Siglfirðingur


Siglfirðingur - 09.09.1943, Side 2

Siglfirðingur - 09.09.1943, Side 2
2 SIGLFIRÐINGUR háð hefir mjög um langan aldur afkomu manna á Sauðanesi og Úlfsdölum. Nú er þessi, ein afskekt asta byggð landsins, kómin 1 beint og öruggt símasambahd við Siglu- fjarðarbæ, og gerir það lífsbarátt- una þarna á útskaganum af- skekkta léttari og bærilegri en áður, og geta engir gert sér grein þess munar, nema þeir, sem reynt hafa. Þórður Jónsson, símaverkstjóri sá um verkið fyrir hönd landsím- ans og framkvæmdi allar jarð- strengslagningar. Annað mikilvægt verk á sviði símatækninnar hefir einnig verið framkvæmd hér í vor og sumar. Það er beint bæjarsímasamband við Fljótaárvirkjunina. Má geta nærri hver þægindi og hagur það er svo stórkostlegri verksfram- kvæmd, að geta verið í stöðugu milliliðalausu sambandi við bæinn og þá aðilja hér er framkvæmdun- um stjórna fyrir bæjarins hönd. Hefir Skeiðfossverkstöðin verið tengd við bæjarsímakerfi Siglu- fjarðar með svokölluðu huldulínu fyrirkomulagi Má segja að þarna hafi á hag- kvæman hátt verið bætt úr brýnni þörf hins mikla fyrirtækis, og á símamálastjórinn þakkir skilið fyrir það, hve fljótt og vel hann leysti úr þessum vanda með ágæti tækni sinni og sérþekkingu. fræði. Það er í raun og veru ógern- ingur og allra sízt þegar jafn langt er um liðið, að meta til fulls þau menningaráhrif, er slíkt heimili og Yztabæjarheimilið var, hefir á um- hverfi sitt og getur breytt til hins betra lífsviðhorfum upprennandi kynslóðar. Að minnsta kosti mun óhætt að fullyrða, að heimili þeirra hjóna hafi lagt sinn drjúga skerf til íslenzkrar endurreisnar á síð- ustu áratugum 19. aldar og fyrstu tugi hinnar 20. Um þær mundir, sem þau hjón hófu búskap sinn að Yztabæ, var, að minnsta kosti í Hrísey, lítið um ræktun skrúðgarða eða trjárækt. Mun garður Hallfríðar í Yztabæ hafa verið fyrsti skrautgarður Hríseyjar og góð fyrirmynd þeirra er síðar komu upp samskonar görðum við heimili sín. — Um- gengni hennar og hirðusemi var og er enn viðbrugðið. Nú er þessi 73ja ára kona að berjast í því að koma hér upp nýjum reit þar sem hún geti unnið að gróðursetningu trjágróðurs og skrautjurta og far- ið um ungviðið sínum mjúku móð- urhöndum, eins og jafnan fyrr. Er ekki að efa, að „garður Hallfríðar“ verður til mikilla fyrirmyndar ef henni endist líf og heilsa til að hlú að ungviðinu, eins og hugur stendur til. — Margt fleira mætti segja um hina ágætu og rauplausu húsfreyju að Yztabæ, og er líklegt að þeir, er betur þekkja geri það einhverntíma áður en það verður orðið um seinan. firði og víðar að, en húsbóndinn kenndi böfnum og unglingum hag- nýt fræði þau, er lögboðin voru til fermingar, tungumál, reikning o.fl. Þessi skóla og uppeldisstarfsemi þarna stóð yfir eða um 20 ár og var miklu loforði lokið á kennslu þeirra beggja. Auk alls þessa tóku þau að sér fátæk öreigabörn, er einkis áttu úrkosta, og gengu þeim í foreldra stað í lengri eða skemmri tíma og einn dreng ólu þau upp algjörlega til fullorðinsaldurs. Þau eignuðust 9 börn, tvær stúlkur og 7 drengi Dó einn í æsku en tveir á fullorðinsaldri. Þau hjón búa'nú í Siglufirði og hafa dvalið Jiér síðan 1919 að