Morgunblaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að leggst mjög vel í mig að syngja
með þeim félögum í hljómsveitinni
Vanir menn. Ég söng með þeim eitt
lag inn á plötu fyrir nokkrum ár-
um. Það lag heitir Reiðlag. Í kjöl-
farið söng ég inn á disk með einum úr hljóm-
sveitinni, það voru lög sem tengjast
Siglufirði. Föðurbróðir minn, Jónatan Ólafs-
son, samdi mörg þekkt Siglufjarðarlög og
þau hef ég oft sungið,“ segir Þuríður Sigurð-
ardóttir.
Hún hefur aldrei búið á Siglufirði en kom-
ið þangað margoft. „Ég á marga góða vini á
Siglufirði. Við hjónin fórum og fylgdumst
með þegar Héðinsfjarðargöngin voru opnuð í
haust og það var skemmtileg upplifun. Ég
kom fyrst til Siglufjarðar þegar ég var að
byrja að syngja og mér hefur þótt gaman að
sjá hvernig bærinn hefur þróast og bæj-
arbúar viðhaldið hefðinni. Síldarminjasafnið
er algjör gimsteinn. Einnig hafa gömul hús
verið gerð upp á fallegan hátt. Við höfum oft
borðað við höfnina á sólskinsdögum og þar
er yndislegt útsýni. Það er heilmikil menn-
ingarstarfsemi í gangi á Siglufirði og mér
finnst alltaf gaman að koma þangað,“ segir
Þuríður.
Þegar Þuríður heimsótti Bátahúsið í haust
hugsaði hún með sér að þarna yrði gaman að
syngja. Á föstudaginn langa fær hún tæki-
færi til þess og segist hlakka mikið til „Fólk
mun þekkja lögin á tónleikunum og ég er
viss um að það myndast góð stemning,“ segir
hún.
Þuríður segir að 45 ára tónlistarafmælið
hafi í raun verið í lok síðasta árs en hún hef-
ur ekki gefið sér tíma til að halda sér-
staklega upp á það fyrr en nú. „Ferillinn
minn er orðinn svo langur að hann á líkleg-
ast best heima í minjasafni,“ segir Þuríður
og hlær sínum þekkta hlátri.
Þegar hún er spurð hvort framhald verði á
tónleikahaldi svarar hún:
„Þessir tónleikar kveikja óneitanlega í
manni og ég hef aldrei verið hrædd við að
stinga mér í djúpu laugina. Við verðum bara
að sjá til með framhaldið.“
Á Kjarvalsstöðum
Starfsvettvangur Þuríðar er myndlistin og
hún hefur stundað hestamennsku alla tíð.
Þetta tvennt hefur hún sameinað en hrossa-
myndir Þuríðar eru vel þekktar, enda sér-
stakar. Hún verður með tvær af myndum
sínum á sýningu sem verður opnuð á Kjar-
valsstöðum 7. maí. „Þetta er sýning þar sem
farið verður yfir sögu hestsins í íslenskri
myndlist. Þarna verða valin verk eftir 40
listamenn sem eru lýsandi fyrir þetta mynd-
efni. Hrossamyndirnar mínar eru seinunnar
þannig að ég gríp alltaf í annað myndefni á
milli. Ég elska hesta og þessa snertingu við
feld þeirra. Það hefur skilað sér í myndefn-
inu,“ segir Þuríður.
Eftir tónleikana á Siglufirði fer hún í
skírnarveislu barnabarns númer tvö sem
haldin verður í Reykjadal. Það eru því
spennandi páskar framundan. „Son minn og
tengdadóttur langaði að láta skíra barnið í
lítilli sveitakirkju. Þetta er drengur en nafnið
er leyndarmál.“
elal@simnet.is
Ferillinn á kannski heima á minjasafni
Þuríður Sigurðardóttir, myndlist-
armaður og söngkona, heldur upp
á 45 ára tónlistarferil sinn um
þessar mundir. Hún hefur lítið
komið fram opinberlega und-
anfarin ár en ætlar að bæta úr því
á tónleikunum á Siglufirði um
páskana.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vinsæl Þuríður Sigurðardóttir rifjar upp ferilinn á tónleikum á Siglufirði um páskana.
B
irgir Ingimarsson er einn
liðmannahljómsveit-
arinnar Vanir menn en
hana skipa ásamt honum
Leó Ólason og Magnús
Guðbrandsson. „Við erum allir Sigl-
firðingar, þroskaðir popparar, en
brottfluttir. Við spiluðum saman í
hljómsveit hér áður fyrr sem heitir
Miðaldamenn en síðan tókum við hlé í
tæp 30 ár. Miðaldamenn eru enn
starfandi fyrir norðan en við erum
með aðra hljómsveit í Reykjavík sem
við köllum Vanir menn,“ segir Birgir.
