Siglfirðingur - 09.09.1943, Page 4
4
SIGLFIRÐINGUR
Tilkynning frá utanríkismálaráðuneytinii.
í júní s. 1. var stofnsett frönsk þjóðfrelsisnefnd nndir utjórn
heríoringjanna de Ganlle og Girand. Hefnr nefndin tilkvnnt það
sem aðalmarkmið sitt að tryggja stjórn á öllum hernaðarfram-
kvæmdum Frakldands svo og að annast gæzlu og vernd allra
franskra hagsmuna. Þjóðfrelsisnefndin liefur snúið sér tii iiestra
fullvalda ríkia, þar á meðal til fslands, og farið fram á að þau
viðurkenndu hana. Hafa þegar nokkur ríki orðið við þessari beiðni.
Ríkisstjórn íslands hefir í dag viðurkennt Þjóðfrelsisneí ndina
sem löglegan aðila til að annast gæzlu og vernd allra franskra
hagsmuna.
Utaríkismálaráðuneytið, Reykjavík, 1. sept. 1943
N AUÐUN G ARUPPBOÐ
. Eftir kröfu bæjarstjórans á Siglufirði verður nauðungaruppboð
haldið í leikfimisal bamaskólans miðv.d. 22. september n. k , kl. 5 e. li.
og þar seldir lausafjármunir Ingibjargar Jósepsdóttur, sem veðsettir
eru Sigluf jarðarkaupstað að handveði, samkvæmt veðskuldabréfi dags.
9/1 1940.
Þessir munir eru þeir helztu:
Út\Tarpstæki, fótstigin saumavél, veggklukka, stólar, borð, skáp-
ar, legubekkir, diskar, bollapör, pottar, pönnur, ýmis eldhúsáliöld o. fl.
Uppboðsskilmálar birtir á uppboðsstaðnum.
Skrifstofu Siglufjarðar, 9. sept. 1943.
HANNES GUÐMUNDSSON
settur.
F R É T T I R
Landkynning.
íslenkzkir námsmenn vestan
hafs gera sér títt um að kynna
Island fyrri alþýðu manna í Banda
ríkjunum. Fyrir nokkru síðan
héldu íslenzkir námsmenn við há-
skólann í Berkeley í Kaliforniu
slíkt kynningarmót, og nú alveg
nýlega héldu íslenzk-ir námsmenn
við skólana í Minneapolis annað
kynningarmót um land sitt og
þjóð. Var þar sýnd kvikmynd frá
íslandi, er íslenzka sendisveitin í
Washington hafði léð í þessu skyni
Benjamín Eiríksson frá Hafnar-
firði flutti þar fyrirlestur um Is-
land og svaraði fyrirspurnum, er
bárust frá áheyrendum. íslenzkir
listmunir voru þar sýndir og ís-
lenzkar konur, búsettar vestra,
komu þarna fram í íslenzkum
þjóðbúningum. Ber íslenzkum
námsmönnum vestur þar þökk og
heiður fyrir kvnningarviðleitni
! sína á Islandi, og sýnir hún mikla
ræktarsemi og ást þeirra á landi
sínu og þjóðinni.
'k
Villirefur verður fyrir bíl.
Það nýstárlega atvik kom fyrir,
er farþegabifreið var á leið yfir
Kerlingarskarð á Snæfellsnesfjall-
garði, að villirefur skauzt yfir veg-
inn framan við bílinn. Ók bifreiðin
yfir haus tófunnar og drapst hún
samstundis, en farþegarnir hirtu
veiðina* Er þetta talið í fyrsta
skipti, svo menn viti, að villirefur
verði fyrir ,,bílslysi“.
