Siglfirðingur - 23.12.1989, Page 9
9
SiglítraSgnr
Þ. Ragnar Jónasson:
Faktorinn á Siglufírði
] að a ávallt fróðlegt og
gagnlegt að horfa til liðins tíma
og kynna sér aldarfar og at-
burði, sem sett hafa mark á
þjóðlífið og skapað gengnum
kynslóðum kjör og kosti. Jafn-
framt því kynnist. maður þeim
persónum sem breytt hafa sögu
einstakra héraða og lands-
íeildarinnar.
Einn af þeim mönnum, sem
stuðlaði að framförum í sínu
héraði, og vakti fólk til dáða í
byrjun mikilla beytingatíma á
seinni hluta 19. aldarinar, var
Snorri Pálsson faktor á Siglu-
firði. Hann var helsti og
áhrifamesti hvatamaður flestra
þeirra fyrirtækja, er til fram-
kvæmda komust á Siglufirði á
meðan hans naut við.
Snorri fæddist þann 4.
febrúar árið 1840 á Möðruvöll-
um í Hörgárdal. Faðir hans,
Páll Jónsson, var þá heimilis-
kennari þar hjá Bjarna amt-
manni og skáldi Thorarensen.
Seinna varð Páll prestur á
Myrká, Völlum og Viðvík.
Hann var kennimaður góður og
sálmaskáld. Hinir fögru sálmar
hans eru ennþá í sálmabók
þjóðkirkjunnar. Kona Páls var
Kristín Þorsteinsdóttir frá
Laxárnesi.
í þjóðsögum er eftirfarandi
frásögn:
„Einu sinni er prestshjónin
áttu bamsvon dreymdi séra Pál.
að til hans kæmi aldraður
maður og bað hann að láta
barhið heita eftir sér. Prestur
spurði aðkomumann að heiti,
en hann kvaðst vera séra Snorri
á Húsafelli. Séra Páll hét
draummanninum því, sem
hann bað um, og lét son sinn
heitaSnorra. Hann varð seinna
verslunarstjóri á Siglufirði, og
gæfumaður mikill, að því talið
er.“
Séra Snorri Björnsson á
Húsafelli var frægur maður í
þjóðsögum, sökum gáfna og
mikillar þekkingar, enda talinn
göldróttur. Hann var hraust-
menni og kraftajötunn svo að af
bar, og steinatökin hans eru
ennþá til sýnis á Húsafelli. Það
var talið, að gæfa fylgdi því, ef
börn voru skírð eftir óskum
draumamanna, en ógæfa
myndi fylgja barninu ef út af
því væri brugðið.
Snorri Pálsson stundaði nám
í föðurhúsum. Hugur hans stóð
snemma til verslunarstarfa og
ungur hóf hann störf við
Skagastrandarverslun, sem þá
var í eigu bræðranna Jakobsen.
Einn vetur var hann skrifari
sýslumannsins í Skagafirði, sem
þá var Kristján Kristjánsson,
síðar amtmaður. Vorið 1859
réðist hann til Chr. Thaaes
verslunar á Hofsósi, sem
„assistent.“ Verslunarstjóri þar
var Sigmundur Pálsson.
Chr. Thaaes var valdamikill
kaupmaður á Norðurlandi og
hafði mikil afskipti af atvinnu-
málum óg útgerðarmálum, og
er talið að hann hafi orðið
fyrstur manna til að gera út
þilskip á hákarlaveiðar.
Árið 1845 keypti Chr. Thaae
Siglufjarðarverslun af Örum og
Wulf, og átti hann þá margar
verslanir bæði á Norðurlandi
og Austurlandi. Hann mun því
hafa haft marga góða menn í
þjónustu sinni. En árið 1864
var Snorri Pálsson gerður að
versíunarstjóra á Siglufirði,
aðeins 24 ára gamall. Mun því
Snorri hafa aflað sér mikils álits
á þeim árum, sem hann var
„assistent“ á Hofsósi. Sama ár
kvæntist Snorri, Margrét.
Ólafsdóttur frá Fjöllum í
Kelduhverfi og reistu þau
heimili sitt í hinu nýja umhverfi
á Siglufirði.
Siglfirðingar bjuggu þá upp á
forna vísu, og lífskjörin breyt-
ingalítil um aldaskeið. Þeir
stunduðu jöfnum höndum sjó-
sókn og landbúnað. í Siglu-
fjarðarbyggðum voru um þetta
leyti 22 bújarðir, flestar litlar og
gátu ekki borið stór bú. Þá voru
íbúar í Hvanneyrarhreppi
aðeins 260.
Norðlendingar höfðu
stundað hákarlaveiðar um
langan aldur, mest á opnum
fleytum, en þó voru árið 1864
fimm þilskip í Hvanneyrar-
hreppi. Útflutningur var þá
einkum lýsi og skreið, en einnig
var harðfiskurinn notaður í
vöruskipti innanlands milli
útvegsmanna og sveitabænda.
