Siglfirðingur - 15.02.1936, Blaðsíða 4
4
SIGLFIRÐINGUR
Svanmundur Stefánsson.
(Drukknaði í Sandós í Fljótum vorið 1935).
!
Hver veit nær dauðinn á dyrnar ber
með dimmum og þungum gný?
En mér í huga þín minning er
og sú minning er björt og hlý.
Og þó það sé sárt að sjá þér á bák
og svíði hin nýslegna und,
þá lyftir mér vonanna vængjatak
og vermir mig hverja stund
sem man eg glaðværu gæðin þín
og göfgi í björtum svip-
Til sælli heima, þar sólin skín,
því sigla mín minninga skip.
Frá vinkonu hins látna.
Pökkum innilega auðsýnda sam-
úð og vináttu við andlát og jarð-
arför litla drengsins okkar.
Prestshjónin á Hvanneyri.
try£gja búfjáreigendum í félaginu
nægar fóðurbirgðir þegar á haustin.
Leikfélag Siglufjarðar
æfir nú Jeppa á Fjalli eftir Hol-
berg. Fær það búninga.léða frá
Leikfélagi Reykjavíkur, en leiksvið
verður útbúið hér. — Einnig æfir
Leikfélagið á næstunni „Sundgarp-
inn“, bráðsmellinn ganianleik eftir
Arnold og Bach.
Aðalfundur Skíðafélags Siglu-
fjarðar
var haldinn að Hótel Siglufjörð-
ur föstudaginn 7. þ. m.
í stjórn voru kosnir:
Vilhjálmur Hjartarson, form.
Sveinn Hjartarson, gjaldkeri.
Sigurður Gunnlaugsson, ritari.
og meðstjórnendur
Björn Jónsson og
Guðlaugur Gottskálksson.
Rætt var um og samþykkt að
hafa skíðamót í vetur fyrir Sigl-
firðinga, Var stjórninni falið.að
annast framkvæmdir í þessu skyni.
Félagið hat'ði komið sér upp
skíðaskála á árinu, eins og getið er
annars staðar í blaðinu, fyrir at-
beina góðra félagsmanna. Ber hann
nafnið „Skíðafell“.
Sænski sendikennarinn
fil. lic. Áke Ohlmarks, bélt hér
fyrirlestur í fyrradag. Hafði hann
auglýst hér fyrirlestur daginn áður
en þá átti Goðafoss að koma frá
Akureyri.
En þá bar svo við, sem sjaldan
skeður um þetta leyti árs, að skip-
ið tafðist á Akureyri heilan sólar-
hring vegna þoku. Skipið hafði
hér mjög litla viðdvöl, en með því
Ohlmarks hafði auglýst fyrirlestur-
inn, þótti rétt að bæjarbúar fengju
að heyra hann. Voru því skyndi-
boð send út um bæinn að fyrir-
lesturinn yrði fluttur í Bíó þá strax
og ókeypis. Margt fólk safnaðist í
Bíó. Ohlmarks flutti mál sitt sköru-
lega og rakti í . stórum dráttum
menningarsögu Svía framan úr
grárri forneskju til vorra daga. Vit-
anlega var aðeins stiklað á stærstu
merkjasteinunum, eigi að síður var
erindið fróðlegt og skemmtilegt.
Er það nýlunda fyrir Siglfirðinga.
að slíkir menntajöfrar láti til sín
heyra. Og mætti slíkt oftar verða.
Neisti
hefir í tveimur seinustu blöðum
flutt sorpgreinar með strákslegasta
óknyttaorðbragði um Sjálfstæðis-
flokkinn og bendlað honum við
landráð og föðurlandssvik. Siglfirð-
ingur mun í næsta blaði fara nokkr-
um orðum um þessi mál frá sjón-
armiði Sjálfstæðismanna.
Pá gerir blaðið sér mikinn mat
úr því, að Hálfdán Háldánssoa úr
Hnífsdal hafi að sögn s'agt sig úr
Sjálfstæðisflokknum og má á milli
línanna lesa fögnuð blaðsins yfir
því happi að Hálfdánar sé von
í fylkingu sósanna. Býst Neisti við
að Hálfdán muni reynast drjúgurseg-
ulltil að dragamenn til sósanna. Fetta
er vitanlcga mjög skiljanlegur skiln-
ingur þeirra margra sem í Neista
skrifa og hafa allt frá því þeir
fengu fullt vit, verið að hælskella
þjóhnappana á milli flokkanna í
bitlingasnöpum.
Kirkjan
Messað á morgun kl. 2.
Við sjómannaguðsþjónustuna
2. febrúar söfnuðust í Björgunar-
skútusjóð Norðurlands kr. 95,40.
Ritstjóri og ábyrgdortn.:
Sig. Björgólfs.
Siglufjarðarprentsmiðja 1936.