þau brugðu búi fyrir heilsubrest beggja Dvelja þau nú hjá dóttur sinni Þóru og tengdasyni sínum Pétri Björnssyni, kaupmanni. Eru þau Jón og Hallfríður bæði vinsæl og vinmörg enda heimsótti þau fjöldi manns á gullbrúðkaupsdegi þeirra og bárust þeim góðar gjafir og mikill f jöldi skeyta* Siglfirðingur óskar þessum öldr- uðu heiðurshjónum allrar blessun- ar á þessum merku tímamótum i ævi þeirra. -------o------- Frétíir frá Alþingi. Mörg ný mál hafa þegar komið fram á Alþingi, auk þeirra, er ó- lokið var, er þingi var £restað á síðasta vori. Er þar fyrst að telja Fjárlagafrumvarpið. Eins og kunnugt er, hafði fjár- málaráðherra lagt fyrir þingið fjár lagafrumvarp í vor. Nú hefur ráð- herrann lagt fyrir þingið nýtt f jár- lagafrumvarp, en tekið hitt aftur. Er frumvarp þetta samið með allmjög frábrugðnum hætti frá því er tíðkazt hefur. Eru þar flokk aðir út gjaldaliðirnir til meira sam- ræmis en áður var, og t. d. allar verðlagsuppbætur, er dýrtíðin hef- ur skapað, færðar með launum á hverjum lið fyrir sig^ En í þess stað voru þessi útgjöld áður færð öll undir sömu grein. Rekstrartekjur eru þarna áætl- aðar 66,9 milljónir eða 1,2 millj. hærra en á fjárlögum þessa árs. Gjöldin á rekstraryfirlitinu eru á- ætluð 62,5 millj. eða 1,3 millj* hærri en núgildandi fjárlagaút- gjöld. Rekstrarafgangur er áætl- aður 4.4 millj. í stað 4.5 millj. Framlag til nýrra vega er lækk- að um 1,7 millj. Segir svo í athuga- semd: Það er þegar fyrirsjáanlegt, að ekki verður unnið fyrir allt það fé, er veitt er á fjárlögum þessa árs til nýrra akvega, en ríkisstjórn in telur rétt, að unnið verði fyrir það fé á næsta ári, er eigi verður notað í ár. Viðhald vega er hækkað um 1,2 millj. Til brúargerða eru aðeins áætl- uð 250 þús., en vinna skal á næsta ári fyrir það brúargerðafé, er ó- notað verður á þessu ári til brúar- gerða. Hafnargerðir, og framlag til þeirra, er áætlað á tveimur stöð- um, Sauðárkróki og Raufarhöfn, enda engar umsóknir borizt um ný framlög. (Hvernig er það með Innri höfnina hérna. Væri ekki reynandi að fá eitthvað lagt til hennar á fjárlögum næsta árs?) Á kirkju- og kennslumálaliðnum eru nýjar greiðslur til biskupsemb- ættisins (2000 kr. í risnu + dýr- tíðaruppbót, og 5000 kr. ferðafé). Bókmenntir, vísindi og listir. Nátúrufræðifélaginu eru nú áætl- aðar 32 þús« í stað 13 áður, þá eru þar felldir niður nokkrir styrkir til einstakra manna, en búizt við að þeirra hinna sömu verði minnzt af Menntamálaráði og framlag til þess því hækkað um 10 þús. kr. Framlag til landbúnaðar, sjávar- útvegs og iðnaðar. Framlag til Búnaðarfél. hækkar um 50 þús. og styrkur til kynnisferða bændanna úr 2 þús. i 5 þús. Sandgræðslu- framl. hækkar um 50 þús. Áætl- aður er nýr Iiður: 2 milljónir til áburðarverksmiðju, sem sé 1. greiðsla til þess fyrirtækis, og sé það lagt til hliðar, unz fært þykir að hefja framkvæmdir. Félagsmál: Tillag til alþýðutrygginga hækk- ar um 330 þús. Er þarna nýr 100 þús. kr. liður til kvenfélagasam- bands til húsmæðrafræðslu, heim- ilisiðnaðar og garðyrkju. Þá hefur stjórnin einnig lagt fram þessi frumvörp: Fjáraukalög fyrir árið 1940; út- gjöld þeirra nema um 1,8 millj. Breyting á