Siglfirðingur


Siglfirðingur - 27.04.1985, Blaðsíða 4

Siglfirðingur - 27.04.1985, Blaðsíða 4
4 Málgagn Sjálfstæðismanna á Siglufirði Ritstjóri og ábyrgðarmaður: AXELAXELSSON Aðrir í ritnefnd: VALBJÖRN STEINGRfMSSON, BIRGIR STEINDÓRSSON Siglufjaröarprentsmiöja hf. EFLUM EINN FLOKK TIL ÁBYRGÐAR Undanfarnar vikur og mánuði hafa Siglfirðingar fengið að fylgjast með einstökum vinnubrögðum vinstri flokkanna í Bæjarstjórn Siglufjarðar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir bæjarsjóð og stofnanir hans fyrir árið 1985 og hefur sundrungin milli þessara flokka stöðugt aukist og hafa yfirlýsingar gengið á víxl í dag- blöðum og útvarpi um að meirihlutasamstarfinu sé lokið og kenna þar hverjir öðrum um. I raun og veru hefur lítið sem ekkert samstarf verið með þessum flokkum í bæjarmálum allt frá því á haustmánuðum 1983, þótt þeir hafi ekki fengist til að viðurkenna það opinberlega fyrr en nú. Á þessum tíma hefur æ betur komið í ljós hve mikilvægt er að um stjórnvölinn á bæjarfélaginu sé samhentur og sterkur meirihluti, þannig að skýr og fastmótuð stefna ráði ferðinni, en ekki sú sundrung og hentistefna sem hefur orðið afleiðing ósamkomulagsins í Bæjarstjórn Siglu- fjarðar. Siglfirðingar þurfa að sameinast unr að efla einn flokk til ábyrgðar í bæjarstjórn og eini raunhæfi möguleikinn til þess er að sameinast um það markmið í bæjarstjórnarkosningunum á næsta ári að Sjálfstæðis- flokkurinn fái hreinan meirihluta, þ. e. fimm menn kjörna í bæjarstjórn. Takmarkið verður að vera það að losa bæjarfélagið við þá ringulreið og óstjórn sem við lýði hefur verið þetta kjörtímabil og fer sífellt vaxandi, eins og brigslyrði bæjarfulltrúa vinstri flokkanna í garð hver annars bera ljósan vott um. í þeim bæjum og kaupstöðum sem Sjálfstæðisflokk- urinn fer einn með stjórnina í krafti meirihluta síns ríkir festa, eindrægni og skýr stefna í öllum málum og fjárhagsstaða er góð, þrátt fyrir að skattheimtu sé í hóf stillt. Ástandið í bæjarmálum Siglufjarðar er þveröfugt og til þess að breyta því verður að koma í veg fyrir að vinstriflokkarnir hafi möguleika til meirihlutamynd- unar í framtíðinni. Fjárhagsstaða Siglufjarðarkaup- staðar leyfir hreinlega ekki að þessum hringlandahætti sé haldið áfram öllu lengur. Að því markmiði að efla einn flokk til ábyrgðar í bæjarstjórn þurfa Siglfirðingar að vinna, allir sem einn. ir Siglfirðingar Á hverjum miðvikudegi eru bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins með opinn fund milli kl. 12 og 13 á Hótel Höfn. Komið og hlustið og gerið fyrir- spurnir um bæjarmálin. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins Framsókn rýfur meirihluta- samstarfið í bæjarstjórn Axel Axelsson. Framhald af 1. síðu brautar og Norðurtúns. Til þess að fjármagna þetta vildi hann skera niður framlag til Grunn- skóla til breytinga á húsnæði undir námsgagnasafn um kr. 200.000, framlag að upphæð kr. 1.000.000 til lagfæringa á Aðal- götu 28 (Norska sjómanna- heimilið) til þess að koma þar fyrir Tónlistarskóla Siglu- fjarðar, og lækka áætlaðar launagreiðslur til slökkviliðs- stjóra um kr. 100.000. Þær 1.150.000 kr. sem eftir eru átti að fjármagna með ótilgreind- um niðurskurði