Morgunblaðið - 31.01.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.01.2011, Blaðsíða 8
Á VELLINUM Skúli Sigurðsson sport@mbl.is Keflavík vann KR 79:75 í gærkvöld í efri hluta Iceland Express-deildar kvenna. Leikurinn var nokkuð jafn allan tímann þó svo að heimastúlkur í Bítlabænum virtust alltaf hafa frum- kvæðið. Sóknir liðanna voru kannski ekki mikið fyrir augað en svæðisvörn Keflavíkur var gríðarlega sterk og á tímum nánast loftþétt gegn öllum til- raunum KR. Hálfleiksræða Hrafns Krist- jánsson virtist hins vegar blása sjálfs- trausti í KR en þó ekki nóg til að landa sigri í þetta skipti. Keflavík- urliðið spilaði nægilega vel að þessu sinni en þó hafa þær spilað töluvert betur. Akkilesarhæll þeirra er kannski lítið framlag frá bekknum, en aðeins fjórir leikmenn höfðu skorað stig þegar fjórði leikhluti hófst. Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, var nokkuð sáttur með kvöldið. „Stelpurnar stóðu sig vel í kvöld, ég er ánægður með þetta. Bar- áttan var gríðarlega góð í kvöld og ég tel að það hafi gert útslagið. KR er náttúrlega með frábært lið og þar eru landsliðsmenn í öllum stöðum þannig að það er kannski eðlilegt að við höf- um ekki unnið stærri sigur. Við erum búnar að spila illa síðustu leiki og höf- um þurft að gyrða okkur í brók sem við gerðum vel í kvöld,“ sagði Jón. Margrét Kara Sturludóttir var allt annað en sátt með ósigurinn og von- brigðin leyndu sér ekki eftir leik. „Nei, ég er sko ekki sátt með þetta. Vörnin var ekki nógu sterk og við gerðum ekki það sem þjálfarinn setti upp fyrir okkur. Það er ekki gaman að byrja A-riðlilinn svona. Við feng- um á okkur svæðisvörn sem við vor- um í vandræðum með í byrjun. En við ætlum alla leið,“ sagði Kara eftir leik. Enn vinnur Hamar Hamar úr Hveragerði heldur áfram sigurgöngu sinni og í gær vann liðið Hauka, 71:62, og var það óvenju lítill sigur miðað við stöðu liðanna en Haukar eru í fjórða og neðsta sæti A- riðilsins. Hamar hafði alltaf undirtökin þó og var 35:29 yfir í hálfleik. Stigahæst hjá Hamri var Skavuca Dimovska með 18 stig og Kristrún Sigurjóns- dóttir var með 17 en hjá Haukum var Kathleen Snodgress stigahæst með 25 stig. Mjótt á munum í Hólminum Snæfell, sem er í efsta sæti B- riðils, rétt marði sigur á bar- áttuglöðum Grafarvogskonum, 76:72, og munaði þar mestu um slakan fyrsta leikhluta Fjölnis en þann hluta vann Snæfell, 23:14. Berglind Gunn- arsdóttir gerði 23 stig fyrir Snæfell en Natasha Harris var með 37 fyrir Fjölni. Í hinum leiknum í neðri riðli vann Njarðvík granna sína úr Grindavík 70:65 eftir að Grindavík hafði unnið fyrsta leikhluta 22:16. Shayla Fields gerði 23 stig fyrir Njarðvík og Julia Demirer 22 en Helga Hallgrímsdóttir var stigahæst hjá Grindavík með 21 stig. Góð barátta gerði útslagið Morgunblaðið/Skúli Barátta Pálína Guðlaugsdóttir með boltann í leiknum gegn KR í gærkvöld.  Keflavík náði að leggja KR-inga  Hamar heldur sigurgöngunni áfram Á VELLINUM Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Belgíska stúlkan Kim Clijsters og Serbinn Novak Djokovic sigruðu í einliðaleik á Opna ástralska mótinu í tennis um helgina. Clijsters lagði Li Na frá Kína í úrslitaleik og Djokovic hafði betur á móti Bretanum Andy Murray í karlaflokki. Það leit nú ekkert allt of vel út fyr- ir þá belgísku í upphafi leiksins við Li því sú kínverska, sem hefur verið á mikilli siglingu upp á síðkastið, fór á kostum. „Hún spilaði miklu betur en ég í upphafi leiksins og trúlega hefur hún aldrei leikið betur á móti mér. Uppgjafirnar voru fastar og hnitmiðaðar, móttakan betri en hjá mér og hún gerði bara allt rosalega vel,“ sagði Clijsters eftir sigurinn, en hún hafði betur 2-6, 6-3 og 6-3. Sú belgíska sagðist hafa tekið sig á og reynt að halda í við Li í fyrsta settinu og það hafi