Siglfirðingur - 21.03.1931, Page 2
2
SIGLFIRÐINGUR
S k í ð a m ó t.
Dagana 27. og 28. þ. m. verður
háð hjer skíðakappmót. Kept verð-
ur þar í stökkí, 10 km. göngu og
sljettrí brekku, ef færi ieyfir. I
stökkinu verða karlmenn flokkaðir
þannig:
I. fl. 15 ára og eldri
II. — 12—15 ára og
III. — yngri en 12 ára.
Konur keppa í stökki og sljettri
brekku allar í einum aldursflokki.
I kappgöngunni fá ekki aðrir að
keppa en þeir sem keppa í I. fl. í
stökki.
Rátttakendur eru beðnir að gefa
sig fram við Vilhjálm Hjartarson
fyrir 25. þ. m.
A skíðamóti þessu verður, með
aðstoð hr. Torvö reynt að samræma
einkunnargjöf fyrir hin einstöku ?f-
rek skíðamannanná, við þær al-
þjóðavenjur, sem Norðmenn fylgja.
Af því menn hjer eru ókunnugir
þessum einkunnagjöfum, þá vil jeg
reyna að skýra þær að nokkru með
örfáum orðum.
A öllum aðal skíðakappmótum
heimsins eru bestu verðlaun
í skíðaíþróttinni veitt þeim skíða-
manni, sem fengið hefir flest stig,
samanlagt fyrir stökk og 17 km.
göngu í sínum flokki.
Dæmi um 2 bestu afrek:
Skíðamaðurinn A fær 71 stig í
stökki og 17 stig í göngu, eða alls
88 stig.
R fær 69 stig í stökki, en 20
stig í göngu, alls 89 stig.
A þennan hátt fær B fyrstu verð-
laun. Munurinn á þessum tveimur
mönnum er sá, að annar er besti
afreksmaður í stökki (A) en hinn í
göngu (B). Báðir góðir skíðagarpar.
Norðmenn þykjast hafa fundið
út rjettlát hlutföll milli þessara
tvejgja afreka svo að úrslit þessarar
einkunnar sje sá rjettlátasti mæli-
kvarði sem lagður sje á þessa tvo
afreksmenn þegar gera þurfi upp á
milli þeirra.
Einkunnir og röð allra keppenda
í hverjum fl. fyrir sig er síðan
reiknuð eins, og ætíð miðað við
besta afrek í hverri grein og gefin
20 stig fyrir það. “
1 kappstökki fær hver keppandi
að stökkva 2 stökk. Fyrir hvert
stökk fær hann 2 einkunnir, aðra
fyrir stökklengd og hina fyrir skiða-
stöðu og allan limaburð og leikni
í stökkinu.
Dómarinn (geta lílta verið 2) sem
gefur fyrir skíðastöðuna fylgir öllum
hreyfingum skíðamannsins frá því
’nann fer af stað óg þar til hann
er kominn yfir marklínuna.
Fyrir stökklengdina er eink. á-
kveðin eftir töflum alt miðað við
lengsta standandi stökk í flokknum
sem skylt'er að gefa 20 stig fyrir.
Síðan er eins gefið fyrir næsta
stökk.
Sá sem t. d. fær í 1. stökki:
15 stig f. stöðu og
)8 — - stökklengd
í 2. slökki:
%
13 stig f. stöðu og
19 — - stökklengd,
fær alls 65 stig.
Annar sem t. d. fær 19 stig í
stöðu, 20 stig í stökklengd í 1.
stökki en dettur í 2. stökki fær alls
39 stig á mótinu og hefir engar
líkur til að fá sæmileg verðlaun þó
hann sje góður stökkmaður at' því
annaðhvort hepni eða vissu vanlaði.
Ressu ættu skíðamennirnir aö
veita athygli; að sá sem ekki stend-
ur bæði stökkin er oftast nær
úr sögunni hvað verðlaun snertir,
þó góður sje, ekki síst eí þátttak-
endur eru margir og nokkuð jaínir.
Auk verðlauna fyrir besta afrek
í göngu og stökki samanlögðu, verða
veitt á móti þessu 1. 2. og 3. verðl. í
hverjum flokki fyrir hverja íþrótta-
grein.
Siglufirði 18. mars 1931
Guðrn. Skarphjeðinsson.
Hin ljúfa sönglist leiðir
á líflö fagran blæ
hún sorg og ólund eyðir
og elur himinfræ.
Pannig hefir verið kveðið um
sönglistina, er með rjettu hefir verið
nefnd drotning í ríki listanna, muriu
og flestir sammála um, að fátt eða
ekkert, sje meira göfgandi, ekkert
lyfti huganum hærra yfir dægur-
þras og nágrannakrit en einmitt
sönglistin.
Gamall sveitabóndi er hafði keypt
harmonium handa börnum sínum,
og látið þau læra á það, komst
þannig að orði: „Pað er sama hve
þreyttur og úrillur jeg er á kvöldin,
ao þegar krakkarnir fara að leilca á
hljóðfærið, og syngja, þá er eins og
velt sje af mjer þungri torfu. Pá
er eins og sál mín vaggist á öidum
tónanna inn á einhver undralönd
og smámunirnir, sem þreyltu mig
og gerðu mjer þungt í skapi, hverfa
og verða að engu“.
P E R U R allar stærðir
ÁSGEIR BJARNASON
Hjer í bænum hefir verið starf-
andi um alllangan tíma söngfjelag,
er nefnir sig karlakórið „Vísir“.
Fullyrða má að alt frá byrjun helir
fjelagið starfað af áhuga og ást með-
limanna á sönglistinni, en ekki af
frægöarvon eða auraþrá. Murc og
fjárhagur löngum hafa verið þröng-
ur hjá fjelaginu, þó skylt sje að
geta þess að bfejarstjórn hefir metið
viðleiíni þessara manna, og veitt
fjelaginu nokkurn fjárhagslegan stuðn-
ing. A síðastliðnu ári tók fjelag
þetta þátt í söngmóti er haldið var
í Reykjavík af sambandi íslenskra
karlakóra, og er óhætt að fuliyrða
að þar hafi fjelagið komið fram til
sóma fyrir Siglufjörð. Hefir fjelag-
ið ruí, þrátt fyrir þröngan fjárhag,
ráðist í að fá hingað liinn ágæta
söngkennara Sigurð Birkis til að
lcenna meðlimum fjelagsins; dvaldi
hann og hjer, um mánaðartíma,
síðastlíðin vetur, og má telja víst
að fjelagið hafi haft ómetanlegt gagn
af veru hans hjer.
Heyrst hefir að Vísir hafi í hyggju
að láta heyra til sin opinberlega,
nú á næstunni, og hafi þá að mestu
eða öllu leyti nýja söngskrá; þar á
meðal lag úr hinni nýju kantötu sr.
Bjarna Porsteinssonar, er margan
mun fýsa að heyra. Munu og á
söngskránni verða eitt eða fleiri lög
þar sem hinn góðkunni tenor, Aage
Schiöth, syngur einsör.g.
Ættum við Siglfirðingar að sýna
að við kunnum að meta viðleitni
söngfjelagsins Vísir með því að
fyila húsið er fjelagið lætur til sín
heyra. Með því vinnum við þrent
í einu, veitum sjálfum okkur ágæta
og holla skem'tun, hjálpum fjelag-
inu i fjárhagsörðugleikum þess, og
veitum því uppörfun til að halda
áfram hinu góða og göfgandi starti
sínu.
Söngvinur.
InnflHttar vörur í febrúnrmánuöi námu
kr. 2,309,755. finr nf til Rvíkur kr.
1,800,508.