Siglfirðingur - 31.01.1931, Qupperneq 1
IV. árg.
Siglufirði, Laugardaginn 31. jan. 1931
9. tbl.
Símfregnir frá Rvík, stjórnin vann með 277 atkv. gegn
250.
Innilegasta hjartans þakklæti fyrir
Togarinn sem slapp.
26. jan: „Castoria“, enski togar-
inn sem strauk með 2 menn af
„Ægir“ á dögunum/ kom til Pat-
reksfjarðar í gær. Málið í rann-
sókn.
27. jan: „Castoria" fjekk 1200 kr.
sekt fyrir mótþróa við „Ægir” og
fyrir ólöglegan umbúnað veiðarfæra.
Stjórnarskiftin í Frakklandi.
26. jan: Briand hefir verið falið
að mynda stjórn, en hann neitað
því.
27. jan: Pierre Laval hefir mynd-
að stjórn. Briand er utanríkisráð-
herra og Tardie landbúnaðarráð-
herra.
Frá Spáni.
26. jan: Hernaðarástandinu á
Spáni er afljett.
29. jan: Stjórnarandstæðingarnir
á Sp^ni hafa í hótunum að taka
ekki þátt í kosningunum 1. inars.
Aflasala.
27. jan: Pórólfur 1176, Ha nnes
ráðherra 1566 stpd.
Húsbruni.
29. jan: A miðvikudagsmorgun-
inn kviknaði í íbúð Kristmundar
verslunarstjóra yfir sölubúð Versl-
unarfjelags Hrútfirðinga á Borðeyri.
Fólk bjargaðist nauðlega. Innan-
stokksmunir voru óvátrygðir og
björguðust ekki. Borðeyringar og
Goðafossmenn gengu vasklega fram
við að slökkva. — í morgun brann
vöruskúr skamt frá búðinni, sem
neisti hefir líklega hrokkið í frá
bálinu, þó ekki kviknaði þar eldur
fyrri. — A þriðjudaginn var ofsa-
veður á Borðeyri, og lá við að
Goðafoss ræki á Iand,
Frá Englandi.
29. jan: í gærkveldi var beðið
með mikilli eftirvæntingu í Eng.
landi eftir úrslitum um atkvæðagr.
um lög um vinnudeilur, og var
jafnvel búist við stjórnarfalli. En
Deila í Mentaskólanum.
30. jan. Nemendur Mentaskólans
í Rvík hafa ákveðið verkfall á laug-
ardag og mánudag út af ágreiningi
sem orðið hefur milli kennara skól-
ans nemendanna. Upphaflega var
deiluefnið lítilfjörlegur ágreiningur
um stílagerð í frakknesku.
Guíuskipið ,,Ulv“
strandar á Paralátursskerjum,
21 manns farast.
Fisktökuskip Kveldúlfs, „Ulv“
kom hingað frá Akureyri aðfaranótt
mánudagsins 19. þ. m. og tók hjer
um 5000 pakka af fiski. Hjeðan fór
skipið kl. 7 á þriðjudagsmorgun 20.
þ. m. áleiðis til Rvíkur, en átti að
að koma við á Súgundafirði og'taka
þar nokkuð af fiski til viðbótar.
Pegar skipið fór hjeðan var kyrt
veður en nokkuð þungur sjór af
norðaustri og loftvog fallandi. Er á
dagijin leið fór sjór vaxandi, en veð-
ur mátti heita kyrt til kvölds. en þá
byrjaði snjókoma með stormi er
brátt snerist upp í reglulega norð-
austan stórhríð með 4—6 stiga frosti.
„Goðafoss" sem þá var hjer á vest-
urleið, lá hjer veðurteptur i 3 sól-
arhringa.
Pegar veðrinu slotaði og skipið
kom hvergi fram, fóru menn að
óttast um afdrif þess. Ef alt hefði
gengið vel fyrir skipinu, hefði það
átt að vera við Horn um kl. 7—8
á þriðjudagskvöld, því frá Siglunesi
að Horni eru 86 sjómílur. Og í
norðaustan sjó og vindi hefði skip-
inu átt að vera borgið úr því kom-
ið var fyrir Horn.
Laust eftir helgina var farið að
leita skipsins, fyrst fyrir Vesturlandi,
en er það ekki fanst þar, var leitað
á Húnaflóa og meðfram Ströndum.
I útvarpsfrjett í gærkvöld og
fyrrakvöld segir að varðskipið Ægir
hafi sent bát í Iand á Reykjarfirði
hinum nyrðri á Ströndum, og þar
auðsýnda hluttekningu við fráfall
og jarðarför okkar heittelskuðu dótt-
ur og systur Kristínar Blöndal.
Foreldrar og systkyni.
hafi þeim verið skýrt svo frá, að 22.
þ. m. að morgni hafi byrjað að
reka úr skipinu „Ulv” frá Hauga-
sundi, sem muni hafa strandað á
Paralátursskerjum. Hildýpi er fram-
an við sker þessi oj* á milli þeirra,
enda sjest nú ekkert til skipsins.
Pað mun þvi enginn vafi vera á
því lengur, að þarna hafi skipið
farist og menn allir sem á því voru.
Hversvegna lendir skipið þarna,
svona langt úr siglingaleið? Pví
er ekki gott að svara. En hugsan-
legt er að sjór og straumur hafi
borið það þetta út af siglingaleið,
og land ekki sjeðst vegna snjókom-
unnar. Hitt er þö öllu sennilegra,
að alvarleg bilun hafi komið að
skipinu, svo sem á vjel eða stýris-
útbúnaði, og það síðan rekið þarna
upp.
E.s. „Ulv“ var úr stáli, bygður í
Oslo 1902, 1471 brutto smál. að
stærð með 707 hk. gufuvjel. Skipið
hafði 16 manna áhöfn og hjet skip-
stjórinn J. O. Lange, 36 áragamall
og var talinn mjög gætinn sjómað*
ur. Kona skipstjórans, 28 ára gömul,
dóttir skipseigandans, Kvilhaug í
Álasundi, var með skipinu þessa
ferð.
Frá Akureyri var einn farþegi,
Aage Larsen, 21 árs að aldri.
Hjeðan voru tveir farþegar: Hregg-
viður Porsteinsson kaupm. 50 ára
gamall og Jón Kristjánsson sjómað-
ur 27 ára gamall.
Auk þess var með skipinu um-
boðsmaður Kveldúlfs Ólafur Guð-
mundssoti skipstjóri. Voru þannig
als 21 manns á skipinu.
Ekkert lík hafði rekið er síðast
frjettist.