eða lántökum. Skýrt var tekið fram að annað- hvort yrði að samþykkja þetta allt eða ekkert. Ekici kæmi til greina að ræða neitt af þessum atriðum sérstaklega. Það verður að segjast, að mikið hefur Framsóknarmönn- um verið orðið mál að losna úr meirihlutanum fyrst þeir grípa í svona fúið hálmstrá sér til bjargar, því að þessi tillögu- flutningur er svo barnalega einfaldur, að engu tali tekur. Til þess að útbúa byggingarsvæði neðan Norðurtúns þarf miklu stærri upphæð en kr. 2.000.000, enda liggur fyrir tilboð frá Björgun h/f um sanddælingu í svæðið að upphæð kr. 5—7 millj. kr. og er þá eftir að jafna út svæðið, leggja vatns- og hitaveitu. skólplagnir og raf- magn, svo að ætla má að heildarkostnaður við svæðið verði 13—14 millj. kr. Tillaga um sanddælingu fyrir 2 millj. kr. er því algerlega út í hött og óskiljanleg. nema þá sem gabb í tilefni dagsins (tillagan var flutt 1. apríl). Sama má raunarsegja um niðurskurð á framlagi til lagfæringa á Aðalgötu 28 fyrir Tónlistarskólann, því Þor- móður rammi er búinn að segja skólanum upp því húsnæði sem hann hefur haft á leigu á Hótel Hvanneyri og því verður að koma honum í nýtt húsnæði fyrir haustið og það verður ekki hægt fyrir minni upphæð en kr. 1.000.000 í fyrsta áfanga, enda vantaði alveg inn í „skilyrða- pakka“ Framsóknar hvernig ætti að leysa vanda Tónlistar- skólans og fjármagna hann. Á þessu sést að í þennan tillögu- flutning Framsóknar var ekki bara ,.gat“ upp á 1.150 þús. kr.. heldur 11—12 milljónir króna. sem sýnir hvers konar leikara- skapur og ábyrgðarleysi hér er á ferðinni. Þessi málatilbúnaður Fram- sóknar fékk vægast sagt óblíðar viðtökur „samstarfsflokkanna“ í bæjarráði og fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins var ekki til- búinn til þess að taka þátt í þessu aprílgabbi Framsóknar og tók heldur þá ábyrgu afstöðu að greiða atkvæði með því að fyrirliggjandi drögum að fjár- hagsáætlun yrði vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn, enda hefði þessi umræða tafist svo lengi að það verður ekki fyrr en í maí sem endanlega verður hægt að afgreiða fjárhags- áætlun og sjá allir að svona getur þetta ekki gengið lengur. Á bæjarstjórnarfundi 10. apríl s.l. var fjárhagsáætlun síðan tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn og kórónuðu þá Framsóknarmenn vitleysuna með því að láta bóka nánar út- færðar „sparnaðartillögur“ sínar, en til viðbótar því sem áður var nefnt vildu þeir skera niður laun slökkviliðs um kr. 116.000 (en laun slökkviliðs- stjóra skyldu lækka um kr. 82.000 en ekki kr. 100.000 eins og lagt var til í bæjarráði 1. apríl), þátttaka í vinabæjarmóti lækkuð um kr. 150.000 (sem þýðir nánast það sama og að hætta alveg þátttöku í vina- bæjarstarfinu), rekstrarkostn- aður tveggja pallbíla í Áhalda- húsi skyldi felldur niður að fullu, eða um kr. 266.000 og hætt skyldi við lagfæringu á göngustígum milli Hólavegar og Hvanneyrarbrautar að upp- hæð kr. 240.000. Samtals hljóða þessar niður- skurðartillögur Framsóknar upp á kr. 2.054.000, en út- gjöldin skyldu hækka um kr. 2.450.000 eins og áður hefur komið fram. Eins og fyrri dag- inn var engin grein gerð fyrir því hvernig leysa skyldi hús- næðisvanda