Morgunblaðið - 31.01.2011, Page 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2011
Hollending-urinn Mark
van Bommel lék
sinn fyrsta leik
með AC Milan í
fyrrakvöld þegar
liðið lagði Cat-
ania, 2:0, í ítölsku
A-deildinni. Það
byrjaði ekki
gæfulega hjá Bommel því hann fékk
að líta rauða spjaldið snemma í seinni
hálfleik í stöðunni 0:0. Bommel, sem
kom til Mílanóliðsins frá Bayern
München í síðustu viku, fékk tvær
áminningar á níu mínútna kafla og
þurfti að yfirgefa völlinn. Brottrekst-
urinn varð bara til að þjappa liði AC
Milan saman því Robinho og Zlatan
Ibrahimovic tryggðu liðinu stigin
þrjú.
Veigar Páll Gunnarsson og GillesOndo skoruðu öll mörk norska
knattspyrnuliðsins Stabæk sem vann
sænska liðið Örebro 4:2 í æfingaleik
liðanna í fyrradag. Veigar var heldur
betur á skotskónum en hann skoraði
þrjú mörk og Ondo, sem spilaði með
Grindvíkingum í Pepsi-deildinni á
síðasta tímabili og varð markakóng-
ur deildarinnar skoraði eitt.
Helena Sverrisdóttir skoraði 8stig fyrir TCU þegar liðið tap-
aði sínum öðrum leik í röð í banda-
rísku háskóladeildinni, 60:55. Helena
lék í 33 mínútur og auk stiganna átta
sem hún skoraði átti hún 6 stoðsend-
ingar, tók eitt frákast og stal einum
bolta.
Enski kylfingurinn Paul Caseysigraði á Volvo-meistaramótinu
í Bahrain um helgina. Hann lék á 20
höggum undir pari í heildina en þeir
Peter Hanson frá Svíþjóð og Spán-
verjinn Miguel Angel Jimenez voru
höggi þar á eftir. Casey skellti niður
tveggja metra pútti á síðustu flötinni
og fagnaði vel enda var keppnin bæði
jöfn og spennandi. Tæp tvö ár eru
síðan Casey sigraði síðast á Evr-
ópumótaröðinni.
Adam Johnsonkantmað-
urinn skæði í liði
Manchester City
verður frá keppni
næstu þrjá mán-
uðina vegna
meiðsla í ökkla.
Johnson reif lið-
band í ökklanum
á æfingu Man-
chester-liðsins fyrir helgina og í gær
tjáði Roberto Mancini, knatt-
spyrnustjóri liðsins, fréttamönnum
að leikmaðurinn yrði ekki með næstu
mánuðina.
Gríski sóknarmaðurinn AngelosCharisteas gekk í gær til liðs
við þýska liðið Schalke og samdi við
liðið út tímabilið. Charisteas, sem
varð markakóngur á EM 2004, hefur
ekki verið með neinu liði síðan
franska liðið Avignon rifti samningi
við hann í nóvember.
Fólk sport@mbl.is
VIÐTAL
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
Afmælismót Júdósambands Ís-
lands og seinni hluti bikarkeppn-
innar fór fram um næstliðna helgi.
Afmælismótið er annað stærsta jú-
dómót ársins. Í bikarkeppninni
voru hinsvegar fimm lið eftir í
keppninni en fimm menn skipa
hvert lið. Þar var hart barist eins
og vænta má í júdói en að lokum
stóð sveit JR uppi sem sigurvegari.
Í öðru sæti var sveit Ármanns.
Þormóður Árni Jónsson tók þátt á
mótinu en hann stefnir ótrauður á
Ólympíuleikana í London á næsta
ári. Þormóður vann sinn flokk sem
er +100 og gerði það með nokkrum
yfirburðum.
„Þetta er fyrst og fremst æf-
ingamót fyrir mig, ég lít allavega á
það sem slíkt. Ég er að fara út til
Parísar um næstu helgi og Ung-
verjalands eftir það,“ segir Þor-
móður sem hefur mikla yfirburði í
karlaflokki hér á landi. „Þetta var
fyrsta mótið eftir áramót og því var
þetta bara svona eins og æfinga-
leikur, án þess að gera lítið úr hin-
um keppendunum.“
Prufukeyra nýja hluti
Þormóður segist hafa notað
þetta mót til að skerpa á sínum leik
en mikilvægir tímar eru fram-
undan fyrir þennan öfluga og
sterka júdómann. „Ég var að fiska
eftir ákveðnum atriðum, sér-
staklega taktískum hlutum. Ég er
búinn að vera að vinna í því frá því
á síðasta móti. Það er erfitt að út-
skýra það en þetta var prufu-
keyrsla á hlutum sem ég er búinn
að æfa mikið að undanförnu.
Það er mjög mikilvægt fyrir mig,
fyrir þessi mót, en í París er ég að
fara að keppa á móti sem heitir
París grand slam. Það eru sterk-
ustu mótin en það eru aðeins fjög-
ur grand slam mót á hverju ári.
Þetta eru sterkustu mótin fyrir ut-
an heimsmeistaramótin og Ólymp-
íuleikana.“
Kapphlaup sem byrjar núna
Til að tryggja sig á Ólympíu-
leikana þarf hann að vera duglegur
að keppa á sem flestum mótum til
að tryggja sér stig, með góðum ár-
angri, sem síðar tryggja honum
þáttökurétt á leikunum.
