Siglfirðingur - 25.03.1938, Blaðsíða 3
SIGLFIRÐINGUR
3
Brunabótafélag íslands
ADalskrifstofa Hverfisgata 10, Reykjavík.
Umboðsmenn í öllum hreppum, kauptúnum og kaupstöðum.
Lausafjárvátryggingar • (nema verzlunarvörur)
hvergi hagkvæmari.
Bezt að vátry£gia laust o£ fast á
sama stað.
Upplýsingar og eyöublöö á aðalskrifstofu og hjá
umboðsmönnum.
HEILDSÖLUBIRGÐiR:
Heildverzlun
Valg. Stefánssonar
Akureyri. Sími 332.
taka hann af Siglfirðingum, fyrir
samtakaleysi þeirra.
Þessi tvö undanfarin ár hefir
Jón Þorsteinsson sýnt hve efnileg-
ur skíðamaður hann er og virðist
mikil ástæða til að styrkja hann
til Noregsfarar, með alþjóðakeppni
að markmiði.
Blaðið þakkar skíðamönnunum,
fyrir hönd allra bæjarbúa, fyrir af-
rekin.
»Lofið og svíkið!«
Þetta var kjörorðið, sem einn af
Moskva-fulltrúunum vildi láta kjós-
endur sína hugfesta og framfylgja
við síðustu kosningar.
Önnur blöð hafa rætt um úrslit
bæjarstjórnarkosninganna og verð-
ur það ekkí gert að sérstöku um-
talsefni að sinni. Sjálfstæðisflokk-
urinn bætti við sig 21 atkv., hélt
fulltrúatölu sinni og getur þvi un-
að sæmilega við úrslitin flokkslega
séð. Hitt mun mörgum áhyggju-
efni, að þegar, eftir 1| mánuð, er
það komið í ljós, að bærinn er
farinn að missa traust út á við og
hart til þess að vita, að meirihluti
bæjarbúa hefir ekki skilið ráðstaf-
anir, er gerðar vo'ru í ágúst 1936,
sem hnigu í þá átt, að varðveita
og jafnvel auka það traust, sem
þegar hafði unnist.
Hinn nýi meirihluti hefir nú
stjórnað bænum í tæpa tvo mán-
uði. Hefir aðalstarfið verið fólgið í
því að samþykkja lántökur, 25—30
þús. handa Hólsbúinu, 35 þús.
handa Rauðku o. fl. o. fl. Erlendi
hefir verið falið að útvega féið, en
enginn eyrir hefir fengist ennþá.
Þá má geta þess, að Þóroddi hefir
gefist tækifæri til að hlaupa frá
öllum fullyrðingum sinum um að
hann gæti útvegað lán til hrað-
frystihússins.
Hvíta húsið á nú bráðum að fara
að *dubba upp« handa nýja bæj-
arstjóranum. Hefir verið samþykkt
(þvert ofan í skipulagsuppdrátt) að
stækka það og kvað eiga að
standa yfir hinum nýja inngangi:
•Lofið og svíkið«.
Vel stjórnað.
Það er ekki sjaldan, sem stjórn-
arblöðin hæla sér af þvi, hve frá-
bærlega vel landinu hafi verið
stjórnað á undanförnum árum.
Varla er nú. annað von! Síðan
1928 hafa ríkisskuldirnar þrefald-
ast, þjóðskuldir vaxið um 150 prc.
árlegt útflutningsverðmæti fallið
um 33 prc., tala atvinnuleysingja
margfaldast, fátækrabyrðin að sliga
bæjar- og sveitarfélög, smáútvegs-
menn í skuldaskilasjóði með bæj-
arfélögunum, gjaldeyrisvandræði
meiri en nokkru sinni áður, tog-
Sveskjur
Gráfíkjur
Verzlun
Sveins Hjartarsonar.
araútgerðin rekin með tapi, verk-
föll á verkföll ofan o.s. frv.
Fyrirspurn.
Hvað ætlar meirihluti bæjar-
stjórnarinnar að gera við rauðu
verksmiðjuna? Á að draga að ráð-
stafa þessari eign bæjarins þar til
fyrsti síldarfarmurinn er kominn
að bryggju?
F r é 11 i r.
/ gœr
var til moldar borinn Helgi Haf-
liðason útgerðarmaður, að við-
stöddu miklu fjölmenni.
Dr. Alexandrine
kom hingað í gærmorgun. Með
skipinu voru afgr.menn D. F. D. S.
frá Ísafirðí og Reykjavik, er komu