Eyjablaðið - 10.05.1984, Page 4
4
EYJABLAÐIÐ
Vidtalid
*
Umsjón: Ragnar Oskarsson
Viðhorf til dagvistunarmála
er að breytast
Hinn 15. maí n.k. eru liðin 10 ár frá því að dag-
heimilið Rauðagerði var tekið í notkun. Frá því að
heimilið var opnað hefur það ásamt Sóla og Kirkjugerði
sinnt stórum hluta uppeldisþáttar yngstu kynslóðarinnar
hér í Eyjum. í tilefni af afmæli Rauðagerðis ræddi
Eyjablaðið við Þorgerði Jóhannsdóttur forstöðumann
heimilisins.
— Segðu okkur í fáum orðum
frá Rauðagerði þessi 10 ár sem
liðin eru frá því það tók til
starfa.
— Heimilið var keypt fyrir
söfnunarfé sem Rauði kross
íslands hafði fengið frá sænska
og svissneska Rauða kross-
inum. Upphaflega var það
rekið bæði sem leikskóli og dag-
heimili en er nú rekið sem dag-
heimili eingöngu. Fyrsti for-
stöðumaður þess var Ester
Arnadóttir en síðan tóku við
forstöðu Guðrún Kristófers-
dóttir og Svala Sigurðardóttir.
Ég tók við forstöðustarfinu 1.
ágúst 1980.
— Hver er fjöldi barna og
starfsfólks á Rauðagerði?
— Nú eru börnin 50 og eru þau
á þremur deildum eftir aldri. Á
hverri deild eru að meðaltali 15
til 20 börn. Alls starfa 18 við
heimilið og þar tel ég einnig
með þær sem starfa í afleys-
ingum. Menntaðar fóstrur eru
nú 3 og einnig starfar einn
þroskaþjálfi á heimilinu.
— Hvernig fer venjulegur dagur
fram á Rauðagerði?
— Heimilið er opið frá mánu-
degi til föstudags frá kl. 7:30 til
18. Það hlutverk sem Rauða-
geröi gegnir mótast fyrst og
fremst af því að efla persónu-
legan og félagslegan þroska
barnanna. Við vinnum skipu-
legt starf samkvæmt starfs-
áætlun en starfsáætlunin er
unnin í samræmi við aldur og
þroska barnanna hverju sinni. í
starfsáætlun vorsins er t.d.
fræðsla, söngvar, ferðir og
föndur svo eitthvað sé nefnt. í
fræðsluþættinum er börnunum
t.d. kennt að veturinn sé liðinn
og vorið taki við, að fuglarnir
korni, grasið grænki og blómin
spryngi út auk ýmislegs annars.
Dalabúið verður heimsótt og
skoðuð verða nýfædd lömb.
Þetta er aðeins sýnishorn af því
sem starfsáætlun vorsins hefur
að geyma.
Annars gengur venjulegur
dagur þannig fyrir sig á Rauða-
gerði að börnin koma á bilinu
frá 7:30 til 9. Morgunverður er
borðaður kl. 8:30 en kl. 9 er
börnunum skipt í hópa þar sem
1/3 hlutinn fer í svokallaða
samverustund þar sem m.a. er
lesið og sungið. Hin börnin fara
í frjálsa leiki á meðan. Börn-
unum er sérstaklega kennt að
fara vel með leikföng, ganga frá
eftir sig og að skemma ekki.
Urn ellefuleytið er farið að
undirbúa hádegisverðinn, tvö
AF VIGTINNI
Nú er að Ijúka þessari vertíð,
sem er þegar á heildina er litið
nteð þeint lélegri á undan-
förnum árum. Margir bátar
hafa þegar tekið upp netin.
surnir vegna þess að kvóti
þeirra var búinn og verður að
taka tillit til þess þegar heildar-
tölur eru skoðaðar. Aflahæstu
bátar miðað við 8. maí eru
þessir:
Suðurey 1324,0 tonn
Valdimar Sveinss. 1213,6 tonn
Þórunn Sveinsd. 1031,7 tonn
Gandí 915,0 tonn
Gjafar 902,0 tonn
Bjarnarey 813,0 tonn
Hæstu togbátar:
Smáey
Helga Jóh.
Frár
Danski Pétur
Sigurfari
746,0 tonn
536.4 tonn
536,0 tonn
5 15,0 tonn
515,0 tonn
Sigmar Þór Sveinbjörnsson
stvrimaður á Herjólfur gaukaði
að okkur aflatölum frá Þor-
lákshöfn ntiðað við 5. maí.
Höfrungur III. 1270.1 tonn
Friðrik Sigurðss. 918,8 tonn
ísleifur IV. 792,9 tonn
Jón á Hofi 734.3 tonn
Gissur 619,1 tonn
Stokksev 576,2 tonn
Þorgerður Jóhannsdóttir,
forstöðumaður Rauðagerðis
börn ná í matinn hverju sinni og
leggja á borð en að öðru leyti
sér hver um sig. Það er ánægju-
legt að sjá hversu vel þetta
yfirleitt gengur.
