Siglfirðingur


Siglfirðingur - 12.02.1965, Qupperneq 1

Siglfirðingur - 12.02.1965, Qupperneq 1
1965. „011 byggíarlög eiga sín erfiðleikatímabil” Nú fyrst rofar fyrir batnandi tímum Viðtal við Einar Ingimundarson, alþ.m. ÓIRFIIR THORS LÁTINN Ólafiur Thors er látinn. — Allir menn eru að vísu dauð- iegir, en fáum mönnum hefi ég kynnzt, sem voru meira lifandi en ihann, og 'aJlt, sem minnti á deyfð og dauða, var svo órafjarri í návist -hans. Allt, sem hann lagði hönd að, virtist klæðast djörfu fjöri og ólgandi lífi, og hvar sem hann lét til sín taka, var sem dulinn ikraftur leystist úr læðingi. — Bjart- sýni ihans, kjarkur og trú hans á sigur hins góða,- var óbugandi meðan kraftar hans entust. En þrátt fyrir hispursleysi hans, djörfung og baráttuhug, voru áreið- anlega fáir núlifandi Islend- ingar honum slyngari við samningagerðir og mála- miðlamr, þegar miikið var í húfi fyrir land hans, þjóð, og þann stjórnmálaflokik, sem hann var um langan tíma örlagaríkur foringi fyrir. öllu þessu ollu fjöl- margir eiginleiikar hans, samslungnir og sameinaðir á svo meistaralegan hátt, að persónan sjálf, svo hrífandi sem hún var, varð eðlileg og misfellalaus hvar og hvenær sem var. Enginn, sem kynni hafði af Ólafi Thors, hefði getað hugsað sér hann öðru- vísi en hann var. Hann var til síðustu stundar heill og sannur. Svo margir hafa nú, fná andláti Ólafs Thors, lýst lífi hans og starfi og þeim Grettistökum, sem hann lyfti á örlagatímum, í þágu lands og þjóðar, að ég mun ekki reyna að bælta þar neinu við. En ég get ekki látið hjá líða, er ég minnist iþessa vin- ar míns og flökksleiðtoga um langt skeið með nokikr- um orðum, að lýsa því í fari lians, sem ég dáði mest og þótti vænzt um. — Mér er það að vísu ljóst, að það voru glæsimennska hans, persónutöfrar, yfirburðaskýr hugsun, f jör og þróttur, sem fyrst og fremst leiddu hann til öndvegis í islenzkum stjórnmálum, og hefðu þess- ir eiginleikar hans sennilega enzt til þess, þótt hann hefði verið borinn og uppvaxinn í margfalt fjölmennara þjóð- félagi. En hefðu þessir eig- inléikar notið sín til fulls, ef ekki hefði komið til hinn innsti og gullni kjarni hverr- ar góðrar mannssálar, dreng lyndi, göfugmennska, í sam- skiptum við aðra menn, og sá hlýleiki í viðmóti, sem nálgast gat viðkvæmni? Ég held varla. — Víst var Ó1 afur Thors einn vigfimaslti og harðskeyttasti baráttu- maður íslenzkrar stjórnmála sögu um rnargra áratuga slceið, en eiturvopnaburður var honum fjarri skapi, og persónulega er mér kunnugt um, að mörgum orrahríðum, sem ihann átti í við andstæð- inga sína, lauk með hlýju handtaki hans, hýru brosi og gamanyrðum. Þráfaldlega leitaði ég fundar hans með vandkvæði mín og fyrirgreiðslubeiðnir vegna þess ibyggðarlags, sem ég var umiboðsmaður fyrir á Aiþingi, og jafnoflt gekk ég af fundi hans glaður i bragði, þakklábur og iheillað- ur af foringja mínum og á- trúnaðargoði. Aldrei minnist ég þess að hafa farið af fundi hans bónleiður til búðar, a.im.k. eikki, ef er- indið, sem upp var iborið, snerti Siglufjörð. — Með Ólafi Thors hefir þetta byggðarlag misst góðan vin og sannan, vin, sem í raun reyndist. Heilræði hans og föður- legar leiðbeiningar, hjarta- hlýja ihans og göfug- mennska, munu mér aldrei úr minni líða. Með dýpsbu lotningu og þakklæti kveð ég þennan vin minn og iglæsta höfðingja, sem ég dáði svo mjög og leit upp til- Hann verður mér jafnan ógleymanlegur. Ástríkri eiginkonu hans og skylduliði öllu, sem unni honum mest, og hann unni