Tónlistarskólans, hvernig ætti að fá slökkviliðið til þess að sinna útköllum og æfingum fyrir ekki neitt (en fyrir slíkt hefur verið greitt ár- um saman), eða hvað ætti að koma í staðinn fyrir snattbílana í Áhaldahúsinu, sem raunar eru búnir að vera í notkun það sem af er árinu, þannig að þó að hægt væri að leggja þeim það sem eftir er ársins, stenst „sparnaðartillaga“ þeirra vegna alls ekki. Þrátt fyrir þessa bragarbót á dellutillögum Framsóknar- manna er samt sem áður á þeim 10—11 milljón króna „gat“. vegna allra þeirra lausu enda sem þeir skilja eftir. enda dettur engum í hug að þær séu fluttar í fullri alvöru, heldur til þess að losna endanlega úr meirihluta- samstarfinu og er það svo sem góðra gjalda vert. en tillögurnar eru jafn vitlausar eftir sem áður. Að sjálfsögðu var afgreiðsla bæjarráðs á fjárhagsáætluninni aðeins tillaga til bæjarstjórnar, með fyrirvara um breytingar milli umræðna í bæjarstjórn og hafa bæjarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins lagt mikla vinnu í að yfirfara áætlunina og gera á henni breytingar og eru þær allar vel ígrundaðar og lagðar fram í fullri alvöru og af þeirri ábyrgð, sem Sjálfstæðismenn hafa tamið sér í allri sinni af- stöðu til bæjarmálanna. Að lokum skal látin í ljós sú ósk að þetta nýjasta aprílgabb sé það síðasta, sem bæjarbúar þurfa að þola af hendi vinstri- flokkanna hér í bæ um langa framtíð. Axel Axelsson Bréf frá lesanda Spurning til Sverris Sveins- sonar veitustjóra. Samkvæmt opinberum gögnum, þá er verðlag og allir útreikningar Hitaveitunnar á Siglufirði og annarra opinberra aðila, þegar verið er að bera saman verðlag á hitaveituvatni, t. d. með samanburð við olíu- verð í huga, miðaðir við 80° C hitastig. Og einnig eru gamlar úreltar neysluvenjur um olíu- notkun teknar með í útreikn- ingana, þó svo allir viti (sem vilja vita) að slíkt er ekki raun- hæft, bæði vegna þess að hús- eigendur hafa einaograð hús sín og bætt ofnakerfi sín, síðan þær upplýsingar voru fengnar. í framhaldi af ofanrituðu, þá er spurningin þessi: „Finnst þér sanngjarnt og eðlilegt að ekki sé tekið tillit til í verðlagningu og eða magni, þess mismunar, sem er á hita- stigi vatns sem veitan selur. Þ. e. reiknað með 80°C og sumir fá kannske það hitastig en aðrir minna, allt niður í 58°C og allt þar á milli“. Nánari útskýring: Undirritaður kaupir 2,7 lítra á mínútu og er að „sjálfsögðu“ selt það magn sem 80°C heitt og mun það vera um 15 Kwh umreiknað í rafmagn. En sé miðað við 60°C þá munu þessir 2.7 ml ekki vera nema um 11,3 Kwh eða tæpum 25% minni orka, sem lítur svona út með einfaldri líkingu: Ef ég væri með olíukyndingu þá væri það ,.sjálfsagt“ að kaupa olíu blandaða 25% vatni. eða þá ef þú skilur það betur, að brenni- vínið sem við kaupum fullu verði í „ríkinu“ væri blandað 25% vatni. Ég veit að þú skilur vel hvað ég á við, því þú ert langt frá því að vera heimskur. og raunar tel ég þig mjög skynsaman og klókan. Þess vegna óska ég eftir að þú svarir þessari spurningu útúrsnúningalaust. Ég vona að þú fáir pláss í næsta Einherja, sem mér sagt að sé væntanlegur á næstu dögum. Nevtandi.

x

Siglfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.