólk sport@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.