Austurland - 18.05.1956, Page 4
4
AUSTURLAND
Neskaupstað, 18. maí 1956.
Rússlandsníð og kosningar
Það er gömul saga, sem alltaf
endurtekur sig við hverjar kosn-
ingar, að þá er allt það sem ljót-
ast hefur verið sagt um Rússa
dregið fram og gert að höfuðmáli
í íslenzkri þjóðmálabaráttu.
Þegar velja á íslenzka Alþing-
ismenn, þá er af ótrúlegum hávaða
hrópað um það hve illir menn
Rússar séu. Þegar velja á bæjar-
fulltrúa, eða trúnaðarmenn 1 fé-
lögum, þá er hamrað á því að viss-
ir menn séu stórhættulegir vegna
þess, að Rússar hafi þá í hendi
sinni.
Nú er Rússlandsníðið byrjað,
enda kosningar að nálgast.
Nú eru sagðar miklar sögur af
ræðu, sem Rússi á að hafa haldið
þar eystra á lokuðum fundi. Auð-
vitað hefur ræða þessi hvergi ver-
ið birt af réttum aðilum, en Morg-
unblaðið hefur sagt lesendum sín-
um hvað í ræðunni muni hafa ver-
ið.
Nú verður það auðvitað að stór-
máli í íslenzkum Alþingiskosning-
um, að Stalín hafi verið einræðis-
sinnaður síðustu ár ævi sinnar og
og í ýmsum tilfellum gert stórfelld
mistök og beri jafnvel ábyrgð á
beinum glæpum.
Og af þessum fréttum og full-
yrðingum, sem sumar kunna að
vera sannar, en margar ósannar
og yfirleitt allar óstaðfestar, á svo
að draga þá ályktun, að ekki sé
hægt að kjósa Lúðvík Jósepsson á
Alþing og að ekki megi trúa
Bjarna og Jóhannesi, svo dæmi séu
tekin héðan, fyrir bæjarmálum í
Neskaupstað.
Hliðstætt þessari rökfærslu væri
að halda því fram að ekki sé hægt
að kjósa Eystein Jónsson á Al-
þing af þeirri ástæðu að forystu-
menn Breta fremji nú hin verstu
glæpaverk á körlum og konum á
Kýpur og láta myrða alla, bæði
unga og gamla, í heilum þorpum
í Kenya, samkvæmt frásögn
brezkra fréttamanna.
Eysteinn telur Bretland fyrir-
myndar lýðræðisland og dásamar
forystumenn þar í landi.
Á sama hátt væri hægt að telja
alla jafnaðarmenn á Islandi glæpa-
menn, vegna þess að forsætisráð-
herra Frakklands, sem er jafnað-
armaður, lætur um þessar mundir
fremja hina verstu glæpi á Mar-
okkóbúum og Alsírbúum í Afríku.
Vissulega geta forystumenn í
RúSsIandi drýgt. glæpi og þnð er
hörmulegt þegar slíkt gerist.
Hitt er áróður af lægstu hvötum
runninn, þegar reynt er að kenna
íslenzkum sósíalistum um mistök
eða glæpi Rússa.
Aki og Rússar
Gott dæmi um óheilindi og
blygðunarleysi þeirra, sem æpa
sitt Rússlandsníð gegn sósíalist-
um, er fognuður þeirra og mont
yfir því, að Áki Jakobsson skuli |
nú bjóða sig fram fyrir Alþýðu-
flokkinn og Framsókn.
Áki var í Kommúnistaflokknum
öll þau ár sem hann var til (hann
var reyndar lagður niður fyrir 17
árum). Áki var í Sósíalistaflokkn-
um fram yfir dauða Stalíns. Hann
var alla tíð einn rauðasti komm-
únisti landsins, enda óspart kall-
aður Rússadindill og Stalínisti og
agent Rússa á Islandi.
En nú er þessi Áki hreinn eng-
ill. Nú er hann til að státa af fyr-
ir Framsóknarmenn.
