Siglfirðingur - 01.10.1941, Blaðsíða 3
SIGLFlitÐINGUR
3
A tvinna
Röskur drengur 14—16 ára getur fengið atvinnu við
sendiferðir og önnur störf. Um framtíðar atvinnu
getur verið að ræða.
Eiginhandar umsóknir með kaupkröfu sendist
Nú fer eg og kaupi:
kaffi, sykur og hveiti
í brauö til vetrarins hjá
Gesti Fanndal.
Efnagerð Siglufjarðar h/f.
Tveir Siglfirðingar
farast með línu-
veiðaskipinu Jarl-
inum.
Línuveiðaskipið Jarlinn hefir með
einhverjum hætti farizt — senni-
lega af styrjaldarorsökum — er hann
var á heimleið frá Bretlandi úr
físksöluför, því að 3. sept. lét skip-
ið úr höfn frá Fleetwood. Á skip-
inu voru alls 11 menn og voru tveir
af þeim búsettir hér í Siglufirði.
Voru það þeir Jóhann Sigurjónsson,
2. vélstjóri og Dúi Guðmundsson,
kyndari.
Jóhann var ættaður frá Seyðis-
firði, fæddur 12. febr. 1897. Hann
lætur eftir sig konu og tvö börn
og fósturson, sem öli eru komin
upp að nokkru. Jóhann var hinn
mesti dugnaðarmaður og reglu-
maður hinn mesti. Hafði hannallt
frá æsku stundað sjósókn og sigl-
ingar og unnið hafði hann all-lengi
hjá Síldarverksmiðjum rikisins.
Dúi var ættaður úr Fljótum,
fæddur 4. febr. 1901 ókvæntur,
en átti 1 barn. Dúi hafði alllengi
stundað sjómennsku og skipstjórn
á síldveiðiskipum. Hann var hinn
skylduræknasti maður og vinsæll,
enda hjálpsamur og frændrækinn.
Jarlinn var eitt með allra stærstu
línuveiðiskipum hér, um 170 brutto-
smálestir og talið gott skip og
traust. Óskar Haildórsson, útgerð-
armaður, var eigandi þess.
Eins og fyrr segir þykir senni-
legast, að Jarlinn hafi farizt af
hernaðarorsökum. Hefir þá styrjöld
þessi er nú geisar kostað íslend-
inga ærnar mannfórnir, þótt eigi
berjist þeir í fylkingum stríðsaðilja,
en eigi að teljast hlutlausir. Á
»Fróða« féllu 5 menn, með »Péturs-
ey« fórust 10, með »Reykjaborg«
13, með »Heklu« 14, af »Braga«
10, af »Hólmsteini« 4 og 6 af öðr-
um skipum. Alls eru þetta 73 menn
að meðtöldum þeim er fórust með
Jarlinum. Auk þessa fórust með
»Gullfossi» 19 manns og er eigi
kunnugt um orsakir þess sjóslyss,
en líkindi þykja benda til, að þær
séu einnig af hernaðarvöldúm.
Nýkomið:
Skólatöskur
Blýantar
Pennar
Blek o. II.
Halldór M. Vídalín
Nýkomið:
barnasilkiundirföt
Aðalbúðin.
Tekið upp
í dag:
Gólfrenningar
Rykfrakkar
Silkisokkar
Gardínutau
Fataefni
Silkiskyrtur
Satín
Tilkynnin
Hér með er skorað á alla þá, sem koma vilja til greina vfð út-
hlutun verðuppbótar á útfluttar landbúnaðarafurðir, framleiddar árið
1940, að senda landbúnaðarráðuneytinu fyrir 15. október n. k. staðfest
eftirrit af farmskírteinum, er sanni útflutningsmagn þeirra af þeim vöru-
tegundum, sem hér eru taldar:
Gærur, Bjórar, Silfurrefaskinn,
Ull, Garnir, Blá og hvít refaskinn,
Kjöt, Ostur, Æðardúnn.
Fylgja þarf vottorð matsmanna um að vörurnar séu framleiddar
á árinu 1940.
Þeir, sem eiga óseldar birgðir af fyrrnefndum vörutegundum frá
árinu 1940, sem ætlaðar eru til útflutnings, skulu fyrir sama tíma senda
vottorð matsmanna um birgðirnar, með tilgreindn vörumagni, eða aðrar
sannanir, sem ráðuneytið metur gildar.
Landbúnaðarráðuneytið, 19. sept. 1941.
Nýkomnar bækur:
Birgitta á Borgum (Margit Ravn)
' Samtíð og saga
Úr dagbókum skurðlæknis
Draumur um Ljósaland
íslenzkir sagnaþættir og þjóðsögur II. hefti (Guðm. Jónsson)
Formálabókin
Gríma (öll innbundin)
Þjóðsögur (Ólafs Davíðssonar), innbundnar
Bókaverzlun Lárusar Þ. Blöndal.
Tilkynning
frá ríkisstjórninni
Samkvæmt ósk brezku hernaðaryfirvaldanna tilkynnist
hér með, að ferðaskírteini skipa 10—75 smálestir, sem
um ræðir í tilkynningu ríkisstjórnarinnar, dags. 7. mars
og 5. september 1941, verða afgreidd, sem hér segir:
í Reykjavík hjá brecka aðalkonsúlnum.
Á Akureyri hjá brezka vice-konsúlnum
r
A Seyðisfirði hjá brezku flolastjórninni.
r
I Vestmannaeyjum hjá brezku hernaðaryfirvöldunum.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið 23. sept. 1941
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Siguröur Björgólfsson. Siglufjarðarprentamiðja.