Morgunblaðið - 31.01.2011, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2011
Spánverjar sem urðu heimsmeistarar
árið 2005 í Túnis þurftu að láta sér
lynda 3. sætið á heimsmeistaramótinu
í handknattleik sem lauk í Svíþjóð í
gær. Þeir unnu gestgjafana 24:23 í
æsispennandi leik en staðan í hálfleik
var 11:11. Johan Sjöstrand, mark-
vörður Svía, var frábær í fyrri hálfleik
en aðeins fjaraði undan leik hans í
seinni hálfleik. Að sama skapi tók þá
Arpad Sterbik, markvörður Spán-
verja, við sér í þeim síðari og leiddi
liðið til sigurs.
Spænska liðið byrjaði betur en Svíar komust hægt og
rólega inn í leikinn og náðu mest þriggja marka forustu,
16:13. Á stuttum kafla skoruðu Spánverjar hinsvegar 6
mörk gegn engu heimamanna og breyttu stöðunni í
16:19. Lokakaflinn var spennuþrunginn en þegar 40 sek-
úndur voru eftir skoraði Jonas Lärholm fyrir Svía og
minnkaði muninn í 24:23. Spánverjar héldu boltanum allt
til enda án þess að ógna marki Svía og fögnuðurinn var
Spánverja í lokin.
Spánverjar töpuðu aðeins einum leik á mótinu, gegn
Dönum í undanúrslitum og gerðu eitt jafntefli við
Frakka í riðlakeppninni. Svíar töpuðu hinsvegar fjórum
leikjum á mótinu, gegn Argentínu, Dönum, Frökkum í
undanúrslitum og nú síðast bronsleiknum fyrir Spán-
verjum.
Þetta voru fyrstu verðlaun Spánverja á heimsmeist-
aramóti síðan í Túnis en næsta heimsmeistaramót verð-
ur haldið á heimavelli bronsverðlaunahafanna í janúar
2013. omt@mbl.is
Spánverjar nældu sér í bronsið
Arpad
Sterbik
Þjálfarar Spánverja og Sv
anna um bronsverðlaun h
fyrir það voru Spánverjar
„Þetta var erfiður leikur
inn hvolft þá er ég ánægð
börðust allt til enda og re
lokum voru það Spánverj
Staffan Olsson, annar þjá
upp hvort samningur han
urnýjaður, slíkar umræðu
Valero Rivera, þjálfari
að baki þessum árangri. „Þetta var leikur tv
út um leikinn, en ég verð að segja að leikuri
vörslu markvarðanna. Ég er algjörlega sátt
um lagt mikið á okkur síðastliðin tvö ár til a
móti.“ omt@mbl.is
Liðið barðist allt
Valero Rivera
UMFJÖLLUN
Ólafur Már Þórisson
omt@mbl.is
Frakkar tryggðu sér nauman sigur á
Dönum í gær, 37:35, í úrslitaleik heims-
meistaramótsins í handknattleik eftir
framlengdan leik. Um leið tryggðu þeir
sér sæti á Ólympíuleikunum í London
2012 og HM 2013 á Spáni. Frakkar eru
fyrsta þjóðin til að verja heimsmeist-
aratitilinn í handknattleik síðan Rúm-
enar gerðu það árið 1974. Þeir hafa
unnið fjögur síðustu stórmót, Ólympíu-
leikana 2008, HM í Króatíu 2009, EM í
Austurríki 2010 og nú síðast HM í Sví-
þjóð 2011. Aðeins Svíar og Rúmenar
hafa náð því afreki.
Það virðist ekki vera nokkur þjóð
sem getur velt þeim af stalli sem bestu
handknattleiksþjóð heims, en síðasta
liðið til að vinna Frakka á stórmóti var
einmitt Danir þegar þeir tryggðu sér
Evrópumeistaratitilinn í Noregi 2008.
