Siglfirðingur - 23.12.1989, Side 10
10
Siglftr&llflpir
Vilhjálmur Egilsson:
Gefumst ekki
Við gerum að sjálfsögðu þá
kröfu að halda yfirráðum
okkar yfir fiskimiðunum og
það gengur alls ekki að undir-
gangast sameiginlega fisk-
vieðistefnu Evrópubandalags-
ins. Við ömumst oft við
kvótanum og öðrum þeim að-
gerðum sem gripið hefur verið
til við stjórn fiskveiðanna hér
við land. Það stendur þó eftir
sem staðreynd að okkur hefur
um flest tekist betur til við að
varðveita fiskistofna okkar en
þjóðum Evrópubandalagsins.
íslendingum er einum
treystandi til þess að varðveita
og byggja upp þá auðlind sem
fiskurinn í sjónum umhverfis
iandið er og því má alls ekki
gefa eftir í þessu máli.
Ríkið tekur ekki þátt
í erfiðleikunum
Næsta ár verður erfiðleika-
ár í atvinnulífi okkar og
heimilin í landinu munu enn
þurfa að draga saman seglin.
Þetta er fyrst og fremst afleið-
ing af minnkandi sjávarafla
sem ekki þýðir að fást um.
Erfiðleikar heimilanna eru því
miður magnaðir með óvitur-
legum skattahækkunum sem
þýða um 7000 krónur á
mánuði í hærri skattbyrði fyrir
vísitölufjölskylduna títt-
nefndu.
Við höfum tekið eftir því að
í langflestum fyrirtækjum
landsins er verið að draga
saman seglin, hagræða og
spara og reyna að greiða niður
skuldir. Mörg fyrirtæki hafa
sligast undan skuldunum og
orðið gjaldþrota. Á heimilun-
um hefur líka verið dregið
saman og fólk leyfir sér ekki
það sama og áður.
bita af minni köku. Ekki er
svo teljandi sé verið að stokka
upp og spara í ríkisstofnunum
og þess vegna fer sem fer.
Verðbólgan næst ekki
niður
Á undanförnum vikum
hefur verið rætt um svokall-
aða „núlllausn" í kjarasamn-
ingum. Hætt er við því að
klúðurdeildin í stjórnarráðinu
sjái til þess að slík leið verði
ekki fær með því að hækka
skatta og eyðileggja með því
grunninn fyrir því að fólk geti
sætt sig við litlar kauphækk-
anir.
Því má búast við að næsta ár
verði með svipaðri verðbólgu
eins og það ár sem nú er að
liða. Verðbólgan þýðir að
sjálfsögðu að hagur heimil-
anna versnar meira en hann
þyrfti að gera. Skynsamlegast
væri að ná verðbólgunni sem
allra mest niður. Þá verður
fólki miklu meira úr pening-
unum þrátt fyrir lækkandi
kaupmátt og þá er hægt að ná
niður vöxtum.
Úr öldudalnum liggur
leiðin upp
Við megum ekki láta erfið-
teikana hafa of mikil áhrif á
okkur. Við verðum áð eygja
möguleikana til framfara og
betri kjara. Við skulum ekki
búast við neinu á næsta ári.
Minnkandi afli þýðir alltaf að
Islendingar þurfa að draga
saman seglin. En þá verður
botninum líka náð.
Á árinu 1991 fer aftur að
rofa til og takist vel til með
samninga við Evrópubanda-
lagið skapast miklir mögu-
leikar fyrir sjávarplássin á Is-
landi.
Jól og áramót eru tími
hátíðahalda og gleði, en einnig
tími uppgjörs við fortíðina og
umhugsunar um framtíðina.
Ekkert getur tekið jólin og
gleðina sem þeim fylgir frá
okkur. Við höldum alltaf jólin
sama hverju á gengur.
Árið sem nú er að líða hefur
um margt verið erfitt. Við
höfum séð fyrirtæki og heimili
lenda í vandræðum í stærri stíl
en í langan tíma og gjaldþrot
og fjárhagslegar hremmingar
hafa verið tíð. Siglufjörður
hefur ekki farið varhluta af
þessu ástandi.
Glæta í myrkrinu
Mikilvægt er á slíkum
erfiðleikatímum að láta ekki
hugfallast heldur að horfa til
framtíðarinnar og reyna að sjá
glætu í myrkrinu. Við skulum
gera okkur fulla grein fyrir
vandræðum sem mörg heimili
og fyrirtæki búa við, en við
megum ekki láta barlóminn
ná svo tökum á okkur að við
komum ekki auga á það sem
getur hjálpað okkur upp úr
erfiðleikunum.
