Austurland - 13.04.1956, Page 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 13. apríl 1956.
Austurland
Ritstjóri: Bjarni Þórðarson.
NESPRENT H-P
Alþýðuflokksmenn
eiga um tvennt
að velja
Það er nú ákveðið, að Alþýðu-
flokkurinn mun ekki bjóða fram í
18 kjördæmum í Alþingiskosning-
unum í sumar. 1 þeim kjördæmum
ætlar flokksforystan alþýðuflokks-
fólki að kjósa Framsóknarmenn.
Margir Alþýðuflokksmenn
munu telja slíkt harða kosti.
Þeir hafa árum saman barizt við
Framsóknarmenn og suma hverja
heldur óblíðri baráttu.
Alþýðuflokksmenn í þessum
kjördæmum hafa undanfarin ár
heyrt foringja sína ráðast harka-
lega á Framsókn fyrir íhalds-
þjónkun hennar og árásarstefnu
ríkisstjórnarinnar á lífskjör vinn-
andi fólks.
Þessir Alþýðuflokksmenn muna
enn samþykktir Framsóknar um
gengislækkun, bátagjaldeyri, sölu-
skatt og nú nýverið nýju tolla- og
skattaálögurnar.
Þessir Alþýðuflokksmenn hafa
margir staðið í beinni baráttu í
verklýðsfélögum sínum gegn árás-
um Framsóknar-íhalds-stjórnarinn-
ar.
En nú er þeim allt í einu og án
skýringa sagt að kjósa gallharða
Framsóknarþingmenn, sem þeir
vita að eru andvígir þeim í skoð-
unum í mikilsverðum hagsmuna-
rnálurn almennings.
Þessir Alþýðuflokksmenn standa
flestir höggdofa frammi fyrir þess-
um fyrirskipunum foringja sinna,
Engum blöðum er um það að
fletta, að hægri foringjar Alþýðu-
flokksins hafa gefizt skilmálalaust
upp fyrir Framsókn.
Þeir hafa enga tryggingu fyrir
stefnubreytingu hennar.
Þvert á móti gerir Framsókn
sig líklega til áframhaldandi
íhaldsþjónustu. Áfram sitja ráð-
herrar hennar í íhaldsstjórninni og
áfram neita þeir að lögfesta nokk-
urt atriði sem sannað gæti breytta
stefnu í hagsmunamálum almenn-
ings.
Að taka gild kosningaloforð
Framsóknar er fásinna. Hún hefur
alltaf lofað öllu fögru fyrir kosn-
ingar. Og hún hefur nær undan-
tekningarlaust svikið öll sín loforð
eftir kosningar.
Vinstri menn vilja koma á sam-
starfi við Framsókn. Það er fyrst
og fremst vegna þess, að hún fer
með umboð sveita-alþýðunnar. Hún
ætti því að geta unnið til vinstri
vegna hagsmuna umbjóðenda
sinna.
En reynslan sýnir, að eigi Fram-
sókn að vinna til vinstri, þá v'erður
Dafnvœgi í byggð landsins
Framhald af 1. síöu.
Austfirðingar og Vestfirðingar
fögnuðu stækkun landhelginnar
syóra, en þeir væntu þess, að
þeirra hlutur kæmi síðar. Á hverju
ári hafa þingmenn úr þessum
landshlutum flutt tillögur um
leiðréttingu þessara mála umbjóð-
endum sínum í hag. En ríkisstjórn-
in og flokkar hennar hafa alltaf
stöðvað þessar tillögur.
Það er barnaskapur að búast
við jafnvægi í bátaútgerð lands-
manna og þar með í byggð lands-
ins á meðan misréttið í landhelg-
ismálunum er eins og það er nú.
Tillögur sósíalista
Við sósíalistar fiuttum tillögur
til breytinga á jafnvægisfrum-
varpi ríkisstjórnarinnar.
Vid lögoum til:
1. Að keyptir yrðu nýir togarar
og þeim dreift út um land.
Hafxn nkisútgerð togara til at-
vinnujöfnunar.
2. 50 milljónum ráðstafað til at-
vinnuuppbyggingar í þorpum
og kaupstöoum, einkum til
byggingar fiskvinnslustöðva og
til siórbættrar aðstöðu til
verkunar á miklu fiskmagni.
3. Landheigin fyrir Austur-,
Norður- og Vesturlandi stækk-
uð.
4. Aðstöðumunur jafnaður. Þann-
ig færi úthlutun innflutnings-
og gjaldeyrisleyfa fram í öllum
kaupstöðum landsins.
Sala gjaldeyris í öllum útibú-
um bankanna.
Afgreiðsla íbúðarlána færi
fram í öllum kaupstöðum.
hún að styðjast við öfluga vinstri-
lireyfingu úr öðrum flokkum.
Undansláttur dugar ekki fyrir
hægri foringja Framsóknar. En
öflug samtök verkalýðsins geta
knúið Framsókn til vinstri.
Afstaða hægri foringja Alþýðu-
flokksins til Framsóknar er því
háskaleg og býður heim þeirri
hættu, að Framsókn fari á nýjan
leik í hægristjórn.
1 18 kjördæmum landsins eiga
Alþýðuflokksmenn um tvennt að
velja í kosningunum í sumar.
Annars vegar að gefast skilyrð-
isla,ust upp fyrir Framsókn, að
kyssa á vöndinn, að styðja þá,
sem gegn þeim hafa unnið, — eða
að styðja Alþýðubandalagið, kosn-
ingasamtök vinstri manna, sam-
tök sem vOja vinstri stjórn með
Framsókn en þó á þeim grund-
velli, að hægri foringjar hennar
fái ekki að ráðast gegn hagsmun-
um vinnandi fólks.