Hansen allt í öllu hjá Dönum
Frakkar byrjuðu þennan leik betur
og komust fljótt í 2:0, sá munur hélst að
mestu en sóknarleikur Dana var of ein-
hæfur þar sem mikil ábyrgð var sett á
Mikkel Hansen. Hann stóð þó að mestu
undir henni. Frakkar höfðu 15:12 for-
ustu í hálfleik. Í þeim síðari hélst þessi
2-3 marka munur og Frakkar virtust
hafa leikinn í hendi sér. Danir náðu þó
að jafna 29:29 og 3 mínútur til leiks-
loka. Þegar um ein mínúta var eftir
kom Nikola Karabatic, besti leikmaður
mótsins, Frökkum í 31:30 og útlitið
ekki gott fyrir Dani. Bo Spelleberg tók
þá til sinna ráða og tryggði Dönum
framlengingu með skoti utan af velli í
þann mund sem tíminn rann út.
Reynslan meiri hjá Frökkum
Í framlengingunni sýndu Frakkar af
hverju þeir hafa unnið 4 síðustu stór-
mót. Þeir spiluðu agað og skynsamlega
á meðan taugatitrings gætti hjá Dön-
um þrátt fyrir að hafa náð forustu 32:33
í fyrsta og eina skiptið í leiknum. Áð-
urnefndur Bo Spelleberg tapaði bolt-
anum á ögurstundu fyrir Dani þegar 2
mínútur voru eftir og Frakkar með
eins marks forskot. Meistararnir létu
ekki bjóða sér það tvisvar og Jérome
Fernandez innsiglaði sigur Frakka
með 2 af síðustu 3 mörkum liðsins.
Nikola Karabatic var yfirburðamað-
ur í franska liðinu en hann skoraði 10
mörk og lagði enn fleiri upp fyrir félaga
sína. Thierry Omayer varði ekki mörg
skot en þau sem hann varði komu á
mikilvægum augnablikum, sérstaklega
í framlengingunni.
Skyttan Mikkel Hansen, sem er að-
eins 22 ára gamall, var besti maður
Dana með 10 mörk. Þá var Niklas
Landin Jacobsen, markvörður þeirr
frábær. Hann varði 21 skot þar af 2
Okkar versti leikur í 2 ár
„Danir spiluðu mjög vel, en sigur
er okkur mjög mikilvægur,“ sagði J
rome Fernandez eftir sigur sinna
manna við danska fjölmiðla. „Þetta
líklega okkar versti leikur í 2 til 3 ár
Danmörk er með mjög gott lið og þa
er gott að þeir fái silfurmedalíuna. Í
dag vorum við þó aðeins betri en Da
ir.“
Ulrik Wilbek, þjálfari Dana, bar s
vel eftir leikinn þrátt fyrir grátlegt
„Við spiluðum frábært mót. Töpuðu
ekki leik, í venjulegum leiktíma, á
mótinu. Við töpuðum úrslitaleiknum
gegn besta liði heims og sönnuðum
við erum á sama stalli og Frakkar.
Frakkarnir eru hinsvegar með reyn
ara lið, en ég vona að við mætumst í
fleiri úrslitaleikjum í framtíðinni.“
Claude Onesta tók undir þessi orð
Wilbeks. „Ég verð að þakka Dönum
fyrir frábæran handboltaleik. Bæði
spiluðu mjög vel. Og ég er sammála
rik Wilbek, við munum spila fleiri úr
slitaleiki í framtíðinni.“
Reut
Meistarar Frakkar ráða sér ekki fyrir kæti eftir hafa verið krýndir heimsmeistarar í handknattleik. Þeir hafa nú unnið fjögur stórmót í röð.
Óstöðvandi Frakkar
Frakkar öruggir á Ólympíuleikana og HM 2013 Búnir að vinna 4 stórmót í röð
Fernandez segir Frakka hafa spilað sinn versta leik í 2 til 3 ár, þrátt fyrir sigur
Handbolti
» Frakkar hafa nú unnið fjögur
stórmót í röð. Þeir urðu ólympíu-
meistarar árið 2008 eftir sigur á
Íslendingum í úrslitaleik í Peking.
