Morgunblaðið - 31.01.2011, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 31.01.2011, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTIR 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2011 Everton og Chelsea verða að mætast aftur í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar en liðin skildu jöfn, 1:1, á Goodison Park. Louis Saha kann vel við að spila gegn Chelsea því hann skorar oft gegn Lundúnaliðinu og hann gerði það á laugardaginn. Frakkinn skoraði með hörkuskalla og kom Everton í forystu í seinni hálfleik en Salamon Kalou, nýkominn inn á sem varamaður, jafnaði metin með hnitmiðuðu skoti. „Ég held að jafntefli hafi verið sanngjörn úr- slit. Við vorum betri í fyrri hálfleiknum en Everton í þeim síðari. Ég var ánægður með karakterinn í mínu liði að koma til baka eftir að hafa lent undir. Það er alltaf erfitt og sér- staklega á móti liði eins og Everton,“ sagði Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, eftir leikinn. „Lið mitt lék virkilega vel og ég er vonsvikinn að við séum ekki komnir áfram. Við hefðum getað komist í 2:0 en Petr Cech, mark- vörður Chelsea, sá til þess að svo varð ekki. Við höfum ekki játað okkur sigraða þó svo að seinni leikurinn verði eflaust mun erf- iðari,“ sagði David Moyes, stjóri Everton. gummih@mbl.is Kalou kom Chelsea til bjargar Salomon Kalou Manchester United, sem oftast allra liða hef- ur hampað bikarmeistaratitlinum á Englandi eða alls 11 sinnum, þurfti að hafa fyrir hlut- unum gegn C-deildar liði Southampton. Liðin áttust við á St. Marys og marði United, 2:1, sigur eftir að hafa lent undir rétt undir lok fyrri hálfleiksins. Heimamenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og náðu sanngjarnt að komast yfir með marki frá Richard Chaplow. United náði engum tökum á leik sínum og það var ekki fyrr en Sir Alex ákvað að setja þá Nani og Ryan Giggs inn á í byrjun seinni hálfleiks sem hlutirnir fóru að virka sem skyldi. Fram- herjaparið, Michael Owen og Javier Hern- andez, fengu tækifæri á kostnað Rooney og Berba- tov, og þeir þökkuðu traustið með því að skora sitt markið hvor. „Stund- um gerum við okkur erfitt fyrir. Líklega lagði ég leik- inn ekki alveg rétt upp. Manchester United er vant því að nýta breidd vall- arins en ég stillti upp í tíg- ulmiðju sem gekk ekki upp. Við breyttum þessum í seinni hálfleik og fórum að nota kantana betur,“ sagði Sir Alex eftir leikinn. gummih@mbl.is United lenti í vandræðum á St. Marys Javier Hernandez VIÐTAL Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is „Ég hefði getað skorað fleiri mörk. Ég fékk tvö góð færi til viðbótar en ég get ekki kvartað og þetta minnti bara á gömlu góðu dagana með Vík- ingi í yngri flokkunum. Það gekk nánast allt upp hjá mér,“ sagði landsliðsmaðurinn Kolbeinn Sig- þórsson í samtali við Morgunblaðið í gær en þessi tvítugi framherji átti hreint magnaðan leik með AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardagskvöldið. Kolbeinn gerði sér lítið fyrir og skoraði fimm mörk þegar Alkmaar burstaði Venlo, 6:1, og sjötta markið gerði Jóhann Berg Guðmundsson, sem var hans fyrsta mark á keppn- istímabilinu. Var réttur maður á réttum stað „Það var hrikalega gaman að skora þessi mörk og ekki á hverjum degi sem maður skorar fimm mörk. Ég gerði það síðast í yngri flokk- unum. Mörkin voru fjölbreytt. Ég skoraði eitt með skalla og skoraði mörk bæði með hægri og vinstri. Þetta voru svo engin glæsimörk en ég var réttur maður á réttum stað. Nú vonast ég bara til þess að fá fast sæti í byrjunarliðinu,“ sagði Kol- beinn, sem hefur aðeins verið sjö sinnum í byrjunarliði hollenska liðs- ins í deildinni á tímabilinu. Kolbeinn hefur þar með skorað 9 mörk í deildinni og er lang marka- hæsti leikmaður AZ Alkmaar. Hann skoraði þrennu á fyrstu 25 mínútum leiksins og bætti svo við tveimur mörkum í seinni hálfleik. Kolbeinn er ekki fyrsti leikmaður AZ Alkmaar sem skorar fimm mörk í deildarleik en Kees Kist afrekaði það árið 1977, einnig í leik á móti Venlo. Jafnaði árangur Atla Eðvalds- sonar Kolbeinn er fyrsti íslenski knatt- spyrnumaðurinn sem skorar fimm mörk í deildarleik erlendis frá því árið 1983 en Atli Eðvaldsson, fyrrum landsliðsfyrirliði, lék sama leik þeg- ar hann skoraði fimmu fyrir Düssel- dorf þegar liðið skellti Frankfurt. Kolbeinn hefur verið í herbúðum AZ Alkmaar frá árinu 2007 en þang- að fór hann frá HK í Kópavogi. Kol- beinn á eitt ár eftir af samningi sín- um við AZ Alkmaar og spurður út í framhaldið sagði hann; „AZ Alkmaar hefur ekkert rætt við mig um framhald og ef liðið ætlar ekki að framlengja við mig samning- inn þá þarf ég að