Það er aldeilis munur á Rússa-
umboðsmanninum Áka og Lúðvíki
Jósepssyni, Hannibal Valdimara-
syni, Alfreð Gíslasyni lækni og
öðrum slíkum. Hafa menn heyrt
lágkúrulegri röksemdir en þetta?
Af því að Stalín var vondur,
má lækka kaupið
En um hvað er deilt í kosning-
unum? Er það deilan um Stalín,
sem ráða á úrslitum um kjör Al-
Auk framboðanna í Austfjarða- 1
kjördæmunum, sem frá er skýrt
annars staðar í blaðinu, hafa eft- j
irtalin framboð verið tilkynnt af
hálfu Alþýðubandalagsins:
ísaf jörður: Guðgeir Jónsson,
bókbindari.
Snæfells- og Hnappadalssýsla:
Guðmundur J. Guðmundsson,
verkamaður.
Austur-Húnavatnssýsla: Lárus
Valdimarsson, verkamaður.
Skagaf jarðarsýsla:
Bergmundur Guðlaugsson tollv.
Haukur Hafstað, bóndi,
Jón Friðbjörnsson, verkamaður,
Guðm. H. Þórðars. héraðslæknir.
Enn hefur Alþýðubandalagið
ekki tilkynnt framboð í 9 kjör-
dæmum, en flest eru þó framboð-
in ráðin og verður frá þessu skýrt
í Utsýn næsta mánudag.
Framboð andstæð-
inganna á Austurl.
Á Seyðisfirði hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn tilkynnt framboð Lár-
usar Jóhannessonar, alþingis-
manns. Áður hefur verið frá því
skýrt að Björgvin Jónsson verði
þar í kjöri fyrir hræðslubanda-
lagið.
Listi Framsóknarmanna í Suð-
ui-Múlasýslu er svo skipaður:
Eysteiim Jónsson, Vilhjálmur
Hjálmarsson, Stefán B. Björnsson
og Stefán Einarsson.
í Norður-Múlasýslu skipa þess-
ir menn lista íhaldsins: Árni G.
Eylands, Helgi • Gíslason, Sigmar
Torfasón og Jónas Péturesdn, ©n
þingismanna? Eða eru það íslenzk
málefni, sem ráða eiga afstöðu
hugsandi manna?
Geta menn t. d. samþykkt kaup-
lækkun, ef það reynist rétt að
Stalín hafi verið vondur maður?
Geta menn kannski samþykkt
nýju tollana og sífellt aukna dýr-
tíð, með þeirri röksemd að Rúss-
ar séu svín?
Vita ekki allir að í þessum kosn-
ingum er deilt um ákveðin mál,
sem skipta lífsafkomu allra lands-
manna ?
Á kosningadaginn verður hver
og einn að svara því með atkvæði
sínu, hvort hann er samþykkur:
áframhaldandi hersetu, nýju
tolla- og skattaálöguniun, neit-
un á útfærslu landhelginnar,
kauplækkunartilraunum, ísfisk-
sölum til Breta í stað fisk-
vinnslu, neitun stjórnarflokk-
anna á að kaupa nýja íogara
o. s. frv., o. s. frv.
Séu kjósendur samþykkir stefnu
Framhald á 3. siðu.
í Suður-Múlasýslu er listi þess
svo skipaður: Einar Sigurðsson
(Rvík), Axel V. Tulinius, Páll
Guðmundsson og Ingólfur Fr.
Hallgrímsson.
Þjóðvarnarmenn hafa verið að
reyna að hnoða saman framboð-
um í Austfjarðakjördæmunum og
hefur tekizt, eftir miklar þrautir,
að koma á laggirnar framboðum
í sýslunum, en á Seyðisfirði fundu-
þeir engan þjóðvarnarmann.
Framboðin hafa ekki verið birt
opinberlega og þykir því ekki rétt
að skýra frá þeim hér.
Sigríður Hannes-
dóttir í kjöri á
Seyðisfirði
Af hálfu Alþýðubandalagsins
hefur verið ákveðið að Sigríður
Hannesdóítir verði í kjöri á Seyð-
isfirði.