Lýsisbræðsla var á vegum
verslunarinnar, mest í opnum
pottum, en seinna var komið
upp gufubræðslu og varð lýsið
þá betri vara. Fiskur var aðal-
lega veiddur haust og vor, enda
var gott til fanga á grunn-
miðum á þessum tímum.
Sjávargagnið drýgði í búi
hjáSiglfirðingum.
Eftir að Snorri tók við stjórn
Siglufjarðarverslunar hófst
hann handa um að efla sjávar-
1 útveginn. Hann eignaðist hlut í
hákarlaskipum og gerði til-
raunir með þorskveiðar á þil-
skipum. Blómaskeið hákarla-
veiðana er talið tímabilið
1860—1880. Árið 1873 voru 14
hákarlaskip í eigu Siglfirðinga
og Fljótamanna. Sjálf verslun-
in dafnaði vel undir stjóm
Snorra og var talin ein sú arð-
samasta af verslunum Thaaes
kaupmanns.
Ánð 1870 urðu mikil tíma-
mót í verslun og viðskiptum
Norðlendinga. Þá var stofnað á
Akureyri hið svokallaða
Gránufélag. Aðalforgöngu-
maður þess og framkvæmda-
stjóri var Tryggvi Gunnarsson.
Þeir Tryggvi og Snorri voru
miklir vinir og höfðu mikil
bréfaviðskipti. Eftir að Gránu-
félagið var orðin sterk hreyfing
var Snorri þess mjög fýsandi að
það keypti Siglufjarðarverslun.
Af því varð þó ekki fyrr en eftir
lát Chr. Thaaes, sem andaðist
1875. Árið eftir, eða 1876
keypti Gránufélagið veiblunina
á Siglufirði og þau mannvirki
og eignir sem henni fylgdu, þar
á meðal hafskipabryggju.
Snorri varð svo áfram versl-
unarstjóri og færðist nú í auk-
ana.
Þilskipaábyrgðarfélag var
stofnað á Akureyri 1866 og vai
sérstök deild í því undir stjórn
Snorra Pálssonar. Félagið lét til
sín taka um menntun skipstjóra
á hákarlaskipum. Jón Loftsson,
bóndi og skipstjóri í Efra
Haganesi í Fljótum var kennari
skipstjóranna og skipstjóra-
efnanna. Hann var einn
menntaðasti skipstjórinn á
félagssvæðinu.
Þann 1. janúar 1873 var
„Sparisjóður Siglufjarðar“
stofnaður. Snorri var einn
helsti hvatamaður að stofnun
hans og var hann gjaldkeri
sjóðsins til dauðadags. Þetta er
nú elsta starfándi peninga-
stofnun landsins.
Árið 1880 beitti Snorri sér
fyrir stofnun Ekknasjóðs Siglu-
fjarðar, ásamt öðrum góðum
mönnum. Mjög mikið var um
sjóslys á tímum hákarlaveið-
anna, enda var hart sótt. Þessi
sjóður er ennþá til, og er í vörslu
Siglufjarðarkaupstaðar.
Stofnað var Síldveiðifélag
Eyfirðinga árið 1880, að frym-
kvæði Tryggva Gunnarssonar
og Snorra.
Síldin var þá mikil inná
Eyjafirði og Siglufirði og veidd í
landnætur. Snorri lét salta í 650
tunnur og seldi þær til útlanda
haustið 1881. Var það fyrsti
síldarútflutningur fslendinga.
Því miður varð þessi starfsemi
endaslepp, þar sem árið 1882
lokuðust öll mið af hafís, og
mikil harðindi voru í landinu,
svo starfsemin hætti.
Á árinu 1878 stofnuðu þeir
Snorri og Einar B. Guðmunds-
son alþingismaður á Hraunum í
Fljótum, sem var giftur
Kristinu systur Snorra, fyrir-
tæki sem átti að annast niður-
suðu matvæla.
Forstöðumaður fyrirtækisins
var Hafliði Guðmundsson, sem
einnig var blikksmiður og
smíðaði umbúðir um vörurnar.
Snorri og Hafliði voru systr-
synir en móðir Hafliða var
Ragnheiður Þorsteinsdóttir frá
Laxámesi. Hafliði var síðar
oddviti og hreppstjóri á Siglu-
firði í 23 ár, og gegndi ýmsum
öðrum trúnaðarstörfum.
Hafliði var vinsæll og vildu allir
hlíta forsjá hans, enda góðvilj-
aður og glaðvær.
Norskir vinir hans reistu
honum minnisvarða við hús
hans, í þakklætisskyni fyrir
veitta aðstoð.
Niðursuðan var rekin í
nokkur ár og reyndust vörurnar
mjög vel. Aðallega voru soðnar
niður kjötvörur s.s. kindakjöt,
kæfa, rjúpur, svo og silungur í
olíu. Löngu seinna flutti Einar
á Hraunum niðursuðuna til
Haganesvíkur, og starfrækti
hana þar um nokkurt skeið.
