Eyjablaðið - 09.05.1990, Síða 2
2
EYJABLAÐIÐ
EYJABLAÐIÐ
Útgefandi: Alþýðubandalagið í Vestmannaeyjum
Ritnefnd:
Ragnar Óskarsson, ábm.
Sveinn Tómasson, Guðmunda Steingrímsdóttir,
Guðmundur Jensson, Drífa Gunr»arsdóttir.
Prentvinna: Eyjaprent/Fréttir hf.
Helstu áherslumál
Alþýðubandalagsins
Stefnu-
skráin
mótuð
Kosningastefnuskrá Alþýðubandalagsins fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar 26. maí n.k. liggur nú fyrir. Hún
verður kynnt í næstu Eyjablöðum. Þessa stefnuskrá hafa
frambjóðendur Alþýðubandalagsins unnið með hliðsjón
af þeirri umræðu sem fram hefur farið um bæjarmálin nú
að undanförnu.
Fjöldi bæjarbúa hefur gefið okkur frambjóðendum
góðar og gagnlegar ábendingar, ábendingar sem við
höfum síðan unnið úr. Niðurstaðan er síðan sú stefnuskrá
sem fyrr getur.
Það sem einkum einkennir stefnuskrána er trú okkar
Alþýðubandalagsmanna á framtíð Vestmannaeyjabæjar.
Við bendum á leiðir til þess að leysa þau fjölmörgu
verkefni sem framundan eru í bæjarfélaginu. Þessi verk-
efni viljum við leysa á grundvelli lýðræðislegra vinn-
ubragða, á grundvelli jafnréttis og félagshyggju.
# í stjórn bæjarins leggjum við áherslu á aukið lýðræði
og aukin áhrif bæjarbúa á ákvarðanatökur. Við leggjum
einnig áherslu á hóflega gjaldastefnu og að áfram verði
haldið að lækka skuldir bæjarsjóðs og stofnana hans.
# í félagsmálum leggjum við m.a. áherslu á góða
félagslega þjónustu. Þar þarf að halda áfram uppbygg-
ingu þeirrar þjónustu sem hófst á yfirstandandi kjörtím-
abili.
# 1 heilbrigðis- og umhverfismálum viljum við m.a.
beita okkur fyrir betri þjónustu sjúkrahúss og heils-
ugæslu. Einnig að gert verði átak í umhverfismálum, t.d.
að því er varðar mengunarvarnir og sorpeyðingu.
# í fræðslu- og menningarmálum er megináherslan á
því að halda áfram uppbyggingu skólanna, bæði á
grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Að hlúð verði að
söfnum bæjarins og að mótuð verði menningarstefna þar
sem lögð verði áhersla á sérkenni Vestmannaeyja.
# í æskulýðs- og íþróttamálum leggjum við áherslu á
að ungt fólk fái sem mest að hafa áhrif á stefnuna í
málefnum er það varðar. Við viljum gott samstarf við
íþróttahreyfinguna og félagasamtök ungs fólks. Við
viljum stuðla að auknu félagsstarfi unglinga á öllum aldri
bæði innan félagasamtaka, Félagsheimilis og innan skól-
anna.
# I atvinnumálum leggjum við áherslu á nauðsyn þess
að skapa hér fjölbreyttara atvinnulíf með ýmsum hætti.
# í samgöngumálum leggjum við áherslu á áframhald-
andi uppbyggingu hafnarinnar. Að nýsmíði Herjólfs verði
hraðað og að unnið verði að auknu flugöryggi á Vest-
mannaeyjaflugvelli.
# í málefnum kvenna leggjum við áherslu á aukin áhrif
kvenna í stjórn bæjarins og að sérstaklega verði hugað að
atvinnumálum þeirra.
# í málefnum ungs fólks leggjum við m.a. áherslu á að
unga fólkið sjálft fái aukin áhrif í stjórn bæjarins og að það
fái sjálft að hafa afgerandi áhrif á sín mál.
Á grundvelli þessar stefnumála gengur Alþýð-
ubandalagið nú til kosninga. Á grundvelli þessar
stefnumála treystum við því að bæjarbúar setji X við
G-listann 26. maí n.k.
R.Ó.
vegna bæjarstjórnarkosninganna 26. maí
Frambjóðendur Alþýðubandalagsins vegna komandi bæjarstjórnar-
kosninga hafa að undanförnu unnið að því að móta helstu áherslumál
sem Alþýðubandalagið mun beita sér fyrir í næstu bæjarstjórn.
Eyjablaðið kynnir í dag nokkur þessara áherslumála.
Frambjóðendur Alþýðu-
bandalagsins vegna komandi
bæjarstjórnarkosninga hafa að
undanförnu unnið að því að
móta helstu áherslumál sem
Alþýðubandalagið mun beita
sér fyrir i næstu bæjarstjórn.
