Siglfirðingur - 10.10.1935, Síða 4
4
SIGLFIRÐINGUR
Góðir Siglfirðingar,
konur jafnt sem karlar. Ollum yður mun kunnugt, hve örðugt margir
bæjarbúar munu eiga á komanda vetri vegna atvinnuleysis í sumar,
Fyrir því snýr undirrituð nefnd sér til þeirra af yður, sem eitthvað hafið
aflögu, og biður yður ásjár og leggja fram einhvern skerf, er nota mætti
í vetur, er að þrengir, til hjálpar bágstöddu fólki.
Tekið er með þökkum á móti gjöfum í peningum, vörum, fatnaði og
hverju öðru, er að gagni má koma.
Vér heitum á liðsinni yðar og bróðurhug og vonum að hjálp yðar
bregðist ekki.
Siglufirði, 7. okt. 1935.
G, Hannesson. Hjálmar Kristjánsson. Margrét Jósefsdóttir.
Gunnar Jóhannsson- Guðjón Pórarinsson. Gunnl. Sigurðsson.
Porbjörg Einarsson. O. Hertervig.
Gagnfræðaskólinn í Siglufirði
verður að forfallalausu settur 15. október kl. 4 síðd,
Þeir, sem ætla að verða í skólanum í vetur og hafa
enn eigi sótt um hann, eru vinsamlegast beðnir að gera
það tafarlaust.
Jön Jónsson,
skóJastjóri.
Ibrahim, en vestan við víkina ligg-
ur hafnarborgin Suez.
Langt er síðan menn langaði til
að koma sambandi á milli haf-
anna og haft er fyrir satt að 1400
árum f. Kr. hafi Ramses II, faraó,
byggt skurð frá Níl til Rauðahafs.
Síðar á öldum hafa oft verið uppi
ráðagerðir í sömu átt, en allar
strandað á kostnaðinum og þekk-
arskorti til slíkra stórræða. En
Napoleon mikli var sér þess með-
vitandi hve mikla þýðingu slíkt
mannvirki mundi hafa fyrir Evrópu,
er hann var þar á herferð sinni
1798 og lét verkfræðinga sína semja
áætlun um verkið. En loksvarþað
Frakkinn Ferdinand Lesseps, er
lagði fram fullkomna áæilun um
verkið 1854. Vann hann þá á
frakknesku ræðismannsskrifstofunni
í Kairo, og kynnti sér þar áætlun
Napoleons, en þar var því haldið
fram, að yfirborð Rauðahafsins lægi
tíu metrum hærra en yfirborð Mið-
jarðarhafs, og þyrfti því að byggja
skipastiga marga og vatnsmiðlunar-
stiflur í skurðinn. En Lesseps
sannaði að yfirborð hafanna væri
jafnhátt og 1854 hafði hann lokið
útreikningum sínum, teikningum og
áætlunum, er samþykktar voru at'
konungi Egypta, Said Pascha ; með
dæmafáum dugnaði heppnaðist
Lesseps að safna fé til fyrirtækisins
og stofna félag til reksturs þess og
framkvæmda. Og 1859, 22. apríl,
stakk hann fyrstu rekustunguna við
Port Said og verkið var hafið.
Mestir voru erfiðleikar við það í
byrjun að færa að drykkjarvatn og
matvæli og aðrar nauðsynjar handa
hinum 25 þús. Aröbum og Egypt-
um er þarna unnu. Voru daglega
til vatnsflutninganna einna notaðir
3000 asnar og úlfaldar. En síðar
var vatnið leitt í skurði frá Níl.
Sjúkdómar strádrápu verkamenn.
þar meðal kólerusótt og flýðu þá
allir frá verkstöðvunum. En þrátt
fyrir alla örðugleika sigraði hin ó
drepandi atorka Lesseps og 1869
mættust höfin tvö í skurðinum rétt
sunnan við hin svonefndu Beizku-
vötn, og í nóvember sama ár var
skurðurinn vígður með mikilli við-
höfn. Hafði hann kostað á fjórða
hundrað miljónir króna.
Skip urðu að greiða afarhátt lest-
argjald fyrir að fara um skurðinn
en þrátt fyrir það hefir umferðin
hraðaukizt og tekjurnar að sama
skapi.
í heimsstyrjöldinni minnkaði
umferðin að miklum mun en 1920
jókst hún aftur og 1923 voru tekj-
urnar af umferðinni um 350 milj.
krónur. 1869 fóru ein 10 skip um
skurðinn, 1900 voru þau orðin
3400 og 1923 4621. Par af voru
4540 vöruflutningaskip, af þeim áttu
Bretar 2786, Hollendingar 446,
Frakkar 255, Pjóðverjar 246, ítalir
244, Japanar 172, Ameríka 111,
Noregur 85, Danir 64 og Svíar 60.
Samningar Suez-félagsins við
Egyptaland ganga úr gildi 1968.
Verður skurðurinn þá eign Egypta-
lands. En 1909 fór félagið fram á
að framlengdir yrðu samningarnir
til 2008. Urðu útaf því allmiklar
róstur í Egyptalandi, svo ekki varð
meira úr því máli í það sinn. En
hætt er við, að þrátt fyrir samning-
inn, sé eigi útséð um eignarráðin
yfir þessari dýrmætustu samgöngu-
leið heimsverzlunarinnar, og því
síður er útséð um áhrif þau er hún
kann að hafa á styrjöld þá er nú
er hafin i Abessiníu.
Kennsla:
Byrja kennslu í bókfarslu,
reikningi, þýsku, ennfremur
ensku og dönsku eftir sam-
komulagi.
Upplýsingar í Eyrarbúð-
inni og heima Túng. 27.
Kennslan byrjar nú þegar.
Skarphj. Halldórsson
Herbergi tíl leigu.
Uppl. í Hvanneyrarbraut 2 og
Nýju Mjólkurbúðinni.
Ritstjóri og dbyrgðarm.:
Sig. B j ö rg ó Ij s s o r..
Siglufjarðarprentsmiðja.