Siglfirðingur - 25.03.1960, Síða 1
3. töhiblað. Föstudagurinn 25. marz 1960
33. árgangur.
Skeiðsfossvirkjunin
Síðan Skeiðsfossvirkjunin tók
til starfa hefur, á hverjum vetri,
ef frost og þurrviðri hafa gengið
lengri tíma, orðið lítið um vatn í
uppistöðunni.
Hefur komið fyrir, að Skeiðs-
Hvert stefnir Framsóknarflokkurinn ?
Ljær kommúnistum lið alis staðar þar sem
hann megnar
I.
Afstaða Framsóknarflokksins
til þjóðmálanna undanfarnar vik-
ur er mörgum manninum undr-
unarefni, sem ljáð hefur honum
ilið sitt til áhrifa og va'lda. Flokk-
ur þessi hefur talið sig miðfloklk
til þess stofnaðan að bera klæði
á vopn öfgaafla til hægri og
vinstri og sérlegan málsvara
bændastéttarinnar. I reynd er
flokkurinn nú langt til vinstri við
Alþýðuflokkinn og bandamaður
kommúnista alls staðar þar, sem
þeir megna að leggja þeim öfga-
flokki Uð.
Þessa dagana mótast starfsami
flokksins af því
^ að styðja kommúnista til
valda í verkalýðshreyfingunni og
STRÁKAVEGUR
Skv. þeim upplýsingum, sem
blaðið hefur aflað sér, mun á-
ætlað til SIGLUFJAKBAK-
VEGAR, sem hér segir, á
þessu ári:
Áfjárlögum .... kr. 500,000,00
Af benzínfé .... — 200,000,00
Samtals kr. 700,000,00
Það mun vera á valdi Vega-
málastjóra hvar í veginn fé
j>essu er varið, en þar sem
vegurinn út í Haganesvík er
fullgerður að öðru en ofaní-
burði, má gera ráð fyrir að
verulegur hluti af fé þessu
fari í vegarlagningu út að fyr-
irhuguðum jarðgöngum að
vestanverðu.
Þá mun 4 milljónum af
vegafé óráðstafað og líliur til
að 2—300 þúsund af því fé
fáist í Siglufjarðarveg, þann- ■
ig að 900 þús. til 1 milljón kr.
fáist til vegarins á árinu.
Ríkisstjórnin mun hafa til
athugunar útvegun á lánsfé
til jarðgangnanna sjálfra svo
hefja megi vinnu við þau,
verði til á svipuðum tíma og
vegur að þeim að austan og
vestan. Áætlað er að göngin
megi gera á einu ári, ef stöð-
ugt er að unnið.
í þeirri viðleitni að fyrirbyggja
jafnvægi efnahagsmála og vinna
gegn ráðstöfunum til að skapa
sjávarútveginum skilyrði til að
standa á eigin fótum.
® að koma í veg fyrir, ef unnt
væri, að samningar tækjust milli
bænda. og neytenda um búvöru-
verð, hvað þó mistókst vegna á-
byrgrar afstöðu stéttarsamtak-
anna.
n.
Það liggur ljóst fyrir og er
staðfest af ráðherra úr V.-stjórn-
inni, að Framsóknarflokkurinn
lagði þar til hliðstæðar ráðstaf-
anir í efnahagsmálum og núv.
ríkisstjórn hefur farið: • gengis-
lækkun og jöfnuð í viðskiptum út
á við, þótt þá væri hvergi minnst
á hliðarráðstafanir til að tryggja
lífskjör launafólks og gamal-
menna. — Nú snýr Framsókn
blaðinu við og fordæmir með öllu
það, sem lofsungið var áður. —
Einn er þó sá miðstjómarmaður
Framsóknarflokksins, Vilhjálmur
Þór, sem þorir að taka málefna-
lega afstöðu, fylgja fyrri stefnu
flokksins, og hefur sagt Hermanni
og Eysteini vel til syndanna.
Komst hann m.a. svo til orða í
útvarpsávarpi:
„Ég ætla ekki að ræða hér
þessa iagasetningu í heild, en
vil aðeins taka bað fram, að
það er skoðun mín nú eins og
var áður, að gengisbreyting
hafi verið óhjákvæmiieg. Nauð-
synleg til þess að skapa jafn-
vægi milli verðlags hér á landi
og verðlags í löndum, sem við
aðallega skiptum við, jafnvægi,
sem, við höfum saknað svo
mjög fyrirfarandi. En þetta
misræmi í verðlagi hefir valdið
mestu af þeim erfiðleikum, sem
Islendingar hafa átt við að
stríða í efnahagsmálum fyrir-
farandi mörg ár.
Með gengisbreytingunni ætti
að skapast aukið öryggi fyrir
framleiðslu landsmanna, afurðir
sjávarútvegsins og afurðir
landbúnaðarins, sem til út-
landa þurfa að seljast, hækka
t verði. Áðstaða iðnaðarins í
landinu ætti að verða stórum
betri, þar sem erlendur iðnað-
arvarningur stígur, en aðeins
innflutt hráefni til íslenzks iðn-
aðar, og ættu því að skapast
mikið bætt framleiðsluskilyrði
fyrir íslenzkan iðnað“.