gengið. „Ég verð líka að hrósa áhorfendum – þeir voru frábærir. Ég hef komið á þetta mót í fjölda ára og mér hefur alltaf liðið vel að spila hérna. Núna geta þeir kallað mig Aussie Kim þar sem ég náði loks að sigra hérna,“ sagði Clijsters, í sjöunda himni með sig- urinn. Li Na tók ósigrinum ágætlega. „Mér fannst ég spila mjög vel, en hún spilaði einfaldlega betur en ég að þessu sinni,“ sagði Li sem sagð- ist núna ætla að fara heim og vera með fjölskyldunni um áramótin, en kínversku áramótin eru innan tíðar. Þetta er í fyrsta sinn sem Clijsters sigrar í þessu móti en í fjórða sinn sem hún sigrar á einu af fjórum stóru mótunum. Hinir þrír sigrarnir voru allir á Opna bandaríska, fyrst árið 2005, síðan 2009 og aftur í fyrra. Þetta var í áttunda sinn sem hún lék til úrslita á stórmóti og náði að laga tölfræðina því hún tapaði fyrstu fjór- um úrslitaleikjum sínum en hefur nú sigrað í fjórum í röð. Clijsters fer við þetta í annað sæt- ið á heimslistanum og hefur ekki komist svo hátt eftir að hún hóf sinn „annan feril“ ef svo má segja. Hún hætti nefnilega um tíma en byrjaði aftur af fullum krafti fyrir tveimur árum. Orðrómur hefur verið uppi um að hún sé að hugsa um að hætta keppni. „Ég á frekar von á að þetta verði síðasta fulla tímabilið mitt,“ sagði hin 27 ára gamla tennisstjarna. „Þegar ég byrjaði aftur var mark- miðið að komast á Ólympíuleikana í London, en ég átti ekki von á að mér gengi svona vel á þetta stuttum tíma,“ sagði Clijsters. Djokovic var sterkari í úrslita- leiknum og tókst að endurheimta tit- ilinn en hann sigraði í þessu móti ár- ið 2008. Þetta var hins vegar þriðja tap Murrays í úrslitaleik á risamóti og það ætlar að ganga erfiðlega hjá þeim breska að verða fyrsti Bretinn til að sigra á risamóti síðan Fred Petty gerði það árið 1936. „Novak var ótrúlega sterkur og öruggur í dag og hefur spilað frá- bærlega. Vonandi fæ ég annað tæki- færi fljótlega til að krækja í sigur á risamóti,“ sagði Murray vonsvikinn eftir leikinn. Fjórði risasigur Clijsters  Stefnir á Ólympíuleikana í London og á von á að hætta í kjölfarið  Djokovic endurheimti titilinn í Ástralíu  Murray verður enn að bíða eftir sigri á risamóti 8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2011 Keflavík – KR 79:75 Toyota-höllin, Iceland Express-deild kvenna, 30. janúar 2011. Gangur leiksins: 4:5, 6:10, 10:17, 21:20, 26:23, 34:25, 35:27, 45:34, 47:42, 49:44, 58:50, 63:54, 65:56, 70:62, 73:67, 79:75. Keflavík: Jacquline Adamshick 34/15 frá- köst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 18/5 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 14/12 fráköst/7 stoðsendingar/3 varin skot, Pál- ína Gunnlaugsdóttir 9/6 fráköst, Hrund Jó- hannsdóttir 2/4 fráköst, Ingibjörg Jakobs- dóttir 2. Fráköst: 32 í vörn, 11 í sókn KR: Margrét Kara Sturludóttir 21/5 frá- köst, Chazny Paige Morris 19/9 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 11/9 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 9/4 fráköst, Signý Hermannsdóttir 7/6 fráköst, Helga Einars- dóttir 4/5 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 4/4 fráköst. Fráköst: 27 í vörn, 15 í sókn Dómarar: Björgvin Rúnarsson, Eggert Þór Aðalsteinsson. Hamar – Haukar 71:62 Hveragerði: Gangur leiksins: 2:2, 11:7, 16:11, 21:19, 25:21, 27:23, 35:26, 38:29, 41:32, 44:35, 46:37, 49:41, 54:46, 62:50, 64:53, 71:62. Hamar: Slavica Dimovska 18/5 fráköst/5 stoðsendingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 17, Jaleesa Butler 15/15 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 10/6 fráköst, Íris Ásgeirsdótt- ir 8/5 fráköst, Fanney Lind Guðmundsdótt- ir 3/7 fráköst. Fráköst: 27 í vörn, 11 í sókn Haukar: Kathleen Patricia Snodgrass 25/6 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 9/7 frá- köst/7 