Siglfirðingur


Siglfirðingur - 15.02.1936, Blaðsíða 1

Siglfirðingur - 15.02.1936, Blaðsíða 1
Blað Sjálfstæðismanna í Siglulirði, IX. árg. Sigluíirði, laugardaginn 15. febrúar 1936 4. tbl. Gjaldeyririnn o áfengið. Eftir Jón Jóhannesson, Vér lifum á krepputímum nú. Pjóðin veit þetta, og ástandið sjálft hefir fært henni heim sanninn um það svo eftirminnilega, að hún gleymir því vart hin næstu árin. Pað er engin lítilfjörleg „lífsvenju- breyting“ sem þjóðin íslenzka hefir orðið að fórna á altari kreppunnar. Hún hefir þurft að neita ’sér hið síðastliðna ár, um margt af hinu nauðsynlegasta, sem menntuð þjóð og mönnuð er talin að þurfa, og hún hefir — bæði einstaklingarnir og þjóðarheildin — orðið að offra talsverðum hluta af fjárhsgslegu sjálístæði sínu, og enn er langt frá að séð verði til nokkurrar hlítar, hve stór sú fórn kann að verða. En Islendingar eru fórnfús þjóð, og hafa alltaf verið, þegar hagur og hörð kjör fósturjarðarinnar hafa krafizt fórna. Peir hafa fyrr þolað „ís og hungur, eld og kulda, áþján, nauðir og svartadauða" möglunar- lítið, en slíkt var á öldum fyrr, og er aðstaða nú öll önnur, enda sann- ast sagt, að áþjánina höfum vér þolað vers allra plága, og sá svarti- dauði sem skáldið á við, var ann- ars eðlis en sá, sem nú herjar land vort, þótt vandséð verði hvor plág- an hættulegri reynist, þegar allt kemur til greina. En hið sorglega við núverandi ástand er, að miklu af fórnum þessum er ófyrirsynju fórnað. — Hömlur hafa verið settar á fjöl- margar tegundir þeirra erlendra vara, sem þjóðin getur ekki án ver- ið, og innflutningur þeirra tak- markaður svo, að þjóðinni er stór bagi að og til mestu vandræða horfir. Skal þar nefnt sem dæmi byggingarefni og kartöflur, þótt miklu fleira mætti nefna. — A öðrum nauðsynjavörum eru toliar hækkaðir árlega, vöruverð á lífs- nauðsynjum þjóðarinnar fer því sí- hækkandi, svo lítil atvinna og lágt verð framleiðslunnar hrekkurskamt til nauðþurftanna á krepputímanum. Og allt er þetta gert til þéss að bjarga við gjaldeyrisvandræðum landsins, segir vor visa iandsstjórn og síuðningsflokkar hennar. Lítum nú snöggvast á það, hvernig gjaldeyri -þjóðarinnar er varið. Enginn bær á landinu mun vera eins illa settur og Siglufjörður, í þeim efnum, að geta verið sjálfum sér nógur hvað snertir landbúnað- arframleiðslu. Hér vaxa t. d. ekki karöflur, en þær verður óhætt að telja til hinna mikilvægustu lífs- nauðsynja bæjarbúa. Héðan var sótt í haust urn innfiufningsleyfi á kartöflum, en umsóknum var synj- að. Hingað var svo flutt eitthvað af íslenzkum kartöflum, sem und- antekningarlítið reyndust ilia; voiu slæmar átu og þoldu illa geymslu. Nú hefir bærinn um langan tíma verið kartöflulaus, þar til á dögun- um að Gullfoss kom með 50 sekki af freðnum hartöflum. Pessir sekkir áttu að koma með Dr. Alexandrine og hefðu þá komið óskemmdir, en innflutningsnefnd þurfti svo langan umhugsunartíma til að veita leyfi sitt, að varan fraus og varð ónýt. En með Gulifoss komu fleiri vörur og meðal annars nokkur vagnhlöss af áfengi í vínverzlunina hér. — Gjaldeyrir var nógur til fyrir það, þótt hörgull sýndíst á honum fyrir kartöflur, Eg er ekki efnafræðingur en eg efa að áfengi hafi í sér þau efni, sem geta varið börnin okkar skyrbjúg og öðrum þeim sjúkdóm- um, sem stafa af fjörefnaskorti í fæðunni, en það er alkunna að kartöflur gera. Á fjárlögum yfirstandandi árs eru tekjur ríkissjóðs af áfengi áætlaðar 2,2 milj. kr. og af tóbaki 1,8 milj. kr. aða samtals 4 miljónir réttar.— Mér er nú vitanlega ekki kunnugt um, hve mikið ríkisstjórnin leggur á þessa nauðsynjavöru !!, en varla finnst mér fært að gera ráð fyrir hærri álagningu en 100 prc., og er þá auðreiknað, að af hinum tak- markaða gjaldeyri, sem þjóðin á yfir að ráða. eru teknar litlar fjórar miljönir króna til kaupa á, vörum þessum. Einn þúsundasti hluti af þessari upphæð hefði nægt til þess að byrgja Siglufjörð upp með kart- öflur.— Verkamannabústaðirnir við Norðurgötu standa enn miðstöðv- arlausir fyrir vöntun á innflutnings- og gjaldevrisleyfi. þeim til mikils baga, sem eiga að búa þar; ný- byggð hús og önnur í smíðum standa óvarin sökum skorts á báru- jáini; timbur og sement er ekki til í verzlunum hér. Orlítill hluti af þessari upphæð hefði nægt til þess að bæta úr þessum þörfum öllum og mundi margur mæla að fénu hefði betur verið varið til þess, en fyrir tóbak og áfengi, sérstaklega þegar þess er gætt, að Siglufjörður hefir á undangengnum árum ekki verið og er ekki enn, smátækur á

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.