Austurland - 25.05.1956, Page 2
2
AUSTURLAND
Neskaupstað, 25. maí 1956.
Kaslið ekki aikvæðum
ykkar á glæ
Alþýðuflokksmenn í þeim kjör-
dæmum, sem flokkurinn hefur ekki
frambjóðanda, eru nú mjög hvatt-
ir til að kjósa Framsókn og bæði
litlir og stórir spámenn eru send-
ir út um landsbyggðina til að
prédika Alþýðuflokksmönnum það
fagnaðarerindi að þeir eigi alls
ekki að kjósa Alþýðuflokkinn.
Hafa ýmsir grónir Alþýðuflokks-
menn átt erfitt með að kingja
þessum bita. Sumir þeirra hafa lát.
ið órð liggja að því, að þéir mundu
Hvers vegna var
ekki kallað saman
aukaþing A. S. í.?
Hræðslubandalagsmenn leitast
nú við að fá menn til að trúa því
að meirihluti verklýðsfélaganna sé
andvígur forgöngu miðstjórnar
Alþýðusambandsins fyrir myndun
kosningasamtaka alþýðunnar.
Átelja þeir miðstjórnina fyrir að
kalla ekki saman aukasambands-
þing og reyna að teja fólki trú
um að hún hafi ekki þorað.
Allt er þetta helber þvættingur
fram borinn í því skyni að blekkja
verkalýðinn.
En það voru aðrir, sem ekki
þorðu.
í lögur Alþýðusambandsins, 35.
gr., segir svo um aukaþing:
„Aukaþing skal sambandsstjórn
kalla saman, þegar henni þykir
þurfa eða meirihluti sambandsfé-
laganna krefst þess skriflega“.
Miðstjórnin hafði enga ástæðu
til að kalla saman aukaþing. Hún
vissi sig vera að starfa 1 fullu
samræmi við yfirlýstan vilja síð-
asta þings sambandsins.
En hvers vegna beitti hræðslu-
bandalagið sér ekki fyrir því að
aukaþing yrði kvatt saman? Því
hefði ekki átt að veitast örðugt
að fá annað hvert verklýðsfélag í
landinu til að krefjast þings, ef
verklýðssamtökin eru jafn andvíg
afstöðu miðstjórnarinnar og haldið
er fram.
Ástæðan fyrir þessu er sú, og
sú ein, að hræðslubandalagið vissi
vel að því hefði aldrei tekizt að
fá meirihluta verklýðsfélaganna til
að krefjast þings, vegna þess að
meginhluti þeirra er fylgjandi
baráttu miðstjórnarinnar fyrir
stjórnmálalegri einingu alþýð-
unnar,
Miðstjórnin hefði að sjálfsögðu
kallað saman aukaþing eins fljótt
og kostur var á, ef nægilega mörg
félög hefðu krafizt þess.
En hræðslubandalagið þorði
ekki að snúa máli sínu til hinna
ýmsu v&rkfýð’sfélaga.
hafa þessi fyrirmæli að engu og
kjósa landslista flokks síns, kjósa
ekki eða kjósa með Alþýðubanda-
laginu.
Einn þessara manna er Oddur
A. Sigurjónsson. Hann hefur til
skamms tíma staðhæft að hann
mundi kjósa landslista síns flokks
og ekki aðeins hann einn heldur
mundi hann, Oddur, sjá til þess,
að 100—200 aðrir færu eins að.
Rök Odds voru einkum tvenns-
konar fyrir þessari afstöðu.
I fyrsta lagi hefði Framsókn
bolmagn til að koma að báðum
sínum mönnum af eigin ramleik
og féllu því þau atkvæði, sem Al-
þýðuflokksmenn létu henni í té,
dauð, því enga möguleika hefði
Framsókn til að hreppa uppbóta-
sæti. — Þetta er laukrétt athugað
og ólíkt Oddi að draga svona raun-
hæfar ályktanir.
í öðru lagi væru Alþýðuflokks-
menn hér á engan hátt bundnir af
samningi Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins um kosninga
samvinnu, því flokkurinn hefði
látið undir höfuð leggjast að fá
leyfi hjá honum, Oddi A. Sigur-
jónssyni, til að fara í vist til
Framsóknar. Oddur er í flokks-
stjórninni og mislíkaði að málinu
skyldi til lykta ráðið af embætt-
ismannaklíku flokksins í Reykja-
vík.
En svo skeður það, að hingað
kemur Eysteinn Jónsson og hefur
sem meðreiðarsvein Guðmund 1.
Guðmundsson. Taka þeir Odd til
bæna og ekki var nú karlmennsk-
an meiri en það, að nú er hann
formaður í kosninganefnd krata,
sem hefur það verkefni að sjá um
að fylgismenn Alþýðuflokksins hér
í bæ rati rétta leið til Framsóknar
á kjördegi.
En það er ástæða til þess fyrir
Alþýðuflokksmenn að staldra við
og athuga sinn gang áður en þeir
kasta atkvæði sínu á Framsókn.
