Siglfirðingur - 01.10.1941, Side 2
2
SIGLFIRÐINGUR
slíku óðagoti og ömurlegu vand-
ræðafálmi, að slíks munu fá dæmi
um svo mikilsverð mál fyrir þjóðar-
heildina. Samþykkti þingið hin
svonefndu dýrtíðarlög, sem eru
svo fávíslega úr garði gerð, að
þau eru sannkallaður löðrungur á
löggjafana. Þau eru óframkvæman-
leg til nokkurs árangurs er til úr-
bóta megi verða.
Það mun nú svo langt stigið á
ógæfuhliðina í þessum málum, að
tvísýnt er, að úr verði bætt. Eina
ráð, er að nokkru haldi gæti orðið,
er talið að hækka gengi krónunn-
ar og setja á laggirnar óbrigðult
eftirlit með verðlagi innlendra af-
urða og útlendrar innflutningsvöru.
Hér í landinu eru að minnsta
kosti þrjár nefndir, sem ákveða
verðlag innlendra afurða, og virð-
ast þar algjörlega óháðar stjórn
og Alþingi, og hlíta íraun ogveru
engura lögum, en geta algjörlega
ráðið yfir verðlaginu hvað sem
hver segir; enda er afleiðingin
komin í ljós. Nú sér stjórnin að
við svo búið máeigilengur standa.
Hún hefir algjörlega gefizt upp við
að hafa hemil á dýrtíðinni og
verðbólgunni á innlendu afurðun-
um, og mun nú endursenda auka-
þingi dýrtíðarlagasmíðina, með
þeim vitnisburði er þeim hæfir, og
löngu er komið í ljós hvernig er:
Háskaleg lög og heimskulega
samin.
Allt þetta dýrtiðarmál er ömur-
leg harmsaga um hugkvæmdarog
getuleysi íslenzkra löggjafa og
sýnir ljóslega hver atbeini þjóð-
inni er að slíkum forystumönnum
þegar mest á reynir.
Það voru svo sem engin undur
þótt þeir yrðu hjartanlega sam-
mála um að endurkjósa sjálfa sig
til áframhaldandi löggjafarafreka.
Guðrún Pálsdóttir
frá Kambi.
27. okt. lézt hér að heimili sínu
frú Guðrún Pálsdóttir frá Kambi,
kona Ásgríms Þorsteinssonar, skip-
stjóra. Hún var orðin háöldruð
kona, skorti einungis mánuð í 81
árs aldur. Guðrún var fædd á
Siglunesi, en hefir búið hér á Siglu-
fjarðareyri frá því árið 1880 eða
full 60 ár. Guðrún sál var hin
mesta greindarkona, góðfús og
hjálpsöm og einkar vinsæl. Dugn-
aði hennar og hagsýni er við-
brugðið, er hún barðist ein með
barnahóp þeirra hjóna langtímum
saman, er maður hennar var á
hákarlalegum eða fiskileit. Var þá
oft erfitt fyrir um aðdrætti og ann-
að. þegar allt mæddi á einum.
Guðrún var síkát og ánægð og ein
af þeim mörgu konum hinnar
gömlu kynslóðar, er leggja allt í
sölurnar fyrir skyldurnar við börn
sín og heimili. Þau hjón áttu 6
sonu, og eru nú þrír á lífi.
Tvo sonu misstu þau hjónin,
Jón og Ólaf, á bexta þrozkaaldri.
Drukknuðu þeir báðir, en einn son
misstu þau á bernskualdri. Guðrún
heitin bar önn heimilis síns fram
á síðustu stund, því viljinn og
kjarkurinn var hvorttveggja end-
ingargott, og skylduræknin og ástin
á heimilinu óbiluð. En líkams-
kraftarnir voru að þrotum komnir,
eins og að líkum lætur, eftir jafn
langa hvíldarlitla starfsævi.