Fyrir áeggjan Snorra var um
1875 byrjað að salta fisk á
Norðurlandi og fékk hann sér-
fróðan mann til þess að kenna
saltfiskverkun. Þetta varð síðar
mikilvæg útflutningsvara.
Það var mikið lán fyrir Sigl-
firðinga, að Snorri Pálsson var
kosinn annar þingmaður
Eyfirðinga árið 1875. Sat hann
á þingi til 1879.
Á þessum stutta ferli, sem al-
þingismaður, kom hann í gegn
mörgum nauðsynjamálum fyrir
sitt heimahérað með góðri hjálp
samþingmanna. Fyrir atbeina
Snorra var lagfæring gerð
áveginum yfir Siglufjarðar-
skarð á kostnað Landssjóðs.
Þar hafði til foma verið gerður
einskonar dyr í gegnum þunna
fjallseggina. En við þessa
breytingu var skarðið lækkað
og vegurinn breikkaður svo að
það varð sæmilega fært klyfj-
uðum hestum.
Stofnað var sérstakt læknis-
hérað á Siglufirði sem náði yfir
Siglufjörð, Ólafsfjörð, Grímsey
og þrjú prestaköll í austanverðri
Skagafjarðarsýslu.
Þetta var á þinginu 1875, sem
samþykkt var ný skipan
læknishéraða á íslandi. Áður
þurftu Siglfirðingar og nær-
sveitamenn að leita læknis til
Akureyrar, sem reyndist að
sjálfsögðu erfiðleikum bundið.
Fyrsti héraðslæknir Siglfirð-
inga var Helgi Guðmundsson.
Sagt er að í læknisleysinu haf
Snorri Pálsson fengist vic
lækningár og hjálpað mörgum.
Á þessum árum var Siglu-
fjörður gerður að viðkomustað
strandferðaskipanna, en áður
höfðu þau farið framhjá á
ferðum sínum. Þetta var nauð-
synjaverk, sem verslunarstjór-
inn skildi manna best, vegna
síns aðalstarfs.
Þá var samþykkt að póst-
ferðir skyldu teknar upp til
Siglufjarðar, en áður gekk
pósturinn aðeins til Hofsóss.
Póstafgreiðsla var jafnframt
stofnuð á Siglufirði. Allt þetta
hafði geysilega þýðingu fyrir
Siglfirðinga, og vissulega má
eigna Snorra afgreiðslu þessara
mála, enda var hann manna
kunnugastur þörfum sveitunga
smna, og hann var alltaf fús til
að leysa málin með dugnaði.
Snorri hafði forgöngu um
það á Alþingi að koma upp
minnisvarða um Hallgrím
Pétursson sálmaskáldið mikla.
Sá varði stendur við dómkirkj-
una í Reykjavík.
Hins mikla athafnamanns
Snorra Pálssonar naut því
miður við of skamman tíma.
Hann var verslunarstjóri á
Siglufirði aðeins í 19 ár. Hann
andaðist úr taugaveiki þann 13.
febrúar 1883, öllum harm-
dauðl.
Snorri var talinn hamingju-
maður í einkalífi sínu og bjó
kona hans Margrét Ólafsdóttir
honum gott heimili. Þau hjónin
eignuðust 7 börn, en fjögur
náðu fullorðinsaldri. Bárna-
dauði var mjög algengur á þeim
tímum. Maddama Margrét, en
svo var hún jafnan kölluð,
byggði sér einbýlishús árið
1884. Þar bjó hún ásamt börn-
um sínum í nokkur ár, en flutt-
ist síðan til fsafjarðar. Hún lést
á Siglufirði árið 1926.
Hafliði Guðmundsson keypti
„Maddömuhúsið“ 1898 og bjó í
því til dauðadags árið 1917. Þar
býr nú (1989) sonardóttir hans
frú Sigríður Guðmundsdóttir,
ásamt eiginmanni sínum Hirti
Ármannssyni fyrrv. íögreglu-
þjóni.
Það var gæfa Siglufjarðar, að
hinn mikli athafnamaður
Snorri Pálsson, skyldi ráðast til
Siglufjarðar, sem verslunar-
stjóri. Hann var frumkvöðull
nýrra atvinnuvega og mikill
baráttumaður frjálsrar versl-
unar á Norðurlandi. Hann var
hinn mikilhæfasti maður og
kom allmikið við sögu marg-
víslegra mála bæði utanhéraðs
og innan.
Hann andaðist aðeins 43 ára
gamall og óefað hefði hann af-
rekað miklu, ef honum hefði
enst lengri aldur.
Á næsta ári, þann 4. febrúar
1990 verða liðin 150 ár frá fæð-
ingu Snorra Pálssonar, og væri
ærin ástæða til þess fyrir Sigl-
firðinga að minnast þess hátíð-
lega.
16. desember 1989.
Þ. Ragnar Jónasson.
Gleöileg jól!
Farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á
liðna árinu.
Veiðarfœraverslun
Sig. Fanndal