Ísland - 15.05.1934, Blaðsíða 1

Ísland - 15.05.1934, Blaðsíða 1
Fánalið þjóðernissinna. Þingræði — lýdræði. Skrúðganga pess 1. maí s. 1. er sú glæsilegasta, sem sézt hef- ir hér á landi. Marxistar ætluðu að eiga 1. maí ein- ir í þetta sinn eins og þeir hafa áður gert. 1 næði vildu þeir fá að prédika landráðastefnu sína, í friði ætluðu þeir að boða stéttabaráttu og sundrung með- al þjóðarinnar, í ró og næði ætluðu þeir að tæla til sín þá menn, sem þingræðið hefir gert áttavilta og óánægða með ríkjandi skipulag. Þetta 'vita allir, þetta vita einnig íslenzku valdhafarnir, þótt fávizku þeirra séu lítt takmörk sett. En þeir hugsa ekki um hagsmuni og lífsafkomu óborinna og uppvaxandi Is- lendinga, þeir hugsa aðeins um sjálfa sig', þeir lifa í þeirri trú, að syndaflóð- ið komi ekki fy.r en þeir eru komnir undir græna torfu. Þess vegna hafast þeir ekki að, þótt sjáanlegt sé, að allt er að komast í öngþveiti. Illa er sú æska stödd, sem fylgir þessum mönnum, enda mun vera fátt um æskumenn í liði þeirra, og flestir þeirra fylgja með hálf- um hug. Nei. Islenzk æska sér og, hvert stefn- ir. Hún sér ónytjungshátt borgaraflokk- anna og skilur skaðsemi kenninga marx- ista. Hún veit, að ekki dugir lengur að sitja aðgerðarlaus, ef hún í framtíðinni á að geta lifað frjálsu, friðsömu og rétt- Þegar Dettifoss var á Akureyri síð- ast, gerðu kommúnistar aðsúg að skip- inu og vildu stöðva vinnu við það, þrátt fyrir fulla andstöðu verkamanna sjálfra. Eftir dálitlar hnippingar milli verka- manna og kommúnista, tókst með að- stoð lögreglunnar að hindra kommúnista í þessu áhlaupi sínu. — Þegar Dettifoss kom til Siglufjarðar, átti sama sagan að endurtaka sig. Voru kommúnistar búnir að hafa mikinn viðbúnað og ætl- uðu að láta handaflið ráða, því þeir látu lífi. Þess vegna hópast nú íslenzk- ur æskulýður undir þórshamarsmerkið, merki þjóðernissinna. Þjóðernissinnar skilja, hve nauðsyn- legt er að láta marxistana aldrei hafa frið til útbreiðslu kenninga sinna. Þess vegna vildu þeir ekki gefa þeim 1. maí til þeirra starfa, þess vegna fylktu þeir liði þann dag, svo að enginn þurfi leng- ur að efast um vilja þeirra í þessum efn- um. Og vilji þjóðernissinna er jafn ein- beittur og hreinn í öllum öðrum málum. Sú æska, sem af einbeittni og vilja beit- ir sér fyrir einhverju máli, hlýtur og skal koma því máli í höfn. Veðrið 1. maí er táknrænt fyrir breyt- ingar þær, sem hljóta að fylgja þjóð- ernissinnum. Um morguninn var dimmt í lofti og sá ei til sólar. Það táknar tíma þann, sem nú er ríkjandi í íslenzku þjóðlífi. En er þjóðernissinnar gengu fylktu liði fram á baráttuvöllinn, birti í lofti og sólin baðaði landið geislum sínum. Svo verður og í þjóðlífinu. Þegar þjóðernissinnar hafa völdiri í sínum höndum, þá mun verða bjart yfir hug- um fslendinga, þá munu hverfa af stjórnmálahimninum þau ský, sem nú hylja fslandi sólarsýn, þá en ekki fyr. vita sem er, að vinnufriður manna á engrar verndar að vænta frá ríkisvald- inu. — A Siglufirði er starfandi deild úr Flokki þjóðernissinna undir forystu Steindórs Hjaltalíns, og gerðust þeir nú sjálfboðaliðar til að vernda vinnufrið siglfirzkra verkamanna og bjuggust til varnar. Á bæjarbryggjunni var hlað- inn garður úr olíutunnum og kössum umhverfis vinnustaðinn. — Þegar komm- únistar sáu, að þeir komu ekki áformi sínu fram, hófu þeir skothríð með grjóti og kolum að þeim, sem vörðu verka- menn. Nokkru síðar kom slökkvilið Siglufjarðar og fleiri sjálfboðaliðar, og tókst að lokum að hrinda til baka árás kommúnista, en í viðureigninni slösuð- ust 12 menn og 2 mjög hættulega, þeir Jón Jónsson frá Steinaflötum og Páll Jónsson frá Lindarbrekku. Fer nú yfirgangur kommúnista að verða lítt þolanlegur lengur. — Slíkir Ennþá hefir þjóðernissinnum ekki tekizt að láta þjóðina rumska, svo um muni, en þó eru andstæðingar okkar orðnir kvíðafullir og líta okkur óhýru auga. f fyrstu stóð þeim enginn stuggur af þessum »strákafíflum«, sem ótrauð- ir ætla að heyja stjórnmálabaráttu eins og »fullorðna fólkið«. Fjárhagslega snauðir, en ríkir í anda, höfum við geng- ið í berhögg við stjórnmálaspillinguna og óreyðuna. Ötrauðir höfum við barizt á báða bóga gegn íhaldi og marxisma og sýnt ókúgandi vilja til að umskapa þjóð- félagið, öllum þegnum þess til hagsbóta, en ekki einstaka mönnum til fjársöfn- unar og óhófs. Sá sem vill, hann getur. Forystumenn andstæðinga okkar, sem ekkert vilja annað en auðga sjálfa sig