Þrátt fyrir allt eru lífskjör á
íslandi með því sem best gerist
meðal þjóða heims. Á síðasta
ári vorum við í hópi 10 tekju-
hæstu þjóða heims og við
verðum á þessu og næsta ári í
hópi 20 tekjuhæstu þjóða
heims þótt afli og kaupmáttur
heimilanna minnki.
Fólkið er verðmæt--
asta auðlindin
Möguleikarnir framundan
eru miklir og ef við beitum
skynsemi er vel unnt að byggja
áfram upp atvinnulífið og
bæta lífskjör þjóðarinnar.
Sjávarútvegur verður enn
um hrið aðal útflutningsgrein
okkar og þrátt fyrir allt tal og
áform um stóriðju getur
ekkert komið í staðinn fyrir
sjávarútveginn á næstu árum
og áratugum.
Oft er talað um að sjávarút-
vegur byggi á takmarkaðri
auðlind sem er fiskurinn í
sjónum. Þetta er svo langt sem
það nær en sjávarútvegurinn
byggir líka á ókatmarkaðri
auðlind, en það er fólkið sem
við hann vinnur.
Framfarir á íslandi á
undanförnum árum hafa ekki
síst byggst á því að vinna meir
og betur úr sjávaraflanum og
gera meiri verðmæti úr fiskin-
um. Þetta hefur verið gert
með betri meðferð á fiski um
borð í skipum og vinnslu í
verðmætari afurðir.
Evrópubandalagið
skiptir máli
Þessi þróun mun halda
áfram. Það sem framundan er
i þessum efnum tengist ekki
síst viðræðum okkar við
Evrópubandalagið. Þegar við
hlustum á fréttir af viðræðum
fulltrúa okkar við Evrópu-
bandalagið virðast þessi mál
oft vera fjarlæg og ekki skipta
okkur beint máli.
En það er öðru nær.
Fríverslun með sjávarafyrðir
við Evrópubandalagið er eitt
mikilvægasta hagsmunamál
hvers einasta heimilis á íslandi
og ekki síst þeirra heimila þar
sem fyrirvinnurnar hafa tekjur
af sjávarútvegi.
Nú greiða íslendingar
verulegar upphæðir i tolla til
Evrópubandalagsins og má
ætla að á þessu ári séum við að
greiða um 1500 milljónir
króna. Þetta ér að sjálfsögðu
skattur sem leggst á alla þá
sem vinna við sjávarútveg og
nálægt 100 þúsund krónum á
hvem fullvinnandi karl eða
konu sem starfar í þessum at-
vinnuvegi.
Tollamir sjálfir eru þó ekki
aðal málið. Þessir tollar gera
það líka að verkum að marg-
vísleg vinnsla borgar sig ekki
sem myndi vera hagkvæm ef
tollarnir væru ekki til staðar.
Þannig tapast líklega enn
hærri upphæðir en þær sem
við borgum í tolla.
8% tollur á
ferskum flökum
Til dæmis er 18% tollur á
ferskum fiskflökum inn í
Evrópubandalagið sem
dregur mjög úr hagkvæmni
þess að flytja fersk flök með
flugi eða jafnvel skipum til
ríkja bandalagsins. Ef þessi
tollur fæst fellur niður og
sömuleiðis tollur af saltfiski
opnast stóriir möguleikar fyrir
sjávarplássin á landsbyggð-
inni.
Þær viðræður sem í hönd
fara milli íslands og Evrópu-
bandalagsins i samfloti við
EFTA þjóðirnar eru því afar
þýðingarmiklar fyrir alla
þjóðina og ekki síst fyrir þá
sem hfa og starfa í sjávar-
plássum víðsvegar um landið.
En á meðan allt þetta er að
gerast heldur ríkið áfram að
þenjast út og heimtar stærri
Með ósk um gleðileg jól og
þökk fyrir sa.mskiptin á
líðandi ári.
Óskum starfsfólki okkar og við-
skiptavinum gleðilegra jóla, árs og friðar
og þökkum samstarf og viðskipti
á liðandi ári.
Egilssíld h.f.
GleðUeg jól!
Farsælt komandi ár!
Þðkkum viðskiptin B|tre,ðaverkstæðl
Ragnars Guðmundssonar
Gleðileg
jól!
farsælt
komandi ár.
Siglufjarðarumboð:
Hinrik Andrésson.
Gleðileg jól!
Sendum Siglfirðingum
og landsmönnum öllum
bestu óskir um gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
BÆJARSTJÓRN
SIGLUFJARÐAR