Því verður ekki trúað, að Al-
þýðuflokksmenn, sem í raun og
veru eru verkalýðssinnar, láti æra
sig til þess að velja Framsókn í
kosningunum í sumar, flokkinn
sem enn 3Ítur i íhalds-ríkisstjórn.
Ríkisstjórnin semdi um fastar
áætlunarferðir beint frá út-
löndum til hafnarbæja í öllum
landshlutum.
Við sósíalistar bentum á, að við
hefðum á hverju þingi undanfar-
in ár flutt frumvörp og tillögur
um þessi og önnur efni, sem þýð-
ingu hefðu til lausnar á því mikla
vandamáli að byggðin eyðist í
þremur landshlutum, en vex ó-
eðlilega í einum.
Þegar hér var komið gáfust
stjórnarflokkarnir upp með jafn-
vægisfrumvarp sitt.
Framsókn var orðin hrædd við
málið. Hún samþykkti nokkrar
tillögur okkar, þó ekki um kaup
á togurum og ekki um aðstöðu-
jöfnunina, en um ríkisútgerð tog-
ara og um aukna þátttöku ríkis-
ins í togaraútgerð sv,eitarfélaga.
Slík samþykkt, ef ekki á að kaupa
togara, er lítils virði.
En áhuginn entist ekki til að
ljúka málinu. I kosningunum í
sumar á auðvitað að lofa á nýjan
leik „jafnvægi í byggð landsins",
en vita mega menn, að engar verða
efndir á þeim loforðum, nema
styrkur þeirra manna verði nægur
á Alþingi sem skilja hið raunveru-
lega vandamál og sýnt hafa í verki
að þeir ætla að fylgja eftir tillög-
um sem geta leyst vandann.
j, Vandamál fólksflutninganna úr
þremur landshlutum verður aldrei
leyst með kákráðstöfunum Fram-
sóknar eða íhaldsins,
Fimm milljóna króna atvinnu-
bótafé á ári leysir ekki þennan
vanda og heldur engir smá styrk-
ir, vegarspottar eða annað þess
háttar.
Stórfelld uppbygging atvinnu-
lífsins úti á landi á grundvelli
þeirra tillagna sem Alþýðusam-
band Islands hefur lagt fram, er
eina ráðið.
Lúðvík Jósepsson.
764 á kjörskrd
Á kjörskrá þeirri, er kjósa á eft-
ir hér í bænum til Alþingis í vor
eru V64 nöfn. Af þeim, sem á kjör-
skrá eru, hafa 12 ekki kosninga-
rétt í vor, þar sem þeir hafa ekki
á kosningardaginn náð 21 árs
aldri. Með atkvæðisrétti eru þá á
skránni 752 kjósendur, en það
muni nær fjórði hver kjósandi í
kjördæminu. Miðað við venjulega
kosningaþátttöku hér í bæ má ætla,
að hér verði í vor greidd 680—700
atkvæði.
Á kjörskrá til bæjarstjórnar-
kosninga, sem samin var jafnhliða
hinni, eru 784 nöfn, en á kjörskrá
þeirri, sem kosið var eftir við síð-
ustu bæjarstjórnarkosningar voru
788 nöfn.
Löng hrókering
Þau tíðindi hafa nýlega gerzt,
að skattstjórinn í Neskaupstað,
Jón Sigfússon, hefur fengið veit-
ingu fyrir skattstjóraembættinu í
Kópavogi, en embættið hér hefur
fengið Vilhjálmur Sigurbjörnsson,
fyrrverandi kennari á Eiðum. Er
veiting þessi nokkurt umræðuefni
manna í bænum, því að Vilhjálm-
ur hefur fengið leyfi frá kennslu
að Eiðaskóla til þess að stunda
nám erlendis í greinum þeim sem
hann kenndi á Eiðum. Bróðir
hans var skattstjóri á Isafirði en
er hann lét af því starfi var Vil-
hjálmi hrókerað í hans embætti og
nú hingað.
Ekki skal dregið í efa að Vil-
hjálmur sé fær til þess að gegna
þessu starfi þótt undarlegt sé að
veita það manni sem hefur fengið
leyfi frá kennslu á þeim forsend-
um að hann sé að undirbúa sig
undir áframhaldandi kennslustörf.
Hitt er furðulegra að bæjarbúum
skuli ekki gefinn kostur á að
sækja um stöðuna, því vitað er um
nokkra menn sem hafa verið bú-
settir hér í bænum áratugum sam-
an og eru prýðilega hæfir til þess
að gegna starfinu, og hefðu sótt
um það ef tækifæri hefði gefizt.
En það er Eysteinn sem veitir
starfið og nýi skattstjórinn er yf-
irlýstur Framsóknarmaður. Það
reið baggamuninn. X.
Dönsku konungs-
hjónin heimsækja
r
Island
Friðrik IX. Danakonungur og
Ingrid drottning hafa verið í opin-
berri heimsókn á íslandi og er það
fyrsta opinbera heimsókn erlends
þjóðhöfðingja síðan lýðveldið var
stofnað.
Konungshjónunum hefur verið
mjög vel fagnað, sem vænta mátti.
Hafa þau skoðað ýmsar stofnanir
syðra svo sem söfn og Reykja-
lund heimsóttu þau og þótti sú
starfsemi, sem þar er rekin, hir
merkasta. Þá var sérstök hátíða-
sýning í Þjóðleikhúsinu þeim til
heiðurs og í tilefni konungskom-
unnar var á vegum ríkisstjórnar-
innar efnt til danskrar listsýningar
í Reykjavík.
Héðan fóru konungshjónin ‘
morgun áleiðis til Grænlands.