Siglfirðingur - 07.02.1931, Page 1
Helgi Kjartansson
símritari
andaðist að hcimili sínu hjer í
bænum, 5. þ. m. úr berklaveiki.
Hann var aðeins 24. ára gamall og
hinn mannvænlegasti maður.
Símfregnir írá Rvík,
Mentaskóladeilan.
3. febr.: Prír fundir hafa verið
haldnir út af deilunni í Mentaskól-
anum, einn meðal nemenda, annar
meðal háskólastúdenta, þriðji meðal
aðstandenda nemendanna. A fundi
aðstandendanna varsamþykt að gera
ekki tilraun til að rjúfa samtök nem-
endanna að svo stöddu, en kosin
fimm manna nefnd til þess að ieita
samkoinulags við skólastjörnina. I
nefndina voru kosnir Gustav Sveins-
son, Jakob Möller, Jón Baldvinsson
Sig. Eggertz og Poíkell Porkelsson
veðurfræðingur.
4. febr.: Sættir eru komnar á í
Mentaskólanum. Hafa nemendur
lofað að beita ekki samtökum gegn
kenslu eða reglugerð skólans nema
þeir verði órjetti beittir. Og þar
sem kennarafundur áleit fjarstæðu
að kennarar beiti nemendur órjetti,
en brjef nemenda að öðru leyti
fullnægi settum skilyrðum, ákvað
ker.narafundur að telja málið út-
kljáð.
/
Armannsglíman.
3. febr. Sigurður Thorarensen
vann Armannsskjöldinn.
Jarðskjálftar.
4. febr.: Feikna miklir landsskjálft-
ar í Nýja-Sjálandi á þriðjudags-
morgun, stóðu yfir í tvær stundir.
Borgirnar Napier og Gisborne eyði-
lögðust að kalla og að minsta kosti
150 manns hafa farist.
5. febr.: Talið er að 300 manns
hafi farist í jarðskjálftunum. Hrær-
ingar halda áfram.
Frá Spáni.
4. febr,: Frá Madríd er símað að
undirskrift konungs undir saman-
köllun þingsins sje frestað og því
borið við, að konungur verði að
fara til Lundúna vegna veikinda
drotningarinnar.
Atvinnuleysið í Englandi.
4. febr.: Pann 26. jan, var tala
atvinnulausra manna í Englandi
2.392.065, eða 15,756 minna en
vikuna á undan en 1.101.131 qieira
en á sama tíma í fyrra,
Aflasalan.
4. febr.: Júpiter 1701, Venus 2000
Valpole 1730, Geir 830 Ólafur 722,
Rán 1344, Skallagrímur 1024 stpd.
Vaxtalækkun.
5. febr.: Rikisbankinn í Stockholm
hefir lækkað forvexti niður í 1| prc.
hafa forvextir aldrei verið lægri það
sem af er þessari öld.
Búnaðarþingið.
5. febr.: Búnaðarþingið var sett í
dag.
Frá Englandi.
5. febr.: Nokkrar eftirtektaverð-
ar kosningar standa ynr þessa daga
í Englandi.
6. febr.: Aukakosning í East
Toxteth Liverpool fór þannig, að
íhaldsmenn fengu 17,040 atkv. en
jafnaðarmenn 5,550. limframatkv.
íhaldsmanna eru því 11,490.
Kjör á línuveiðurum.
6. febr.: Sáttasemjari rikisins hefir
haldið marga fundi með samninga-
nefndum sjómannafjelagsins og línu"
bátaeigenda. A fundi í gærkvöldi
slitnaði upp úr öllum samningum.
Atvinnubætur í Rvík.
6. febr.: Bæjarstjórn Rvíkur hefir
safnað skýrslu um atvinnuleysið í
bænum og hafa 324 menn gefið
sig fram. Af þeim hafa 63 þegar
fengið atvinnu og hafa þeir fyrir
234 börnum að sjá.
Innilega þökkum við öllum þeim,
sem á einn eða annan hátt sýndu
okkur samúð og hluttekningu við
andlát og jarðarför Geirlagar Guð-
mundsdóttir.
Hólmfríður Sigurgeirsdóttir.
Páll Jónsson.
Alfa Pálsdóttir.
/
Utvarpið næstu viku.
Alla daga vikunnar:
19.25 Hljómleikar
19.30 Veðurfregnir
21 Frjettir
Pess utan það er hjer segir:
Sunnudag 8. febr.
16.30 Pálmi Hannesson: Barnasögur
17 Messa í Dómk. K. Arngr. Húsav.
19,40 Svanh. í’orsteinsd. Uppl.
20.10 Söngur Garðar Porsteinsson
20.30 Guðm. Finnb. fslendingar og dýrin
20.50 Ýmislegt
21.20 Hljóðfæraleikur
Mánudag 9. febr:
19.40 Gísli Jónsson Barnasögur
19.50 Hljómleikar.
20. Enskukensla 1. flokkur
20.20 Kjartan Ólafsson Kvæðalög
20.30 Alexander Jóhaanss. Flugmál ísl.
21.20 Hljómleikar
Priðjudag 10. febr:
19.40 Magnús Árnason Upplestur
20. Þýskukensla. 1. flokkur
20.20 Hljómleikar
21.20 5'ig. Nordal Upplestur
Miðvikudag 11. febr:
19.40 Aðalsteinn Eiríksson Barnasögur
20, Enskukensla 1. flokkur
20.20 Hljómleiknr
20.30 Sig. E. Yfirl. heimsviðburðanna
21.50 Guðrún Árnad. Einsöngur
Fimtudag 12. febr:
19.40 Hallgr. Jónss. Barnasögur
20. Þýskukensla 1. flokkur
20.20 Hljómleikar
20,35 Jón Eyþórss. Pættir úr veðurfr.
21.20 Karlakór Reykjavíkur
Föstudag 13. febr:
1 9,40 Vilhj. I3. Gíslason Uppl.
20, Enskukeasla II. flokkur
20.20 Hljómleiknr
21.20 Sij. Skúlason Um galdra
21.40 Dagskrá næstu viku
Laugardag 14. febr:
13. Pingsetning.
1 9.40 ■ Theódóra Thoroddsen Barnasögur
20 Pýskukensla II. fl.
20.20 Hljómleikar
20,30 Páll E. Óla. Jón Sig. á Alþ, 1865
21.20 Danslög til háttatíma