Siglfirðingur - 25.01.1930, Síða 3
SIGLFIRÐINGUR 3
HUSNÆÐI.
3—4 herbergi og eldhús óskast
frá 14. maí. — Skilvís mánaðarleg
greiðsla.
Tilboð auðkent Húsræði sendist
afgreiðslu Siglfirðings íyrir 1. febr.
Gjöf til ísiands, .
Bracken-stjórnin í Manitoba hefir
ákveðið að sæma Island minnis-
merki i tilefni af þústind ára hátíð
Alþingis 1930. Minnismerkið verður
úr bronsi, af Thomas H. Johnson
sem fyrstur islenskra manna gegndi
ráðherrastöðu í Vesturheimi. Blaðið
Lögberg prentar upp ummæli blaðs-
ins Manitoba Fre Press um þessa
ráðstöfun stjórnarinnar.
„Bronsmynd afhinum látna dóms-
málaráðgjafa Manitobafvlkis, Hon.
l'bomas H. Johnson, verður afhjúp-
að á þúsund ára hátíð Aiþingis á
íslandi 1930.
Stjórn Manitoba-fylkis heiðrar ís»
land með þessari mynd í viðurkenn-
in-garskyni fyrir hans nytsamlega
starf í þroskaferli Íslandingaí Mani-
toba.
Hátíð sú, þar sem minnismerki
þetta verður afhjúpað, ter íram í
tvennu lagi, það er að segja í höf'
uðstað ísiands, Reykjavík, og á
Pingvöllum.
Mrs. Hiiliard Taylor. er hlotið
hefir víðtæka viðurkenningu beggja
megin Atlantshafs, hefir verið falið
að gera uppdrátt að minnismsrkinu.
Er hún stödd i Lundúnum um
þessai mundir. Á meðal minnis.
merkja þeirra, e_r mrs. Taylor hefir
gerl uppdraetti að, má nefria stríðs-
minnismerkið á Broadway, brjóst=
líkan af Chief Peguis í Kildonan
skemtigarðinum og minningartöfluna
af sira Jóni heitnum Bjarnasyni,
fyrrum presti í fyrstu lútersku kirkju.
Hon. Thomas H. Johnson var
fæddur árið 1870 á Islandi. en
íluttist til Vestúrheims með foreldr-
um sínum barn að alöii. Hann var
fyrst kosinn á fylkisþing 1907 og
átti þar sæti síðan þar til hanndró
sig í hlje 1922. Gegndi hann fyrst
ráðgjafaembætti opinberra verka
í stjórn þeirri, er Hon. T. Norris
veitti forystu. en síðar dómsmála.
ráðgjafaembættí.
Á Norðmannahátíðinni miklu,
sem haldin var í Minneapolis 1927,
sæmdi Noregskonungur Thomas
0rðu Olaís hiris helgai FB.
Símfregnir frá Rvik.
ínnlent:
Forseti í sameinuðu þíngi kosinn
Ásgeir Asgeirsson. Aðrir forsetar
sömu og í tyrra.
Pær breytingar hafa orðið á
fastnefndum þingsins frá í fyrra
að fjárhagsnefnd er nú skipuð 3
mönnum í efri deild en 5 í neðri=>
deild, en áður voru 5 og 7. 1 menta-
málanetnd efrideildar er nú Páll
Hermannsson í stað Jóns i i.Stóra-
dal. I neðrideild hefir Jörundur ver«
ið kosin í fj-árveitinganefnd og Por-
leifur í landbúnaðarnefnd, en áður
var Jörundur í landbúnaðarnefnd
en Porleifur í fjárveitingan.
Pessi stjórnarfrumvörp hafa verið
lögð fram auk fjárlaganna. Um
loftskeytatæki, um eftirlit weð loft-
skeytatækjum íslenskra veiðiskipa,
um breyting á siglingalögunum, frum1
varp til sjómannalaga, um íræðslu-
málastjóra, um eyðing refa, um
bygging prestsetra. um lántöku rik-
issjóðs, breyting á lögum um al-
þingiskosningar í kaupstöðum (kjör-
dagur verði fyrsti vetrardagur). Um
mentaskólann, um mentaskóla Akur-
eyrar, um stofnun flugmálasjóðs, um
fimtardóm (er komi í stað hæsta.
rjettar), um bændaskóla, um kvik-
myndir og kvikmyndahús, um sveita*
banka.
