Siglfirðingur


Siglfirðingur - 11.07.1931, Síða 3

Siglfirðingur - 11.07.1931, Síða 3
SIGLFRÐINGUR 3 Símar: 390 og 1303. einmitt niðri í sjónum, eins og dökk- ir dílar. Vegalengdin milli Horns og Langanes er nálega 400 km. og tek- ur tæpa þrjá tíma að fljúga þar á milli, ef flogið er beint. Margt hefur verið fundið að síld- arleitínni með flugvjel síðustu sumr- in og sumt með rjettu. Flugfjelagið stendur enn veikum fæti fjárhags- lega og hefur ekki haft þann útbún- að og varahluti, sem nauðsynlegir eru, en eg þori að fullyrða', að reynsla sú, sem fengist hefur um síldarleit úr Iofti, verður dýrmæt þegar fram líða stundrr. Jeg bið sjómenn að taka eftir því, að þegar veður er gott, sjást síldartorfurnar ágætlega úr lofti, bæði þegar síldin veður og eins þegar torfurnar eru undir yfir- borðinu. Pegar sæmilega hefur viðr- að og flugvjel eftir ítrekaða leit hef- ur enga síld sjeð, hefir engin síld veiðst. Prátt fyrir tilkynningar flug- vjelar um að engin síld hafisjestá tilteknu svæði,-hafa skip í tugatali leit- að, en enga síld fengið. Vegna vant- anai trausts á síldarleitinni eða ó- nógri þekkingu hafa skip þessi eytt tíma og peningum í leit, sem hlaut að verða árangurslaus. Ef nægileg samvinna er milli flugvjelar og síld- veiðimanna, geta skip þeirra sparað sjer stórfje með því að nota sam- viskusamlega allar tilkynningar um síldarleit. Jeg fer fram á það, að hver einasti síldveiðimaður í sumar safni öllum tilkynningunum, athugi þær daglega og breytingar þær sem verða á hverri viku. Nú verður síldarleitinni í sumar hagað þannig: Flugfjelagið sendir sjerstakan mann, Guðna Jónsson magister, til Siglli- fjarðar og dvelst hann allan síld- Ölgerðin Egill Skallagrímsson framleiðir: P I L S N E R M A LT Ö L BAYERSKTÖL B J Ó R H VÍT ÖL GOSDRYKKI Biðjið um eitthvað af þess- um öltegundum þar sem þjer verslið. Símnefni: Mjöður. NYKOMIÐ: Bæjerskar pylsur Grænar baunir Blandaðar súpujurtir Gulrætur Blómkál Asíur Pickles Rödbeder Selleri Asparges Gulyas Mediste Pölse Grisasulta Kjötbollur Skinke Uxatunða Humar Rejer Krabbi Ansjósur nýkomið í verslun SVEINS HJARTARSONAR. veiðitímann. Trúnaðarmanni þessum er falið að stjórna síldarleitinni, sjá um allar tilkynningar um síldarleit. festa þær upp'á Siglufirði og sím- senda til Akureyrar, en þar mun umboðsmaður Flugfjelagsins hr. Jakob Karlsson sjá um, að þær verði birtar. Loks munu allar síldartil- kynningar verða útvarpaðar á eptir veðurfregnuni. Er þeim útvarpað kl. 8,45, 10,15, 16,10, 7,30 og 9 á virkum dögum, en á sunnudögum 10,40 og 7,30. Trúnaðarmaður Flug- fjelagsins við síldarleit mun einnig vikulega gera uppdrætti af hreyfing- um síldarinnar og er því mjög æski- legt að síldveiðimenn snúi sér að jafnaði til hans og gefi honum þær upplýsingar, er geti fullkomnað og Utvarpið næstu viku. Sunnudag 12. júlí: Kl. 14, Bj. Jónsson: Messa í Dómk. — 19,30 Veðurfregnir — 20,15 Grammofón, kórsöngur. -- 20,30 St. Sigurðss: Erindi um sund. — 21, Veðurspá og frjettir — 21,25 Dansmúsik. Mánudag 13. júlí: Kl. 19,30 Veðurfregnir — 20,30 Hljóml. Alþýðulög — 20,45 V. b. Gíslason: Erindi — 21 Veðurspá og frjettir — 21,25 Grammóf. Sig. Skagfield. Priðjudag 14. júlí: Kl. 19,30 Veðurfregnir — 20,30 Grammóf. Eimöngur. — 20,45 V. h. Gíslason: Erindi — 21, Veðurspá og frjettir — 21.25 Grammóf. Píanósóló. Miðvikudag 15. júlí: Kl. 13 hingsetningarguðsþj. Sv. H. — 19,30 Veðurfregnir — 20,30 Sig. Ein: Yfirlit heimsviðb. — 21. Veðurspá og frjettir — 21,25 Grammófónn Fimtudag 16. júlí: Kl. 19,30 Veðurfregnir -- 20.30 Grammóf. Hljómsveit — 21, Veðurspá og frjettir — 21,25 Grammóf. Einsöngur Föstudag 17. júlí: Kl. 19,30 Vuðurfregnir — 20,30 Grammóf' Sellosóló -- 20,45 V. P. Gíilasoa: Erindi — 2 1. Veðurspá og frjettir -- 21,25 Grammóf. Hljómsv. Laugardag 18. júlí: Kl. 19,30 Veðurfregnir -- 20,30 Sig. Ein: Yfir.it heimsviðb. -- 21. Veðurspá og frjettir -- 21,25 Dansmúsik. Nýjar vörur koma með kverri skipsferð í HAMBORG. bætt loftathuganirnar. Loks er mjög æskilegt, að síldveiðimenn snúi sjer til þessa trúnaðarnrijinns ef þeir óska eptir, að leitað verði á einhverjum ákveðnum stað fram yfir það sem áformað er í hvert skipti. Sjómönn- um verður að skiljast það, að síld* artilkynningarnar eiga að geta gert svipað gagn og veðurfregnir og veðurspár fyrir landbóndann eða sjávarbóndann. Flugfjelagið óskar því eptir náinni samvinnu milli flugvjelar t)g sjómanna. Mun þá svo fara áð gallar þeir, sem verið hafa á síldarleit síðastliðin sumur, hverfi, en sjómenn notfæri sjer enn betur síldarathuganirnar úr lopti og sannfærist um að aðferð þessi er og verður síldarútvegnum til stórkost- legs gagns.

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.