Siglfirðingur - 30.11.1923, Síða 3
SIGLFIRÐÍNQU R
3
lýsingarnar vera eins? En annars
er þetta aukaatriði. Aðalatriðið er
þetta: Hvað er það sem liggur til
grundvallar því, að endilega þarf
að leigja út bryggjurnar svona
snenima, og útiloka með því marga
frá því að geta gert tilboð í bryggj-
urnar? F*ví að það ætti Hafnar-
nefnd og Bæjarstjórn að geta skil-
ið, að líklega verða þeir fáir sem
bjóða í bryggjurnar, áður en þeir
vita hvort þeir hafa nokkuð með
þær að gera eða ekki. . Og áreið-
aðlega þarf einhverja sjerstaka
hæfileika til þess að sjá það, að
þessi samþykt hafi verið gerð ein-
göngu með hag Hafnarsjóðs fyrir
augum.
B o r g a r i.
Frjettir.
Goðafoss fer frá Rvík á morgun
vestur og norður um Iand, fjórum
dögum á undan áætlun.
Æfisaga Guðm. Hjalíasonar al-
þýðufræðara mun koma út bráð-
lega í Rvík, ásamt einhverju af
fyrirlestrum hans.
Nýmjólk kostar ekki nema 50
aura líterinn í Reykjavík.
Boínía á að fara frá Reykjavík í
dag vestur og norður um land.
Viðkomustaðir ísafjörðnr, Siglufj.,
Akureyri og Seyðisfjörður. Getur
verið hjer á sunnudaginn.
800 kjósendur í Hafnarfirði hafa
skorað á ríkisstjórnina að breyta
fiskiveiðalögunum svo, að erlend
veiðiskip geti lagt upp afla sinn á
íslenskum höfnum.
Flugmaður frá Bandaríkjunum er
nýkominn til Reykjavíkur til þess
að kynnast lendingarstöðum fyrir
flugvjelar.
Togararnir afla vel og hafa að
undanförnu selt afla sinn fyrir 12
til 19 hundruð sterlingspund.
Útgefandi og ábyrgðarmaður:
Friðb. Níelsson.
Siglufjarðarprentsmiðja.
Skrá yfir bækur
sem fást í bókaverzlun Friðb. Níelssonar.
A.
Arna.rsta.pi, sex fyrirlestrar, í kápu 1.00
Aumastar allra, eftir Ólaffu Jóhannsdóttir, í kápu 1.50
— Do. — — — — í bandi 3.00
Annáll 19. aldar, eftir Pjetur Guðmundss., 1 —5 hefti öll á 7.00
Á öðrum hnöttum, eftir Sig. Pórólfsson, í bandi 2.60
Ástir og stjórnmál, eftir Baronsfrú Orzcy, í kápu 3.00
Aukaútsvör
Siglufjarðar 1924.
Niðurjöfnunarnefndin hefir nú
lokið hinu vandasama verki sínu
að þessu sinni, og er útsvarsskrá-
in lögð fram í dag, almenningi til
athugunar. Als var jafnað niður
100 þúsund krónum við 'aðalniður-
jöfnun á tæpa 400 gjaldendur og
þessutan töluverð upphæð við auka-
niðurjöfnun.
Hæóstu gjaldendurnir eru:
Á aðalskrá:
S. Goos.................Kr. 32840
H. Henriksen ... — 18000
Ásgeir Pjetursson . .
O. Tynes..................—
Hrogn og Lýsi, h. f. . —
Síldarv.sm. sam. ísl. verzl. —
Helgi Hafliðason . . —
Sn. Jónsson, verzlun . —
Sani. ísl. verzlanir, h. f. —
Porm. Eyólfsson . .
Á aukaskrá:
Severin Roald . . . Kr.
G. & O. Evanger . . —
Anton Jónsson ...
Kveldúlfur, h. f. . . —r
Edvin Jacobsen ... —
Siglufjörður.
Nauðungaruppboð
var haldið í gær hjá Stefáni B. Krist-
jánssyni og annað í dag hjá Páli S. Dalm-
ar á ýmsnm verslunarvörum.
V o r m F im b o g a s o n
blikksmiðnr var jarðsunginn síðastliðinn
þriðjudag.
9000
8000
7000
6000
3800
3000
1700
1500
2500
2100
1500
1400
1200
SIGLFIRÐIN.GUR
kemur út fyrst um sinn á hverjum föstu-
degi. Fyrsti árgangur, minst 40 blöð,
kosta 4 krónur er greiðist fyrirfram. í Iausa-
sölu 15 aura blaðið. Erlendis kostar blað-
ið 5 krónur.
Auglýsingar kosta 1 kr. hver centimeter
dálksbreiddar og greiðast við afhendingu
nema öðruvísi sje umsamið. Þeir sem
auglýsa mikið geta komist að samningi
um lægra verð. — Auglýsingum sje skil-
að á prentsmiðjuna eða til útgefanda fyr-
ir miðvikudagskvöld.
Ritstjórn og afgreiðslu annast útgef.
Ungmennafjelagið
ætlar að minnast fullveldis íslands á
morgun 1. des. í leikfimisal barnaskólans.
Hlutaveltu
ætlar Sjúkrasamlagið að hafa mjög
bráðlega. Er þess vænst að menn styðji
jafn þarft fyrirtæki og Samlagið er, með
því að gefa drætti og draga.
G ó ð u r a f I i
hefur verið undanfarna daga þegar á sjó
hefur gefið, En gæftir hafa verið stopulai.
Alþingiskosningin
i Eyjafjarðarkjördæmi hefir verið kærð
hjeðan úr bænum, bæði til yfirkjörstjórn-
ar og Stjórnarráðsins.
I n æ s t u v i k u
verða þeir, sem ekki hafa greitt iðgjöld
sín til Samlagsins, strykaðir út úr Sainlag-
inu.
Hvers vegna
er ekki búið að koma hjer upp sjúkra-
húsi ? Svör óskast!
Dýrasti maður
bæjarins nnin vera Matthías. Hann tók
upp á þeim skratta, að leggja saur og
skólpleiðslu út í Álalækinn svo að bæjar-
stjórnin, sem hvergí má saur sjá, neydd-
ist til að áætla 10 þús. kr. i lok á lækinn.
Viðbúið er að önnur 10 þús. fari til und-
irbúnings og eftirkasta, og kostar hann
þá bæinn jafnmikið og allir ómagarnir
til samans.
G u ð m. Hafliðason
hefur nýlega látið af afgreiðslu Eim-
skipafjelagsins, en við hefur tekið Þorm.
Eyólfsson kaiipm.