fara hugsa minn gang. Það eru peningavandræði hjá félaginu svo maður veit ekki hvað verður. Kannski hefur þessi frammi- staða mín í leiknum um helgina vak- ið áhuga einhverra liða en ég er al- veg rólegur. Ég ætla bara að klára tímabilið með sóma og svo er úr- slitakeppni Evrópumótsins með U21 ára liðinu sem verður mjög gaman og spennandi að taka þátt í. Ég vona bara að ég fái að spila sem mest áður en að því móti kemur því ég ætla að vera í toppformi í Danmörku,“ sagði Kolbeinn, sem hafði ekki við að svara fjölmiðlum í Hollandi og víðar enda ekki á hverjum degi sem leik- menn skora fimm mörk í efstu deild. „Var hrikalega gaman“  Kolbeinn Sigþórsson fór hamförum með AZ Alkmaar  Skoraði fimm mörk  Er langmarkahæstur hjá hollenska liðinu  Íslendingarnir gerðu öll mörkin Morgunblaðið/Eggert Markheppinn Kolbeinn Sigþórsson fór á kostum með liði AZ Alkmaar og skoraði fimm mörk í 6:1 sigri liðsins. Aron EinarGunnarsson og félagar hans í 1. deildarliðinu Coventry veittu úrvalsdeildarliði Birmingham kröftuga mót- spyrnu þegar lið- in áttust við í fjórðu umferð ensku bikarkeppn- innar á St. Andrews, heimavelli Birmingham. Coventry komst í 2:0 en það dugði ekki til því heimamenn náðu að knýja fram 3:2 sigur og skoraði gamla brýnið Kevin Phillips sigurmarkið. Aron Einar lék allan tímann á miðjunni.    Danski markvörðurinn AndersLindegaard lék sinn fyrsta leik með aðalliði Manchester United í sigrinum á Southampton. „Anders stóð sig virkilega vel. Hann var ró- legur og yfirvegaður og fór vel með boltann,“ sagði Sir Alex Ferguson eftir leikinn.    Utandeild-arliðið Crawley Town tryggði sér sæti í fimmtu umferð ensku bikar- keppninnar með sigri gegn To- quay, 1:0. Allan Tubbs skoraði sigurmarkið. Crawley er fyrsta ut- andeildarliðið sem kemst í 16-liða úr- slit bikarkeppninnar í 17 ár og er sjötta utandeildarliðið sem afrekar þetta í bikarkeppninni frá lokum síð- ari heimsstyrjaldarinnar.    Robert Huth var hetja Stoke semhafði betur gegn Úlfunum, 1:0, á útivelli í gær. Þýski miðvörðurinn skoraði sigurmarkið með skalla tíu mínútum fyrir leikslok eftir send- ingu frá Matthew Ethrington. Úlf- arnir fengu upplagt tækifæri til að knýja fram annan leik. Liðið fékk vítaspyrnu á lokamínútunni en Tom- as Sörensen varði vítaspyrnu frá Ne- nad Milijas. Eiður Smári Guðjohn- sen var ekki í leikmannahópi Stoke.    Nígeríumað-urinn Vic- tor Obinna var á skotskónum fyrir West Ham þegar liðið hafði betur á móti Nottingham Forest, 3:2, en liðin áttust við í bikarkeppninni í gær. Obinna skoraði öll þrjú mörk Lundúnaliðsins sem mætir Burnley á heimavelli í 16-liða úrslitunum.    Guðlaugur Victor Pálsson semsamdi við skoska úrvalsdeild- arliðið Hibernian á föstudagskvöldið fór beint inn í byrjunarliðið þegar liðið mætti Dundee United í skosku úrvalsdeildinni í gær. Guðlaugur lék allan tímann en Hiberninan tapaði, 3:0, og hefur nú spilað tólf leiki í röð án sigurs. Fólk sport@mbl.is Jóhannes Karl Guðjónsson og samherjar hans í enska C- deildarliðinu Huddersfield stóðu svo sannarlega uppi í hárinu á Arsenal þegar liðin áttust við í fjórðu umferð ensku bikarkeppn- innar í knattspyrnu á Emirates Stadium í gær. Arsenal marði sig- ur, 2:1, og skoraði Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal, sigurmarkið úr vítaspyrnu þegar um tíu mínútur voru til leiksloka en vítið var dæmt eftir að brotið hafði verið á Nicklas Bendt- ner innan teigs. Bendnter skor- aði fyrra mark Arsenal og kom sínum mönnum yfir en Alan Lee jafnaði metin fyrir Hudd- ersfield með skalla eftir hornspyrnu. Huddersfield lék manni fleiri í 50 mínútur en undir lok fyrri hálf- leiksins var Sebastian Squillaci rekinn af velli fyrir brot. Jóhannes Karl átti góðan leik á miðjunni. Hann átti margar góðar sendingar á félaga sína og var töluvert áberandi í leik liðsins, einkum í seinni hálfleik. „Við erum ánægðir að hafa ekki þurft að spila annan leik því við erum með í fjórum keppnum og álagið því mikið. Fyrri hálfleik- urinn var frekar leiðinlegur en sá seinni var betri og ég verð að hrósa Huddersfield fyrir góða frammistöðu,“ sagði Cesc Fabre- gas, fyrirliði Arsenal, eftir leikinn.  Manchester City komst í hann krappan gegn C-deildarliðinu Notts County en liðin skildu jöfn, 1:1, og jafnaði Bosníumaðurinn Edin Dzeko metin fyrir City þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Notts County, undir stjórn Paul Ince, er í 18. sæti C-deildarinnar. gummih@mbl.is Jóhannes og félagar stóðu sig vel  Huddersfield stóð vel í Arsenal á Emirates Stadium  City komst í hann krappan Cesc Fabregas

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.