einnig mest, votta ég inni- legustu samúð. Einar Ingimundarson. Einar Ingimundarson, al- ])ingismaður, dvaldi hér heima í þinghléi, nokkrar vikur upp úr áramótum. Blaðið leitaði frétta af þeim málum, sem efst eru á baugi og snerta Siglufjörð. — Ilvenær hefst ganga- gerð um fjallið Stráka? ■— Undanfarna mánuði liefur starfslið Vegamála- stjórnarinnár unnið að gerð verklýsingar og útboðs, se’m hvort tveggja verður full- unnið undir vorið, að sögn vegamálastjóra. Erú verk þessi eilítið síðbúnari en ég hafði vænzt, en ljóst er öll- um, að því betur og ná- kvæmar, sem verk þessi eru unnin, eða úr garði gerð, þeim mun styttri tíma þarf væntanlegur verktaki til gerðar tilboðs og undir- búnings verksins, svo því sjálfu þarf ekki að seinka af þessum sökum, enda segir í yifirlýsingu vega- málastjóra, sem nýlega var lesin í útvarpinu, að þvi verði að fullu lokið á næsta ári — 1966. — Þá verður, til lylcta leitt það baráttu- mái Sigluf jarðar, sem von- andi befur í för með sér gæfu og gengi byggðarlags- ins og bætt búsetuskilyrði þess fólks, sem svo lengi hefur orðið að sæta ein- angrun og samgönguerfið- leikum. Þá er og þess að gea, að sá nýi vegur, sem í notkun á að taka á næsta ári, nær frá Brúnastöðum í Fljót- um til Siglufjarðar, og er að mínum dómi mikill á- Framhald á 2. síðu Suður eða uorður (Nokkur orð um síldarflutninga) Undanfarin ár hefir síldar- leysi þjáð verstöðvar fyrir Norðurlandi, og höfuim við Siglfirðingar orðið áþreifan- lega varir við afleiðingar þess. Þessu Itil sönnunar má nefna þá staðreynd, að árið 1962 voru hér aðeins salt- aðar 140 þús. tunnur, 1963 um 70 þús. tunnur, og 1964 aðeins 12 þús- tunnur. Talar iþetta sínu máli um það hörm ungarástand, sem ihér hefir slkapazt á sviði abvinnu- og menningarlífs þessa litla bæjarfélags. Hér skal engu spáð um framtíðarhorfur á aflaibrögð- um, læt ég aðra mér fróðari um það. Þó mætti á það benda, að sjávarhilti á svæð- inu milli Horns og Langa- ness, hefir á þessu tímabili verið fyrir neðan 3 gráður C, nema sl. sumar, er sjávar- hiti ikomst upp í 5 gráður. Það er alkunna, að rauðátan þrífst ©kki nerna í heitari sjó, eða nánar tiltekið 7—9 gráða sjó. Bendir margt til þess, að Golfstraumurinn hafi breytt stefnu sinni þannig, að hann hefir haldið suður og austur með land- inu, mælbt kalda straumnum, hinum svokallaða Inmingar- straumi út af Austfjörðum, þar hafi svo myndazt sjávar- svæði með hitastigi, sem hagstætt var rauðátunni og sé hér að leita aðalástæð- unnar fyrir því, að síldveið- arnar hafa flutzt austur fyrir land. Vissulega er engu hægit að spá örugglega um þessi mál í framtdðinni. Á sl. sumri var gerð fyrsta tilraun ilslendinga á flutn- ingum síldar beint úr skipi í rúmsjó. Er þar átt við flutn- ingá með tankskipinu Þyrh, sem Einar Guðfinnsson og sonur hans stóðu að. Um iþetba hefir ibirzt allítarleg grein í janúarhefti Itimarits- ins ÆGI og 10.—12. tbl. tímaritsins FÍROST, og vil ég eindregið ráðleggja mönnum að kynna sér skýrslu þeirra feðga og verkfræðings þeirra um þessi mál. Það er aikunna, að bæði Þjóðverjar og Ameríkanar hafa framikvæmt slíka sáld- arflutninga svo áratugum skiptir. Er það sýnilegt, að vér Islendingar erum á eftir tímanum á þessu sviði. Marg ir mestu athafnamenn þjóð- arinnar hafa vaknað við vondan draum og er nú of- arlega í hugum manna að ráða bót á þessu. Má í iþví samibandi minna á ágætar greinar, sem þeir Haraldur Framhald á 2. síðu

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.