Siglfirðingur - 27.04.1985, Blaðsíða 2
SIGLUFJARÐARKAUPSTAÐUR
Auglýsir
eftirfarandi:
14. mars 1985
REGLUGERÐ
um búfjárhald á Siglufírði.
Nr. 148
1- gr-
Tileangur reglugerdar þessarar er að stemma stigu við óhóflegu búfjárhaldi innan
lögsagnarumdæmis Sigiufjarðar og tryggja að gróðurlendi bæjarins verði ekki spillt.
2. gr.
Búfjárhald (sauðfjár. hrossa. nautgripa, svína. geita og alifugla) er óheimil utan lögbýla
innan lögsagnarumdæmis Siglufjarðar, nema með sérstöku leyfi bæjarstjórnar. Þó er
reiðhestahald undanþegið ákvæðum reglugerðar þessarar. ef það er á vegum hestamanna-
félaga og þau hafa sett um það reglur sem bæjarstjórn staðfestir eftir gildistöku hennar.
3' ?r-
Sá sem hyggst sæk]a um leyfi samkvæmt 2. gr. skal senda um það umsókn til bæjarráðs.
í umsókninni skal gera grein fvrir fjölda þess búfjár sem óskað er leyfis fyrir, hvernig
geymslu þess skuli háttað og öðru er máli skiptir fyrir öryggi þess og aðhald. Leyfisveiting er
háð því að umsækjandi sé félagi í búfjáreigendafélagi. ef slíkt félag er starfandi og skal
vottorð þess efnis þá t'ylgja umsókn.
4. gr.
Telji bæjarstjórn að skilyrði til búfjárhalds séu fvrir hendi. skal hún veita leyfið og skal
það bundið við tiltekinn hámarksfjölda. Leyfið er veitt til óákveðins tíma. en er
uppsegjanlegt með eins árs fyrirvara miðað \ið 1. júní ár h\ert. Leyfið er háð gildandi
reglugerð um búfjárhald á hverjum tíma. það skal gefið út á nafn og skal ekki vera
framseljanlegt.
Ef leyfishafi brýtur reglur um meðferð búfjár. t. d. með því að gæta ekki fjárins á
fullnægjandi hátt. má afturkalla leyfið að undangenginni aðvörun.
5. gr.
Ef maður heldur búte án heimildar samkvæmt reglugerð þessari. skal lögreglan hlutast
til um að það sé tekið úr vörslu hans. Heimilt er að selja það búfé á opinberu uppboði eða
slátra því að undangenginni að\örun. Hið sama gildir ef leyfishafi gætir ekki settra reglna um
meðferð búfjárins. þannig að það veldur tjóni eða óþrifum. Eiganda búfjár ber að greiða
allan kostnað sem leiða kann af slíkum ágangi.
6. gr.
Bæjarstjórn getur ákveðið að greitt skuli gjald fyrir veitt leyfi til búfjárhalds.
Forðagæslumenn skulu gæta þess að fjöldi bufjár sé í samræmi við veitta heimild hverju
sinni.
7. gr.
Bæjarstjórn skal hafa búfjárhelda girðingu umhverfis íbúðabyggð í bænum og skipu-
leggja landsvæði fyrir bútjárhald utan hennar. Stefnt skal fljótt og skipulega að því að allt
búfjárhald flytjist út fyrir ofangreinda girðingu.
8. gr.
Byggingar peningshusa skulu aöeins lesfðar i skipulögðum bufjársvæðum sem bundin
eru í aðalskipulagi.
9. er.
Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar skulu varða sektum. allt að kr. 5 ()()().()().
Upphæð þessi skal breytast í samræmi við þær breytingar sem verða kunna á vísitölu
byggingarkostnaðar.
10. gr.
Allir þeir, sem við gildistöku reglugerðar þessarar eiga eða hafa í umsjá sinni búfé er
fellur undir ákvæði hennar. skulu innan sex mánaða frá gildistöku hennar hafa tilkynnt um
búfjárhald sitt og sótt um leyfi. ella fellur mður heimild þeirra til að halda búte.