tekju- og eignaskatts lögunum (bráðab.lög frá því í vor) Innheimta skatta og útsvars. Um stofnun svonefndrar Inn- heimtustofmmar ríkisins, er ann- ist opinberar innheimtur í Rvík. Gjaldaviðauki. Um framl. á lög- um um 40% viðauka á vitagjald, aukatekjur og stimpilgjald. Lífeyrissjóður starfsmanna rík- isins, frumvarp er dagaði uppi í vor og sömuleiðis lögu um Lífeyr- issjóð barnakennara frá þv í vor. Þá hafa komið fram nokkrar lítils háttar þingmannafrumvörp, svo sem frumvarp mn afsláttarhross, lítilfjörleg breyting á áburðarlög- unum, friðun Patreksf jarðar fyrir skotum og Byggðasíma I Álftaveri, sem er merkilegt frumvarp til að afstýra lífshættu austur þar vegna Kötlugosa og jökulhlaupa. Eins og geta má nærri, eru þing- störf ekki komin á mikinn rekspöl ennþá, en ef dæma má eftir út- vörpuðum umræðum um fjárlaga- frumvarpið verður að álykta að ekki sé góðs að vænta um sam- Fimmthi ára hjú- skaparafmæli. . Síðastliðinn laugardag áttu þau hjónin Hallfríður Þórðardóttir og Jón Kristinsson frá Yztabæ í Hrís- ey fimmtíu ára hjúskaparafmæli. Hallfríður er fædd að Hólum í Öxnadal 12. júlí 1870» Faðir henn- ar var Þórður Pálsson frá Kjarna i Eyjafirði og er sú ætt þjóðkunn Móðir Hallfríðar var Guðrún Magnúsdóttir ættuð frá Leyningi í Eyjafirði. Hallfríður var mikil gáfu og fríðleiks kona svo til var tekið. Hún naut líka góðrar mennt- unar eftir því, er þá var títt um íslenzkar konur og stundaði nám sem frekast var auðið við Lauga- landskvennaskólanum. En auk þess var sjálfsmenntun Hallfríðar mikil og vafalaust meiri en margan samtíðarmann hefir grunað og vit- að um. Húsfreyjan unga að Yzta- bæ í Hrísey þótti snemma fyrir- mynd um kvenlegar íþróttir og búskaparlega stjórnsemi. Enda kom brátt í ljós, að heimili þeirra hjóna varð nokkurskonar menntaskóli þarna í eyjunni; hús- freyjan kenndi kvenlegar hann- yrðir, listsaum og margskonar heimilisiðnað, en hann bókleg Jón er fæddur 10« okt. 1865 og er því nú hartnær 78 ára að aldri. Faðir hans var Kristinn Stefáns- son, bóndi að Yztabæ í Hrísey. Kristinn yar dóttursonur Þórðar frá Kjarna, og er sú ætt, eins og fyr getur mjög fjölmenn og út- breidd um land allt. Stefán faðir Kristins var sonur séra Baldvins Þorsteinssonar frá Upsum á Upsa- strönd, en séra Baldvin var föður- bróðir Jónasar skálds Hallgríms- sonar. Kristín hét móðir Jóns, dóttir Þorvaldar Gunnlaugssonar frá Krossum á Árskógströnd og Snjólaugar Baldvinsdóttur frá Ups um. Voru þau hjón systkynabörn. Þau hjónin Hallfríður og Jón bjuggu miklu rausnarbúi að Yzta- bæ og stunduðu þar jöfnum hönd- um landbúnað og sjávarútveg, því Jón var alþekktur víkingur að dugnaði og veiðiheppni. Hann var formaður í 20 ár auk síldveiða, er hann stundaði um langt skeið. Var Jón meðal annars ágætlega heppin selaskytta og stundaði þá veiði allt frá barnæsku til sextugsaldurs. Runnu því margar stoðir undir bús aðdrætti að Yztabæ, enda láu hús- bændurnir ekki á liði sínu. Eitt af því er einkenndi Yztbæjarheimilið og fyrr var drepið á, var kennslu og uppeldisstarfsemin er þar fór fram. Húsfrey-jan tók námsmeyjar á heimilið hvaðanæva að úr Eyja-

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.