stoðsendingar, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 8/9 fráköst, Íris Sverris- dóttir 6, María Lind Sigurðardóttir 4/5 frá- köst, Þórunn Bjarnadóttir 3, Dagbjört Samúelsdóttir 3, Guðrún Ósk Ámundar- dóttir 2, Margrét Rósa Hálfdánardóttir 2. Fráköst: 22 í vörn, 13 í sókn. Staðan í A-riðli: Hamar 15 15 0 1216:1001 30 Keflavík 15 12 3 1241:974 24 KR 15 9 6 1056:973 18 Haukar 15 6 9 961:1002 12 Snæfell – Fjölnir 76:72 Stykkishólmi. Gangur leiksins: 2:0, 12:7, 18:14, 23:14, 30:14, 30:21, 34:30, 36:30, 42:36, 46:43, 55:46, 61:51, 66:60, 76:72. Snæfell: Berglind Gunnarsdóttir 25/4 frá- köst, Laura Audere 22/9 fráköst, Sara Mjöll Magnúsdóttir 11/5 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 9/5 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 3/9 fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir 2/7 fráköst, Björg Guðrún Einarsdóttir 2/1 frákast, Ellen Alfa Högna- dóttir 2/1 frákast. Fráköst: 28 í vörn, 13 í sókn. Fjölnir: Natasha Harris 37/6 fráköst, Birna Eiríksdóttir 14/5 fráköst, Inga Buzoka 10/ 13 fráköst, Bergþóra Holton Tómasdóttir 8/3 fráköst, Eva María Emilsdóttir 2/3 frá- köst, Erla Sif Kristinsdóttir ¼ fráköst. Fráköst: 27 í vörn, 8 í sókn. Njarðvík – Grindavík 70:65 Njarðvík. Gangur leiksins: 0:2, 6:6, 12:9, 16:15, 22:19, 27:21, 30:30, 38:37, 44:39, 48:41, 52:44, 61:52, 67:60, 70:65. Njarðvík: Shayla Fields 23/7 fráköst, Julia Demirer 22/8 fráköst, Ína María Einars- dóttir 9/1 frákast, Dita Liepkalne 6/18 frá- köst, Emelía Ósk Grétarsdóttir 4/1 frákast, Ólöf Helga Pálsdóttir 2/3 fráköst, Anna María Ævarsdóttir 2, Erna Hákonardóttir 2. Fráköst: 31 í vörn, 12 í sókn. Grindavík: Helga Hallgrímsdóttir 21/9 frá- köst, Agnija Reke 16/7 fráköst, Berglind Anna Magnúsdóttir 10/7 fráköst, Cristal Ann Boyd 7/3 fráköst, Heiða B. Valdimars- dóttir 6/7 fráköst, Alexandra Marý Hauks- dóttir 2, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 2/2 fráköst. Fráköst: 25 í vörn, 16 í sókn. Staðan í B-riðli: Snæfell 15 7 8 934:1101 14 Njarðvík 15 5 10 1066:1119 10 Grindavík 15 3 12 905:1020 6 Fjölnir 15 3 12 936:1185 6 KÖRFUBOLTI SA Jötnar og Björninn léku á laugardagskvöld á Ís- landsmótinu í íshokkíi. Leikurinn fór fram á Akureyri og lauk með sigri SA Jötna sem gerðu sjö mörk gegn þremur mörkum Bjarnarins. Um síðustu helgi léku sömu lið tvisvar sinnum á heimavelli Bjarnarins og þá fóru Jötnar heim með öll stigin og höfðu í leiðinni sætaskipti við Björninn í deild- inni. Eftir leikinn hafa SA Jötnar 16 stig en Bjarn- armenn 11. Leikurinn var í ágætis jafnvægi í fyrstu lotu en á inn- an við mínútu kafla um miðja lotu náðu Jötnar tveggja marka forystu með mörkum frá Jóhanni Leifssyni og Jóni B Gíslasyni. Vilhelm Már Bjarnason, fyrirliði Bjarn- armanna, minnkaði muninn í eitt mark skömmu síðar og staðan eftir fyrstu lotu því 2:1. Bjarnarmenn pirraðir Fjögur mörk voru skoruð í annarri lotu, Jötnar áttu þrjú þeirra en Bjarnarmenn eitt. Fyrsta markið gerði Birgir Þorsteinsson fyrir Jötna en þetta er jafnframt fyrsta markið hans í meistaraflokki. Staðan því 5:2 fyrir Jötna í lotulok. Síðustu lotunni lauk 2:1 fyrir Jötnum en í henni voru Bjarnarmenn orðnir nokkuð pirraðir og því þaul- setnir í refsiboxinu. Mörk/stoðsendingar SA Jötnar: Jón B Gíslason 2/0, Andri Mikaelsson 2/0, Birgir Þorsteinsson 1/0, Birgir Sveinsson 1/0, Jóhann Leifsson 1/0, Pétur Sigurðsson 0/1, Helgi Gunn- laugsson 0/1, Ingvar Jónsson 0/1, Ingólfur Elíasson 0/1 Brottrekstrar SA Jötnar: 22 mínútur. Mörk/stoðsendingar Björninn: Vilhelm Már Bjarnason 1/0, Trausti Bergmann 1/0, Brynjar Bergmann 1/0, Óli Þór Gunn- arsson 0/1, Úlfar Jón Andrésson 0/1, Andri Helgason 0/1. Refsingar Björninn: 78 mínútur. Jötnarnir höfðu betur gegn Birninum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.