Siglfirðingur


Siglfirðingur - 27.04.1985, Qupperneq 8

Siglfirðingur - 27.04.1985, Qupperneq 8
Steingrímur Kristinsson: UM DAGINN OG VEGINN SICLUFJARÐARLEIÐ VÖRUFLUTNINGAR - NAFNNÚMER: 7557-4371 Afgreiðsla í Reykjavik: Vöruflutningamiðstóðin, simi 91 -10440 Afgreiðsla á Siglufirði: Sími 96-71510 Sigurður G. Hilmarsson, sími 91 -74648 Að rabba um daginn og veginn í þröngum hópi fara flestir létt með. En að setjast með ritvél fyrir framan sig og eiga að fara að setja eitthvað af því sem flogið hefur úr munni og í eyra á blað, það er allt annað mál. En hvað um það. Það versta er þegar afstaðið, því að ég er byrjaður. MENNINGARLÍF, HVAÐ ER ÞAÐ? Það eru ekki allir sammála um hvað sé menning og hvað ekki. En gerum ráð fyrir því að all- flestir þeirra Siglfirðinga, sem hafa tjáð sig á opinberum vett- vangi í ræðu og riti, um það sem þeir hafa kallað menningu, sé menning, — þá liggur „málið“ ljóst fyrir og um það held ég að flestir geti verið sammála. Bæjarfulltrúar og embættis- menn undanfarinna ára hafa flestir tjáð sig um menningu. þó misjafnlega mikið, og sumir láta mikið á sér bera hvað menningu snertir, talað og talað um að allt skuli gera til að við- halda þeirn möguleikum sem þurfa að vera til staðar svo menning geti þrifist. Meðal annars hafa verið gerðar heljarmiklar samþykktir í bæjarstjórn hverju sinni, sem hvetja átti aðila til að koma með menningu til bæjarins og hvetja „innfædda" til að stuðla að menningu og iðka hana. Hér er karlakór, lúðrasveit. leikfélag, meira að segja jass- band og sennilega gleymi ég einhverju. Þeir sem áhitga hafa á menningu hafa séð leikfélagið okkar að störfum nú fynr nokkru, en hlutfall þeirra sem nenntu að sjá afrakstur þriggja rnánaða erfiðis lítils áhugahóps. og þeirra sem sátu heima, var leikfélaginu mjög óhagstætt. Alltof fáir sáu þetta ágæta leik- rit. og þar á meðal vantaði alltof marga kjörna bæjarfulltrúa og embættismenn, meira að segja fulltrúa sem talað hafa mikið á undanförnum árum um menn- ingu. Lúðrasveitin hefur nokkrum sinnum komið fram, þegar eitthvað er að ske. En er karlakórinn dauður? Hingað hafa komið hópar að, til að miðla okkur menningu. Sumir úr þessum hópum hafa haft á orði í mín eyru, að til Siglufjarðar komi þeir ekki aftur til að miðla menningu. — Hvers vegna? Jú, vegna þess að aðsókn að þessum menningar- tilboðum hefur verið svo léleg að ekki hefur tekist að afla einu sinni fyrir húsaleigunni, hvað þá öðrum kostnaði. Eins og t.d. fyrir um tveim árum, þá tróðu Hofsósingar hér upp með alveg frábært efni, létt og klassískt. — Það komu 19, þar af einn bæjarfulltrúi með konu sína. Leikfélagið okkar fór ekki á fjalirnar á s.l. ári. Um ástæður veit ég ekki, en það var ekki ósjaldan að ég heyrði um það talað að þetta væri nú meira áhugaleysið, að geta ekki æft að minnsta kosti eitt leikrit á ári. þetta hefði nú fólk farið létt með í gamla daga o.s.frv. En ég tók eftir því, að nú þessa fjóra daga sem leikfélagið sýndi. þá vantaði flesta sem virtust hafa áhyggjur af „leti“ leikfélagsins á árinu 1984. Það er