Siglfirðingur


Siglfirðingur - 04.04.1936, Page 1

Siglfirðingur - 04.04.1936, Page 1
IX. árg. Siglufirði, laugardaginn 4. apríl 1936 7. tbl. . Blað Sjálfstæðismanna i Siglufirði, Sophus A. Blöndal. Dáinn 22. marz 1936. In memoriam. Bað var stórhríð og allt var að sökkva í djúpa snjókingi. Stormur- inn ýlfraði um húsþekjurnar. Mönnum var tæpast fært úti. En í veðrinu var samt dauðinn á gangi og vék sér til þín. Til þín, sólskinsdrengsins. Og nú kemur sólin úr jafndægr- inu með vor og líf. — Og þá ert þú farinn. Reyndar hafði dauðinn löngu áð- ur gefið þér hornauga á förnum vegi. En að hanri skyldi ráðast svo freklega á jafn stæltan og glæsi- legan mann, það undrar mig. Pegar eg sá þig fyrst varst þú sannarlega fríður og horskur. AUir veiftu þér eftirtckt. Brosið var hírt og upplitið bjart og þú laðaðir menn að þér. Svo kom með kynningunni prúð- mennskan í ljós. Og söngvinn varst þú og ljóðelsk- ur. Stundum hrutu visur og það stóð á tama hvaða hljóðfæri þér var fengið, þú togaðir lagið úr því- Pú skildir það og það skildi þig. Pú varst oft máldjarfur, en alltaf kurteis. Eg hefi aldrei heyrt þig anza bakmælgi um mann. Pver- tekið. Aptur á móti lagðir þú lið- sinni oft þeim, sem urðu á harð- balanum. En stundum skaut fram bjarma úr augunum, er þér datt eitthvað hnittið í hug. Og það var ekki ósjaldan. Pú hlóst við snöggvast Sofihus A. Blöndal. það var græskulaust og engin beizkja í hlátrinum. Svona man eg efiir þér, eftir því sem eg kem orðum að mínum hugsunum og tilfinningum. Eg sakna þín. en það þýðir ekki að deila við dómarann. En aðrir sakna þín ennþá miklu sárar. Guð 'taki þig til sín og huggi þá sem þér voru hjartfólgnastir. Sophus A. Blöndal var fæddur 5. nóvember 1888, sonur Björns Blöndals. héraðslæknis á Hvamms- tanga og konu hans frú Sigríðar f. Möller. Björn var sonur Gunnlaugs Blöndal sýslumanns i Barðastranda- sýslu, en móðir Björns, amma Sop- husar hét Sigríður og var dóttir Sveinbjarnar Egilssonar rektors, hins þjóðkunna vísindamanns og skálds. Sveinbjörn Egilsson var málsnill- ingur með afbrigðum á íslenska tungu, og engin vafi leikur á því, að Jónas Hallgrímsson og Jón Sig- urðsson og ýmsir aðrir íslenskir menntamenn hafi átt sína málsnilld að þakka Sveinbirni. Kona Svein- bjarnar Egilssonar var Helga dóttir Benedikts Gröndals eldri, yfirdóm- ara og skálds. En meðal sona Sveinbjarnar var Benedikt Gröndal yngri skáld, náttúrufræðingur og listamaður. Pau voru því systkini Benedikt Gröndal og Sigríður amma Sophusar. Allflestir afkomendur Sveinbjörns Egilssonar hafa verið listfengir menn. Peir hafa fengizt við tón smíðar og sjálfir v#rið söngmenn, skáld og hagmæltir. Peir hafa verið listamenn í skurði, mótun og litun. Peir hafa margir verið ágætis skrif- arar og þarf ekki að nefna annað en skrautrit Benedikt* Gröndals og Björns læknis, föður Sophusar og smekkvísina í hans eigin handskrift. Móðuramma Sophusar hét Ingi- björg Einarsdóttir, systir Péturs Ein- arssonar, sem sýndi af sér afburða hreysti í heljarveðri á Mosfells heiði fyrir nálega 60 árum. Um. karlmennsku hans þar má lesa í

x

Siglfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.