Siglfirðingur - 08.04.1953, Qupperneq 3
SIGLFIRÐING U R
3
AOGLYSING nr. 1/1953
frá Innflutnings- og gjaldeyrisdeifd
Fjárhagsráðs
Samkvæmt heimild í 3. gr. reglugerðar frá 23. september 1947
um vöruskömmtun, takmörkun á sölu, dreifingu og afhendingu vara,
hefur verið ákveðið að úthluta skuli nýjum skömmtunarseðlum, er
gildi frá 1. apríl 1953. Nefnist hann „AiNlNAlR SKÖMMTUNAR-
SEiÐILL 1953“, prentaður á hvítan pappír með svörtum og grænum
lit. Gildir hann samkvæmt því sem hér segir:
REITIRNIR: Smjörlíki 6—10 (báðir meðtaldir) gildi fyrir 500 grömm-
um af smjörliki, hver reitur. Reitir þessir gilda til og
með 30. júní 1953.
REITIRNIR: SMJ;ÖR gildi hvor um sig fyrir 500 grömmum af
smjöri (einnig bögglasmjöri). Reitir þessir gilda til og
með 30. júní 1953.
Eins og áður hefur verið auglýst, er verðið á bögglasmjöri greitt
niður jafnt og mjólkur- og rjómabússmjör.
„ANNAR SKÖMMTUNARSBÐILL“ afhendist aðeins gegn því,
að úthlutunarstjórum sé samtímis skilað stofni af „FYRSTA
SKÖMMTUNARSEiÐLI 1953“, með árituðu nafni og heimilisfangi,
svo og fæðingadegi og ári, eins og form hans segir til um.
Reykjavík, 31. marz 1953.
INNFLUTNINGS- OG GJALDEYRISDEILD
FJÁRHAGSRÁDS
Lítil íbúð
óskast til leigu.
A. SCHIÖTH
Frímerki — Frímerkil
Kaupi háu verði öll íslenzk frí-
merki; einnig liinna Norðurland-
anna og einnig þýzk.
Sendið merkin — greiðsla um hæl
eða sendið lista — tilboð um hæl.
SIGURDUR Þ. ÞORLÁKSSON
S. R. Raufarhöfn
N.-Þing.
Ljótar fréttir
Svo sem kunnugt er skýrðu
blöð og útvarp í Moskva frá því
fyrir nokkrum vikum, að komist
hefði upp um samsæri 9 rúss-
neskra lækna, sem hefðu ætlað að
ráða ýmsa helztu leiðtoga Rússa
af dögnm. Sagt var að sá, sem
ljóstrað hefði samsæri þessu upp
væri rússneskur kvenlæknir, en
flestir sökudólganna væru mikils-
metnir læknar af gyðingaættum,
og hefðu þeir verið handteknir og
varpað í dýflissu. Ennfremur var
sagt, að kvenlæknir þessi hefði
verið sæmdur Leníinorðunni, sem
mun vera eitt æðsta og virðuleg-
asta tignarmerki í Rússlandi. —
Fregn þessi barst nokkru fyrir
andlát Stal'ins sáluga og vakti
mikla eftirtekt um allan heim.
Fyrir nokkrum dögum birtist
svo önnur fregn í „Pravda“ og
Moskvaútvarpinu um sama efni,
entalsverit frábrugðin, og sú vakti
eigi minni undrun. Þar var sagt,
að gyðingalæknarnir 15 (nú höfðu
bæzt 6 í hópinn), sem hefðu ætlað
að stúta leiðtogum Rússa, væru
saklausir og að hinn kvenlegi
stéttarbróðir þeirra hefði verið
sviftur Leníinorðunni. I fregn þess
ari er ennfremur deilt harðlega á
rússneska öryggismálaráðherrann,
Rjumin að nafni, fyrir að vernda
eigi saklausa borgara fyrir röng-
um aðdróttunum og rannsóknar-
lögireglan vítt fyrir að kvelja og
pína mexm til að játa á sig upp-
lognar sakir.
Þetta eru Ijótar fréttir og
hefðu kommúnistar eflaust lýst
þær vera brezkan eða banda'rísk-
an áróður og lygar, ef þær hefðu
eigi verið birtar í Moskvuútvarp-
inu.
Á undanförnum ájrum hefur
rússneska útvarpið stundum skýrt
frá því, að memi hafi verið sak-
felddir og teknir af lífi fyrir
föðurlandssvik. Og flóttamenn frá
Rússlandi telja, að fólk af ýmsum
stéttum, allt frá ráðherrum og
biskupum og niður í óbreytta
verkamenn, hafi verið skotnir og
hengdir í þúsunda og tugþúsunda-
tali fyrir litlar eða engar sakir.
Svo það er eigi ný bóla. Hitt er
spánýtt, að rússnesk blöð og út-
varp skýri frá því, að yfirvöldin
þar í landi hafi sakfellt nokkura
menn að ósekju. Yfirleitt hafa
Tiíkynning um betagreiðsíur aimanna-
trygginganna árið 1353.
