Siglfirðingur


Siglfirðingur - 07.03.1952, Blaðsíða 4

Siglfirðingur - 07.03.1952, Blaðsíða 4
Skíðamót Sigluf jarðar Árshátið Sjálfstæðisfélaganna í Siglufirði hófst laugardaginn 1. marz með svigi í öllum aldursflokkum. Lengd brautar A og B fl. var 350 m. 70 hlið, fallhæð 500 m. A-flokbur: 1. Guðm. Árnason ......101,2 sek. 2. Jónas Ásgeirsson .... 101,8 sek. B-flokkur: 1. Hjálmar Stefánsson 96,2 sek. 2. Gunnar Finnsson ... 96,4 sek. C-flokkur: 1. Jóhann Vilbergsson 84,4 sek. 2. Geir Sigurjónsson 91,4 sek. 3. Har. Kristmarsson 104,9 sek. 1 flokki drengja 13—15 ára: Lengd brautar 200 m., 40 hlið 1. Ólafur Nílsson ..... 61,5 sek. 2. Sveinn Sveinsson .... 63,2 sek. 3. Matthías Gestsson .... 71,5 sek. 1 flokki drengja 10—12 ára: 150 m., 30 hlið. 1. Gunnl. Sigurðsson .... 31,6 sek. 2. Bojgi Nílsson ...... 38,5 sek. 3. Birgir Guðlaugsson 44,00 sek. I flokki drengja 7—9 ára: 100 m. braut, 20 hlið. 1. Haukur Freysteinss. 53,3 sek. 2. Sig. B. Þorkelsson 72,5 sek. 3. Jónas Blöndal ...... 74,5 sek. 4. Barði Þórhallsson .... 75,0 sek. Sunnudaginn 2. marz fór fram ganga í öllum aldursflokkum: 1 flokki 'karla 20—32 ára. 15 km.: 1. Friðrik Guðmundss. 48,19 mín. 1 flokki 17—19 ára. 15 km.: 1. Hartm. Jónsson .... 53,0 m'ín. 1 flokki drengja 13—15 ára. 9 km. 1. Ólafur Nílsson ... 22,36 mín. 2. Kári Jónsson ..... 24,18 mín. 3. Björn Pétursson .... 25,36 mín. 1 fl. drengja 10—12 ára. 5 km.: 1. Jónas Jónsson ..... 9,04 mín. 2. Örn Bethke ........ 9,20 mín. 3. Birgir Guðlaugsson 9,26 mín. í fl. drengja 7—9 ára. 4 km.: 1 þessum flokki voru flestir kepp- endur, alls 25. 1. Hlynur Óskarsson 12,02 mín. 2. Björgvin Jónsson .. 12,17 min. 3. Jónm. Hólmarsson 12,35 mín. 4. Orri Vigfússon ... 12,47 mín. 5. Sigþór Erlendsson 13,02 m'ín. 1 fl. drengja 5—6 ára. 1 km.: 1. Har. Eriendsson ...4.10 mín. 2. —3. Jón Sigurðsson 4.39 mín. 2.—3. Ólafur R. Ölafsson 4,39 mín Sunnudaginn 9. marz heldur mótið áfram, með Skíðastökki karla. Stökkið fer fram í stærstu stökkbraut landsins á Nauta- skálahólum og keppa þar flestir beztu stökkmenn Islands, var haldið að Hótel Hvanneyri laugardaginn 1. marz s.l. Hófst hátíðin með sameiginlegu borð- haldi. Formaður eldra félagsins Ólafur Ragnars kaupmaður setti sam- komuna með ágætri ræðu. Á með- an á borðhaldinu stóð hélt Þ. Ragnar Jónasson bæjargjaldkeri snjalla ræðu, og var gerður fóður rómur að máli hans. Ennfremur fóru fram ýms skemmtiatriði, vel undirbúin, sem vöktu mikinn gleð- skap. Þá fór fram happdrætti. Dregið var um raflampa forkunnarfagr- an. Hafði Hjörtur Ármannsson lögregluþjónn smíðað þennan kjör grip. Var hann útskorinn af mikl- um hagleik, og má segja: „gjörð- urur af meistarahöndum". Lamp- ann hlaut frú Steinunn Rögnvalds dóttir kona Helga Sveinssonar leikfimikennara. Var það heppi- legt fyrir ungu hjónin, sem nú eru að stofna heimili, að fá þennan vandaða og fallega grip til afnota og prýði. Þessi skemmtun fór mjög vel Frá bæjarstjórn Fyrir skömmu samþ. bæjarstj., að gera þá breytingu á að kjósa bæjarráð 1 stað allsherjarnefdar. Fulltrúi Framsóknarfl. hreyfði þeirri uppástungu að í fyrirhug- uðu bæjarráði ættu sæti 5 menn. Endirinn var sá að samþykkt var að í hinu fyrirhuguðu bæjarráði sætu þrír menn. Með þessari breytingu, fellur niður fyrst og, fremst allsherjar- nefnd og nokkrar aðrar undir nefdir, og fellur þeirra starf undir bæjarráð. Ennfremur var, samkv. tillögu Kristjáns Sigurðssonar, samþykkt að fækka stjórnarnefndarmönnum í stjóm Rauðku úr 5 mönnum í 3. Fylgdu fulltrúar Sjálfstæðisfl. og Alþýðuflokksins þessari þönfu breytingu, en fulltrúar Framsókn- ar greiddu atkvæði á móti. Á sama fundi komu fram frá fulltrúa Framsóknarflokksins til- lögur um að fjölga mönnum í stjórn Rauðku úr 5 og upp í 7 og fjölga mönnum í stjórn bæjarút- gerðarinnar úr 3 upp í 5 menn. Þessar tillögur voru felldar af fulltr. Sjálfst.fl. og Alþ.fl. Til þess að koma breytingu á um bæjarráð þarf að leita samþ. Félagsmálaráðuneytisins. Þegar það er fengið fara fram kosningar í bæjarráð, nefndir og stjórnar- nefndir atvinnufyrirtækja