Eyjablaðið - 31.10.1985, Síða 4
4
EYJABLAÐIÐ
Iþróttir
Umsjón: Þorsteinn Gunnarsson
Yngri flokkarnir voru á
fleygi ferð um helgina, en þá
var fyrsta turneringin af þrem.
Þrátt fyrir að getan væri mis-
jöfn, skein ánægjan út úr hverju
andliti. Árangurinn var upp og
ofan, en í heildina litið var
útkoman nokkuð góð fyrir
okkur Eyjamenn.
3. flokkur kvenna
Stelpurnar léku hér í Eyjum.
Týr gerði sér lítið fyrir og vann
alla leikina með miklum glæsi-
brag. Hafa þær mikla yfirburði.
Þórsstelpurnar stóðu einnig
fyrir sínu þrátt fyrir að úrslitin
hafi ekki verið hagstæð að
þessu sinni. Staðan í þessum
riðli hjá Eyjaliðunum er þessi:
Týr 10
Fram 8
Stjarnan 6
Þór 4
Valur 2
KR 0
Týr vann Þór í Eyjaslagnum
11-3.
3. flokkur drengja
Leikið var í Reykjavík. Týr
olli nokkrum vonbrigðum því
þeir eiga að geta gert miklu
betur. Þórarar töpuðu öllum leikj-
unum að þessu sinni. Staðan í
þessum riðli hjá Eyjaliðunum
er þessi:
KR 8
Bæjarráðsmenn í þungum þönkum á fjölmiðlafundinum
Gunnar Kári Magnússon:
Sögur Munchausen
Staksteinar er þáttur sem
Morgunblaðið heldur sérstak-
lega úti til að telja kjarkinn í
hrelldar íhaldssálir sem slysast
hafa til að reka augun í mál-
gögn annarra flokka og e.t.v.
rekist þar á eitthvað sem ekki
sé alveg í anda hinnar svarbláu
söguskoðunar Moggans. Er þá
yfirleitt sá hátturinn hafður á
að skrifin sem um ræðir eru
tekin úr öllu sem heitir sam-
hengi og borin fram sem til-
hæfulaust rugl, skellt sér á lær
og ekki skilið í því af hverju
mennirnir séu svona ódann-
aðir. Hafa margar ágætis-
greinar fengið þessa með-
höndlun og verið fólki að-
hlátursefni, hvort sem það
hefur lesið greinina í frum-
útgáfu eða ekki. Formerkin
fyrir hlátrinum eru að sjálf-
sögðu misjöfn.
Þó kemur það fyrir að Stak-
steinaritstjórar þurfa ekki að
beita skærunum til að koma inn
æskilegum áhrifum á íhalds-
sálirnar. Það er sammerkt með
þeim greinum að höfundar
þeirra eru búnir að taka
ómakið af Staksteinum.
Þannig var þar næstsíðasti
leiðari Fylkis birtur óstyttur, þó
var bætt við nokkrum smjatt-
setningum svona til að undir-
strika hversu vel Staksteina-
höfundum féll þessi
Munchausensaga í geð. Og við
hlógum öll, en með ólíkum for-
merkjum ...
—G.KJVI.
Yeistu?
# Að það sem af er þessu kjörtíma-
bili hefur meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins í bæjarstjórn Vest-
mannaeyja ekkert sinnt uppbygg-
ingu félagslegra íbúðabygginga.
# Að undir stjóm meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjórn
Vestmannaeyja var ekkert tillit
tekið til félagslegra aðstæðna
þegar úthlutað var íbúðum aldr-
aðra við Eyjahraun.
# Að vegna stefnu meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjórn
Vestmannaeyja í húsnæðismálum
er sumt fólk neytt til þess að búa í
allsendis ófullnægjandi húsnæði,
jafnvel heilsuspillandi.
# Að þessi stefna meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjórn
Vestmannaeyja bitnar verst á
tekjulágu fólki og öðrum sem
minna mega sín í samfélaginu.
Þessari stefnu verður að breyta!
Þessari stefnu vill
Alþýðubandalagið breyta
Fjölmiðlafundur
á vegum bæjaráðs
Ármann 6
Týr 4
Víkingur 2
Þór 0
Týr vann Eyjaslaginn 31-13.