„Þetta er kapphlaup sem ég er
að byrja núna um næstu helgi. Það
kapphlaup er langt eða þangað til í
apríl 2012 og þá skýrist hverjir
komast á Ólympíuleikanna. Ég
verð að sjálfsögðu að vera bjart-
sýnn á að komast þangað og verð
mikið að keppa næsta árið.
Þormóður segir að vinna þurfi
með styrkleikanum og vinna á
veikleikunum til að ná árangri. „Ég
hef alltaf haft yfirburða líkamlega
getu miðað við mótherjana. Ég er
sterkari, fljótari og með meira út-
hald miðað við aðra þungaviktara.
Svo hef ég einnig góða tilfinningu
fyrir sóknum andstæðinganna,
þannig að ég get komið með mót-
brögð. Auðvitað hef ég líka veik-
leika en það eru e.t.v. grunnatriðin í
júdó. Ég hef oft verið skammaður
fyrir að vera ekki með þau upp á
tíu. Það er eitthvað sem ég er búinn
að vera að leggja áherslu á og það
er að batna. Svo hefur sjúkraþjálf-
arinn verið að hjálpa mér með að fá
meiri liðleika.“
Efnilegust og best
Þormóður segir mikið af efnileg-
um íþróttamönnum í greininni. „Það
er mjög erfitt að sjá hvort menn eru
efnilegir fyrr en þeir eru orðnir
svona 20 til 22 ára. En það er alveg
fullt af strákum að koma upp. Ég
nefni til dæmis Birgi Ómarsson sem
vann 90 kg flokkinn. Hann er mjög
efnilegur og svo Hermann Unn-
arsson sem er að fara með mér til
Parísar. Hann tók reyndar ekki
þátt að þessu sinni vegna smávægi-
legra meiðsla. Hjá stelpunum er
hægt að nefna Önnu Soffíu sem er
mikið efni og svo Helgu sem var
valin júdókona ársins í fyrra. Hún
er líklega efnilegust og best af
stelpunum. Það gekk þó ekki alveg
sem skyldi hjá henni um helgina
enda fékk hún heilahristing fyrir
skömmu en var samt með.
Sterkari og fljótari
Veikleikinn er grunnatriðin í júdó Erfitt að sjá hvort menn eru efnilegir
Morgunblaðið/Ómar
Átök Þorvaldur Blöndal hefur hér greinilega betur á móti Ægi Valssyni.
Morgunblaðið/Ómar
Barátta Sigurður Eyvald Reynisson og Garðar Arason
eigast hér við.
Morgunblaðið/Ómar
Slagur Birgir Ómarsson og Þór Davíðsson taka vel á
hvor öðrum.
Japan var fyrst allra knattspyrnuliða til að
vinna Asíukeppnina fjórum sinnum þegar
liðið vann Ástrala í úrslitaleiknum sem
fram fór í fyrradag. Leikurinn var jafn og
spennandi en úrslitin réðust í seinni hálf-
leik framlengingar.
Tadanari Lee skoraði markið mikilvæga
á 109. mínútu. Ástralía átti sannarlega sín
færi í leiknum og komst Harry Kewell með-
al annars einn á móti markverði Japana en
honum tókst ekki að koma boltanum í net-
ið.
Suður-Kórea tryggði sér 3. sætið með 3:2
sigri á Úsbekistan.
Japan vann keppnina 1992, 2000 og 2004
en með sigri á þessu móti
tryggði liðið sér sæti í
álfukeppninni sem fram
fer í Brasilíu árið 2013.
„Þetta er frábær sigur.
Við höfum á að skipa frá-
bæru liði. Það er samhent
og að vinna úrslitaleik
gegn svona sterku liði er
stórkostlegt. Við bættum
okkur jafnt og þétt í
keppninni og þetta lið á
framtíðina fyrir sér,“ sagði Alberto Zacc-
heroni, landsliðsþjálfari Japana, eftir leik-
inn.
Japanir meistarar í fjórða sinn
Albert Zaccheroni.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni
stóð sig mjög vel á Meistaramóti Íslands í
frjálsum íþróttum sem fór fram um helgina.
Helga Margrét sem keppir í unglingaflokki
stórbætti sig í tveimur greinum. Fyrst í kúlu-
varpi, þegar hún kastaði kúlunni 14,99 metra
en áður átti Helga Margrét best 14,87 metra.
Með þessu kasti setti Helga Margrét Ís-
landsmet í flokki ungkvenna, 20-22 ára. Hún
bætti sig einnig persónulega í 60 metra grinda-
hlaupi en þar hljóp hún á 8,69 sekúndum en
best átti hún 8,73 sekúndur.
Árangur hennar lofar góðu fyrir framtíðina
en ljóst er að Helga Margrét er í mjög góðu
formi en þessi árangur hennar í kúluvarpinu er
á heimsmælikvarða fyrir 19
ára sjöþrautarkonu. Þá sýn-
ir hún stöðugleika í 60
metra grindahlaupinu. Einu
áhyggjurnar sem Helga
Margrét þarf að hafa er af
langstökkinu en þar var hún
nokkuð frá sínu besta.
Helga tekur næst þátt á
Meistaramótinu innanhúss í
Norrköping í Svíþjóð um
miðjan febrúar. Þá tekur
hún þátt í Evrópumóti ungkvenna í sjöþraut í
sumar. omt@mbl.is
Mikil bæting í kúluvarpi hjá Helgu
Helga Margrét
Þorsteinsdóttir