Siglfirðingur


Siglfirðingur - 23.12.1989, Síða 5

Siglfirðingur - 23.12.1989, Síða 5
5 Vegarlagning frá Ráeyri til Sigluness Þar sem fyrirhuguð vega- lagning Stefáns Einarssonar út á Siglunes er enn á ný til um- fjöllunar fyrir bæjarstjóm þykir undirrituðum rétt aó gera nokkra grein fyrir máli þessu, lesendum Siglfirðings til fróðleiks. Með bréfi dagssettu 20. máí 1987 sótti Stefán Einarsson formlega um leyfi bæjarráðs til þess að leggja einkaveg frá Ráeyri til Sigluness og fylgdi með umsókninni lýsing Verk- fræðistofu Siglufjarðar á fyrir- huguðum vegi. I bréfinu segir m.a.: „Undirritaður hefur fengið leyfi umráðamanns Staðarhóls til þess að leggja veginn um land jarðarinnar og einriig leyfi meirihluta eig- enda jarðarinnar Sigluness til þess að leggja veginn yfir óskipt land jarðarinnar. Þess er gætt að vegurinn liggi ekki yfir skipt land úr landi Sigluness.“ í lýsingu Verkfræðistofu Siglufjarðar kemur fram fyrirhuguð lega vegarins í grófum dráttum, en eiginleg hönnun var ekki gerð og eru lokaorð hennarþessi: „Lýsing þessi er tekin saman af Verk- fræðistofu Siglufjarðar í sam- ráði við Stefán Einarsson á Siglunesi, en tekið skal fram að vegna þess að vegurinn er ekki hannaður eins og al- mennt tíðkast við vegi, sem eru opnir fyrir almennri um- ferð, má gera ráð fyrir að við framkvæmdina komi fram vandamál, sem ekki verða á þessu stigi séð fyrir, þannig að víkja þurfi talsvert frá lýsingu þessari.“ Eftir miklar umræður og athuganir samþykkti bæjar- stjóm á fundi 17. september 1987 að heimila vegagerðina að uppfylltum þeim skilyrðum að: 1) Veghönnun yrði sam- þykkt af skipulagsyfirvöldum, 2) Veghönnun yrði á þá leið að lágmarksröskun yrði á landi, 3) öraggt yrði að lokið yrði við verkið og það unnið sam- kvæmt hönnun, 4) Ljóst yrði frá upphafi hver væri eigandi vegarins og sæi um viðhald hans í framtíðinni. Með skil- yrði nr. 3 var átt við að bankatrygging yrði lögð fram fyrir því að verkinu yrði lokið á fullnægjandi hátt. Aðalskipulagibreytt í framhaldi af þessari sam- þykkt var fyrirhugaður vegur settur inn á aðalskipulag og breytingin auglýst í Lögbirt- ingarblaðinu 23. desember 1987 og skiplagið haft til sýnis hjá bæjartæknifræðingi lög- skipaðan tíma og auglýst eftir athugasemdum. Allnokkrar athugasemdir bárust, en þóttu ekki gefa tilefni til breytinga og var því skipulagið staðfest af félagsmálaráðherra. Við afgreiðslu málsins í bæjar- stjóm bókuðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins að þrátt fyrir samþykki sitt við að veg- urinn væri settur inn á skipu- lag væru þeir ekki að skuld- binda sig til þess að sam- þykkja eignamám síðar. Eignarnámsbeiðni Með bréfi til samgönguráð- herra dags 7. júní 1989, fer Stefán þess á leit að ráðherra veiti heimild til eignamáms vegna vegagerðar frá Ráeyri í Siglufirði og út á Siglunes og óskaði ráðherrann, með bréfi dags 29. nóvember 1989, eftir umsögn bæjarstjórhar Siglu- fjarðar um málið með hliðsjón af 38. gr. vegalaga nr. 6/1977. Frá því að breytingin var samþykkt á aðalskipulaginu höfðu orðið eigendaskipti á Staðarhóli og hafði sam- komulag ekki tekist milli hins nýja eiganda og Stefáns um vegarlagninguna. Var bréf samgönguráðherra tekið til umræðu í bæjarstjórn 14. desember sl„ en varð ekki útrætt. Lögfræðiálit Við þá umræðu rifjaði undirritaður upp umsögn Arnmundar Backman, lög- fræðings, frá 5. júlí 1988, um eignamám, en þar segir m.a.: „í 7. kafla skipulagsmála nr. 19/1964 eru ákvæði um for- kaupsrétt, eða eignarnám og skaðabætur. I 27. gr. laganna er lögfest það almenna ákvæði að sveitarstjórnum sé heimilt, að fengnu samþykki ráðherra, að taka eignarnámi lands- svæði (fasteignir) innan sveitarfélags, ef skipulags- stjórn telur það nauðsynlegt vegna fyrirsjáanlegrar og eðli- legrar þróunar sveitarfélags- ins. í 28. gr. sömu laga er kveðið á um heimild sveitar- stjórnar til að taka einstakar eignir eða hluta fasteignar eignarnámi, ef þess gerist nauðsyn vegna framkvæmda á staðfestu skipulagi. „.