á kostnað ann- arra, sem hafa þá hugsjón háleitasta að lifa í óhófi og allsnægtum meðan fátæk- ir samlandar þeirra hafa hvorki í sig né á, og hefir telcizt ótrúlega vel að gera þessa hugsjón sína að veruleika, þessir menn rísa nú upp og reyna a@ svívirða okkur og sverta með þeim vopnum, sem þeim einum eru samboðin. Þeir sjá, að við viljum ekki láta þá halda áfram iðju sinni, og þeir sjá, að við getum rutt þeim úr íslenzku stjórnmálalífi. Þess vegna reyna þeir að útrýma okk- ur. En okkur verður aldrei útrýmt, því við erum þjóðin sjálf, sem er að vakna við vondan draum. Og hvernig er um- horfs? Sultur í búi, og sjálfstæði þjóðar- innar — árangur heillar aldar baráttu beztu manna hennar — lokað í ramm- gerðum stálskápum suður f Lundúnum og nefnist þar ríkisskuldabréf. Hið þús- und ára gamla Alþingi orðið að ómaga- hæli og kauphöll, ríkissjóður þurausinn, bönkunum mætti breyta í tugthús á einum degi án þess að mikið þyrfti að fara þaðan þess vegna, skólarnir eru orðnir skemtistaðir, fiskflotinn mann- drápsbollar, býlin lögzt í eyði og gras- lendið í órækt. Verkamenn hafa varla ofan í sig, og bændur flosna upp af jörð- um sínum. Auðkýfingar aka í »luxus«- bílum, en verkamenn ganga í hópum at- vinnulausir; þeir búa í skrauthýsum, en verkamenn hýrast í heilsuspillandi neð anjarðarholum. Þannig er ástandið, þegar þjóðin vakn- ar, þeg'ar þjóðernissinnar rísa upp og ákæra þá, sem þessu ástandi valda og viðhalda vísvitandi. Og það er engin atburðir, sem þessir, færa okkur þjóð- ernissinnum heim órækar sannanir um nauðsyn aukinnar og miskunnarlausrar baráttu gegn marxismanum. Því það mega allir Islendingar vita. að í þessu landi verður ekki lífvænlegt fyr en hverjum einasta marxista er út- rýmt úr íslenzku þjóðfélagi. Það verk geta þjóðernissinnar einir framkvæmt. furða, þótt stjórnmálamennirnir rjúki upp og ráðist að okkur þjóðernissinnum fyrir að vilja breyta þessu ástandi og kalli okkur fjandmenn »menningarinn- ar«, Þetta er þeirra verk, þeirra menn- ing, þeirra paradís. Það er ekki úr vegi að athuga, hvers- konar skipulag það er, sem elur slíka ó- stjórn, slíka spillingu, já og bein landráð, ekki aðeins í skuggalegum skúmaskot- um, heldur og í dagsins ljósi fyrir aug- um þjóðarinnar, því svo er óskammfeiln- in mikil, að ekki er einu sinni gerð til- raun til að hylja þessi verk, heldur er þjóðinni talin trú um, að það sé »sögu- leg' nauðsyn« og henni til sérstakrar sáluhjálpar. Því er haldið fram, að hér sé lýðræði, sem »þjóðernissinnar vilji fótum troða«. Það er nú fyrir það fyrsta alrangt. Þaö er eflaust eng'inn flokkur, sem er meiri lýðríeðisflokkur en við, því að við erum eini flokkurinn, sem berst fyrir lýðræði, en gegn þingræði. Lýðræðið er ekki neitt fastákveðið stjórnskipulag, heldur hug- sjón, sem andans menn 18. aldarinnar báru í brjósti og reynt hefir verið að framkvæma með þingræðinu. Lýðræðið segir, að þjóðin sjálf eigi að ráða málum sínum, og ekkert er okk- ur nær skapi en það. Þingræðið er fast- ákveðið stjórnskipulag, sem átti að vinna á grundvelli lýðræðisins, en er nú sú hörmulega skrípamynd þess, sem raun ber vitni um. Almennar þingkosn- ingar eru stórfelldur loddaraleikur, sem framinn er til að blekkja þjóðina, til að telja henni trú um, að hún ráði. Þjóðin sjálf getur engin áhrif haft á, hverjir eru í kjöri. Framboðin eru ákveðin af fámennum klíkum, stjórnum flokkanna. Hlutverk þjóðarinnar er svo eingöngu að velja eða hafna, ekki milli góðs og ills, heldur milli þess, sem er vont, og þess, sem er ennþá verra, og oftast er vont að greina á milli. »Það skárra af tvennu illu« er í rauninni kjörorð allra kosninga í þingræðisskipulaginu. Allir kannast við framkomu þing- mannaefna við kosningar. Hún er blátt áfram móðgun við þjóðina. Moldviðri er þyrlað upp um málefnin og menn sví- virtir, saklausir sem sekir. Frambjóð- endurnir halda hrókai'æður um framtíð- arfyrirætlanir sínar í þjóðmálum og segjja: »Allt þetta mun ég framkvæma, ef þú kýst mig.« Kosningarnar, sem eru »gimsteinn« þingræðisins, eru þannig, að Árás kommúnista hrundið. Þeir reyna að hindra vinnu við Dettifoss með kola- og grjótkasti. Þjóðernissinnum undir forystu Steindórs Hjaltalíns tekst að skapa vinnufrið. I viðureigninni særast 12 menn og 2 þeirra mjög hættulega.

x

Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísland
https://timarit.is/publication/388

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.