Þeir urðu heimsmeistarar í Króat-
íu árið 2009, Evrópumeistarar í
Austurríki í fyrra og nú heims-
meistarar.
» Frakkar hafa unnið heims-
meistaratitilinn fjórum sinnum,
1995, 2001, 2009 og 2011.
Úrslitaleikirnir
Gull:
Frakkland – Danmörk ..........................37:35
Eftir framlengingu.
Markahæstir hjá Frökkum: Nikola Karab-
atic 10, Michael Guigou 7, Jerome Fern-
andez 5, Luc Abalo 5, Bertrand Gille 4.
Xavier Barachet 3.
Markahæstir hjá Dönum: Mikkel Hansen
10, Lars Christiansen 5, Bo Spellerberg 4,
Hans Lindberg 3, Jesper Nöddesbo 3, And-
ers Eggert 3.
Brons:
Svíþjóð – Spánn .....................................23:24
Lokaröð liðanna á HM
1 Frakkland
2 Danmörk
3 Spánn
4 Svíþjóð
5 Króatía
6 ÍSLAND
7 Ungverjaland
8 Pólland
9 Noregur
10 Serbía
11 Þýskaland
12 Argentína
13 Suður-Kórea
14 Egyptaland
15 Alsír
16 Japan
17 Slóvakía
18 Austurríki
19 Rúmenía
20 Túnis
21 Brasilía
22 Chile
23 Barein
24 Ástralía
Heimsmeistarar Frakklands unnu sér
þátttökurétt á Ólympíuleikunum.
Danmörk, Spánn, Svíþjóð, Króatía, Ís-
land og Ungverjaland unnu sér þátttöku-
rétt í forkeppni Ólympíuleikanna.
HM 2011
Öll lyfjaprófinsem tekin
voru á HM
reyndust nei-
kvæð. Fyrir mót-
ið voru 36 próf
tekin af tólf liðum
og á meðan á
mótinu stóð voru
framkvæmd 64 af
leikmönnum úr öllum 24 liðunu.
Hassan Mustafa, forseti Alþjóða
handknattleikssambandsins, var afar
ánægður þegar hann kynnti þessa
niðurstöðu í gær.
Nokkuð var um að fyrrverandileikmenn íslenska landsliðsins
væru í Malmö um helgina að fylgjast
með undanúrslitum og úrslitaleikjum
heimsmeistaramótsins í handknatt-
leik karla. Einn þeirra var Konráð
Olavsson, fyrrverandi leikmaður
Stjörnunnar og KR. Hann hefur um
nokkurra ára skeið búið í Kristian-
sund í Noregi. Konráð situr þar í
stjórn hjá litlu handknattleiksfélagi
sem var með 20 manns á þjálf-
aranámskeiði í Malmö um helgina, en
námskeiðið var haldið í tengslum við
heimsmeistaramótið.
S taffan Ol-son, annar
landsliðsþjálfara
Svía í handknatt-
leik karla, svar-
arði spurður eftir
leik Svía og Spán-
verja um 3. sætið
á HM að óvissa
væri um hvort
hann héldi áfram að þjálfa landsliðið
ásamt Ola Lindgren. Ekki væri vitað
á þessari stundu hvernær eða hvort
hann framlengdi samning sinn við
sænska handknattleikssambandið.
Það setti leiðinlegan svip á við-urkenningarathöfn sem fram fór
eftir viðureign Spánverja og Svía um
3. sætið á heimsmeistaramótinu að
mikill meirihluti þeirra 13 þúsund
áhorfenda sem voru í íþróttahöllinni í
Malmö bauluðu hressilega á spænska
liðið. Það var ekki fyrr en leikmenn
sænska liðsins tóku sig til og fóru að
klappa fyrir Spánverjunum að
sænskir áhorfendur sýndu af sér
meiri kurteisi.
Fólk sport@mbl.is