Siglfirðingur


Siglfirðingur - 29.04.1944, Síða 4

Siglfirðingur - 29.04.1944, Síða 4
4 SIGLFIRÐINGUR Einræðisbrölt Þórodds. Framhald af 1. síðu Þetta dugði eigi og Þóroddur hugs- aði málið í kyrrþey og svo komst hann að þeijrri niðurstöðu, að ef hann beitti allri sinni slægvizku og brjóstviti, þá væri spilið unnið. Svo kallaði Þóroddur Gunnar Jó- hannsson, Jörgensen og alla sína helztu hjálparkokka á fund og til- kynnti þeim, að það væri nóg að gjöra, því hann hefði ákveðið, að segja upp griðasamningnum um kaupfélagið og svifta Jafnaðar- og Framsóknarmenn þar öllum völd- um, þeir væru handónýtir og gjörðu eigi annað en flækjast fyr- ir, t. d. Baldvin Þ. Að vísu yrðu Kristján Sig. og Guðbrandur að fá að lafa þar eitt ár enn, en svo yrði þeim sparkað líka — hann ætlaði sjálfur að taka forystuna! Gunnar og Jörgensen mölduðu eitthvað í móinn, — andstæðing- arnir væru miklu fleiri og þetta áhlaup gæti mistekizt og þá væri ver farið en heima setið, og svo væri eigi víst, að kaupfélagsmenn- imir sættu sig við þetta o.s.frv., o.s.frv. — En Þóroddur kvaðst eigi vilja hafa neitt ,,röfl“, hann hefði ákveðið þetta og myndi sjálf ur stjórna öllum undirbúningi og áróðri. Hugmyndin væri, að láta smíðum sínum og ritstörfum. En sá minnisvarði, er ekki Siglfirðing- um að þakka, né heldur er hann séreign þeirra. Hann er eign allrar þjóðarinnar. En útgjaldalaust gætu þó Sigl- firðingar reist honum minnisvarða, er lengi mundi standa. Þeir ættu að láta eina af aðalgötum þeim, er hann skipulagði bera nafn hans t. d. Túngötuna eða Norðurgötuna. Þessar voru þær götur, er leið hans lá helzt um, er hann gekk niður í bæinn, eða heim til sín. Eg vil svo enda þessar minn- ingar horfinna sæludaga með því, að biðja guð að blessa minningu þessara tveggja heiðursmanna, er hvor um sig og hvor á sinn hátt lögðu fram krafta sína öll sín beztu manndómsár til þess að skapa framtíð Siglufjarðar og plægja þann akur, er nú er að bera okkur þá ávexti, er skapa okkur lífsuppbeldi. Og enn munu niðjar okkar um langan aldur njóta starfa þeirra. Þessvegna ber að halda á lofti minningu þeirra, óg varðveita hana sem bezt. O. Tynes. (Erindi flutt í Rotaryklúbb Siglu- fjarðar 1944). konur kommúnista ganga inn í kaupfélagið og ef þau ættu upp- komin börn, þá væri rétt að láta þau ganga inn líka. Síðan yrði haf- inn öflugur áróður og kaupfélags- kommúnistum skýrt frá því, að Jafnaðar- og Framsóknarmenn ættu engum hæfum mönnum á að skipa í trúnaðarstöður, svo að kaupfélagið myndi eigi dafna og blómgast fyrr en kommúnistar stjórnuðu því sjálfir, — eða rétt- ara sagt Þóroddur, og til þess að slíkt tækist yrðu þeir að sækja vel deildarfundina — helzt hver ein- asti maður, — og ef einhverjir þeirra væru eigi vissir um hverja bæri að kjósa er komið væri á kjör- stað, þá yrðu þeir aðstoðaðir og auk þess leiðbeint á kosningaskrif- stofu, er yrði á sjálfum kjörstaðn- um. Ef einhverjir gætu komið því við, að kjósa í tveim deildum, myndi það auðvitað hækka at- kvæðatöluna. Flest fór þetta eftir því, sem Þóroddur hafði mælt fyrir. Fram- sóknar- og Jafnaðarmenn stóðu sig illa og um Sjálfstæðismennina innan kaupfélagsins var eigi að tala. — Þóroddur sigraði í kosn- ingunni og símaði til Reykjavíkur, að hann hefði unnið glæsilegan varnarsigur (eins og Þjóðverjar) gegn ofurefli andstæðinga, sem beitt hefðu allskonar bolabrögð- um, — en sínir menn hefðu runnið sjálfkrafa á kjörstaðinn. Ennfrem- ur skrifaði Þóroddur mergjaða skammagrein í næsta Mjölni, sem út kom 26. þ. m. Sú grein f jallaði um Framsóknar-, Jafnaðar- og Sjálfstæðismenn, sem eru í kaup- félaginu og skýrir hann þar t. d. frá því, að við engar kosningar hefðu kommúnistar „verið lagðir eins í einelti með lygum og rógi, eins og nú var gert, og ekki verið logið upp öðru eins ógrynni af til- hæfulausum sögum.