“ Ef borin eru saman ákvæði 6. Kafla vegalaga um einkavegi, kemur í ljós að einkavegir eru þeir einir, sem ekki teljast þjóðvegir, sýsluvegir eða fjall- vegir, ligga utan skipulags- skyldra svæða og eru kostaðir af einstaklingum, fyrirtækjum eða opinberum aðilum sbr. 37. gr. vegalaga „....“ Ef það er ætlun bæjarstjórnar Siglu- fjarðar að heimila einkaveg innan skipulagðs svæðis er augljóst að heimild 37. gr. vegalaga nær ekki til þess. Stefán Einarsson á Siglunesi gæti því ekki sjálfur fengið heimild ráðherra til eignar- náms vegna einkavegar, enda er hér um að ræða veg innan bæjarmarka Siglufjarðar á skipulögðu svæði. Eignar- námið yrði því að fara fram á ábyrgð og að frumkvæði kaupstaðarins í samræmi við 27. gr. sbr. 29. gr. skipulags- laga og sveitarfélagið bæri því ábyrgð á greiðslu eignar- námsbóta gagnvart land- eigendum og gagnvart öllum öðrum kostnaði samfara eignamámi sbr lokamálsgrein 29. gr. skipulagslaga en þar er ákvæði þess efnis að allar bætur skv. lögum þessum skuli greiddar úr sveitarsjóði, en um framkvæmd mats fari skv. lögum nr. 61/1917 með síðari breytingum frá 1973. í þessu tilfelli eins og öðrum þegar um eignamám er að ræða verður að gæta ákvæða 67. gr. stjórnarskrárinnar, en þar er ákvæði þess efnis að engan megi skylda til að láta af hendi eign sína nema al- menningsþörf krefji og þurfi til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir. Spurning er þess vegna í fyrsta lagi sú hvort sveitarfélag geti krafis eignarnáms á einkaland undir einkaveg sem þjónar í öllum atriðum hagsmunum eins manns og sem ætlað er að bera ábyrgð á honum og kosta að öllu leyti.“ Álitsgerð Arnmundar er það löng að ekki eru tök á að taka mikið meira upp úr henni en hér er gert, en þó skulu tíl- greind tvö atriði úr saman- dregnum niðurstöðum hans: 1) Eignarnám á einkavegi semliggur innan skipulags- skylds svæðis, er á ábyrgð sveitarfélags. Sveitarfélagi ber að fjalla um kostnað og skaðabætur og verður að eiga frumkvæðið. 2. 67. gr. stjórnarskrárinnar heimilar ekki eignarnám nema almennignsþörf krefji. Um það kann að verða réttar- ágreiningur ef veginum er ætlað að þjóna einkahags- munum alfarið." Samkomulagsatríði Eins og sjá má af framangreindum tilvitnunum telur Ammundur að fyrir- hugaður einkavegur falli ekki undir 38. gr. vegalaga, þannig að eignamám og tilheyrandi costnaðúr (ef eignarnám næði fram að ganga) væri alfarið á ábyrgð sveitarfélagsins. Þar sem það hefur ætið verið skoðun bæjarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins að ef af vegar- lagningu út á Siglunes eigi að verða, þurfi að koma til sam- komulag þeirra sem hags- muna eiga að gæta í málinu án afskipta bæjaryfirvalda. Skylda bæjarstjórnar Bæjarstjórn hefur þegar gert skyldu sína í málinu, þ.e. að setja veginn inn á skipulag og gera með því landeig- endum kleyft að leggja veginn þegar og ef þeir ná samkomu- lagi sín á milli um vegarlagn- inguna. Þó erfitt sé að „banna mönnum að leggja veg heim til sín“ eins og það hefur verið kallað, er ennþá erfiðara að taka löglegar eignir annarra manna eignarnámi í einka- þágu. Til þess eru eignarrétt- arákvæði stjórnarskrárinnar væntanlega sett, að hið opin- bera (eða einstaklingar) geti ekki ráðskast með einkaeignir að geðþótta. Niðurstaða Þetta mál, eins og flest önnur, verður að leysa í sátt og samlyndi, án afskipta bæjar- yfirvalda, enda er sú leið oftast farsælust. Siglfirðingum öllum óska ég gleðilegra jóla og óska þeim velfarnaðar á nýju ári, með þökk fyrir ánægjuleg sam- skipti á liðnum árum. Axel Axelsson Óskum starfsfólki okkar og A/ h landsmönnum öllum Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs SIGLFIRÐINGUR HF. Aðalgötu 34 580 Siglufjörður 96-71518 SIGLFIRSK STEENA- SIGLFIRSK STJÓRNUN n SPARISJÓÐUR SIGLUFJARÐAR - fyrir þig og þína heimabyggð Crtriciriririririririririririririririririririririririririri^^

x

Siglfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Siglfirðingur
https://timarit.is/publication/803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.