„Þuríður ætlar að syngja með okk-
ur á þessum tónleikum en okkur
langar til að vera með Siglufjarð-
arþema. Jónatan Ólafsson, föð-
urbróðir Þuríðar, bjó á Siglufirði á
síldarárunum og samdi mörg af sín-
um þekktustu lögum þar. Má þar
nefna Síldarvalsinn, Sigurður er sjó-
maður, Landleguvalsinn og mörg
fleiri þekkt lög. Einnig verður Sigl-
firðingurinn og tónlistarmaðurinn
Haraldur Gunnar Hjálmarsson með
okkur. Hann er mikið sjónskertur,
flutti ungur til Danmerkur til náms og
spilaði með þekktum dönskum tón-
listarmönnum. Haraldur Gunnar
lærði píanóstillingar og hefur unnið
við það fag. Hann er núna fluttur
heim og hefur leikið með hljómsveit-
inni hér á landi,“ segir Birgir.
Spilað um borð
Hljómsveitin Vanir menn hefur
leikið á árshátíðum, þorrablótum og
hinum ýmsu skemmtunum und-
anfarin ár. „Við lékum okkur saman
sem strákar á Sigló og höfum alltaf
haldið góðu sambandi. „Þegar ég
byrjaði að spila þurfti ég undanþágu
frá dómsmálaráðuneytinu til að spila
á sveitaballi. Maður var svo ungur
þá,“ segir Birgir. „Þá var annað
landslag í dansmenningunni, sveita-
ball í hverju félagsheimili allar helg-
ar.“
Þetta er í fyrsta skipti sem Vanir
menn halda tónleika á Siglufirði. „Við
ætlum að vera í Bátahúsinu hjá Ör-
lygi Kristfinnssyni. Fyrir þá sem ekki
hafa komið í Bátahúsið skal þess get-
ið að þar eru bryggjur og bátar sem
liggja við þær. Bátarnir eru gamlir,
orginalbátar frá síldarárunum.
Hljómsveitin kemur sér fyrir í einum
bátnum og gestir dreifa sér á bryggj-
unum en þetta er mjög kósý. Það er
mikil eftirspurn eftir að koma þarna
fram, sérstaklega á sumrin,“ segir
Birgir. „Flestir þekkja þjóðlagahátíð-
ina sem er afar vinsæl en hún er hald-
in í júní. Á tónleikunum okkar ætlum
við bæði að syngja og tala við gesti,
segja þeim frá uppruna þessara laga
og stemningunni sem þarna var.“
Skíði og skemmtun
Birgir segir að eftir að Héðinsfjarð-
argöngin voru opnuð sé auðvelt að
komast til Siglufjarðar og aðeins 50
mínútna akstur frá Akureyri. „Ólafs-
fjarðarbúar renna yfir til okkar á
nokkrum mínútum. Það hefur orðið
algjör bylting í samgöngum þarna.
Mér fannst ég vera að fara í gegnum
tímavél þegar ég keyrði þarna fyrst í
gegn,“ segir Birgir ennfremur. „Það
er mikill uppgangur á Siglufirði og
ákaflega gaman að koma þangað.
Húsnæðisverð hefur hækkað og menn
eru bjartsýnir. Góðærið náði aldrei til
Siglufjarðar svo núna eru menn að
upplifa nýja hluti. Svo má ekki gleyma
því að skíðafærið er afbragð svo ekki
má gleyma að taka skíðin með,“ segir
Birgir sem hlakkar mikið til að leika
undir hjá Þuríði Sigurðardóttur.
„Hún er mikill listamaður og það er
meiriháttar að leika með henni. Mér
finnst Þuríður vera upp á sitt besta
núna,“ segir Birgir sem bendir á vef-
inn siglo.is en þar er hægt að fá ýms-
an fróðleik um Siglufjörð, gistingu,
matsölustaði, skíðafæri og fleira
gagnlegt.
elal@simnet.is
Síldarstemning
í Bátahúsi
Menningin blómstrar á Siglufirði og svo verður einnig
föstudaginn langa þegar hljómsveitin Vanir menn ásamt
Þuríði Sigurðardóttur verður með tónleika í Bátahúsinu.
Síldarævintýrið rifjað upp með sögum og söngvum.
Ljósmynd/Jóhannes Frank
Vanir menn Þeir eiga að baki langan feril í tónlistinni og eru allir saman Siglfirðingar.
SUMARHÚS OG FERÐALÖG
Gas-kæliskápar 100 og 180 lítra
Gas-hellur
Sólarrafhlöður og fylgihlutir. 10-125w
Gas-ofnar
Gas-vatnshitarar
5 - 14 l/mín
Kælibox
gas/12v/230v
Gas-eldavélar
Sólarrafhlöður fyrir
húsbíla og fellihýsi.
Þunnar 130w
Bíldshöfði 12 •110 Reykjavík • 577 1515 • skorri.is • Opið virka daga frá kl. 8.15 til 17.30
Gleðilegt sumar!
Led-ljós = minni eyðsla