Reglugerð þessi, sem er samin og samþykkt af bæjarstjórn Siglufjarðar. staðfestist hér
með samkvæmt lögum nr. 44 23. maí 1964 um búfjárhald í kaupstöðum og kauptúnum til
þess að öðlast gildi þegar í stað.
Felagsmálaráduneytid. 14. mars 1985.
F. h. r.
Hallgrímur Dalberg. _______________________________
Hólmfríður Snæbjörnsdóttir.
J
Aðildarfélagsafslátturinn til félaga innan ASÍ,
BSRB, SÍS, BHM, SÍB og fleiri gildir til 7. maí
1985.
Tryggið ykkur aðildarfélagsafsiáttinn með því að
staðfesta pöntunina fyrir 7. maí.
Samvinnuferdir-Landsýn
Umboð Siglufirði:
ÁSGRÍMUR SIGURÐSSON
Aðalgötu 14, Sími 71228 frá 13—17.
Sinclair-námskeið
á vegum
TÖLVUMENNT
Eftirfarandi námskeið eru í boði á vegum Tölvumenntar:
1. Grunnnámskeið .... 16 kennslustundir
2. BASIC-námskeið ... 12 kennslustundir
3. Lógó-námskeið .... 12 kennslustundir
Grunnnámskeið. Fjallað verður um grunnhugtök varðandi
tölvur með hliðsjón af Sinclair Spectrum. Undirstöðuatriði
BASIC-málsins verða kennd og þjálfuð með verklegum æf-
ingum. Kennd verður notkun á mikródrifi og mótuð forritun
(structured) kynnt með Lógó.
BASIC-námskeið. Farið verður á hraðbergi yfir allra einföld-
ustu BASIC-skipanirnar, s.s. PRINT, INPUT o.s.frv. Þá
verður farið í flóknari skipanir og notkun þeirra kennd með
stuttum forritum. Kennd verður notkun á mikródrifi.
Lógó-námskeið. Allir geta og ættu að læra Lógó. Þetta öfluga
forritunarmál býður upp á möguleika eins og þá að búa til eigin
skipanir og lagskiptingu. Það er notað til kennslu vegna þess
hversu mannlegt það er. Kennd verður notkun á mikródrifi.
Verð námskeiðanna er sem hér segir:
16 kennslustundir kr. 2.400,00
12 kennslustundir kr. 1.800,00
Ath. Unglingar fá 30% afslátt.
(16 st. kr. 1.700,00 og 12 st. kr. 1.250,00)
Innritun á námskeiðin fara fram í Aðalbúðinni.
TÖLVUMENNT s/f.
Togarinn SIGLFIRÐINGUR
Eins og flestum er kunnugt
þá var togaranum Siglfirðingi
breytt í frystitogara á síðasta ári
og hefur útgerð skipsins gengið
allþokkalega síðan. Afla-
verðmæti Siglfirðings frá ára-
mótum til 27/3. eftir 55 daga
úthald er ca. kr. 17.6 millj.
brúttó.
Þegar sterlingspundið tók að
falla í verði í vetur töldu margir
að útgerð frystitogara væri
orðin vonlaus. þar sem afurðir
frystitogaranna höfðu svo til
eingöngu farið á Bretlands-
markað. Á sama tíma og þetta
gerðist með pundið þá opn-
uðust markaðir í Japan fyrir
karfa og grálúðu á góðu verði.
Einnig tókst sjómönnum að
vinna þorskinn fyrir Banda-
ríkjamarkað. þannig að upp-
fylítar voru þær gæðakröfur
sem gerðar eru fyrir þann
markað.
Það má geta þess að úr síð-
ustu veiðiferð Siglfirðings fóru
aðeins 10% af aflanuin á
Englandsmarkað, 82% fóru á
Bandaríkjamarkað, 2% fóru á
Japansmarkað. en lítið veiddist
af karfa og grálúðu í þessari
veiðiferð.
Á Siglfirðingi er 24 manna
áhöfn. þar af hafa að jafnaði
verið 2—6 konur i áhöfninni,
og hefur þeim að sögn heim-
ildarmanns blaðsins líkað sjó-
mennskan vel.
V
vs.