Siglfirðingur - 27.04.1985, Blaðsíða 1
I
í
l
l
z
l
l
z
[
z.
í
í
z.
z
[
z
z
lfirðin
FLUGLEIDIRi
uri noróurlands tmf.
Líður að langdegi, lokið skammdegi
Ljósmynd: Birgir
Gengur gullsól,
geislum sindrandi,
sigurglöð
af svalvogum.
Hátt yfir brúnir
hvítra fjalla
mœr hún skín
um morgun hvem.
Vakna vormenn,
viljann hvetja
verk að vinna
vel fyrir þjóð.
Létt er drunga,
liðið skammdegi,
blóð hraðara
berst um ceðar.
Aldnireins
augum renna
lífgjafa mót
lands og manns.
Endurminningar
œskudaga
brjótast fram
sem hrim að ströndu.
Þótt úr vöðvum
þorrinn sé kraftur,
dregið hafi úr sýn
og dug í hug.
Geislar Guðs sólar
gefa bjarta
yfirsýn
um andans lönd.
H.J.
Framsókn rýfur meirihluta samstarf-
1 ið í bæjarstjórn
Z
[
[
[
[
[
[
[
í
Algert ábyrgðarleysi við
gerð f járhagsáætlunar
Umræða um fjárhagsáætlun
bæjarsjóðs og stofnana hans
fyrir árið 1985 hófst i bæjarráði
í janúar og var síðan um hana
fjallað á mörgum fundum,
síðast mánudaginn 1. apríl.
Skýringin á því að umræða um
fjárhagsáætlun tók svo langan
tíma er auðvitað sú, að enginn
starfhæfur meirihluti hefur
verið fyrir hendi í bæjarstjórn
og því fór tíminn hjá bæjarráði,
fund eftir fund, í þjark um hin
ýmsu mál, þar sem reynt var að
sætta sjónarmið allra flokka og
ná samstöðu þeirra um fjár-
hagsáætlun eins og gert var
1983 og 1984, en þá var það
reyndar Sjálfstæðisflokkurinn
sem mestan svip sinn setti á þær
áætlanir.
„Þrátt fyrir þessa bragarbót á dellutillögum Fram-
sóknarmanna er samt sem áður á þeim 10—11 milljóna
króna „gat“ vegna allra þeirra lausu enda sem þeir skilja
eftir, enda dettur engum í hug að þær séu fluttar í fullri
alvöru, heldur til þess að losna endanlega úr meirihluta-
samstarfinu og er það svo sem góðra gjalda vert, en
tillögurnar eru jafn vitlausar eftir sem áður.
Nú brá hins vegar svo við að
fulltrúi Framsóknarflokksins í
bæjarráði virtist gera sér leik að
því að tefja málið og flækja eins
og framast var unnt og má t. d.
geta þess, að upphaflega var
marsfundi bæjarstjórnar
frestað um tvær vikur, eða til
28. mars, þar sem þá átti að
leggja fram fjárhagsáætlun til
fyrri umræðu, en það tókst ekki
vegna þeirrar sundrungar og
kergju sem ríkir á upplausnar-
heimili „bæjarstjórnarmeiri-
hlutans".
Þrátt fyrir þau óheiðarlegu
vinnubrögð vinstriflokkanna
eftir síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingar, að taka sig saman um að
útiloka Sjálfstæðisflokkinn frá
þátttöku í mótun bæjarmála-
stefnunnar á yfirstandandi
kjörtímabili, hafa fulltrúar
flokksins í bæjarstjórn og
bæjarráði unnið af fullum heil-
indum og ábyrgð og tekið mál-
efnalega afstöðu til allra mála
og þegar öllu er á botninn
hvolft hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn verið óumdeildur for-
ustuflokkur í bæjarstjórn
Siglufjarðar frá því á miðju ári
1983, er meirihlutasamstarf
vinstriflokkanna rann út í
sandinn, þrátt fyrir að þeir hafi
ekki fyrr en nú fengist til að
viðurkenna opinberlega að
samstarfi þeirra um bæjarmál
sé lokið.
Vinstriflokkarnir hafa setið á
svikráðum hver við annan í tæp
tvö ár og allir beðið eftir hent-
ugu tækifæri til þess að hlaup-
ast undan merkjum og nú hefur
Framsóknarflokkurinn látið til
skarar skríða, en þá með svo
einkennilegum málatilbúnaði
að furðu sætir.
Á bæjarráðsfundi 1. apríl s.l.
tilkynnti fulltrúi Framsóknar-
flokksins „samstarfsmönnum
sínum í meirihlutanum" að
hann tæki ekki frekari þátt í
mótun fjárhagsáætlunar, nema
þeir samþykktu aukin framlög
til íþróttahússbyggingar um kr.
450.000 og kr. 2.000.000 vegna
sanddælingar undir nýja ein-
býlishúsabyggð milli Snorra-
Framhald á 4. síðu
VERZLUN
SIGURÐAR FANNDAL HF.
Eyrargötu-2 - Siglufirði - Sími 71145
Nafnnúmer: 9173— 3641