Siglfirðingur


Siglfirðingur - 06.06.1931, Qupperneq 5

Siglfirðingur - 06.06.1931, Qupperneq 5
6. júní 1931. SIGLFIRÐINGUR Þaðer ó dý r a r a að kaupa bratið i Fjelagsbakariinu en baka hcima. Heít winarbrauð kl. 9—10 og 2\—3\. Pantanir afgreiddar fljótt og vel. AÐEINS NOTAÐ FYRSTA FLOKKS EFNI. FJELAGSBAKARÍIÐ H.F. Framhtld af 1. síðu. gérum við skyldu vora, Með því eina móti getum við verið viss um, að börn vor og barnabörn blessi tilveru vora. Göngum öll hugrökk að því há- leita verki. „Hver er að tala um rmgr Útvarpsnotendur hafa eflaust heyrt ýmisiegt frá útvarpsstöðinni, er þeim þótti eigi síður skoplegt en fróðlegt. Ró fara þeir margs á mis, því á útvarpsstöðinni eru leiknir margir skopleikir áður en frá er skrúfað, og eftir að sá stutti hefir skrúfað fyrir. Hjer er lítið sýnishorn: Maður er nefndur Sigvaldi. Hann er Indriðason, raddmaður mikili, og fer með kveðskap. Útvarpsráðið boðaði Sigvalda á sinn fund. Tjáði honum að það nefði spurt til hans og íþróttar hans og bað hann nú skemta sveitafólkinu, ástvinum þeirra Tryggva og Jónasar, með rímna- kveðskap. Sigvaldi hugði gott til kvæðalaun- anna. Rótti honum hjer allvel til bera, er hann átti kost fjár og frama í senn, en vís konungshyllin (ríkis- stjórnarinnar og útvarpsráðsins). Rakti hann í huganum ætt sína til Arnórs jarlaskálds í einni svipan. Sigvaldi tók sjer í hönd Núma- rímur. Pær eru lrægastar allra rímna. Hóf hann að kveða limmtu rímu og byrjaði á mansöngnum. 1 mansöng þessum er hörö ádeila á ódyggðir manna, einkum þeirra er með völd fara. En ekki hafði Sigvaldi lengi kveðið, er formaður útvarpsráðsins hljóp upp hart og bað fjanda þann hætta. Sagði að þetta hefði enginn dirfst að gera, nema Sigvaldi og Guðm. Finnboga- son, að svívirða Ríkisstjórnina í út- varpið. Vildi hann rífa kverið úr hendi kvæðamannsins, og hjelt að hann hefði ort þessar skammir um stj<5rnina. Sigvaldi fjekk með miklum erfið- ismunum sannað, að „kvæðið“ væri ort fyrir 100 árum, en sá stutti hafði þegar "skrúfað fyrir“ og varð ekki meira af kveðskapnum. „Skammir“ Guðm. Finnbogason- ar eru svo til komnar, að hann hafði verið fenginn til að halda ræðu í útvarpið fyrsta sumardag. Ræddi hann meðal annars um það, að hverskonar spilling í þjóðlífi og stjórnarfari hefði jafnan leitt ó- gæfu yfir þjóðirnar. Heldur þykir broslegt og þó í- hugunarvert, að ekki skuli mega víta svo klækiskap alment nje hafa yfir forn ádeilukvæði, að fyigis- menn stjórnarinnar telji ekki-að það eigi við athæfi ríkissjórnarinnar. Til gamans fyrir fólkið er hjer birtur mansöngurinn, sem Sigvaldi Hcvað, sem nú er kallaður: Lýsing formanns útvarpsráðsins á ríkisstjórn- inni. 1. Vandi er þeim, sem völdin á, vel á tignarítóli drotna; mikils verð er maktin há, ef manndyggð lætur eigi þrotna. 2. Margur kongur mjög að dáð, málum öllum vilja snúa; en ef þeir hafa illgjörn ráð, undir þeim er neyð að búa. 3. Sá með eigin augum sjer ekki nema slotshræsnara, undirsáta örlög hjer, ekki ka*n frá meinum vara. 4. Slíkur múgur vísir ver, að vant að stjórnarháttum gæti; fólkið kúgast, fantarnir flykkjast upp í valda sæti 5. Til að seðjn fýsna feikn, flesta kosti þá er völ um: brjósta-krossa, titla og teikn tekst að fá með ríkisdölum. 6. Einn ef hyggur öðrum tjón . eitruðum hreyfir lagaskjölum, og kaupir margan þarfan þjón; það fæst alt með ríkisdölum. 7. Alt skal vinna aftan til, og í læstum ráðasölum, svo er vænst aó vinnist spil, ef vasinn miðlar ríkisdölum. 8. Eitt mjer vanta þykir þó, um þetta efni fyrst við tölum: hamingja sönn og hjartans ró, hún fæst ei með ríkisdölum. 9. Völdin eins og voriins blóm visna þegar haustið kemur; þá skal undir æðri dóm öllum málum skjóta fremur. 10. Heill á vorum högum er, (heimsforsmáum týrannana), gsefan oss því vanda ver, valdi undir Föðurs Dana. (Grein þessi er í „Vesturlandi“. En með því að blaðið er í fárra höndum hjer, þykir rjett að taka hana upp í Siglfirðing.) Rafmagns-straujárn og Rafmagns-púðar. ÁSGEIR BJARNASON. Hjólhestar fást hjá Friðb. Nielssyni. Sprengiefni fæst hjá f Asgeir Bjarnasyni, Útvarpið næstu viku. Alla daga vikunnar: 19,30 Veður- fregnir. 21 Veðurspá og frjettir. Ennfremur: 7. júpí: Kl. 11 Bj. Jónsson: Messa í Dómk. 20. Ben Waage: Likams- íþróttir og Iþróttasamband Islands. 20,20 Grammófónn. 20,35 Anna Borg: Uppl. 21,25 Dansmúsik. 8. júní: Kl.20,30 Hljóml. 20,45 V. F*. Gíslason: Erindi. 21.25 Gram- mófónn. 9. júní: Kl. 20,30 Hljómleikar. 20,45 V. P. Gíslason: Erindi 21,25 Hljóml. 10. júní Kl. 20,30 Hljóml. 21,25 Grammófónn. 11. júní: Kl. 20,30 Hljóml. 21,25 Grammófón. 12. júní: Kl. 20,30 Hljóml. 20,45 V. F*. Gislason: Erindi 21,25 Elsa Sigfúss. Einsöngur. 13. júní: Kl. 20,30 Árni Sigurðs- son: Erindi. 21,25 Dansmúsik. Mannta/sping fyrir Siglufjörð verður haldið mánudaginn 15. þ. m. Jón Guðjónsson hefir verið ráðinn aðstoðarlög- regluþjónn hjer í sumar,

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.