Eyjablaðið - 09.05.1990, Qupperneq 1
f
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
EYJABLAÐIÐ
50. argangur
ÚtcjefancLi: Alþýðuik>ancLalagið í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjum, 9. maí 1990
4. tölublað
Síðastliðinn sunnudag var sambýli fatlaðra vígt. Eyjablaðið
óskar Vestmannaeyingum til hamingju með þessa glæsilegu
byggingu.
Orð og athafnir
sjálfstæðismanna
Sjálfstæðismenn í minnihluta:
# Höfnin er lífæð okkar Vestmannaeyinga.
Henni verður tvímælalaust að sinna.
# Það þarf að gera stórátak í skólamálum.
# Við verðum að fjölga íbúðum í verka
mannaíbúðakerfinu.
# Það er nauðsynlegt að lækka skuldir
bæjarins og stofnana hans.
Sjálfstæðismenn í meirihluta:
# Það er engin ástæða til þess að vera að
eyða peningum í að ramma við höfnina.
# Barnaskólinn verður einfaldlega að bíða.
Nemendur og kennarar þar verða bara að
halda áfram að búa við alls ófullnægjandi
aðstæður.
# Ekkert verkamannabústaðakjaftæði hér.
# Hvað með það þótt skuldirnar hjá okkur
hafi hækkað um 350 milljónir á kjörtíma-
bilinu 1982-1986.
Alþýðubandalagið
er f lokkur ungs fólks
Alþýðubandalagið hefur mjög
fastmótaða stefnu í málefnum
ungs fólks, það sést sjálfsagt
best á því hvað hefur verið gert í
þágu þess á því kjörtímabili sem
er að líða. Til dæmis hefur aðst-
aða félagsheimilisins verið bætt
til muna og opnunartími lengd-
ur og er ekki annað að sjá en
þeir krakkar sem stunda félags-
heimilið séu mjög ánægðir með
það. Ekki alls fyrir löngu var
gerð könnun í 7. 8. og 9. bekk
hér í Vestmannaeyjum og sýndu
niðurstöður könnunarinnar að
félagslíf meðal unglinga á þess-
um aldri er mjög blómlegt, alla
vega ef miðað er við Akranes og
Kópavog, en þar voru gerðar
hliðstæðar kannanir og sýndu
niðurstöður að hlutfallslega
mun fleiri krakkar stunda virkt
félagslíf hér í Vestmannaeyjum
en á þessum tveimur stöðum.
Þetta er auðvitað mjög ánægju-
legt og er það stefna okkar hjá
Alþýðubandalaginu að halda
þessu við og bæta eftir getu, svo
blómlegt félagslíf megi dafna
hér í Eyjum um ókomna framtíð.
Á þessu kjörtímabili hóf bær-
inn að styrkja námsfólk sem
getur ekki stundað nám sitt hér
í Eyjum. Þetta er gert með því að
greiða til þeirra fyrir hverja
skólaönn, framlag sem ætlað er
upp í greiðslu á húsaleigu.
Þessu viljum við að sj álfsögðu
halda áfram og vonandi verður
færi á að hækka þessa styrki að
einhverju leyti.
Hvað vill unga
fólkið sjálft?
Okkur finnst mikilvægt að
unga fólkið fái að hafa áhrif á
stefnumörkun í sínum málum
og mætti fá álit þeirra og vilja
t.d. með könnunum og að það
fái sína fulltrúa í sem flestar
nefndir á vegum bæjarins.
Eitt af því sem hlýtur að vera
ofarlega á lista ungs fólks er að
geta eignast sitt eigið húsnæði
og koma sér vel fyrir. Alþýðu-
bandalagið mun að sjálfsögðu
styðja allt sem hjálpar ungu
fólki að koma undir sig fótunum
t.d. i gegnum verkamannabúst-
aðakerfið. Það er staðreynd að
þetta kerfi hefur reynst mörgu
ungu fólki vel, sem annars hefði
ekki átt möguleika á að eignast
sitt eigið þeimili.
Hver er sinnar
gæfu smiður!
Það hefur margt verið gert
fyrir ungt fólk á þessu kjörtíma-
bih, en auðvitað má alltaf gera
betur og mun Alþýðubandalag-
ið svo sannarlega reyna það, en
það er ek ki hægt nema með
ykkar stuðningi. Ég skora á
ykkur unga fólkið að kjósa Al-
þýðubandalagið svo áhrif ykkar
fái að móta sín á næsta kjörtím-
abili, því munið, að hver er sinn-
ar gæfu smiður.
Drífa Gunnarsdóttir
Verkamannabústaðakerfið hefur reynst ungu fólki vel.
VEISTU?
# Sjálfstæðismenn
ætluðu að seilast
ofan í vasa bæjar-
búa og láta þá
greiða fasteigna-
skatt af félags-
heimili sínu, Ás-
garði.
# Á síðasta kjör-
tímabili þegar sjálf-
stæðismenn fóru
með meirihluta í
Vestmannaeyjum
var ekki rekinn nið-
ur einn einasti
metri af stálþili við
höfnia. Þeir forystu-
menn sjálfstæðis-
manna sem fóru
með ferðina leita
nú að nýju til kjós-
enda og biðja um
kosningu. Þeirkjós-
endur sem hyggj-
ast kjósa Sjálfstæði-
sflokkinn 26. maí
verða að gera sér
grein fyrir því að
með því eru þeir að
kalla á stöðnun við
hafnarframkvæmd-
ir í Vestmannaeyj-
um.
Látum verkin tala. Veljum
£
AFL I SÓKN
26. maí