Eyjablaðið kynnir í dag nokkur
þessara áherslumála.
Stjórn bæjarins
Að áhrif bæjarbúa á stjórn
bæjarins verði aukin með ýms-
um hætti t.d. með:
a) Almennum kynningar- og
upplýsingafundum meðal
bæjarbúa.
b) Kynningu á nefndum bæjar-
ins og störfum þeirra.
c) Viðtalstímum bæjarfulltrúa.
Félagsmál
★ Að dagvistarþjónusta verði
aukin. Þar koma ýmsir mögu-
loikar til greina svo sem einhver
eftirtalinna.
a) Að byggt verði nýtt daghei-
mili.
b) Að byggt verði við leikskól-
ann Kirkjugerði.
c) Að kannaður verði áhugi for-
eldra eða annarra tiltekinna
hópa til að stofna og reka dag-
heimili eða leikskóla.
★ Að unnið verði að því að
koma á fót skóladagheimilis-
deildum við grunnskólana.
★ Að haldið verði áfram
markvissri uppbyggingu öldr-
unarþjónustu. Helstu áhersl-
uþættir eru þessi:
a) Að aldraðir hafi sjálfir mót-
andi áhrif á stefnumörkun í
öldrunarþjónustu.
b) Að lokið verði við þjónustur-
ými við Hraunbúðir.
c) Að lögð verði áhersla á einbýli
þegar vistrými við Hraunbúðir
verður stækkað.
d) Að heimaþjónusta aldraðra
verði efld og öldruðum þannig
gert kleift að búa sem lengst í
eigin húsnæði.
e) Að aðstoða aldraða við að
stofna samtök til byggingar
íbúða.
f) Að stuðla að uppbyggingu
sambýlis aldraðra.
g) Að efla félagsstarf eldri borg-
ara.
★ Að haldið verði áfram upp-
byggingu félagslegs húsnæðis
samkvæmt lögum um verka-
mannabústaði, kaupleigu eða á
annan félagslegan hátt. Slík
uppbygging þarf að byggjast á
könnun á þörf fyrir félagslegt
húsnæði.
★ Að bæjaryfirvöld stuðli að
sem bestri þjónustu við fatlaða.
Heilbrigðis- og
umhverfismál
★ Að þrýsta á stjórnvöld að
tryggja rekstur Sjúkrahúss
Vestmannaeyja svo unnt sé að
nýta það að fullu.
★ Að þrýsta á stjórnvöld að
bæta aðstöðuna við heils-
ugæslustöð og sjúkraþjálfun.
★ Að unnið verði að því að
koma sorpeyðingarmálum í við-
unandi horf.
★ Að gert verði átak í mengun-
arvörnum að því að varðar:
a) Malbikunarstöð
b) Fiskimjölsverksmiðjur
c) Olíugeyma
★ Að áfram verði unnið að
varanlegri gatnagerð.
Að áfram verði haldið að
fjariægja ónýt hús með það fyrir
augum rð byggja að nýju á þeim
lóðum sem við það fást.
★ Að unnið verði að uppbygg-
ingu miðbæjarins og mið tekið
af tillögum sem bæjarbúar
leggja til í því sambandi. Sér-
staklega skal hugað að mögu-
leikum á byggingu íbúða ald-
raðra.
Málefni kvenna
★ Að áhrif kvenna í stjórn
bæjarins verði aukin, bæði í
áhrifastöðum, bæjarstjóm, ráð-
um og nefndum.
★ Að sérstaklega verði hugað
að atvinnumálum kvenna.
Málefni
ungs fólks
★ Að ungt fólk fái sjálft að móta
stefnu í þeim málum sem að því
snýr.
Að áhrif ungs fólks í stjórn
bæjarins verði aukin, bæði í
bæjarstjórn, ráðum og nefndum.
★ Að áfram verði unnið að
húsnæðismálum ungs fólks í
tengslum við félagslega hús-
næðiskerfið.
★ Að veittir verði styrkir til
námsfólks sem stundar nám
utan heimabyggðar, enda sé
ekki unnt að stunda sambæri-
legt nám hér heima.
★ Að ungt fólk eigi þess kost að
stunda sem lengst nám í heima-
byggð.
★ Að stuðlað verði að atvinn-
uöryggi skólafólks yfir sumar-
mánuðina.
HAFIÐ AHRIF!
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins í KREML er opin alla virka daga
frákl. 17:00- 19:00 og 20:00 -21:30
Laugardaga og sunnudaga er opið frá kl. 13:00 - 17:00.
KOSNINGASTJÓRN ALÞÝÐUBANDALAGSINS