Eftir matinn þvo börnin sér
og síðan er hvíldartími í hálfa til
eina og hálfa klukkustund eftir
aldri. Þessi hvíldartími er nauð-
synlegur því börnin þreytast
auðvitað. Eftir hvíldartímann
er enn skipt í hópa til starfa og
leikja, síðan fá börnin að
drekka en upp úr fjögur er fariö
að undirbúa heimferð enda eru
börnin sótt á tímabilinu 4 til 6.
— Hvaða augum heldur þú að
almenningur líti Rauðagerði?
— Ég býst við því að um helm-
ingur fólks líti fyrst og fremst á
dagvistunarstofnanir sem
geymslustað fyrir börnin. Eftir
foreldrafundi breytist þetta
viðhorf oft og síðastliðin fjögur
ár eða svo hefur viðhorfið
breyst mjög ört, en áður töldu
nær allir að dagheimili væru
einungis geymslustaðir. Þá er
rétt að taka fram að nú er fólk
meir en áður farið að meta
fóstrumenntunina. Annars
finnst mér foreldrar ekki
fylgjast alveg nógu vel með
börnunum á heimilinu og því
starfi sem þar fer fram t.d. vita
foreldrar almennt ekki hvað
börnin fá að borða.
— Eru biðlistar eftir plássum á
Rauðagerði?
— Já eins og er eru 36 sem bíða.
— Hvernig er starfsaðstaðan?
— Heimilið er rúmgott og
óhætt er að segja að vinnu-
aðstaðan sé góð. Til skamms
tíma hafa leikfangakaup verið
skorin við nögl svo við höfum
verið illa stödd hvað það
snertir. Húsinu hefur verið
sæmilega við haldið en hins
vegar er aðstaða við útileiktæki
afar bágborin. Þar er nauð-
synlegt að ráða bót á.
— Finnst þér ríkja skilningur
hjá bæjaryfirvölum gagnvart
dagvistunarmálum?
— Nei, t.d. er ekki gert nógu
mikið til að fá menntaðar
fóstrur til starfa en það er ein
grundvallarforsenda þess að
vel takist til með það starf sem
hér fer fram. Ég tel það algera
lágmarkskröfu að í.þ.m. sé ein
fóstra starfandi á hverri deild,
en svo er ekki nú.
— Á að halda upp á afmælis-
daginn?
— Já við erum að undirbúa
opið hús á laugardaginn kl. 2 til
5 þar sem starfsfólkið mun
kynna heimilið fyrir bæjar-
búunt. Foreldrar barnanna
munu þá sjá um kaffisölu og er
hugmyndin að verja ágóðanum
af henni til kaupa á útileik-
tækjum. Vonandi koma sem
flestir bæjarbúar í heimsókn
þennan dag og styrkja með því
gott málefni.
— Hvers óskar þú afmælis-
barninu Rauðagerði á 10 ára
afmælisdaginn?
— Ég óska þess helst að bæjar-
félagið, þ.e. bæjaryfirvöld og
bæjarbúar sjái nauðsyn þess að
leggja rækt við heimilið barn-
anna vegna því lengi býr að
fyrstu gerð.
—Viðtal R.Ó.
Æfingaleikur
ÍBV-UBK
2-4 (0-3)
Fjórði æfingaleikur ÍBV á
árinu fór fram á malarvellinum
við Löngulág s.l. laugardag.
Var það i. deildarlið Breiða-
bliks sem kom í heimsókn, en
það má geta þess að þessi leikur
var ekki í hinni árlegu bæjar-
keppni milli félaganna, en sá
leikur verður háður 16. maí í
Kópavogi.
Blíðskaparveður var á
laugardaginn þegar leikurinn
fór frarn. Blikar byrjuðu af
miklum krafti og skoruðu strax
á 5. mín. eftir hornspyrnu. Þeir
létu ekki þar við sitja heldur
bættu tveimur mörkum í viðbót
á 15 mín. og 25. mín. Þriðja
markið var eitt það glæsilegasta
sem sést hefur á malarvellinum.
Bylmingsskot frá vítateigshorni
beint í vinkilinn. Staðan í hálf-
leik 3-0 fyrir UBK. Seinni hálf-
leikur var ntun betur leikinn af
okkar ntönnum en samt skor-
uðu Blikar fljótlega fjórða
mark sitt. eftir hornspyrnu. En
Sigurjón Kristinsson (Jonni)
svaraði fljótlega nteð einkar
laglegu marki fyrir ÍBV og
Jóhann Georgsson, sem þarna
lék sínn fvrsta leik eftir meiðsli
sent hafa hrjáð hann í vetur.
skoraði annað mark ÍBV um
miðjan háltleikinn. Fleiri urðu
mörkin ekki.
