Siglfirðingur - 24.01.1931, Side 1
K O K S,
sjerstaklega gott dl raiðstöðvarhitunar,
til sölu fyrst um sinn.
Sören Goos.
Símfregnir frá Rvík,
Kaup við línuveiðar.
18 jan: Slitnað hefir upp úr samn-
ingum um kjör háseta á línuveið-
urum. Kemur nú til kasta sáttasemj-
ara ríkisins.
Kosningin í Bristol.
18. jan: Aukakosningin í Bristol
fór þannig, að fulltrúi Jafnaðarm.
fjekk 19,261 atkvæði, fulltrúi í-
haldsmanna fjekk 7,937 en sá frjáls-
lyndi 4,010.
Verkföllin ensku.
18. jan: Fulltrúafundur kolanámu-
manna í Cardiff hefir fallist á sam-
komulagstillögu í launadeilunni.
Vinna hefst því á mánudag. Vinnu-
stöðvun heldur enn áfram í breska
bómullariðnaðinum, 200,000 þús.
hættu vinnu á laugardaginn.
Póstþjófurinn dæmdur.
18. jan: Hásetinn af Drotning-
unni hefir verið dæmdur í 18 mán-
aða fangelsi, en skipsdrengurinn
sleppur senniiega við hegningu gegn
því að verða undir eftirliti vissan
tíma.
Mannfjöldi Noregs.
20 jan: Samkvæmt nýbirtum op-
inberum skýrslum er íbúatala Nor-
egs 3,809.078.
Frá Pjóðabandalaginu.
20. jan: Frá Genf er símað að
stofnun viðskiftabandalags samkv.
hugmynd Briands sje nú rædd i
bandalaginu og að samþykt hafi
verið nefnd til að athuga málið. —
Pá hefir komið þar fram tillaga um
að bjóða Tyrklandi, Rússlandi og
íslandi þátttöku í bandalaginu, og
er sú tillaga rædd í þinginu í dag,
Reki frá Apríl.
20 jan: Skipsbátur frá Apríl hefir
rekað við Hrúteyju á Breiðdalsvík,
var hann á rjettum kili en báðir
borðstokkar voru brotnir og sprung-
in borð í botninum. í bátnum var
vörpuslitur og kaðalspotti.
Isfirðingar snúa við blaðinu.
22. jan: Verkamannafjelagið á ísa-
firði hefir feit úr gildi afgreiðslu-
bannið á skipum sem flytja þangað
áfengi til áfengisútsölunnar. Detti-
foss flutti vin þangað í pósti síð-
ustu ferð.
Hörmulegt slys.
22. jan: A Reykjarfirði datt þriggja
ára barn ofan í pott ineð sjóðandi
vatni, og beið bana.
Aflasala.
22. jan: Max Pemperton 787,
Gylfi 1200, Bragi 1300, Barðinn
1353, Pormóður 773, Garðar 1100
stpd,
Mannslát.
22. jan: Hannes Hafliðason skip-
stjóri ljest á Landakotspítala, 65 ára
gamall.
Frá Breska þinginu.
22. jan: Breska stjórnin beið ó-
sigur í atktfæðagreiðslu í neðri mál-
stofunni í gær með 282 gegn 249
atkv. við umræður um skólaskyldu-
lögin. Málið ekki talið fráfarar-
atriði.
Sambandið við Dani.
22. jan: Fjelagið Heimdallur í
Rvík hefir samþykt að heita Sjálf-
stæðisflokknum eindregnum stuðn-
ingi í baráttunni fyrir sambandsslit-
um við Dani þegar í stað, eða svo
fljótt sem verða má, og til endur-
reisnar hinu íslenska lýðveldi.
Innflutningur.
22, jan: Fjármálaráðuneytið til-
kynnir að innflutningurinn í des-
ember hafi orðið 3.105.478 kr. þar
af til Rvíkur 1.686.335 kr,
Bannmálið í Bandaríkjunum.
22. jan: Frá Washington er símað
að Wækersham-nefndin, sem hafði
bannlögin og framkvæmd þeirra
til athugunar, hafi skilað áliti. Vill
nefndin herða framkvæmd laganna,
er mótfallin afnámi þeirra, leggur
áherslu á að drykkjuskapur sje mikill
í landinu og litilsvirðing fyrir lög-
unum, En ef frekari ráðstafanir til
að framfylgja lögunum beri ekki til-
ætlaðan árangur, leggur nefndin ,til
að lögin verði endurskoðuð.
Landhelgisbrot.
23. jan, „Ægir“ kom í gær inn
til Patreksfjarðar með 8 enska tog-
ara, sem hann kærði fyrir ólöglega
meðferð veiðarfæra. Sá níundi slapp
til hafs með 2 menn af „Ægir”.
Hvað vantar bæinn
okkar?
Undir þessari fyrirsögn geta bæj-
arbúar fengið rúm í blaðinu til að
skrifa um það, sem þeim finst að
bæinn okkar helst vanti. En með
því að rúm blaðsins er takmarkað,
eru væntanlegir þáttakendur beðnir
að vera stuttorðir.
Greinaflokkur þessi byrjar í næsta
tölublaði.
Peir eru að sjálfsögðu margir sem
dottið hefir eitt eða annað í hug,
sem betur mætti fara í bænum,
margt, sem hægt væri að framkvæma
eða lagfæra án mikils tilkostnaðar.
Peir, sem taka vilja þátt í þessum
greinaflokki, eru beðnir að senda
greinar sínar hið allra fyrsta, og
verða þær svo birtar eftir hendinni.
Ritstj.