4. flokkur drengja
Leikið var á Akranesi. Bæði
Eyjaliðin stóðu sig frábærlega
vel. Tróna þau nú á toppnum.
Þór er með fullt hús stiga, en
Týr tapaði aðeins einum leik,
fyrir Þór.
Þór 8
Týr 6
ÍBK 4
ÍA 2
UBK 0
Þór vann Eyjaslaginn eins og
áður sagði 11-6.
5. flokkur drengja
Bæði Eyjaliðin eru þarna í
meðalmennskunni, unnu tvo
leiki og töpuðu tveim. Staðan í
þessum riðli er:
Valur 10
FH 8
Týr 4
Þór 4
Haukar 4
UMFN 0
Týr vann Eyjaslaginn 11-3
Framhald á 3. síðu
Mánudaginn 21. okt. s.l.
boðaði bæjarráð til fjölmiðla-
fundar í Ráðhúsinu. Fundur
þessi var að sögn formanns
bæjarráðs haldinn til þess að
kynna í fjölmiðlum helstu
framkvæmdir sem unnið hefur
verið við undanfarið og einnig
þær sem framundan eru.
Að lokinni kynningu í Ráð-
húsinu var farið í heimsóknir í
Framhaldsskólann, Hamars-
skólann og í íbúðir aldraðra við
Eyjahraun. Þessar stofnanir
voru skoðaðar og stjórnendur
þeirra skýrðu frá því starfi sem
þar fer fram.
Er lokið var heimsókn á fyrr-
greinda staði var að nýju haldið
í Ráðhúsið og þar svöruðu
bæjarráðsmenn, skrifstofu-
stjóri og bæjarstjóri spurning-
um fjölmiðlamanna. Einkum
var rætt um verklegar fram-
kvæmdir bæjarins s.s. gatna-
gerð, byggingu skóla og fram-
kvæmdir við byggingu íbúða
aldraðra. Spurningum rigndi
yfir þá bæjarráðsmenn og
svöruðu þeir af bestu getu.
Hér verður ekki gerð efnisleg
grein fyrir öllum þeim málum
sem fjallað var um á fundinum
enda fjallar Eyjablaðið um
bæjarmálin að staðaldri á
síðum sínum.
Það er mat Eyjablaðsins að
fundurinn hafi í flestum grein-
um tekist nokkuð vel og að
slíkir fundir bæjarráðs með
fjölmiðlum eigi fullan rétt á sér
annað kastið en ekki aðeins um
það leyti er kosningar nálgast.
Það var hins vegar nokkur galli
á fundinum að einungis var
unnt að koma með fyrirspumir
um þau mál er bæjarráð var
fyrirfram búið að ákveða og í
því sambandi má nefna að ekki
var gert ráð fyrir að rædd yrðu
atvinnu- og félagsmál svo eitt-
hvað sé nefnt. Þetta stendur þó
vonandi til bóta.
—R.Ó.
Konur fjölmenntu í Alþýðuhúsið á Kvennafrídaginn
Kvennafrídagurinn
24. okt. síðastliðinn tóku
margar konur í Vestmanna-
eyjum sér frí frá störfum. Á
þriðja hundrað konur á öllum
aldri mættu í Alþýðuhúsið kl. 2
e.h. Voru konur með dagskrá
um jafnréttisbaráttu og ríkti
mikil eining á fundinum.
Launamálin voru í brenni-
depli og kom skýrt fram að á
síðustu 10 árum hefur Iítið
áunnist í þeim efnum.
Eru kjör kvenna jafnvel
lakari í dag en fyrir 10 ámm
samanborið við karlmenn.
Annars einkenndi léttleiki
samkomuna og voru þar lesnar
smásögur, greinar og ljóð.
Einnig barst smellið skeyti frá
áhafnarlimum Halkions. Konur
sem léku í Saumastofunni í
fyrra sungu lög úr Ieikritinu og
tóku fundarkonur vel undir.
Kaffi og meðlæti var á boð-
stólum.
Það eina sem skyggði á
þennan dag, var sá dónaskapur
sem Forseta íslands var sýndur
er henni var boðið upp á að
undirrita lög sem þvinguðu
flugfreyjur til að hætta verk-
falli.
Dagur þessi endaði með
mikilli gleði á Gestgjafanum
þar sem konur hertóku staðinn
og skemmtu sér fram eftir
nóttu. —G. St.