bæjar- ins. og ánægjulega fram, og er það mál manna, að hún hafi verið með ánægjulegustu skemmtunum, sem haldnar hafa verið á vegum fé- laganna. Má færa undirbúnings- nefndinni og þá sérstaklega þeim frú Sigríði Guðmundsdóttur og frú Önnu Hertervig, sem aðal- þuniginn hvíldi á, kærar þakkir fyrir frábæra stjórn og hug- kvæmni. Að tilhlutun sóknarprestsins, séra Kristjáns Róbertssonar, var haldið svonefnt kirkjukvöld í húsa kynnum Gagnfræðaskóla Siglu- fjarðar á kirkjuloftinu. Samkomuna setti séra Kristján með stuttu ávarpi. Þá flutti Ólafur Ólafsson reglu- boði stutt erindi. Að því loknu sýndi Ólafur kvikmyndir. Kirkjukór Siglufjarðar söng nokk- ur lög undir stjórn Páls Erlends- sonar. Þessari kvöldstund lauk með því, að séra Kristján flutti bæn, og á eftir risu allir úr sætum og sungu: Son guðs ertu með sanni. Hvert sæti í samkomusalnum var skipað. Þessi kvöldstund þótti hin ánægjulegasta. Sjúkrahús Norður- lands eða fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri Um þriggja ára skeið hefur staðið yfir bygging fjórðunigs- sjúkrahúss á Akureyri. Er þetta geysi myndarleg bygging, og hef- ur þurft mikið fjármagn til s'in. Nú er komið að lokaþætti þess- arar byggingar, og hefur verið hafin allsherjar fjársöfnun um Norðurland, svo hægt verði að láta sjúkrahúsið taka til starfa á þessu ári. Safnast hefur allveruleg fjár- hæð í Eyjafjarðarsýslu og víðar. Siglfirzkar konur hafa fundið hvöt hjá sér til að hlynna að þessu nauðsynjamáli, og samþ. á fundi sínum, í Kvenfélaginu Von, að gefa eitt þúsund krónur til sjúkrahúsbyggingarinnar á Akur- eyri. Vilja ekki fleiri Siglfirðingar feta í fótspor kvenfélagsins og láta eitthvað af hendi rakna til styrktar þessari byggingu. Togaradeilan leyst í gærmorgun kl. 8 voru undir- skrifaðir nýir samnimgar milli út- gerðarmanna og sjómanna á tog- urunum. Samkv. þeim samningi fá hásetar 12 klst. hvíld á ísfiski, og v'ísitala reiknuð á kaup þeirra. Hlutum fjölgar úr 31 í 33. Undir þessa samninga var skrif að með þeim fyrirvara, að þeir yrðu samþykktir af hlutaðeigandi útgerðarmönnum og sjómönnum. Vonandi verður þetta samkomu- lag samninganefndanna sam- þykkt. Mundi það valda miklu fjárhagslegu tjóni, ef svo yrði ekki. Þá mundi allur togaraflot- inn verða bundinn við bryggjur, atvinnuleysi og örbyrgð halda innreið sína. Tilkynnt var í útvarpinu í gær, að stjórn Alþýðusambands ís- lands hefði lagt drög fyrir, að ís- lenzku togurunum yrði ekki seld- ur ís í Englandi. Sést á þessu, að á lífæðina hefur átt að skera, ef samningar ekki tækjust. Skiigga-Sveisin St. Framsókn hefur undanfarið verið að æfa og undirbúa til sýn- inga hið gamla og vinsæla leik- rit Matthíasar skálds Jochums- sonar, Skugga-Svein, og efndi til fyrstu leiksýningar s'íðastl. laug- ardagskvöld. Er leiknum yfirleitt vel tekið, enda mjög umræddur í bænum. Eðlilega eru skiptar skoðanir um hann, og eðlilega gerður saman- burður á, hvernig hann hafi verið leikinn hér áður og hvernig hann er leikinn nú. Ekki skal gert upp á milli þessara skoðana hér, og að sjálfsögðu má margt að þessum leik finna, enda væri annað mjög óeðlilegt, en hitt er víst, að nú á dögum eru gerðar meiri kröfur til leikflutnings en þá, og ber þar margt til, svo sem leikflutningur útvarpsins o.fl. Er því alls ekki óhyggilegt að ætla, að kröfur manna til leik- listarstarfsemi séu meiri en þá, en ekki af hinu, að þessi leikur sé á neinn hátt verri en verið hafi hér áður. Þeir sem séð hafa leikrit fyrir mörgum árum, geyma fegurstu endurminningarnar, sem leikurinn skyldi eftir hjá þeim, en hafa hinsvegar gleymt því, sem illa fór. Þetta vitum við öll, enda er þessi hæfileiki okkar mannanna, að geta gleymt því ljóta og leiðin- lega, einn sá dásamlegasti, er við ráðum yfir. Leikur þessi er fyllilega þess verður, að á hann sé fjölmennt, enda hefur aðsókn verið afbragðs- góð. 4. sýning leiksins verður í kvöld (föstudag),að öllu forfallalausu. ★ Vegna rúmleysis verður grein um leiklistarstarfsemi í bænum að bíða næsta blaðs.

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.