nefnilega meinið. Það er oft mikið talað. en minna um framkvæmdir. Ég nefndi áðan að menn- ingarhópar hefðu ekki einu sinni getað fengið inn fyrir húsaleigu. Þar komum við að einum viðkvæmum þætti. Allir sem leigja út húsnæði hafa ein- hverja viðmiðun. viðmiðun sem síðan er nietin með hliðsjón af ýmsum aðstæðum. Félag kvik- myndahúsaeigenda hefur ákveðinn taxta. sem miðar við hlutfail af sætafjölda við- komandi kvikmyndahúss og þess tíma sem sú dagskrá tekur er fer fram í húsinu, og miðast leigutíminn við 4 klst í senn, nema um annað semjist. ( gildi eru þrír taxtar, 35%, 50% og 85%, sem þýðir að textaleiga fyrir Nýja Bíó œtti að vera kr. 12.485,00, 15.000,00, eða kr. 17.820,00 fyrir fjóra tíma í senn, allt eftir því á hvaða tíma sólarhrings leigan færi fram. En þó svona „há“ leigá sé talin sjálfsögð í byggðarlögum þar sem fjölmenni er, t.d. Reykjavík, þá er ég viss um að slíkt gengur ekki hér. Einfald- lega yrðu engar leiksýningar eða aðrar skemmtanir en bíó í því húsi, fyrst og fremst vegna þess að hér er ekki nógu margt fólk sem nennir út til að kynn- ast menningu. Leikfélagið samdi um kr. 5.000,00 á dag, eða sem svarar til kr. 833,00 pr. 4 tíma, vegna fjölda daga í senn. Líklega hefði verið hagkvæmara að sýna bíó þessa daga þrátt fyrir lélega aðsókn, ef miða á við af- komu hússins. Aðrar leigusölur eru í svipuðum bás, ef undan eru dregnar þær fáu leigur til fjársterkari aðila, eins og t.d. þess „opinbera“. Hver er svo tilgangurinn með þessum uppljóstrunum? Til- gangurinn er að upplýsa þá, sem hafa talið sig „vita“ af okurleigu til menningaraðila, og það sé ástæðan fyrir lélegu menningarlífi á Siglufirði. En það gæti svo vakið spurningar. Hverjir eiga að styrkja menningarlíf á Siglu- firði? Eru það einstaklingar eða lítil fjölskyldufyrirtæki á borð við Nýja Bíó h.f„ eða er það bæjarfélagið í heild? Svo eru það kvikmyndasýn- ingar. Það væri gróf lýgi ef ein- hverjum dytti í hug að fullyrða að slíkur rekstur væri ábata- samur. Staðreyndin er sú að oft hefur hvarflað að eigendum Nýja Bíó að hætta þeim rekstri og snúa sér að meiri „sjoppu- rekstri“, því í raun má segja að „góður“ hagnaður af Bíó Bar hafi runnið beint í taprekstur á bíóinu. Skynsamlegra ætti að vera að gera hagnaðinn raun- verulegan og nota bíóið fyrir geymslu eða eitthvað þvíum- líkt. Fyrir rúmum tveim árum munaði litlu að eignirnar yrðu seldar undir verslun. og á þeim tíma „gerðu bæjaryfirvöld allt“ til að koma í veg fyrir að svo yrði, vegna þess að við það mundi mikilvægum stoðum vegna menningarlífs Siglu- fjarðar verða kippt burtu, bæði hvað snertir þá menningu sem kvikmyndasýningar eru og allar aðrar samkomur. Eigendur voru kallaðir á bæjarráðsfund og prívatfundi til að kanna leiðir til bjargar, svo hægt væri að reka bíóhúsið. Jafnvel lá í loftinu að bæjaryfirvöld vildu flestu fórna til styrktar, nema að kaupa sjálf. En allt í einu, þegar væntanlegur kaupandi eignanna hætti við aukin verslunaráform sín, og það lá fyrir að eigendur Nýja Bíós gátu ekki selt, þá misstu bæjar- ráðsmenn og aðrir