Siglfirðingur - 16.05.1931, Side 1
o
Viðhorf íslenskra stjórnmála
Framh.
Kjördæmaskipunin.
Langt er síðan að bestu rnenn
þings og þjóðar sáu það, að hin
gamla kjördæmaskifting er ranglát.
A þessu og engu öðru bygðist það,
að hinir Iandskjörnu þingmenn
skyldu kjörnir eftir hlutfallskosn-
ingu. Atti það, eins og skyldugt var,
að bæta að nokkru flokkunum, þeim
er harðast verða úti um ranglæti
kjördæmaskiftingarinnar, ofurlítið
upp misrjettið.
Við kjördæmakosningarnar 1927
voru alls greidd 32000 atkvæði á
öllu landinu, og skiftnst þau þann-
ig milli flokkanna:
Sjálfstæðisflokkurinn fjekk um 15500
Framsókn ... — — 9500
Alþýðuflokkurinn — — 6100
Flokksleysingjar . — — 900
Tala þingmanna varð þó þessi:
Sjálfstæðisfl. fjekk 14 þingsæti
Framsókn — 17 —
Alþýðufl. — 4 —
Flokksleysingjar — 1 —
Ef allir kjósendur hefðu hinsveg-
ar veriðjafn rjettháirvið kosnir.garn-
ar, eins og þeim ótvírætt ber rjett-
ur lil eftir anda kosningalaganna og
almennum mannrjettindum, hefði
þingmannatalan orðið sem hjer segir:
Sjálfstæðisflokkurinn hefði fengið 17
Eramsóknarfl. — — 31
Alþýðuflokkurinn — — 7
Flokksleysingjar — — 1
Þetta eru svo augljós dæmi, að
hver og einn getur gengið úr skugga
um, að þetta er rjett.
Sakir þessa, hve Sjálfstæðisfl. er
sterkur með þjóðinni, var gefið, að
hann með landskjörsatkvæðunum
gat átt vist að verða í meirihluta í
efrideild þingsins, og sá því Fam-
sóknarstjórnin að þrátt fyrir rang-
lætið í kjördæmaskiftingunni gat svo
farið, að henni yrði ókleyft að stjórna
landinu í trássi við Sjálfstæðis-
menn.
Til þess því að fyrirbyggja að
slíkt gæti átt sjer stað, flutti Fram-
sóknarstjórnin á síðasta þingi frum-
varp til stjórnarskrárbreytingar er
meðal annars fór í þá átt að af-
nema landskjörið, án allrar minstu
rjettingar á kjördæmaskipuninni.
Aðal ástæðan sem fram var færð
fyrir þessu, var það, hve mikið fje
sparaðist með þessari þingmanna-
fækkun.
Fegar jafnaðarmenn tjáðu sig
breytingunni fylgjandi ef endurskoð-
uð vœri öll kjördœmaskiftingiti var
ítað ófáanlegt hjá Framsókn enda
þótt hún hefði breytt áður lögum
þessum til hagsmuna fyrir Jafnaðar-
menn, er tekið var annað þingsæt-
ið frá Gullbringu- og Kjósarsýslu og
fengið í hendur Hafnfirðingum. Og
auk þess flutti Framsókn í vetur til-
lögu um að Siglufjörður yrði sjer-
stakt kjördæmi.
Jafnaðarmenn sáu þó við þessum
hrossakaupum stjórnarinnar. og
hjeldu fast við sinn keyp um al-
gjörða endurskoðun og breytingu á
kosningalögunum og nutu til þessa
óskifts fylgis Sjálfsíæðismanna.
Fessi blekkingavefur Framsóknar
er hún óf til þess að lama fylgi
Sjálfstæðis- og Jafnaðarmanna, var
því rifinn niður, sem betur fór, og
Sjálfstæðismenn og Alþýðuflokks-
menn beittu sjer því fvrir því að
hrinda fram þeirri breytingu á stjórn-
arskránni, að með einföldum lög-
um mætti koma á hlutfallskosningu
í sjerstökum kjördæmum. En með
þessu eina móti var hægt að koma
fram þeirri sjálfsögðu rjettlætiskröfu,
að allir flokkar fengi þingmannatölu '
í hlutfalli við atkvæðamagn sitt.
Er þessi krókur kom á móti her-
bragði Framsóknar, varð gnýr mik-
ill og vopnabrak í stjórnarherbúð-
unum; endaði svo brölt þeirra í al-
gjörðu falli stjórnarinnar eins og
kunnugt er.
En síðan þessir atburðir urðu, og
Framsókn ákvað að standast „dóm
SKIPAVERSLUN
Siglufjarðar
Smurningsoliur fyrir allur vjelar.
Balata og Gumireimar, Reimavax,
Reimaldsar.
þjóðarinnar” hafa vitrustu menn
stjórnarinnar föllnu verið að brjóta
um það heilann, hvaða slagorð yrði
fundið nægilega áhrifamikið til að
viðhalda fylginu í sveitunum, því
vitanlega varð stjórnin og flokkur-
inn allur felmtri sleginn, er stjórnin
fjell. Hið mikla problem varð vita-
skuld eigi torleyst. Slagorðið var
fundið. Heróp Framsóknarmanna í
kosningunum skyldi verða þetta:
„Bœndur! Varið ykkur d Reykjavik-
urvaldinu!“ — „Ef Sjálfstæðismenn
og Alþýðuflokkurinn fær hrundið
fram sinni kröfu um breytingu á
kjördæmaskipuninni, eru ykkar dag-
ar taldir, bændur góðir! — „ Varið
ykkur d Reykjavikurvaldinu/“ Pessa
„plötu“ á nú að spila á öllum Fram-
sóknarstúkum í landinu. Og þessi
sama lírukassamúsík á að klingja á
öllum kjörfundum um land alt.
Nú er bændunum sagt það með
„öllum þeim Tryggva-þunga og allri
þeirri Tryggva-alvöru" er Fram-
sóknarframherjarnir eiga tíl, að allir
kjósendur Sjálfstæðisflokksins og all-
ir kjósendur Jafnaðarrranna og allir
kjósendur Kommúnista sitji á svik-
ráðum við íslenska Framsóknar-
bændur, sem sje kjarni og mergur
þjóðarinnar. — „Pað á að taka af
ykkur kosningarrjetlintV ! segja þeir
„og fá hann í hendur bröskurum
og blóðsugum Sjálfstæðisflokksins
og Grimsbylýð verkamannanna á
kaupstaðarmölinni”. — „Pað á að
kúga ykkur! Pað á að eyðileggja
SKIPAVERSLUN
Siglufjarðar
EldhtísdhöÍd a/skonar, Saumur allar
tegundir og margskonar jdrnvörur.