í þessu kjördæmi bjóða fjórir
flokkar fram, Alþýðubandalagið,
Framsóknarflokkurinn, Sjálfstæð-
isflokkurinn og Þjóðvarnarflokk-
urinn. Röksemd Odds, að atkvæði,
sem Alþýðuflokksmenn kasta á
Framsókn, séu dauð, er í fullu
gildi.
Sama er að segja um Sjálfstæð-
isflokkinn. Þeir verkamenn, sem
kunna að láta glepjast til að greiða
honum atkvæði, eru ekki aðeins
að kjósa sinn höfuðandstæðing í
hagsmuna- og mannréttindabar-
áttunni, heldur eru þeir einnig að
ógilda atkvæði sitt. Sjálfstæðis-
flokkurinn getur ekki fengið upp-
bótasæti, nema kjördæmakosnum
þingmönnum hans fækki stórlega,
en til þess eru engar líkur. — öll
atkvæði sem Sjálfstæðisflokkurinn
fær í Suður-Múlasýslu falla ógild.
Öllum fregnum ber saman um
það, að Þjóðvarnarflokkurinn
muni gjalda mikið afhroð í Reykja
vík og ekki komast nálægt því að
fá þingmann kjörinn. Og þar með
er Þjóðvarnarflokkurinn úr sög-
unni og öll atkvæði, sem Þjóðvörn
fær, ekki aðeins hér, heldur og í
öllum öðrum kjördæmum, falla ó-
merk. Á þessu eru menn að átta
sig og verður því vegur Þjóðvarn-
ar lítil..
Hvert atkvæði sem Sjálfstæðis-
flokkurinn og Þjóðvarnarflokkur-
inn fær hér í kjördæminu, eru ó-
gild atkvæði og sömuleiðis þau at-
kvæði, sem Framsókn fær umfram
það sem þarf til að fá báða menn-
ina kosna.
En öðru máli gegnir um Alþýðu.
bandalagið.
Mönnum er það ljóst orðið, að
þingsæti Lúðvíks Jósepssonar er
mjög tæpt. Og það eru aðeins hálf-
ærðir ofstækismenn á borð við Odd
Sigurjónsson, sem ekki viðurkenna
þingstörf Lúðvíks og verðleika
hans. Allir aðrir, hvar í flokki
sem þeir standa viðurkenna að
fyrir þetta kjördæmi væri mikill
skaði að því að missa Lúðvík af
þingi. En þeir verða bara að vera
menn til þess að dragá réttar á-
lyktanir af þessu og tryggja Lúð-
víki þingsæti með því að greiða
honum atkvæði í stað þess að
kasta því á glæ.
Kjörorð framsækinnar aust-
firzkrar alþýðu í þessum kosning-
um er:
Lúðvík skal á þing.
■■■■■*•■•••••■■■»■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■>•■»
AuglýsiS i
Austurlandi
NorSfjarSarbió
Freisting læloiisins
Afar spennandi og athyglis-
verð þýzk kvikmynd. Sagan,
sem gerð var eftir kvikmynda-
handritinu, hefur komið út í
íslenzkri þýðingu.
Sýnd laugardag kl. 9.
Sýnd sunnudag kl. 5.
Houdini
Sýnd sunnudag kl. 3.
Snjórinn varð
svartur
Framúrskarandi ný, frönsk
stórmynd, gerð eftir hinni
frægu skáldsögu „The snow
was black“ eftir George
Sunenon. 1 þessari mynd er
Daniel Gelin talinn sýna sinn
langbezta leik fram að þessu.
Myndin er afar djörf og hrotta-
leg á köflum.
Sýnd sunnudag kl. 9.
Austurland
Ritstjóri: Bjarni Þórðarson.
Kemur út einu sinni í viku.
Lausasala kr. 2.00.
Árgangurinn kostar kr. 60.00
Gjalddagi 1. apríl.
NESPRENT H.P
Norður-Múlasýsla
Framhald af 1. síðu.
Sverrir Sigurðsson er vélstjóri
við hraðfrystihúsið á Borgarfirði.
Hann er Mývetningur að ætt og
uppruna, sonur merkishjónanna
Sigurðar Jónssonar, skálds á
Arnarvatni og Hólmfríðar Péturs-
dóttur frá Gautlöndum. Sverrir er
greindur maður og gegn sem hann
á kyn til.
Síldarstúlkur
Hafsilfur h. f. á Raufarhöfn vantar síldarstúlkur. Kaup-
trygging og fríar ferðir.
Nánari upplýsingar gefur Eeynir Zoega, Norðfirði.
Vinnuskóli
i
Á vegum Bæjarsjóðs Neskaupstaðar verður í sumar rekinn |
j vinnuskóli fyrir drengi 12—14 ára.
■ • . ■
Foreldrar drengja, sem óska að koma þeim þarna að, gefi :
j sig fram við Gunnar Ólafsson, skólastjóra, sem veitir nánari
j upplýsingar um vinnutíma, kaup og annað varðandi þessa starf-
: semi.
■ ;
Bæjarstjóri.
: ,j,
■■niiniimwmMKiHininiiiinuiiiiimiiiiiiUnniniuimnmNiminniiuiiniiiii1111111