Siglfirðingur


Siglfirðingur - 06.12.1956, Page 1

Siglfirðingur - 06.12.1956, Page 1
24. tölublað. Fimmtudaginn 6. des. 1956. 29. árg. Draumurinn um stólinn Öllu gamni fylgir nokkur alvara. Og hin alvarlegu mál hafa sinar skoplegu hliðar. Þjóðmál eru mál málanna, sem taka ber föstum tökum og af fullri ábyrgð, en PALMI HANNESSON hvergi hafa jafn margir menn orðið hlátursefni og á sviði þjóð- málanna. Ráðherrastóll er í sjálfu sér eins og stólar gerast, en sumum þykir sérlega notalegt, já, blátt áfrám mikilfenglegt, að tylla á iþá þreyttum enda sínum. Þessi til- hneiging hefur hvergi náð hærra marki né hlálegri mjmd en hjá háttvirtum núverandi forsætisráð- REKTOR - MINNINGARORÐ Sú fregn barzt út um byggðir landsins að kvöldi fimmtudagsins 22. nóv. s.l., að Pálmi Hannesson, rektor Menntaskólans í Reykja- vík hafði andazt snögglega við starf sitt í skólanum þann sama dag. Ég tel mér bæði rétt og skylt að minnast með nokkrum orðum þessa röggsama og merka skóla- manns, góðs og heilsteypts manns, og góðs vinar míns, — nú, er hann er allúr. Pálmi Hannesson var fæddur 3. janúar 1898 að Skíðastöðum í Lýtingsstaðahreppi, Skagafjarðar- sýslu. Hann lagði ungur út á menntabrautina og varð stúdent 1918. Sigldi hann síðan til Dan- merkur og stundaði þar fram- haldsnám í náttúrufræðum. Lauk hann prófi í þeim fræðum 1926. Hann gerðist kennari við Mennta- skólann á Akureyri að námi loknu og gengdi því starfi þar til hann haustið 1929 varð rektor Menntaskólans í Reykjavík, og tók hanh við því ábyrgðarmikla og virðulega starfi af Geir Zoega rektor. Þeir menn, sem nú eru tæplega á miðjum aldri og eldri munu glöggt muna, að margt sögulegt gerðist í sambandi við skipun Pálma Hannessonar í þetta starf. Margir töldu annan eða aðra hæfari til þess að gegna iþví, og hafa frekar en hann unnið til þess að hreppa það. Svo hátt risu öldurnar um þær mundir, sem hann tók við starfinu, að nem- endur skólans, sem hann var ný- tekinn við stjórn á, gerðu flestir eða allir verkfall til að mótmæla skólastjórn hans, gerðu að honum hróp og sýndu honum margvís- lega andúð. Ég, sem þessar línur rita, hóf nám í Menntaskólanum í Reykjavík haustið 1932. Hefi ég fulla ástæðu til að ætla, að þá hafi enn eymt eftir af því hjá nokkrum nemendum í efri bekkj- um skólans, að þeir væru ekki búnir að gleyma þessum atburð- um; þeir væru geymdir en ekki gleymdir. Þó held ég, að kali hinna eldri nemenda í garð Pálma rektors hafi þá farið ört minnk- andi. Þótt ég væri barn að aldri, er Pálmi rektor tók við starfi sínu sem rektor, hæfi ekki nám í Menntaskólanum fyrr en nokkr- um árum síðar og skoðaði atburð- ina, sem gerðust við komu hans að skólanum, úr fjarlægð, hafði ég samt á þeim árum mótað mér skoðun á þeim; ég var einn meðal þeirra, sem töldu Pálma ekki hafa átt með réttu að hreppa þessa veglegu stöðu, heldur annan heið- ursmann, sem nú er löngu látinn. Með þessum hug hóf ég nám í skólanum, sem Pálmi heitinn veitti forstöðu. Ég kynntist honum ekki að neinu ráði fyrstu ár mín í skól- anum, en þó nægilega mikið til þess, þó ekki væri nema sem æðsta yfirboðara okkar nemend- anna, til að mynda mér þá skoð- un, að þar sem hann var, væri maður, sem hefði býsna marga kosti til að bera, bæði sem kenn- ari, forstöðumaður næst-virðu- legustu menntastofnunar þjóðar- innar og ekki síður sem maður. Það fór því svo, að brátt snérist sú andúð, sem kennt hafði hjá mér í hans garð, er ég kom í Menntaskólann — andúð, síðar við nánari kynni mín af honum í virðingu fyrir hinum hispurslausa og stjórnsama manni — og loks í vináttu, er