Sigríður er húsmóðir, búsett í
Reykjavík. Hún hefur lengi staðið
mjög framarlega í samtökum
reykvískra verkakvenna og mikið
starf á hún að baki í Alþýðu-
flokknum, en þaðan hefur hún nú
verið rekin.
Enginn efi er á því, að alþýða
Seyðisfjarðar, ekki sízt kvenþjóð-
in, mun gera sigur Sigríðar glæsi-
legan. Hún er einn þeirra fram-
bjóðenda, sem hefur möguleika til
að hreppa uppbótasæti, en til þess
að það sé tryggt, þarf hún að fá
um 100 atkvæði. Og seyðfirzkri al-
þýðu er vel trúandi til að láta þau
í té.
flr bænum
Kirkjan
Hvítasunnudagur: Fermingar-
guðsþjónusta og altarisganga kl.
2. — Öll sæti í kirkjunni niðri, eru
frátekin fyrir skyldulið ferming-
arbarnanna.
Annar í hvítasunnu: Messa í
Mjóafjarðarkirkju kl. 2.
Afmæli:
Karl L. Marteinsson, verkamað-
ur Sólhóli, varð 50 ára í. gær —
17. maí. Hann fæddist í Litlu-
Breiðuvík í Helgustaðahreppi, en
fluttist hingað 1934. Karl hefur
tekið mikinn þátt í verklýðshreyf-
ingunni og lengi verið í stjórn
verklýðsf élagsins.
Gísli Vilhjáhnsson, Bjargi, varð
65 ára í gær, 17. maí. Hann
fæddist á Brekku í Mjóafirði, en
fluttist hingað í hitteðfyrra.
Dánardægur:
Sigríður Gísladóttir, ekkja Berg-
sveins Ásmundssonar Grund, and-
aðist laugardaginn 12. maí. Hún
var fædd að Krossi í Mjóafirði 1-
des. 1867 og varð því 88 ára göm-
ul. Hún átti heima hér í bæ frá
1914.
Fermingarbörn í Norðfjarðar-
kirkju 20. maí 1956.
Stúlkur:
Anna Sigfinnsdóttir, Grænanesi
Árný Lára Ólafsdóttir, Þórh.g. lB
Elínborg Eyþórsd., Stekkjarg. 3
Élsa Sæný Gísladóttir, Seldal
Elsa Gjöveraa, Strandg. 11
Erla Flosadóttir, Hlíðargötu 24
Helga Guðný Axelsdóttir, Ekru
Hulda Aðalsteinsdóttir, Ormsst.
Hulda Filippusdóttir, Nesg. 12C
Ingunn Sveinsdóttir, Hlíðarg. 44
Magnea Þorfinnsdóttir, Vífilsfelli
Margrét Björnsdóttir, Strandg. 2
María Hjálmarsdóttir, Björgvin
Ólöf Njálsdóttir,' Hlíðarg. 28A
Steinunn Jónsdóttir, Strandg. 9.
Steinunn Elínborg Jónsdóttir,
Strandgötu 12.
Drengir:
Ágúst Theodór Blöndal Björnsson,
Strandg. 8
Ármann Herbertsson, Þórshamri
Eiríkur Sævar Bjarnas. Þórh.g. 4
Grétar Sveinsson, Grænuhlíð
Guðni Þór Stefánsson, Valhöll
Hans Jakob Beck Sigfússon, Von-
arstræti 12
Hjálmar Haraldsson, Kirkjuhvoli
Jóhann Sigurjónsson, Ekrustíg 3
Jóhann Zoega, Strandgötu 9
Jón Guðmundsson, Nesgötu 5
Jón Einar Jóhannss,. Hlíðarg. 26E
Leó Sigurjón Sveinsson, Borgho
Loftur Ólafsson, Strandg. 16
Magni Kristjánss., Barnaskólanun
Ólafur Haukur Ólafss., Hlíðarg. 1'
Óskar Þórarinn Karlsson, Skála-
teigi
Sigurður Hafsteinn Benjamínsson
Þórhólsgötu 6
Viilgarður Jóhannessö*, Sðllaeimi
Framboð