Siglfirðingur


Siglfirðingur - 25.07.1952, Side 4

Siglfirðingur - 25.07.1952, Side 4
Uff* Ú T S V Ö R I N Nýlega hefir verið gefinn út bæklingur, sem heitir Útsvarsskrá Siglufjarðarkaupstaðar 1952. — Hefir skrá þessi vakið mikið um- tal og er talandi tákn þess skatta- brjálæðis, sem nú ríkir hér á landi. 1 Vestmannaeyjum og á ísafirði fara AB-menn og, kommúnistar með völd og hafa hækkað útsvör- in um 40% á einu ári. Hér á Siglu firði hafa þessir sömu flo'kkar skipzt á um að fara með völdin á undanförnum árum og er það opin bert leyndarmál, sem menn ræða um sín á milli, að það sé ekki nema tímaspursmál, þangað til ríkið taki á sína arma allar f jár- reiður bæjarins. Blaðið Siglfirðingur hefir gagn- rýnt gjörðir niðurjöfnunarnefndar og; m.a. fundið að því, að eigi var birt álagningarskrá sú, sem farið var eftir við niðurjöfnun útsvara. Nú hefir verið bætt úr þessu með því að birta útsvarsstiga, þar með talinn veltuútsvarsstiga, aftan við útsvörin. Það er því eigi þar við látið sitja, að ríkissjóður leggist á almenning með hinum óvinsæla veltuskatti, heldur hefir Siglu- fjarðahkaupstaður neyðst til, vegna stórkostlegs tapsreksturs á undantekningarlaust öllum at- vinnutælcjum, sem bærinn rekur, að leggja drápusklyfjar á almenn ing í bænum með veltuskatti, sem ek'kert gefur eftir veltu skatti ríkissjóðs. Þessi skattur er tekin af fyrirtækjum og einstaklingum, hvort som hagnaður hefir verið á rekstrinum eða ekki og er hér því um hreint og, beint eignarán að ræða, sem vissulega á enga stoð í stjórnarskrá landsins. Hér er farið eftir þessari reglu: „Bær- inn má reka útgerð, verksmiðjur og annað með stórtapi, einstakl- ingarnir greiða“. Hverjum manni hlýtur að vera ljóst, að slík fjár- málastefna getur ek'ki endað nema á einn hátt, með algeru f jár- hagshruni. Síðasta tölublað ,,Mjölnis“ ræð- ir um það á víð og dreif, að nauð- synlegt sé að afla nýrra skipa til bæjarins, það þurfi að auka út- gerð o.s.frv. Þetta er alveg rétt, en fyrst verður að skapa skilyrði fyrir því, að atvinnurekendur og aðrir einstaklingar verði ekki fé- flettir í sköttum. Á þeirri braut hefir verið það langt gengið, að fyrst ber að snúa sér að því, að sá atvinnurekstur haldist hér áfram, sem fyrir er, e.m.ö.o. að hindra, að menn flýi bæinn með atvinnurekstur sinn. Að lokum mætti kannske beina þeirri spurningu til bæjarstjórnar, hvort rétt sé, sem haft er eftir ýmsurn. kunnugum mönnum, að tapsrekstur á bæjartogurunum hafi síðastliðið ár verið kr.1 2.800,000,00 — tvær milljónir og átta hundruð þúsund krónur. Spurull Jér moríSingjar" Sjónleikur í þrem þáttuin eftir Guðmimd Kamban. S.l. föstudag sýndi leikflokkur hins snjalla leikstjóra, Gunnars Hansen, sjónleikinn „Vér morð- ingjar“ eftir Guðmund Kamban. I leikskrá segir að efni leiksins sé „hjónabandsþr'íhyrningur" — maðui', kona og þriðji aðili. I reyndinni varð þó annar þrihyrn- ingur ríkjandi: Gott leikrit, góð leikstjórn og góður leikur. Efni þessa leiks hefur áður ver- ið skáldum yrkisefni, en enginn nema Guðmundur Kamban gat túlkað það á slikan hátt sem þennan. Það er skyggnst ofan í mannssálirnar, mannseðlið og þær hinar margháttuðu kringumstæð- ur sem oftsinnis ráða mannanna gjörðum. I raun réttri er kenning Kambans með leikriti þessu boó- skapurinn gamli :Dæmið ekki! — Hver er orsök harmsögunnar ? Liggur sökin hj áhinum dreng- lynda eiginmanni, hjá hmni spjátr ungslegu eiginkonu — eða eru það kringumstæðurnar, sem knýja fram hið sviplega atvik í lok leik- ritslns? Leikritið sjálft felur ekki í sér dóm um það. Sjómannaheimilið er einasta húsið, sem er nothæft til leiksýn- inga. Svo hefur verið um fjölda ára. Húsið er þó langt frá því að vera vel til leikhúss fallið. Fata- geymsla er þar engin. Sæti eru fádæma slæm og þrengsli mikil. Ef eigendur þessa hús skyldu á öllum þeim árum, sem bæjarbúar hafa sótt það, tekist að aura saman sæmilegum varasjóði, væri það þakkarvert ef einhverju af þeim sjóði yrði varið til að auka á þægindi hússins og sýna leik- húsgestum tillitssemi. Hafi leikflokkur G. Hansen þökk fyrir komuna. Leikhúsgestur 40 ára afmæli átti Lárus Blöndal kaupmaður hér í ibæ þ. 16. júlí