Morgunblaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.04.2011, Blaðsíða 14
K ristín segir að um páskana leggi þau áherslu á að bjóða upp á ferskan kal- kún. Þá er fuglunum slátr- að rétt fyrir páska. Hún segir að eftirspurnin hafi aukist eftir nýslátruðum fuglum og eins vilji fólk stærri kalkúna en áður. „Vinsælasta stærðin hjá okkur var 4-6 kíló en við finnum fyrir því að nú vill fólk mun stærri fugla. Fuglar sem eru 6-8 kíló eru mest seldir. Ástæðan er líklega sú að stórar fjölskyldur koma saman og borða kalkún, enda dugar hann vel í slíkum veislum,“ segir Kristín. Fæstir láta sér kannski koma til hugar að grilla kalkún á útigrilli en Kristín segir að það sé vel hægt. Þau hafa sjálf verið að prófa það. „Kal- kúnninn er grillaður heill og það er lítið mál,“ segir hún. „Það er ágætt að vera með fugl sem er 4-5 kíló. Fyrst er hann penslaður með olíu og síðan kryddaður með salti, pipar, rósmaríni, hvítlauk eða öðru góðu kryddi eftir smekk. Síðan er fuglinn lagður á álbakka á grillinu, það er stillt á meðalhita og lokið sett yfir. Þetta tekur um 75 mínútur og gott er að snúa honum á eldunartímanum og pensla með olíunni,“ segir Krist- ín. Engin aukefni Kalkúnn er hollur matur og eng- um aukefnum er sprautað í heilan fugl. Hann er góð tilbreyting frá reyktum og söltum hátíðarmat. „Kalkúnabringur eru líka mjög vin- sælar en við seljum þær allt árið í heimaverslun okkar hér uppi í Mos- fellsbæ en hún er opin á fimmtudög- um og föstudögum á milli klukkan 16-18.30. Þar eru einnig til sölu snit- sel, strimlar, bringur, reyktar og nýjar, hamborgarar, kalkúnahakk og bollur. Við setjum engin aukefni í hakkið eða hamborgarana svo þetta er ómenguð vara,“ segir Kristín. „Einnig seljum við fugl til Ísfugls sem vinnur hann og setur á mark- að.“ Kalkúnabúið að Reykjum er eini kalkúnaframleiðandinn á landinu. Kristín segir að þau hafi reynt að stilla verðinu í hóf en miklar fóð- urhækkanir hafi orðið eftir hrunið. Kalkúnninn hækkaði því nokkuð fyrir jólin en verðið mun ekki hækka fyrir páskana. „Það er mjög kostn- aðarsamt að framleiða kalkúna og mikil vinna að halda þessu gang- andi. Ísfugl sér um slátrun fyrir okkur og við sendum fugla til þeirra einu sinni í viku. Fyrir jól og páska aukum við það magn,“ útskýrir Kristín. Undanfarið hefur aukist að bjóða upp á kalkún í fermingar- og brúðakaups- veislum. Kristín segir að bringurnar séu sér- staklega vin- sælar í veislum. Á vefsíðu fyrirtæk- isins, kalkunn.is, má sjá ýmsar uppskriftir og leið- beiningar um eldun. „Fólk er óhræddara við að elda stóran kal- kún en áður var. Fyrir fimmtán ár- um stoppaði ekki síminn því fólk hringdi og bað um ráð við eldun. Í dag fást tilbúnar fyllingar ef fólk treystir sér ekki í þær en það er ekki nauðsynlegt að fylla fuglinn. Sumir setja fuglinn í saltpækil og telja sig fá mýkra kjöt en mér finnst betra að hafa hann ferskan. Kalkúnninn er holdmeiri í dag en áður var þannig að bringan og lær- in þurfa svipaðan eldunartíma. Þá er minni hætta á að hann sé þurr.“ Hvernig á að grilla kalkún? 1 kalkúnn, ca. 4-4,5 kg, fyrir 8-9 manns. Hitið grillið að hálfu, u.