Siglfirðingur


Siglfirðingur - 06.06.1931, Qupperneq 2

Siglfirðingur - 06.06.1931, Qupperneq 2
2 SIGLFIRÐINGUR Nauðungaruppboð verður haldið þriðjudaginn 16. þ. m. kl. 1 síðdegis og þar selt, ef við- unanlegt boð fæst: 2 snurpunótabátar, skrifborð, skápur, ritvjelaborð, stól- ar, balar,- balastólar, stúfkrókar, fiskihnífar, sporvagnar, síldarkassar, pæk- ilker, hakar, peningaskápur, vigt, saltkassar, tunnutryllur, eldhúsáhöld, síldarnet, netjateinar, blikkfötur, o. fl. tilheyrandi þrotabúi Gísla Johnsens. Skrifstofu Siglufjarðar 4. júní 1931 G. Hannesson. Síldveiðin. Stöðvast hún alveg? Útvarpið færði okkur þær fregn- ir eigi alls fyrir löngu, að síldar- bræðsluverksmiðjur Dr. Paul og S. Goos hjer í bænum, mundu ekki verða starfræktar í sumar, og verk- smiðjan í Krossanesi að mjög litlu levti. Um rekstur ríkisverksmiðjunn- ar var það sagt, að óvíst væri um það, að hve miklu leyti hún yrði starfrækt. Stjórn hennrr hefir kom- ist að þeirri niðurstöðu, að ekki sje hægt að greiða meira en 3 kr. fyrir síldarmálið í mesta lagi. Og eftir iögum verksmiðjunnar um 70 prc. útborguri áætlaðs afurðaverðs, yrði þá útborgun 2,10 á hvert mál síld- ar. Hvort nokkurntíma fæst meira, er að sjálfsögðu komið undir sölu afurðanna og reksturkostnaði. Hjer er um alvarleg tíðindi að ræða. Að vísu hafði áður heyrst, að óvíst væri um starfrækslu hjá Dr. Paul, en menn höfðu alment von- að, að fram úr því mundi rætast. Núvirðist sú von vera horfin með öllu. Pá er rikisverksmiðjan, þessi bjargvættur útgerðarinnar. Hvað gerir hún? Hjálpar hún þegar mest á ríður? Ef hún ekki gerir það, þá er til lítils barist. Pegar allir vilja kaupa bræðslusíld og borga vel fyrir, þá er hennar engin þörf. Pegar kaupendum fækkar, þá fyrst reynir á gagnsemi hennar. Og þá kemur hjálpræðið! Tvær krónur og tíu aura geta sjómenn fengið fyrir málið. Meira ekki, nema ef reksturkostnaður fer ekki fram úr áætlun og e f afurðaverðið fellur ek'.ci meir. En hverjir geta veitt síld fyrir þetta verð? Pví er fljótsvarað. Ef nokkur síldveiði á að verða, þá verður annaðhvort verð hennar að hækka, eða vinnu- launin að lækka. — Framsóknarstjórnin hefir unnið að þessum andstæðum með óvit- urlegum ráðstöfunum. Hún hefir valdið verðfalli afurðianna að mestu leyti, og stuðlað að hækkun kaup- gjalds. Hvorugt er hún fær um að laga aftur. Afleiðingin verður því sú, að atvinnuvegirnir stöðvast, at- vinnuleysið eykst og afkoma þjóð- arinnar fer versnandi með ári hverju. Munum þetta 12. júní. Kommandör Wilkins er lagður á stað frá Ameríku til Spitsbergen á kafbátnum Nautilus, með 19 manna áhöfn. , Kosningamolar. Jóncs (Lewir Framsókn. Jónas frá Hriflu skrifar í Tím- ann 17. tbl. 1927: „Hve lengi á að taka lán á lán ofan erlendis? Og hvenær verður þjóðin búin að borga þessi lán? Og hvað verður um frelsi og fullveldi þeirrar þjóð- ar, sem erlendir lánardrotnar geta hnept í varanlega fjárhagsfjötra? — — Hvenær sem á reynir mun Framsókn gripa stór og lítil tæki- færi til að gera ísl. þjóðina óháða erlendu valdi. — Um stund verða mestu átökin í fjármálunum — Framsókn verst skuldum og veit að skuldirnar við útiönd eru þræls- bönd á landið og þjóðina". ísl. kjósendur! Athugið vandlega hvernig Jónas frá Hriflu hefir efnt þessi fögru fyrirheit frá árinu 1927, áður en þið gangið að kjörborðinu. Athugið að svikin loforð eru þús- und sinnum verri en engin loforð. — Jónas lofaði 1927. Framsókn sveik 1928. 1929, og 1931. — Kjós- endurnir ráða því, hvort hún fær að svíkja þá fleiri árin. — Stjórnarfarið. Ungur bóndi úr sveit skrifar ný- lega grein í Vísi með þessari fyrir- sögn. Er greinin hörð ádeila á Framsóknarflokkinn og stjórn hans. Hann kemst þar meðal annars svo að orði: — Framsókn vann kosn- ingarnar 1927 með lygum og svik- um — gífurlegri lygum og rógburði, en dæmi finnast til áður hjer á landi. — En hún á eftir að bíta úr nálinni.----Veit jeg nú að marga iðrar þess sáran, og blygðast sín fyrir, að hafa veitt brautargengi slík- um mönnum, sem forsprökkum Framsóknar. — Við bændur og aðrir sveitamenn erum frábitnir of- beldisverkum og viljum ekki að höfð sje í frammi blóðug rangindi. Við fyrirlítum þá menn, sem vaða um bygðir landsins með villimanns- legum ofsa og gauragangi. Við fyr- irlítum þá menn, sem hafa lygina að aðalvopni. Við fyrirlítum þá stjórn, sem notar ákæruvaldið til þess að koma pólitískum andstæð- ingum sínum á knje, sem notar ríkissjóðinn tii að kosta níðrit um andstæðingana eða flugrit og pjesa sjálfri sjer til pólitísks ávinnings. — .leií vona að Framsóknarálögin verði með öllu hrunin afþjóðinni 12. júní — Og þá mun lækka risið á Tryggva Pórhallssyni, hinum þjóð- sekasta íslendingi, sem nú er ofan foldar. — — Jóuas dœmdur enn. Nýlega er genginn lögmannsdóm- ur í máli Jóns Porlákssonar á hend- ur Jónasi Jónssyni fyrir ummæli hans um að Jón Porláksson hefði falsað landsreikningana. Var Jónas dæmdur í 140 kr. sekt og ummæl- in dæmd dauð og ómerk. Framboðsfund hjeldu þingmannsefni kjördæmis- ins hjer í bænum síðastl. laugar- dagskvöld. Fundurinn var vel sótt- ur og langbestur rómur gerður að fulltrúaefnum Sjálfstæðismanna. Bœjarstjórnin hjelt fund 1. þ. m. — Samþ. var að kaupa húsið Norðurgata 1 til niðurrifs, svo hægt verði að tengja saman Gránugötu. Vísað til fast- eignanefndar tilboði um ‘sölu á Vetrarbraut 22 með 2 lóðum. All snörp senna varð milli Porm Eyj- ólfsson og O. Jörgensen út af 7| tíma vinnudeginum, sem Verka- mannafjelagið samþykti nýlega, og veganefnd hefir undirgengist án samþykt bæjarstjórnar. Málið varð ekki útrætt og kemur því fyrir næsta fund. Jakobína Jensdóttir ljósmóðir, andaðist í fyrrinótt. Hennar verður getið nánar hjer í blaðinu.

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.