Yfirstandandi bótatímabil almannatrygginganna hófst 1.
janúar s.l. og stendur yfir til ársloka.
Lífeyrisupphæðir þær, sem greiddar eru á fyrra helmingi
ársins 1953 eru ákveðnar til bráðabirgða með hliðsjón af bót-
um síðasta árs og upplýsingum bótaþega. Sé um tekjuri að ræða,
sem áhrif geta haft til skerðingar á lífeyri, verður skerðingin
miðuð við tekjur ársins 1952 og endanlegur úrskurður um upphæð
lífeyrisins 1953 felldur, þegar framtöl til skatts liggja fyrir.
Þeiri, sem nú njóta lögboðins ellilífeyris, örorkulífeyris, barna-
lífeyris eða fjölskyldubóta, þurfa ekki, að þessu sinni, að sækja
um framlengingu þessara bóti. Hins vegar ber öllum þeim, sem
nú njóta bóta samkvæmt heimildarákvæðum almannatrygginga-
laganna, að sækja á ný um fcætur þessar, vilji þeir áfram njóta
þeirra.
Hér er um að ræða öro.1 kustyrki, ekkjulífeyrd, makabætur,
bætur til ekkla vegna barna, svo og lífeyrishækkanir.
Umsóknir um endurnýjun bóta þessara, skulu ritaðar á við-
eigandi eyðublöð Tryggingastofnunarinnar, útfyllt rétt og greini-
lega eftir/ því, sem eyðublöðin segja fyrir um, og afhent umboðs-
manni ekki síðar en fyrir 15. maí næstkomandi.
Áríðandi er að örorkustyrksþegar, sem misst hafa 50—75%
starfsorku, sæki á tilsettum t.ma, þar sem ella er með öllu óvíst
að hægt sé að taka umsóknirnar til greina, vegna þess, að f jár-
hæð sú, er verja má í þessu skyni, er takmörkuð.
Fæðingarvottorð og önnur tilskilin vottorð skulu f.ylgja um-
sóknum, hafi þau eigi verið lögð fram áður. Þeir umsækjendu^
sem gjaldskyldir eru til tryggingasjóðs, skulu sanna með trygg-
ingaskírteni sínu eða á annan hátt, að þeir hafi greitt iðgjöld sin
skilvíslega. Vanskil varða skenðingu eða missi bótaréttar.
Umsóknir um aðrar tegundir bóta, svo sem fæðingarstyrki,
sjúkradagpeninga og ekknabætur, svo og allar nýjar umsóknir
um lífeyri, fjölskyldubætur eða mæðralaun verða afgreiddar af
umboðsmönnum á venjulegan hátt, enda hafi umsækjandi sklivís-
lega greitt iðgjöld sín til tryggingasjóðs.
Norðurlandaþegnart, sem hér hafa búsetu eru minntir á, að
skv. milliríkjasamningum hafa danskir, íinnskir, sænskir og
norskir ríkisborgarar ellilifeyrisrétt með tilheyrandi barnalíf-
eyrisrétti, hafi þeir haft hér samfellda 5 ária búsetu þegar bót-
anna er leitað. Þá hafa finnskir, sænskir og norskir ríkisborgarar
fjölskyldubótarétt fyrir börn s'in, séu þeir ásamt börnunum
skráðir á manntal hér, enda liafi þeir ásamt börnunum haft hér
6 mánaða samfellda búsetu áður en bótarétturinn kemur til
greina. Fjölskyldubótaréttur þessi tekur ekki til danskra ríkis-
borgara.
Islenzkir ríkisborgarar, eiga gagnkvæman rétt til ellilífeyris
og f jölskyldubóta í hinum Noinðurlöndunum.
Athygli er vakin á, að bætur úrskurðast frá 1. degi þess
mánaðar, sem umsókn berst umboðsmanni, enda hafi réttur til
bótanna þá verið fyrir hendi. Þeir, sem telja sig eiga bótarétt,
dragi ekki að senda umsóknir sínar, þar sem bótaréttur getur
fymst að öðrum kosti.
Reykjavík, 25. marz 1953.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
kommúnistar talið rússnesk yfir-
völd óskeikul eins og páfann og
réttlát eins og Guð almáttugan.
Hér er því eitthvað nýtt á ferð-
inni. Sumir halda, að Stalin sálugi
hafi verið farinn að ganga full
langt í grimmd og mannfórnum,
svo hinir nýju einræðisherrar telji
hyggilegt að slaka ofurlítið á
klónni, áður en rússneska þjóðar
skútan sigli sig í kaf i blóðugri
borgarastyrjöld. Aðrir telja, að
hér geti veirið um blekkingar
(,,bluff“) að ræða, til þess að
villa mönnum sýn. En flestir vilja
engu um þetta spá og telja rétt-
ast að láta tímann leiða sann-
leikann í Ijós.
Gaman væri þó að heyra, hvað
„Mjölnir“ segir um þeetta nýja
rússneska fyrirbrigði; hann er
en okkar sérfræðingur í rússnesk-
um máluní og ætti því að geta
skýrt það fyrir okkur Siglfirð-
ingum. j
4