þ.b. 150°C/300°F. Ef brennarar eru þrír er gott að slökkva á miðbrennaranum en hafa hina á hálfum hita. Kryddið og smyrjið kalkún- inn eftir smekk. Hann er ekki fylltur en gott að skera 1 appelsínu í báta og setja inn í hann. Setjið kalkúninn á heilan álbakka (ekki grillbakka með rifum) og ekk- ert yfir, en lokið grillinu svo ekki tapist hiti. Gott er að snúa fuglinum um það bil tvisvar um 180° meðan gillað er svo hann verði jafnt grillaður. Grilltíminn er u.þ.b. 1 klst. og 15 mín. eða þar til kjarnhiti nær 70°C, alls ekki meira. Grillin geta verið misjöfn og því er alveg nauðsynlegt að hafa kjöthitamæli. Að grilltíma loknum er gott að pakka fuglinum í álpappír, setja jafnvel handklæði yfir til einangrunar og láta hann svo standa í 20 mín. áður en hann er borinn fram. elal@simnet.is Heill kalkúnn er góður á grillið Kalkúnn er vinsæll matur um páska og hjónin á kal- kúnabúinu að Reykjum í Mosfellsbæ eru meðvituð um það. Kristín Sverr- isdóttir, sem rekur búið ásamt manni sínum, Jóni M. Jónssyni, segist finna fyrir auknum áhuga fólks á því að borða frekar ljóst kjöt en reyktan mat um páska. Hátíðarmatur Kalkúnar Kristínar Sverrisdóttur njóta vinsælda meðal sæl- kera en nauðsynlegt er að fylgja uppskrift við elda- mennskuna. Morgunblaðið/Ómar 14 | MORGUNBLAÐIÐ Skemmtanir, svo sem dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veit- ingastöðum eða á öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að, eru bannaðar á ákveðnum tíma um bænadaga og páska. Hið sama gildir um opinberar sýningar og skemmt- anir þar sem happdrætti, bingó eða önnur spil fara fram. Listin undanþegin Tekið skal fram að listsýningar, tónleikar, leiksýningar og kvik- myndasýningar eru undanþegnar banni um helgidagafrið á föstudag- inn langa en slíkir viðburðir mega þó ekki hefjast fyrr en klukkan 15 þann dag. Þetta segir í tilkynningu frá lög- reglunni. Heimilt er að hafa gisti- og veit- ingastaði opna allan sólarhringinn skv. lögum um helgidagafrið. Áfeng- isveitingastaðir eru þó háðir tíma- mörkum í leyfum sveitarstjórna á hverjum stað. Skal stöðunum lokað þegar leyfðum veitingatíma áfengis lýkur og allir gestir farnir innan klukkustundar. Heimilt er að opna staðina að nýju tveimur klukkustundum eftir að áfengisveitingum átti að ljúka. Veit- ingar áfengis mega samt ekki hefjast aftur fyrr en reglur sveitarstjórna kveða á um. Lágvær tónlist í lagi Lögreglan gerir, skv. tilkynningu, ekki athugasemdir við lágværa tón- list eða flutning sjónvarpsefnis á veitingastöðum um páskana enda sé guðsþjónusta, kirkjuathöfn eða ann- að helgihald ekki truflað. Bannað að spila bingó á bæna- dögum Ganga skal hægt um gleðinnar dyr um páskana. Listviðburðir eru leyfðir en skemmtanir eru háðar takmörkum. Hótelin eru alltaf opin. Morgunblaðið/Sverrir Lukkuspil Samkomur sem raska rónni eru yfirleitt bannaðar um páska. Nýjungar frá Milda NÝTT Milda til matargerðar, inniheldur aðeins 4% fitu og þess vegna má merkja þá vöru með hollustumerkingunni Græna skráargatinu. Milda til matargerðar hefur samskonar eiginleika og matreiðslurjómi. Milda til þeytingar og matargerðar inniheldur einungis 26% fitu. Bragð og áferð eins og besti rjómi en bara fituminni. Veldu léttari kost í þína matargerð, veldu Milda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.