III.
í þessum orðum — og öðrum
— svarar Framsóknarmaður for-
ystuflokksins, segir henni til
syndanna, og gefur hreinlega í
skyn, að framsóknarbroddarnir
hafi nú gengið á mála hjá komm-
únistum. Hve margir kjósenda
Framsóknar fylgja þeim í þær
herbúðir ?
Hafnar-
framkvæmdir
Samkv. þeim upplýsing-
um, sem blaðið hefur afl-
að sér mim fást af opin-
beru fé kr. 100 þús. á
þessu ári til viðgerðar á
flóðvamargarðinum og kr.
400 þús. til hafnarfram-
kvæmda. Þá hefur bæjar-
stjórn á fundi 8. þ.m. sam-
þykkt að taka að láni hjá
Atvinnuleysistr.sjóði eina
og hálfa milljón til hafnar-
framkvæmda í Siglufirði á
yfirstandandi ári. Á fjár-
hagsáætlun hafnarsjóðs er
svo um 1 millj. kr. áætl-
aðar til viðhalds hafnar-
mannvirkja og hafnar-
framkvæmda.
Nýr úfsvarsstigj
Til stendur að samræma með
lögum útsvarsstiga sveitarfélaga.
Sennilega verða lögfestir þrír
stigar: einn fyrir Reykjavík, ann-
ar fyrir kaupstaðina og sá þriðji
fyrir sveitir. Sennilegt er og, að
siglfirzkir útsv.gjaldendur fagni
breytingu þessari — ef marka má
Mjölni, sem segir útsvarsstiga
Siglfirðinga ferlegri ávöxt en á
öðrum stöðum á byggðu bóli, svo
slík sé engin dæmi, jafnvel ekki í
sjálfum Sovétríkjunum ( !! ).
® Munið minningarspjöld Elli-
heimilssjóðs Kvenfél. Vonar. —
Fást í Bókaverzlun Hannesar
Jónassonar.
fossvirkjunin hefur ekki getað
framleitt nægilegt rafmagn til
bæjarins, og hafa þá S. R. hlaup-
ið undir bagga og framleitt til við
bótar, svo ekki hefur orðið til-
finnanlegur skortur á raforku.
I fyrstu var við því búist, að
það vatnsmagn, sem virkjunin
hafði yfir að ráða, yrði ekki
tryggt sérstaklega yfir veturinn.
Voru hér fyrr á árum ýmsar
uppástungur um að afla meira
vatns í uppistöðuna.
Meðal annars kom fram uppá-
stunga um að byggja geyma fram
hjá Þrasastöðum eða fram á
Tungudal og safna vatni í þá yfir
sumarið. Átti svo þetta geyma-
vatn að notast þegar færi að
minnka í „dammnum“
Líklega hefur þetta ekki þótt
ákjósanleg lausn í þessu vanda-
máli, eða stofnkostnaður þótt
mikillí því ekki hefur enn bólað á
framkvæmdum.
Það mun hafa verið á árunum
1954 eða ’55, sem minnst var á
það í rafveitunefnd Siglufjarðar,
hvort ekki væri leið til að taka
Skeiðsána eða Skeiðsdalsána og
beina henni í uppistöðuna. Tók
rafveitustjóri vel í þetta. Mun
hann, ef ég man rétt, hafa látið
mæla vegalengd og hvaða leið
yrði farin til að ná ánni.
Kunnugir menn í þessari sveit,
segja, að Skeiðsdalsá sé með
jöfnu vatnsmagni allt árið.
Það hlýtur að verða góð viðbót
að fá þá á í damminn og myndi
máske verða til þess að svipað
vatnsmagn héldist yfir veturinn.
Þetta upphrip hér er aðeins
gert í þeim tilgangi að vekja raf-
veitustjóra og rafveitunefnd til
frekari athugunar um þetta
vandamál, án þess að nokkuð
verði staðhæft um, hvaða leið
yrði bezt í þessu efni.
En 'takmarkið verður að vera
það, að ná með einhverju móti
því vatnsmagni, sem virkjunin
þarfnast yfir vetrartímann.
Samið um skuid
Á fyrri kjörtímabilum höfðu
safnast saman miklar vanskila-
skuldir hjá bæjarsjóði við Trygg-
ingarstofnun ríkisins. Þessi
skuldasöfnun við Tryggingar-
stofnunina hefur verið eina ó-
reiðuskuldin fyrri tíma, sem ekki
hefur verið samið um á þessu
kjörtímabili. Samningar hafa
staðið yfir milli kaupstaðarins og
Tryggingarstofnunarinnar undan-
farið um þetta efni. Á fundi bæj-
arstjórnar 8. þ. m. var samþykkt
heimild til bæjarstjóra, sem þá
var staddur í Reykjavík í erind-
um bæjarins, að semja á þá lund
um skuld þessa, að henni verði
breytt í 10 ára lán.