“ Síðar í sömu grein farast Þóroddi svo orð: „Það væri óskandi, að slík viðurstyggð eins og kosningabarátta þessarar Breiðfylkingar (Framsóknar, Jafn aðar- og fáeinir Sjálfstæðismenn*) nú, ætti ekki eftir að nedurtaka sig aftur hér á Siglufirði.“ * Hvernig lízt mönnum á slík um- mæli um samfélagsmenn sína? Við hverju má þá búast, þegar gengið verður til bæjarstjórnar- eða Al- þingiskosninga!! Hér hefur nú verið skýrt frá ýmsu misjöfnu, en þó er sagan enn eigi sögð öll — því að á aðal- fundi kaupfélagsins, sem haldinn var 27. þ. m. setti Þóroddur met í hræsni og ósvífni. Framan af var fundurinn mjög hógvær og frið- * Það sem innan sviganna er, er viðbót Siglfirðings. samur. Menn ræddu þar í bróðerni um hag félagsins og ýmislegt, sem til bóta gæti staðið. Undir þeim umræðum hélt Þóroddur langa og hjartnæma ræðu um það, að menn ættu að standa saman um kaupfé- lagið og blöð bæjarins gætu unnið félaginu stór gagn með því að skrifa vinsamlega um það, hvetja menn til þess að ganga í það o.s.frv., o.s.frv. Ef Þóroddur hefði verið ópólitískur kaupfélagsmaður og engin afskipti haft af fulltrúa- valinu á aðalfundinn, þá hefði þessi ræða hans verið ágæt, — en eftir allt, sem á undan var gengið, þá var hún óhæf, hreint og beint hnefahögg á nasir samfélags- manna hans, er höfðu aðrar stjórn málaskoðanir. Því hvað er féalgið án meðlimanna, sem hann hafði svívirt daginn áður í Mjölni og var í þann veginn að svifta öllum á- hrifum með því að sparka þeim úr trúnaðarstöðum félagsins ? Svari Þóroddur ef hann getur, eða hyggur hann máske, að hann geti svínbeygt alla sína stjórn- málaandstæðinga til auðmjúkrar hlýðni við sig? Ofan á þessa hræsnisþrungnu ræðu bætti svo Þóroddur síðar á fundinum einu því gerræðisfyllsta og einræðiskenndasta athæfi, sem hægt er að fremja á almennum fundi. Þegar komið var að vali trúnað- armanna lagði Kristján Sigurðs- son fram þaraðlútandi tillögu og fylgdi henni úr hlaði með stuttri ræðu. Kvaddi Halldór læknir sér þá hljóðs og hugðist að ræða til- löguna. Hafði Jörgenseri, er var fundarstjóri, veitt honum orðið og átti hann sér einski ills von. En það fór allt á aðra leið, því að læknirinn hafði aðeins talað skamma stund og mjög stillilega, er Jörgensen svifti hann orðinu og veitti Þóroddi það, þótt hann væri alls eigi á mælendaskrá. Þór- oddur skýrði þá frá því, að hann myndi alls eigi leyfa að ræða fram- komna tillögu, en láta kosningu trúnaðarmanna fara fram án frek-' ari umræðna og skipaði fundar- stjóra að taka orðið algjörlega af lækninum. Jörgensen er vitanlega algjör- lega viljalaust verkfæri í höndum Þórodds og hlýddi því fyrirskipun- um yfirboðara síns,— en læknirinn mótmælti þessu einræðiskennda broti á fundarsköpum með því að ganga af fundi, ásamt nokkrum öðrum, sem töldu sér og fundinum misboðið. Þessi stutti en leiðinlegi þáttur, um valdabrölt Þórodds innan Kaup félags Siglfirðinga verður rúmsins vegna að nægja í bili, en e. t. v. mun Siglfirðingur birta meira um Nýjar bækur: Heim til framtíðarinnar, eftir Sigrid Undset. Njálssaga, innb. og ób. Síðasta tækifærið að gerast áskrifandi að Heimskringlu er á föstudag og laugardag. — Áskriftarlistar liggja frammi hjá okkur. Bókaverzlun Lárusar Þ. J. Blöndal. Hinar margeftirspurðu INNKAUPSTÖSKUR eru komnar. Verzl. Halldór Jónasson. Eigum til nokkur stykki af íslenzkum flögpm Einar Jóhannsson & €o. Olíustakkar Olíubuxur Olíusvuntur Olíuermar Sjóhattar Samfestingar Vinnubuxur Vinnutreyjur Sjóbuxur Ullarpeysur Ullarleistar Ullarvettlingar Vinnuhanzkar Vinnuskyrtur Nærföt VERZLUNIN SVEINN HJARTARSON sama efni, þegar lokið verður fram haldi aðalfundarins, er frestað var til 7. maí n. k. Að endingu þetta: Pólitíska of- beldisseggi eins og Þórodd Guð- mundsson þarf Kaupfélag Siglfirð- inga umfram allt að forðast, ef það ætlar að verða sterkt og öfl- ugt fyrirtæki. Linoleumdúkur. Hefi fengið mikið úr- val af linoleumdúk. EINCO %

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.