Lið ÍBV: Gunnólfur (Þor-
steinn G.), Þórarinn (Elías),
Snorri, Þórður (Þorsteinn).
Viðar, Hlynur, Bergur (Jóhann
G.), Lúðvík. Héðinn. Kári og
Sigurjón.
Var þetta fyrsti tapleikur
ÍBV á árinu. N.k. laugardag
bvrjar svo alvaran. Þá verður
leikið við ÍA í meistarakeppni
KSÍ, en ÍBV spilar þennan leik
þar sem Skagamenn unnu tvö-
falt s.l. keppnistímabil og ÍBV
urðu í öðru sæti í bikar-
keppninni. Leikið verður að
öllum líkindum á Kópavogs-
veliinum og hefst leikurinn kl.
14. Fyrsti leikurinn í hinni
hörðu keppni 2. deildar hefst
svo sunnudaginn 20. maí með
heimaleik gegn Víðir Garði, en
þar situr fyrrum landsliðs-
fyrirliðinn Marteinn Geirsson
við stjórnvölinn.
Maraþon
knattspyrna
S.l. laugardag kl. 8 f.h. hófu 8
peyjar úr 3. flokki Týs að spila
Maraþon-knattspyrnu í
Iþróttamiðstöðinni og ætluðu
þeir að spila eins margar
klukkustundir og úthald þeirra
leyfði. Það dugði í tæpan
sólarhring en það má telja nær
öruggt að úthald þeirra hefði
dugað mun lengur hefði verið
rétt haldið á spilum, en þeir
mega þó vel við una. —ÞoGu.
Y estmannaeyja-
mótið í knattspyrnu
Vestmannaeyjamótið í yngri
flokkunum byrjaði í gær með
leikjum í 5. flokki Á og B.
Sökum þess hve blaðið fer
snemma í prentun hef ég ekki
úrslitin í þessunt leikjum. Á
morgun, föstudag, verður
leikið í 4. flokki A og B og hefst
leikurinn hjá A-liðunum kl. 19
en kl. 20:15 hjá B. Á sunnu-
daginn verður svo fyrsti leikur-
inn hjá 3. flokki og hefst hann
kl. 11:30. Annars er niður-
röðunin í Vestmannaeyja-
mótinu hér fyrir neðan og eru
þjálfarar, leikmenn og aðrir
áhugamenn beðnir um að
geyma þessa skrá.
3. flokkur karla:
1. Sunnudagur 13. maí kl. 11:30
2. Föstudagur 18. maí kl. 20:00
3. Laugardagur 28. júlí kl. 14:00
4. Föstudagur 10. ágúst kl. 20:00
5. Föstudagur 17. ágúst kl. 20:00
4. flokkur karla:
1. Föstudagur 11. maí:
A-lið kl. 19:00 — B-lið kl. 20:15
2. Fimmtudagur 17. maí:
A-lið kl. 19:00— B-lið kl. 20:15
3. Laugardagur 9. júní:
A-liðkl. 13:00 — B-lið kl. 14:15
4. Fimmtudagur 9. ágúst:
A-lið 19:00— B-lið kl. 20:15
5. Sunnudagur 19. ágúst:
A-lið kl. 13:00— B-lið kl. 14:15
5. flokkur drengja:
1. Miövikudagur 9. maí:
A-lið kl. 19:00 — B-lið kl. 20:00
2. Laugardagur 19. maí:
A-lið kl. 13:00 — B-lið kl. 14:00
3. Föstudagur 8. júní:
A-lið kl. 19:00 — B-lið kl. 20:00
4. Sunnudagur 12. ágúst:
A-lið 13:00— B-lið kl. 14:00
5. Miðvikudagur 22. ágúst:
A-lið kl. 19:00 — B-Iið kl. 20:00
6. og 7. flokkur dreugja:
1. Laugardagur 9. júní:
A-lið kl. 10:00 —B-lið kl. 10:00
A-lið kl. 11:00— B-lið kl. 11:00
2. Mánudagur 11. júní:
A-lið klÁH):00— B-lið kl. 10:00
A-lið kl. 1 1.00 — B-lið kl. 11:00
3. Föstudagur 6. júlí:
A-lið kl. 18:00 — B-iið kl. 18:00
A-lið kl. 19:00— B-lið kl. 19:00
4. Sunnudagur 8. júlí:
A-Iið kl. 13:00 — B-lið kl. 13:00
A-lið kl. 14:00— B-lið kl. 14:00
5. Laugardagur 18. ágúst:
A-liðÁl. 10:00 —B-lið kl. 10:00
A-lið kl. 11:00— B-lið kl. 11:00
6. Sunnudagur 19. ágúst:
A-lið kl. 10:00— B-lið kl. 10:00
A-lið kl. 11:00— B-lið kl. 11:00
2. flokkur karla:
1. Sunnudagur 26. ágúst kl. 16:00
Meistaraflokkur karla:
1. Fimnitudagur 20. sept. kl. 19:00