allan áhuga á menningarþætti bíósins. Það sannaði svar við bréfi sem eig- endur Nýja Bíó höfðu sent bæjarráði til að kanna hvort hægt yrði að þreifa á einhverj- um af þeim uppörvandi orðum, sem þeir höfðu haft í eyru eig- anda Nýja Bíó. Eigendur Nýja Bíó hyggjast ekki í dag að selja eignina við Aðalgötu 30, þrátt fyrir mót- vind og slæmar bárur frá bæjaryfirvöldum. En hvort gert verður stutt, langt eða eitthvert hlé á rekstri Bíóhússins, það verður mál eigendanna. En eitt ættu allir að gera sér grein fyrir. Frumskilyrði þess að einhver menning geti boðist, er að ein- hver hafi áhuga á henni og sæki hana þegar hún býðst, svona annað slagið að minnsta kosti. Og ekki ætti að saka að minnast á að þetta á ekki síður við um kvikmyndir en aðrar tegundir lista. Til marks um hvað Sigl- firðingar eru komnir lágt menningarlega séð má nefna, að Siglufjörður er í dag miðað við síðustu tvö árin, lélegasti markaður islenskra kvikmynda ef miðað er við íbúatölu. Það hafa kvikmyndaframleiðendur sagt mér. Hluti af „sök“ þessarrar öfugþróunar er aukin tækni, sem gerir fólki kleift að njóta menningar heima í stofu, þ.e. vídeótæknin. Sumir nota þessa tækni af skynsemi, en alltof margir nota vídeótæknina á þann hátt að velja myndefni af handahófi. eða án þess að hafa hugmynd um raunverulegt innihald. Sumir jafnvel senda eftir „spólu“ sem þeir hafa ekki „séð áður“, og virðist ekki skipta máli hvert efnið er, og sleppa á sama tima góðu efni úr sjónvarpsdagskránni og eða góðri mynd i Nýja Bíó. Skynsamleg notkun vídeó- tækis væri nr. 1 að skoða dag- skrá sjónvarpsins, athuga hvaða mynd sé i bíó eða hvort eitthvað annað áhugavert sé á döfinni í bænum. Nú ef eitt- hvað gott er í sjónvarpinu á sama tíma og góð bíómynd er í bíó eða eitthvað annað at- hyglisvert, þá á maður að setja óátekna spólu í vídeótækið og láta sjálfvirknina taka upp úr sjónvarpsdagskránni og fara í bíó eða hvað annað sem maður velur, og horfa síðan á „upp- tökuna" síðar er tækifæri gefst. Nr, 2 ætti að vera heimsókn á vídeóleigu og velja vandlega það efni sem áhugavert kann að sýnast til afþreyingar, ef allt annað þrýtur. Steingrímur Sundhöllin opnar Nú strax eftir helgina er stefnt að því að sundhöllin opni. Unnið hefur verið við að taka gólfið af og gera allt tilbúið fyrir sundvertíðina. íþróttaráð kom saman á mánudag og ákvað verðskrá: Fullorðnir, einst. skipti 38,00 Fullorðnir, 10 miðar . 250,00 Börn, einst. skipti ... 20,00 Börn, 10 miðar .......... 125,00 Baðstofa, einst. skipti 65,00 Baðstofa, 10 miðar 508,00 Leiga (sundf., handkl.) 40,00 Verðskrá á sólarlampa verð- ur óbreytt. Formaður íþróttaráðs er Freyr Sigurðsson. K. Símar: 71129 — H. 71248 r-ri EIMSKIP STRANDFLUTNINGAR " < tBRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS ER EIGN SVEITARFÉLAGA í LANDINU UMBOÐ: KRISTRÚN HALLDÓRSDÓTTIR -.. ..--- -------- ELDHUSINNRÉTTINGAR INNIHURÐIR FATASKÁPAR VIÐARKLÆÐNING BAÐINNRÉTTINGAR Búturhf Sími 7-13-33. ÚTIHURÐIR BÍLSKÚRSHURÐIR GLUGGAR NÝBYGGINGAR I

x

Siglfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.