Allir Siglfirðingar minnast hinnar
starfsglöðu heiðurskonu með virð-
ingu og þakklæti. Þess væri ósk-
andi að sem flestar konur hinnar
yngri kynslóðar væru og yrðu
henni Iíkar að skyldurækni og
starfsgleði. Það væri vorri litlu
þjóð meira virði en allir milliríkja-
samningar og hlutleysisvernd.
77 ára afmæli
átti Guðmundur Bjarnason í Bakka
6. sept. s.l. Heimsóttu margirvinir
og kunningjar þau hjónin í tilefni
af afmælinu og bárust þeim gjafir,
blóm og árnaðaróskir víðsvegar að.
Guðmundur er ennþá ern og
kvikur á fæti með óbilaðan áhuga á
atburðum líðandi stundar og stál-
tryggt minni um atburði liðinna
ára. Væri þess full þörf, að þeir,
er safna vildu drögum til sögu
Siglufjarðar finndu Guðm. að máli
og ritfestu sagnir hans og heimildir.
Einnig væri það ánægjulegt, ef úr
því gæti orðið, að rituð yrði æfi-
saga Guðmundar, því þar mundi
birtast margskonar fróðleikur um
menn og málefni síðustu 50 ára.
Á afmæli Guðmundar barst hon-
um eftirfarandi kvæði frá Hannesi
Jónassyni bóksala:
GUÐMUNDUR BIARNASON
Bakka.
6. sept. 1941
Enn er sól í Siglufirði
sannarlega er mikils virði
enn að liorfa á annes, tinda
enn að hlusta á boðskap vinda,
enn að líta á lognsins öldu,
leggjast upp að bergi köldu,
enn að lifa aftanfriðinn,
enn að hlýða á fuglakliðinn.
í dag ertu sjö og sjötíu ára.
Sannarlega timans bára
T TJARTANS PAKKLÆTl til allra minna góðu gömlu vina
JL JL er heimsóttu okkur og sendu okkur kveðjur og gjafir á sjöt-
ugasta og sjöunda afmœlisdegi mínum. Sérstaklega þökkum við
hjónin hina rausnarlegu peningagjöf frá Ásgeiri Péturssyni, og
kvœðið frá Hannesi Jónassyni, sem flutti okkur yl og hlýju.
Biðjum við guð að launa öllum sem hafa glatt okkur hjónin fyrr og nú.
Guðmundur Bjarnason.
Rúg-
mjöl
gott í slátur.
Verzlun
Halldór Jónasson.
Nýkomnar eru
hinar marg eftirspurðu Ála-
foss buxur á fullorðna og
drengi, flibbaskyrtur á drengi,
og úrval af bindum.
Aðalbuðin.
V antar
duglegan og ábyggilegan
mann strax til að bera
út Morgunblaðið.
Lárus Þ Blöndal-
margt hefir frá þér burtu borið,
býsna oft í sundur skorið
þœtti, sem að saman festu
sifjalið og vini beztu.
Þeir eru horfnir yfir ósinn.
Otal gleðistunda-ljósin
frá liðnum tima leggja bjarma
á leið, og auka hjartans varma.
Gamall sendir gömlum braginn.
Guð þér blessi þenna daginn
og alla daga er áttu að lifa,
allt sé þér til heilla og þrifa.
Verndi þig sá, er veröld styður,
Vefjist um þig ró og friöur.
Vinsemd hreina hlýtt og þakka.
Heill sé Guðmundi í Bakka
Hannes Jónasson,
Kápu-
efni
mislit, nýkomin
Vöruhús Siglufjarðar
Ensk
fataefni
Verð frá kr. 92,00 í fötin
Verzlun
Halldór Jónasson.
Reynslan er
ólygnusl. i
Matvörur, kaffi, sykur,
búsáhöld, og margar
fleiri vörutegundir eru
ódýrastar að reynslu
kaupanda hjá
Halldóri M. Vídalín