hann hafði unnið hug minn allan. Um Pálma heifinn stóðu oft allmiklir stormar og styr. Hann sagði jafnan meiningu sína alla og dró þar ekkert undan, hver sem í hlut átti; hann var skap- maður af norrænu víkingakyni bæði til sálar og líkama, sem skipaði sér jafnan í bardagann, þar sem hann var harðastur. — Stundum hélt hann yfir okkur nemendum sínum snjallar og þrumandi ræður, þegar honum fannst þess við þurfa, og þegar þess var raunverulega full þörf að mínum dómi. Stundum sveið okkur undan orðum hans og gerðum í bili, en flestir hygg ég að séð hafi það og fundið eftir á, þegar vopnin höfðu verið lögð niður, að það, sem stjórnaði orðum hans og at- höfnum í garð okkar nemenda hans, var sterkur vilji og einlæg viðleitni til að gera okkur að nýt- um og heiðarlegum mönnum; orð hans voru heilræði og stundum fortölur reynds ábyrgs manns, sem þjóðfélagið hafði trúað fyrir uppeldi á stórum hópi ungmenna, sem ailar líkur bentu til að eftir ættu að skipa hinar ábyrgðar- mestu stöður þess. Þetta held ég, að flestum eða öllum nemendum Pálma Hannessonar hafi skilizt fyrr eða síðar og af þeim sökum var það, að handtakið var hlýtt og þakklætisorðin mæit af heilum hug, þegar kvaðzt var að náms- tíma loknum — við stúdentspróf. I ferðalögum, og er tekið var upp léttara hjal, var Pálmi rektor hinn bezti. félagi og hrókur alls fagnaðar. Veit ég, að margir ungir og eldri nemendur hans eiga hinar beztu minningar um ihann frá slíkum stundum. Hann hélt vináttu sinni og tryggð við nem- endur sína, eftir að leiðir skildust; gladdist yfir frama og velgengni þeirra, en harmaði ófarir þeirra, sem óheppnir reyndust. Persónu- (Framhald á 3. síðu) herra, þingmanni af Ströndum norður, Hermanni Jónassyni. — Og þó — öllum mestum er hætt, einnig Hermanns Jónassonar! Fyrir nokkrum árum var ráð- herra í stjórn á Islandi, sem ekki er í frásögur færandi. — Þegar flokksbræður hans rufu stjórnar- samstarfið, vegna þess, að íslend- ingar tóku afstöðu með vestræn- um þjóðum, varð hann súr á svip, ekki vegna þess, að hann væri málefnalega ósammála flokks- bræðrum sínurn, lieldur vegna þess, að honum fannst svo dæma- laust gott að sitja í stólnum sín- um, ráðherrastólnum. Upp úr þessu spannst heiftúðug — já, fast að því barnaleg óvin- átta miHi þessa ráðherra, sem fannst svo gott að sitja, og flokksbræðra hans. Og þessi ráð- herra gleymdi aldrei þessum miska foringja sinna, ekki einu (Framhald á 2. síðu) --------------------------------------------------. J^aedja til *Sipl<(iLtdLn#a KÆRU SIGLFIRÐINGAR ! Innilega þakka ég gkkur fyrir góöar kveðjur og árnaðaróskir til mín og fjölskyldu minnar á fimm- tugsafmœli mínu, þann 5. nóv. s.l. Og alveg sérstak- lega vil ég þakka kveðjur skipverjanna á togurunum HAFLIÐA og ELLIÐA og öðrum siglfirzkum sjó- mönnum, sem ég vona að sjái þessar línur. Vinarhugur ykkar yljaði mér um hjartarœturnar þennan dag. Eg vissi, að ég átti marga góða vini í Siglufirði, en að svo margir hugsuðu hlýtt til mín, það finnst mér ég ekki hafa verðskuldað. En allt þetta varð til þess að rifja upp fyrir mér margar ánœgjustundir á heimilum ykkar og ógleym- anlegar minningar frá starfsárum núnum í Siglu- firði. Ég met mikils vináttu ykkar og hlýjan hug og ég veit, að hann hefur fylgt okkur hingað suður. Fyrir allt þetta þakka ég ykkur af hrœrðu hjarta. Einnig fyrir ánœgjulegar samverustundir frá s.l. sumri. Guð blessi öll siglfirzk heimili og framtíð Siglu- fjarðar á ókomnum árum. Með kœrri kveðju frá fjölskyldu minni. ÓSKAR J. ÞORLÁKSSON

x

Siglfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.