★
820 marsvín
hlupu á land á norðanverðu
Snæfellsnesi 23. f. m. Um eða yfir
700 festust á grynningunum við
Búlandshöfða innanverðan, 40 á
fjörur Mávahlíðar, 4 við Brimils-
velli, 14 við Ólafsvík og 62 við
Harðakamb. Mun reynt að hag-
nýta björg þessa eins og hægt
verður, en til þess þarf mikinn
mannafla og flutningatæki, sem
hörgull er á. Oft hafa smáhveli
þessi hlaupið á land á norðanverðu
Snæfellsnesi, og oft verið rekin á
land á þeim slóðum. Virðast mar-
svínatorfur oft leggja leið sína um
utanverðan Breiðaf jörð, en ekkert
verið rannsakað um háttu eða
göngur þeirra dýra, svo að á sé
byggjandi. Skömmu eftir aldamót-
in 1800 rak um 1000 slík smáhveli
í Hraunsfirði og bjárgaði það heil-
um sýslum frá hungri, því hart var
þá um bjargræði, og fyrir 20 árum,
kom gríðarstór marsvínatorfa inn
á Grundarfjörð og var talið, að
þar hefðu verið yfir 1000 hvalir.
En einir 20 náðust þá.
★
Tilkynning frá ríkisstjórninni
Ríkistjórnin hefur vottað sendi-
herra Dana samúð sína vegna
þeirra atburða, sem gerzt hafa nú
í Danmörku. Ennfremur hefur rík-
STULKA
óskast í vetrarvist. Gott kaup.
Upplýsingar hjá
ÓLAFI Þ. ÞORSTEINSSYNI,
sjúkrahússlækni.
STÖLKA
óskast í vetrarvist
(allan daginn).
HANNA SCHIÖTH
ATHU6IÐ!
Leiðin liggur í VAI7. Þar
fáið þér það, sem yður
vanhagar um. Munið
V AL
Nýlegur
Smoking og föt
á meðal mann til sölu.
Tækifærisverð
Gufupressun Siglufjarðar
STÖLKA
óskast í vetrarvist til Reykja-
víkur. — Upplýsingar gefur
SIGRÍÐUR RAGNARS
isstjórnin falið sendifulltrúa Is-
lands í Stokkhólmi að koma á fram
færi við fyrstu hentugleika sams-
konar samúðarkveðju íslenzku
ríkisstjórnarinnar og íslenzku
þjóðarinnar til Hans Hátignar
konungsins og dönsku þjóðarinnar.
★
Tilkynning frá
utanríkisráðuneytinu.
Hinn 16. júlí réðist amerískur
hermaður á íslenzka konu í Kefla-
vík. Árásarmaðurinn, sem náðist,
hefur nú verið leiddur fyrir her-
rétt og dæmdur. Dómurinn var á
þá leið, að hermanninum var vikið
úr hernum með skömm og sviptur
öllum launagreiðslum bæði. nú og
síðar, svo og dæmdur til strangrar
refsivistar í 15 ár.
Ennfremur hefur amerískur her-
maður, sem réðist á konu á Seyðis-
firði, 11. júlí s.l., verið dæmdur af
herrétti brottrækur úr hernum með
skömm og sviptur öllum rétti til
launa nú og síðar og dæmdur til
strangrar refsivistar í 4 ár.
Stúlka
Stúlka óskast
I vist til
Reykjavíkur.
Upplýsingar hjá
BÁRU ARNGRÍMSDÓTTUR
Laugavegi 10
REGNHLlFAR
nýkomnar
Verzlun
Jónínu Tómasdóttur
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Sigurður Björgólfsson
Siglufjarðarprentsmiðja
óskast strax
Hátt kaup.
NYJAR BÆKUR:
Þeir gerðu garðinn frægann
Draumur um Ljósaland
Gleftur og 4. hefti Urvals
komið aftur.
Roosevelt íb — ób.
Árbók frjáls íþróttamanna
Knattspyrnubókin
Sindbað vorra tíma
Sjóm.bl. Víkingur 8—9 hefti
Bókaverzlun
Lárusar Þ. J. Blöndal.
Ódýrir
MATARDISKAR
djúpir og grimnir
Verzlunin
Sveinn Hjartarson