Magnús Jónsson og Jón Ólafsson
flytja frv, um sámskóla Rvíhur.
Magnús Guðm. og Jón Sigurðs*
son flytja frv. um hafnargerð á
Sauðarkrók.
Fimm sjálfstæðismenn flytja frv.
um raforkuveitar til almeningsþarfa.
A Norðeyri viðSúgandafjörð hljóp
snjúfljóð um síðustu helgi, 45 kind-
ur fórust og 15 meiddust.
Björn Sigurðsson fyrrum bankastj.
er látinn,
Kosið hjer i dag, 15 þúsund á
kjörskrá.
í Hafnarfirði voru 1749 á kjör«
skrá. Verkamannalistinn fjekk 772
atkv. og kom að 5 mónnum (höfðu
áður 6) en sjálfstæðislistinn 636 og
kom að 4 (höfðu áður 3)
Útlent:
Frá Haag er simað að Yongs-
samþvktin hafi verið undirskrifuð.
Frá London er símað að flotas
málaráðstefnan hafi verið sett 2.6
þ. m. Opi nberir fundar verða ekki
haldnir fyr en í næstu viku en
starfað að undirbúningi fuadarhald-
anna þangað til.
B æ j a r s t j ö r n i n
hj'eit jfund 20. janúar. Var það
,fyrsti fundur hinnar nýkjörnu bæj-
arstjórnar og fór því fram kosning
í fastar nefdir. Sglf vlll nota tæki-
færið að óska fnfltrúunum til hnm>
i«gju með vandasama vírðingarstöðu
og óska að þeir reynist stöðunni
verðugir. Nefndark. fóru þannig:
Brunamálanefnd auk Bæjarfógeta
ug slökkviliðsstjóra : Hermann G.
Sigurðsson, Hertervig.
Ellistyrktar. og Ekknasjóðsnefnd:
Gunnl. B. Porsteinsson, Andrjes.
Fátækranefnd: Fanndal, Bæjar-
togeti, Andrjes.
Byggingarnefnd auk Bæjarfógeta;
G. Skarphjeðinsson, Hertervig,
Jón Ólafsson. Pórður Jóhannesson
Fasteignanefnd: Fanudal. Gunnl,
Andrjes.
Fjárhagsnefad auk Bæjarfógeta:
G. Skarphjeðinsson, P. Eyólfsson.
Veganefnd: Herm. Jörgensen, Jón
Kjörskrárnefnd: Hermann . G.
Sigurðsson. Bjarni Porsteinsson.
Rafveiiunefnd: G. Sk., Jörgensen,
Bæjarfógeti, Hertærvig. Dýrfjörð.
Vatnsveitunefnd: Jörgensen, H.
Einarsson, Jón Gíslason, Bæjarfó'
geti. Benóný Benediktson
Verðlagsskrármefnd auk Bæjarfó-
geta og Sóknarpr.: G. Sigurðsson
Bóknsafnsnefnd: G. Skarphjeðins.
Hannes Jónasson, Friðb. Níelsson.
Holræsanefnd: G. Skarphjeðinss,
Jörgensen, Gunnlaugur, S. A,
Blöndal, Egill Stefánson.
Mjólkurbúsnefnd: G. Sk., Jörgen'
seri, Herm., Sig. Egilsson, Andrjes
Spitalanefnd: Fanndal, Bæjarfógti,
Pormóður.
Hafnarnefnd: G. Sk., Bæjarfógeti,
J. Gíslasson, Sveinn Porsteinsson,
Vilhjálmur Hjartarsson.
Sóttvarnar- og heilbrigðisnefnd
auk Bæjarfógeta og Hjeraðslæknis:
Steingrímui Einarsson.
Kolasölunefnd: G. Sk., Bæjarfó-
geti. Pormóður Eyólfsson.
Endurskoðendur: Pjetur Björns-
son, Friðb. Níelsson, og til vara:
Sig. Gunnl. Bjarni Kjartansson.
Skólanefnd auk Guðrúnar Björns-
déttir: Jónína Tómasdóttir, Bergur
Guðm. Sig. Egilsson, G. T. Hallgr.
Auk nefndark. var tekið fyrir: