Alþýðublaðið - 04.11.1919, Síða 3

Alþýðublaðið - 04.11.1919, Síða 3
3 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Sjúltrasamlag Haínaríjardar og Grarðahrepps kunngerir: Með því að samlagið á fundi sínum þ. 12. júní s.l. sam- þykti löglega að ráða báða læknana, Þórð Edilonsson og Bjarna Snæ- björnsson, í þjónustu sína frá 1. jan n.k., og að samlagsmenn skyldu ákveða sér annanhvorn lækninn til árs í senn, með sex vikna fyrir- vara, þá aðvarast samlagsmenn og konur hér með um að ákveða nú þegar hvorn lækninn þeir ætla að hafa árið 1920, og skulu samlags- meðlimir undirskrifa yfirlýsingu hér um, hver hjá sínum lækni. Stjórnin. Símskeyti. Kaupmannahöfn 2. nóv. Byltingatilrann í Ansturríki. Frá Vínarborg er símað, að jafnaðarmannaforinginn Friedrich Adler hafi ljóstað upp ráðagerð herforingja um stjórnarbylting í Austurríki. Frá Pýzkalandi. Mannflutningar á járnbrautum hafa verið stöðvaðir í 11 daga í Þýzkalandi, vegna kolaleysis. Sjómenn móti hafnbanninn. Norræna sjómannaráðstefnan í Málmey hefir lýst sig andvíga hafnbanni bandamanna á Rúss- landi. Atyik. í búð á Laugavegi var verka- maður að kaupa yfirfrakka. Stóð hann með peningana í höndun- um og ætlaði að fara að borga út frakkann, sem verið var að búa um. Kom þá inn blaðadreng- ur og bauð kaupmanninum Al- þýðublaðið, en hann neitaði því með óvirðulegum orðum. Dreng- urinn bauð þá afgreiðslustúlkunni blaðið, en hún áleit sér skylt að svara á líkan hátt og húsbónd- inn. En þegar hér var komið, sagði sá sem ætlaði að kaupa frakkann, að kaupmanninum mundi að líkindum þykja pening- ar frá alþýðumanni jafn lítiis virði og honum þætti blað alþýðunnar, stakk síðan á sig peningunum aftur og fór út, og varð kaup- maðurinn af kaupunum. A. 5 lílöppuðu. Við ræðulok Einars kaupm. Þor- gilssonar á þingmálafundinum í Hafnarfirði síðastl. laugardag klöpp- uðu að eins 5 — fimm — menn, þar af 3 eftir beiðni. Fundarmaður. £orð Ximherley socialisti. Þegar auðvaldið í Englandi undir foryst Lloyd George magnaði flokk sinn móti alþýðunni, héldu social- istar mikinn fund í London og hvöttu menn til varnar. Það vakti feikna eftirtekt, að einn af þekt- ustu aðalsmönnum Englands, Lord Kimberley, kom þar fram og hélt snjaila ræðu. Hann sagði m. a.: „Eg get ekki gert að því, að eg er fæddur lávarður og á sæti í efri málstofunni, en eg get beitt öllum mínum kr'óftum eftirleiðis í baráttunni fyrir socialisma". Hvað segja þeir um það hér, sem halda, að ef þeir hafa ráð á að brúka gummiflibba, séu þeir sjálfsagðir andstæðingar social- ismans. Uni daginn op veginn. Ouðlangnr pólití liggur þungt haldinn af taugaveiki vestur í Sóttvörn. Fjárhagsáætlnn bæjarins er nú verið að undirbúa. Hafnarnefnd hefir þegar gert tillögur. 4 taugayeikissjóklingar liggja í Sóttvörn nú, og 6 með skar- latssótt. Oullfoss fór héðan áleiðis til Khafnar í gær kl. 7 síðd. Meðal farþega voru: Jón Magnússon for- sætisráðherra og frú, Þórður Thor- oddsen læknir og frú, Emil Thor- oddsen listmálari, Helgi Bergs verzlunarm., EmiJ Nielsen fram- kv.stjóri, Sigtryggur Kaldan læknir og frú o. fl. 2 kr. 50 anra er tvípundið af kjöti dýrast nú á Austfjörðum. Með hverju fegrar Sláturfélagið sitt 3 kr. 10 aura verð? Agæt sitrómolia, á 5 krónur pelinn, fæst í Alpýdubraudgerðinni. Rjúpur nýskotnar til sölu. Sig. Þorkelsson. (Verzl. G. Olsen). Hœnsabyg,g- Maís (heill) ásamt allskonar annari kornvöru hjá Jóh. Ögm. Oddssyni Laugaveg 63. Kosningastafir! Þið sem standið í kosningabarátt- unni, og hvort sem þið styðjið Svein eða Jón, Jakob, Ólaf eða Þorvarð, þá er ykkur sigurinn vís, ef þið gangið við kosningastaf frá Jóhanni Ögm. Oddssyni Laugaveg 63.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.