síðastl. Allir koma í Aðalbúðina, en þeirri verzlun hefur Lárus veitt forstöðu í mörg undanfarin ár af miklum dugnaði. Allir Siglfirðingar þekkja Lár- us Blöndal og að góðu einu. Marg- ar hugheilar afmælisóskir hafa til hans borizt þennan dag, og fleiri myndu hafa viljað flytja honum árnaðaróskir. Siglfirðingur þakkar einbeitta og örugga starfsemi í hugsjóna- málum Sjálfstæðisflokksins á und- anförnum árum, óskar honum til hamingju með fertugsafmælið, alls velfarnaðar á komandi árum og langra og gæfuríkra lifdaga. Síldarfregnir Nú í dag mun vera búið að salta um 24 þús. tunnur síldar hér norðanlands . Þar af um 14300 tn. á Siglu- firði. Hitt á Dalvík, Ólafsfirði, Hrísey, Húsavík og Raufarhöfn. Veiði skipanna er ákaflega mis- jöfn. Flest skipin hafa ekki orð- ið síldar vör. Nokkur skip hafa fengið 500 tn. og allt að 1600 tn. Ekki á að ganga af Grímsey Mjölnir lætur i síðasta tbl. Bandaríkin hernema Grímsey í annað sinn á þessu ári. Kom þar ein ferleg þyrilfluga, vel vopnum búin, í hverri voru erlendir menn og einn íslenzkur að sögn blaðs- ins. Hins getur garmur eigi, að sú hin sama þyrilfluga settist einnig hér á íþróttavöllinn og þótti sl'ikt engin bending um væntanlegar herstöðvar á þeim velli. Sigfús Halldórsson ætti að forðast að fara með „Litlu flug- una“ til Grímseyjar! „NEISTI" OG FORSETA- KJÖRIÐ Framhald af 1. síðu vinning að koma sínum flokks- manni, sem þeir hafa endrum og eins litið upp til, upp í forseta- sætið. Þetta er mjög eðlilegt. Það Hefði hver flokkur gert, ef mað- urinn hefði þótt þess verður. En því ekki að meðganga það strax. Það verður að taka Alþýðuflokk- inn eins og hann er, feiminn og óframfærinn. Með þessu er það sannað, að Alþýðuflökkurinn var þama í pólitískri baráttu, að hann fékk skipun um að hefja starf- semi og standa saman um Ásgeir, að hann hlýddi skilyrðislaust, og varð að hlýða og gera það sem Reykjavíkurklíka Alþýðuflokks- ins lagði fyrir. III. Aftur á móti sannaðist það þegar í fyrstu, að þeir tveir stjórn málaflokkar, sem létu sig forseta- kjörið skipta, voru skiptir og gengu með frjálsum skoðunum að kjörborðinu, og segja má einnig það sama um þá kommúnista, sem áhuga höfðu á vali forsetaefnis. Þetta voru samtök frjálsra manna með algjörlega frjálsa skoðun á vali manns í forsetaembættið. Það er ekki undarlegt, þótt Al- þýðuflokksmönnum blæddi í aug- um að sjá og heyra þessa frjálsu menn, en þurfa sjálfir að vera á básnum sínum klafabundnir. Þeim láir það enginn. En til þess að dylja þetta á- stand, skera þeir herör um land allt, að fylgjendur séra Bjarna geri forsetakosninguna pólitíska, en þeir séu alveg saklausir. Þei rgera óp að ávarpi, sem sent var út til almennirigs á Siglu firði um að kjósa séra Bjarna, undirskrifað af mönnum ólíkra stjórnmálaskoðana ,sem bundizt höfðu frjálsum samtökum um að styðja þetta forsetaefni. Ávarpið var sent að hætti frjálsra manna, með fullum drengskap gagnvart hinum, f orsetaefnunum. Hvaða hátt höfðu Alþýðuflokks menn á 1 sínum störfum? Þeir vita það náttúrlega bezt sjálfir, en þeir kunna ekki við, sem ó- frjálsum mönnum er títt, að koma fram með fullum drengskap gagn- vart mótstöðumönnunum og því höfðu þeir þann háttinn á, eins og vant er, að þeir læddust og lámuðust meðal fólksins og brugðu fyrir sig ýmsu um sinn andstæðing, sem enginn vill hafa eftir. - * iiuJ BSaíÍ '1‘' * f- ' ' ‘^3 ,-kH i . _j IV. Forsetakjörinu er lokið og skilja þá „frjáls samtök“ um for- setakjörið. Engum breytingum taka stjórnmálaflokkarnir við það þótt flokksmenn hafi haft skipt- ar skoðanir í forsetavalinu. Ann- að hefur engum 1 hug dottið. For- setakjörið stóð utan við allar stjórnmálaskoðanir hjá stuðnings- mönnum séra Bjarna, og því geta þeir mætzt til áframhaldandi sam- starfs hver 1 sínum flokk sem frjálsir menn. Það verður ekki annað sagt, en að framkoma stuðningsmanna séra Bjarna hafi verið í alla staði heiðarleg og drengileg, og þarf tíkki að hafa neinar sérstakar kappræður um það. En Alþýðu- flokksmönnum finnst víst þeir liafi eitthvað á samvizkunni, sem þörf er að breiða yfir. Og þeir um það.

x

Siglfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.